Morgunblaðið - 01.04.1959, Qupperneq 15
Miðvikudagur 1. apríl 1959
MORCVyBLAÐlÐ
15
— Hvað gerðist
Framh. á bls. 15.
tem pólitískir flóttamenn. Hins
vegar yrði ekki hægt að taka við
miklum flóttamannastraumi, ef t.
d. helmingur íbúa Tíbets tæki
það ráð að flýja undan ofbeldi
kommúnista.
Sjang Kaí-Sék foringi þjóðern
issinna á Formósu lýsti því yfir,
að þegar Þjóðernissinnar kæmust
aftur til valda í Kína, myndu
þeir viðurkenna sjálfstæði Tí-
bets.
★
Á skírdagsmorgun afhentu
sendiherrar Vesturveldanna og
Vestur-Þýzkalands í Moskvu orð
sendingu til Rússa, þar sem lagt
er til. að fundur utanríkisráð-
herra stórveldanna verði hald-
inn í Genf þann 11. maí n.k. og
skuli hann vera undirbúningur
að fundi æðstu manna stórveld-
anna sem fari fram seinna í sum-
ar.
Á annan páskadag svöruðu
Rússar þessum orðsendingum
með mjög stuttri orðsendingu,
þar sem þeir féllust á fundarstað
og fundardag.
★
Þjóðverjar reiddust mjög de
Gaulle forseta Frakklands fyrir
ummæli sem hann hafði látið
falla um að viðurkenna bæri Od-
er-Neisse-línuna sem austurlanda
mæri Þýzkalands. Hefur mikið
verið skrifað um þetta í þýzk
blöð og finnzt þeim, að de Gaulle
sem að undanförnu hefur leitað
eftir vináttu við Þjóðverja, hafi
svikið þá. Yfirlýsingin kemur
Adenauer í bobba, því að hann
hefur að undanförnu átt miklar
viðræður við de Gaulle og virðist
ekkert hafa minnzt á stuðning
Frakka við endurheimt þýzkra
landssvæða.
★
Selwyn Lloyd utanríkisráð-
herra Breta flaug til Washington
á þriðjudaginn til að undirbúa
ráðstefnu utanríkisráðherra Vest
urveldanna um samstöðu | Þýzka
landsmálinu. í Washington verð-
ur einnig haldinn fundur Atlants
hafsráðsins í tilefni af 10 ára af-
mæli NATO 4. apríl n.k.
★
Bandaríska flotamálaráðuneyt
ið tilkynnti á föstudaginn langa,
að kj arnorkukafbáturinn Skate
hefði farið mikla frægðarför und
ir norður-heimskautsísinn. Hafði
hann siglt nær 5000 km. leið og
sprengt gat á ísinn á norðurheim
skautinu, svo að hann gat komið
þar upp á yfirborðið. Á pólnum
var haldin minningarhátíð um
heimskautafarann Sir Hubert
Wilkins, sem lézt í vetur og ösku
hans dreift á pólnum samkvæmt
hinztu ósk hans.
★
Á föstudaginn langa var til-
kynnt að Búlgaría og Bandaríkin
hefðu ákveðið að taka upp stjórn
málasamband að nýju. Stjórn-
málasambandi var slitið árið
1949, þegar búlgarskir kommún-
istar sökuðu þáverandi sendi-
herra Bandarkjanna um njósnir
og skemmdarverk. Búlgarska
•tjórnin viðurkennir nú, að þær
sakagiftir hafi verið rangar.
★
Bráðabirgðaríkisstjórn var
mynduð á Kýpur laugardaginn
fyrir páska. Eiga sæti í henni 10
ráðherrar, þar af þrír Tyrkir, er
fara með landvarna,- landbúnað
ar- og heilbrigðismál.
★
165 stórir rússneskir skriðdrek-
ar komu til frak á föstudaginn
langa. Á annan páskadag var til-
kynnt að fjórir háttsettir liðsfor-
ingjar í her íraks hefðu verið
teknir af lífi.
★
Einn af helztu foringjum serkn
eskra uppreisnarmanna í Alsír
Amir Hussa féll í bardögum laug
ardaginn fyrir páska. Þar voru
felldir 70 uppreisnarmenn, en 60
teknir höndum.
★
Feikilegir vatnavextir hafa
verið á eynni Madagaskar við
Afríku eftir hálfsmánaðar ofsa-
veður og úrhellisrigningar. Talið
er að 3000 manns hafi drukknað
og 50 þúsund eru heimilislausir.
Bretar taka fullkomna
ratsjá í notkun
Ingi R- Jóhannsson
íslandsmeistari 1959
SKÁKÞING íslands var háð á
tímabilinu frá 21.—30. marz.
Teflt í tveim flokkum, landsliðs
og meistaraflokki.
í landsliðsflokki voru kepp-
endur alls 12. Sigurvegari og
jafnframt íslandsmeistari 1959,
varð Ingi R. Jóhannsson, hlaut
10 v. af 11, tapaði engri skák.
Sýndi hann greinilega yfirburði
yfir andstæðinga sýna og er þetta
í þriðja sinn, sem Ingi hreppir
íslandsmeistaratitilinn, hin fyrri
sinn voru árið 1956 og 1958. Til
gamans má geta þess, að árið
1958 hlaut Ingi 10 v. af 11 og
tapaði engri skák og sýnir þetta
örugga og nákvæma taflmennsku.
Næstir Inga urðu Ingimar Jóns
son, Akureyri og Ingvar Ás-
mundsson, hlutu 8Vz v. Voru
þeir einu keppendurnir sem
veittu Inga einhverja keppni.
önnur úrslit urðu: 4—5. Ben-
óný Benediktsson og Halldór Jóns
son, Akureyri 6% v., 6. Ólafur
Magnússon 6 v., 7. Kári Sólmund
arson 5 v., 8. Þórir Sæmundsson,
Hafnarfirði ZVz v., 10—11. Hauk-
ur Sveinsson og Jón M. Guð-
mundsson 3 v., 12. Reimar Sig-
urðsson IV2 v.
Sigurvegari í meistaraflokki
varð Stefán Briem, hlaut 7Ví v.
af 9 mögulegum og í öðru sæti
varð Jónas Þorvaldsson, hlaut
6V2 v. og hljóta þeir þátttöku-
réttindi í landsliðsflokki.
Teflt var í Breiðfirðingabúð
og tókst framkvæmd mótsins vel.
Skákstjóri var Gísli ísleifsson.
Hraðskákmót íslands hófst í
gærkveldi með undanrásakeppni.
Úrslit fara fram í kvöld og mun
Friðrik Ólafsson taka þátt í þeim.
Verðlaunaafhending mun fara
fram á fimmtudaginn og þá
verða jafnframt afhent verðlaun
úr Skákþingi Reykjavíkur og
Haustmótsins.
LONDON — Það hefur nú verið
tilkynnt, að brezki herinn sé að
fullbúa einhverjar fullkomnustu
könnunarsveitir, sem um getur.
Allmargar sprengju-þotur af nýj-
ustu og hraðfleygustu gerð hafa
verið teknar í þessar sveitir og
búnar alls kyns fullkomnum
njósnatækjum, þ. á. m. mjög
næmum ljósmyndavélum — og
einhverri sterkustu ratsjá, sem
um getur.
Einn af talsmönnum brezka
flughersins hefur látið svo um
mælt, að með hinni nýju ratsjá
og þeim tækjum, sem henni
fylgja, geti ein þota fylgzt dag-
lega með öllum skipaferðum á
Miðjarðarhafi — svo og öllum
flutningum og mannvirkjasmíð-
um á ströndum þess. í einni
nokkurra stunda flugferð getur
þotan sem sé með aðstoð hinnar
fullkomnu ratsjár farið yfir allt
Miðjarðarhaf — og „kortlagt"
það.
Ef skyggni er það gott, að rat-
sjárinnar er ekki þörf, verða
könnunarsveitir þessar búnar svo
hárnákvæmum ljósmyndavélum,
að furðulegt má telja. Þessar
myndavélar eru sérstaklega ætl-
aðar til „kortagerðar“. — Ná-
kvæmni þeirra er slík, að sé
mynd t. d. tekin af litlum flug-
velli úr geysimikilli hæð, er hægt
að telja flugvélarnar á flugvell-
inum, þegar filman er framköll-
uð — og með aðstoð hennar má
gera svo nákvæman uppdrátt af
flugbrautum, að ekki skakki um
eina gráðu á legu þeirra.
Fjórar slíkar þotur gætu á ein-
um degi farið yfir landsvæði sem
svarar til Bandaríkja Norður-
Ameríku að flatarmáli. Gætu
könnunarþoturnar fjórar með að-
stoð hinna nákvæmu athugunar-
tækja sinna, fylgzt með öllum
meiriháttar breytingum á mann-
virkjabyggingum og flutningum
í öllum Bandaríkjunum frá degi
til dags.
Félagsláf
Meistarantót íslands
i körfuknattleik
heldur áfram í kvöld kl. 8 e.h., í
íþróttasal Háskó'lans. Þá leika: i
3. fl., Ármann—I.R.; í ? fl. Ár-
mann b — I.R. — K.K.R.R.
K. R. H. —
Hafnarf jörður, knattspyrnumennt
Æfingartímar fyrir apríi: —
Meistaraflokkur og 2. flokkur,
mánudaga, miðvikudaga og föstu-
daga kl. 6. — 3. og 4. fl., þriðju-
daga og fimmtudaga kl. 6 og
Iaugardaga kl. 2,30. — Allir, sem
langa að spila með í sumar, mæti
á æfingu nú. — Þjálfarinn.
Guðmundur Loftsson
Minningarorð
Iimanfélagsmót
í badminton
í Stykkishólmi
STYKKISHÓLMI, 31. marz. —
Innanfélagsmót í badminton var
haldið í Stykkishólmi á vegum
U. M. F. Snæfell á skírdag og
annan páskadag. Keppt var úr
þrem flokkum og voru keppend-
ur rúmlega 20. Sigurvegarar í
einliðaleik urðu Ragna Hansen,
núverandi íslandsmeistari í ein-
liðaleik kvenna og Steinar Ragn-
arsson.
Lúðrasveit Stykkishólms spil-
aði úti fyrir almenning á Hrepps
túninu kl. 4 á páskadag og var
fjölmenni mikið þar saman kom-
ið. —Árni.
í DAG verður gerð bálför Guð-
mundar Loftssonar bankamanns.
Hahn andaðist að Elliheimilinu
í Hveragerði hinn 22. marz.
Hann var fæddur á Staðarhóli
í Siglufirði hinn 14. marz 1871 og
varð því 88 ára og einni viku
betur að aldri. Foreldrar hans
voru Loftur bóndi Bjarnason, er
lengi bjó á Staðarhóli, og kona
hans Helga Jónsdóttir frá Efra
Ási. Guðmundur gekk í Möðru-
vallaskóla þegar hann hafði ald-
ur til og útskrifaðist þaðan tví-
tugur. Síðan fór hann á búnaðar-
skólann á Hólum og lauk þar
námi; kenndi síðan við þann
skóla 1896-97. Þá sigldi hann til
Kaupmannahafnar og stundaði
þar nám í verzlunarskóla næstu
ár, en að því loknu réðist hann
bókhaldari hjá verzlun J. P. T.
Bryde í Borgarnesi og var þar í
sjö ár. Seinasta árið, sem hann
var þar, kvæntist hann Hildi Guð
mundsdóttur frá Deild á Akra-
nesi Guðmundssonar, en missti
hana fyrir nokkrum árum.
Árið 1906 réðist Guðmundur til
Landsbanka íslands og starfaði
hjá honum síðan. Árin 1919-24
var hann forstjóri útibús bank-
ans á Eskifirði, síðan varð hann
skrifstofustjóri bankans í Reykja
vík 1924-32, og eftir það fulltrúi
við veðdeild bankans til 1939.
Guðmundur var rúmlega með-
al maður á hæð, grannvaxinn og
kvikur í öllum hreyfingum allt
fram á elliár. Hafði hann á sér
yfirbragð hins sannmenntaða
manns, sem er trúr í öllu og ekki
má vamm sitt vita. Hann var
víðlesinn og fjölfróður, en barst
lítt á; kunni þó vel að haga orð-
um sínum í margmenni. Hann
var hugsjónamaður mikill og
þess vegna gekk hann snemma i
Góðtemplararegluna og var þar
ótrauður og árvakur félagsmað-
ur fram til dauða. Hafði hann þá
um 40 ára skeið verið félagi í
stúkunni Framtíðin 173 í Reykja
vík, en auk þess hafði_ hann öll
æðri stig reglunnar. Átti hann
marga trygga vini innan þeirra
vébanda, sem trega hann, en
minnast þó kynningarinnar með
gleði. Og svo mun um aðra sam-
starfsmenn hans, því að hvar-
vetna var hann vel kynntur.
Á.
Somkomur
Fíladelfía
Almenn samkoma kl. 8,30 a8
Herjólfsgötu 8, Hafnarfirði. Allir
velkomnir.
Almenn samkoma í kvöld klL
Boðun fagnaðarerindisins,
HörgshMð 12, Reykjavík, I
kvöld kl. 8.
Kristniboðsliús ið Betanía,
Laufásvegi 13
Almenn samkima í kvöld kt
8,30. — Ræðumenn: Páll Friðriks-
son, byggingarmeistari og Sigur-
steinn Hersveinsson, útvarpsvirki.
AUir velkomnir.
I. O. G. T.
St. Einingin nr. 14
Fundur í kvöld kl. 8,30. Yngrl
stjórna. Kosning og innsetning
embættismanna. — Yngri flokkur
verður með gamanþátt og fleira.
Æðsti teniplar.
Slúkan Sóley nr. 242
Fundur í kvöld kl. 8,30 í Templ4
araihöllinni. Samfelld dagskrá sem
Ása og Victor annast. —
Æðsti teniplar.'
Fataframleiðendur
Klæðskeri óskar eftir atvinnu. Margra ára reynsla
í tilskurði og verkstjórn. Tilboð merkt; „Klæðskeri
— 5114“ sendist blaðinu fyrir 4. apríl.
Iðnfyrirtæki
sem hefur vaxtarmöguleika óskast keypt. Lysthaf-
endur leggi nöfn sín inn til Morgunblaðsins fyrir
5. apríl merkt: „Mikil útborgun — 5109“.
Ungíing |
vantar til blaðaburðar í ettirfalin hverfi
BLÖNDUHLÍÐ og FLÓKAGÖfU
Aðalstræti 6 — Sími 22480.