Morgunblaðið - 18.04.1959, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.04.1959, Blaðsíða 2
2 MORGVNBLAÐ1Ð Laugarclagur 18 apríl 1959 Fólkið á skipinu var búið að vera matarlaust í 2 daga VESTMANNAEYJUM, 17. apríl. ■— í kvölu lauk hrakningum Hol- lendinganna á frystiskipinu Henry Denny, er verið hefur svo mjög í fréttum undanfarna daga. Kom skipið hingað inn á höfnina um klukkan 6,30 Fólkið var allt tekið í land úr skipinu, og voru í hópnum fjögur börn og tvær konur. Var fólkið þreytulegt og voru krakkarnir fatalitlir, því öll þeirra föt voru sjóblaut. Fólkið hafið verið matarlaust í 2 sólar- BLINDRAFÉLAGIÐ hefir undan farið leitað eftir að fá erlenda skemmtikrafta til tekjuöflunar fyrir félagið, einkum til ágóða fyrir byggingarsjóð hins nýja blindraheimilis við Hamrahlíð. Hefur nú verið fenginn til lands- ins amerískur söngkvintett, sem mun halda hijómleika á vegum félagsins í byrjun maí. Söngkvintett sá, er hér um ræð ir, ber nafnið Five Keys og er skipaður fimm ungum negrum. Syngja þeir jöfnum höndum sí- gild dægurlög og lög í rokkstíl og eru mjög vinsælir í Banda- ríkjunum. Þykja þeir hafa sérlega skemmtilega sviðframkomu. Af tilviljun voru þeir félagar lausir Dagskrá Alþingis I DAG eru boðaðir fundir í báð- um deildum Alþingis á venjuleg- um tíma. — Á dagskrá efri -ieild- ar eru þrjú mál. 1. ítala, frv. — 1. umr. 2. Gjaldeyrissjóður og alþjóða banki, frv. — 1. umr. 3. Gjaldeyrissamningur Ev- rópu, frv. — 1. umr. Fimm mál eru á dagskrá neðri deildar. 1. Ríkisreikningurinn 1956, frv. — 3. umr. 2. Tekjuskattur og eignarskatt ur, frv. — Frh. 3. umr. 3. Fasteignagjöld til sveita- sjóða, frv. — 3. umr. 4. Almannatryggingar, frv. — 3. umr. 5. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar, frv. — 2. umr. hringa eða þar um bil. Eigi að síður voru börnin furðu spræk. í íbúðum skipverja var allt á rúfi og stúfi og skemmt af sjó Á skipinu sjálfu voru ekki miklar skemmdir að sjá, brotnir gluggar sem neglt var fyrir, var helzt á- berandi. ömuglegt hafði verið að koma í íbúð skipstjórans, því hún hafði fyllst af sjó. Einnig hafði mikill sjór komist í vélarúmið og höfðu vélstjórarn- ir staðið í sjó upp í hné þegar verst lét. fyrstu vikuna í maí, samkomu- húsið sem þeir voru ráðnir til að syngja í þá viku brann og gátu þeir því skotizt til fslands. Hljómleikar Five Keys hér á landi hefjast í Austurbæjarbíói föstudaginn 1. maí og verða þe:r kl. 7 og 11,15 á hverju kvöldi næstu daga á eftir. Hefur Blindra félagið fengið þá Svavar Gests og Kristján Kristjánsson til að sjá um hljómleikana. Forsala að- göngumiða hefst í Austurbæjar- bíói nokkrum dögum fyrir hljóm- leikana. „Horfðu reiður um öxl i siðasta sinn LEIKRITIÐ „Horfðu reiður um öxl“ verður sýnt í allra síðasta sinn í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Gunnar Eyjólfsson, sem leikur aðalhlutverkið í þessu leikriti er á förum til Ameríku og verður þetta síðásta sýning hans hér- lendis að sinni. SAMÞYKKT hafa verið sem lög frá Alþingi frumvarp þau er dr. Gunnlaugur Þórðarson bar á þingi í vetur um að fyrirtæki og veitingahús beri íslenzk nöfn eða nöfn, sem samrýmist islenzku málkerfi. Ef ágreiningur rís um nafn á slíku fyrirtæki gistihúsi Kona iéll oian af svölum 4. hæðar ÞaS lá sannarlega viff al- varlegu slysi síffdegis í gær, hér í bænum. Kona féll ofan af svöhim á fjórffu hæff, en vegna þess hvemig húsiff er byggt, bjargaði þaff lífi henn- ar. Kona þessi sem heitir Hans ína Hannesdóttir Skúlagötu 56 var úti á svölum ibúffar sinnar þar í húsinu eitthvaff aff sýsla. Þá vildi svo slysalega til aff hún féll út af svölunum. Sval- ir þriffju hæffar hússins eru breiffari en 4. hæffar og skall konan niffur á þær. Var þetta nokkurt fall og kvartaffi konan um þrautir í baki er hún var flutt til rann- sóknar í slysavarffstofuna. Viff falliff hafffi Hansína hlotiff skrámur á höndum og fótum. Frú Hansína hafffi veriff aff þvo glugga af svölum íbúffar sinnar og veriff ein heima er óhappið vildi tU. Hún mun hafa verið að þvo af lausum glugga og haldið um hann er hún féll, því hann tók hún með sér í fallinu. Ekki mun frúin hafa misst meðvitund viff falliff ofaná steynsteypt gólf svalanna á III. hæff. Virff is sem henni hafi skrikaff fótur er hún hafi veriff aff teygja sig út yfir svalirnar meff eða aff lausa glugganum. Ann ar skórinn af fótum hennar lá uppi á svölumim sem hún hafffi falliff af, en meff hinn var hún. f gærkvöldi var frú Hansína flutt í Landsspítalann og hafði líffan hennar veriff slæm vegna þrauta í baki. Annar fyrirlestur Jóns Helgasonar PRÓF. dr. Jón Helgason flytur síðari fyrirlestur sinn við Há- skóla íslands í dag, laugardaginn 18. apríl, kl. 5 e. h., og fjallar hann um brúðkaupssiðabækur. Fyrirlesturinn verður fluttur í há tíðasal háskólans og er öllum heimill aðgangur. Dánarfregn SÖREN R. Kampmann, er lengi var lyfsali í Hafnarfirði, lézt að morgni föstudags, 17. apríl, á 75. aldursári. Var Sören fæddur 13. desem- ber 1884 í Herning á Jótlandi; nam til lyfjasveins í Sorö, en varð síðan cand. pharm. frá lyfjafræðiskólanum í Kaup- mannahöfn 1911. Hann var lyfjafræðingur í Reykjavíkurapóteki 1911—12, í Kaupmannahöfn 1912—15, en síð- an aftur í Reykjavíkurapóteki 1915—17, er hann fékk konungs- leyfi fyrir að mega reka lyfjabúð I í Hafnarfirði. Rak hann Hafnar-1 fjarðarapótek til 1945, er hann fluttist til Danmerkur. Kvæntur var Sören Kamp- mann Lenu, dóttur Guðmundar Olsen, kaupm. og slökkviliðsstj. í Reykjavík, og konu hans, Francisku Olsen, f. Bernhöft. Sören Kampmann hafði legið í sjúkrahúsi í nær hálfan mánuð áður en hann lézt. eða veitingastað, má skjóta hon- um til nefndar, sem starfar sam- kvæmt lögum nr. 33/1953. Lög þessi verka ekki aftur fyrir sig og*rerður því fyrirtækjum og veitingahúsum, sem bera erlend nöfn, ekki gert að taka upp nýtt nafn við gildístöku laganna. — Bj. Guðm. Bandarískur negrakvint- etf kemur hingað á veg- um BSindrafélagsins SoHþykb! lög um að fyi'rtæki og ve'tinguhús beri ís eitzk nöfn Bertolt Brecht, höfundur „Túskildingsóperunnar“ félag Reykjavíkur frumsýnir annaff kvöld. sem Leik- Merkjasala til styrktar þjóðkirkjunni UM aldarfjórðungsskeið hefur þjóðkirkjan stutt starfsemi barnaheimilisins Sólheimar og nýlega var minnzt 25 ára af- mælis þess. Á meðal safnaða landsins hafa árlega verið seld merki þessu og öðru barnastarfi kirkjunnar til eflingar. Hefur stjórn barnaheimilissjóðsins séð um sölu þessara merkja, en nú tekið upp samvinnu við æsku- lýðsnefnd þjóðkirkjunnar um þessi mál. Æskulýðsnefnd þjóðkirkjunn- ar var skipuð af biskupi Islands vorið 1957 og skyldi hún vinna í samráði við biskup landsins að æskulýðsmálum kirkjunnar. — Nefndin hefur þegar beitt sér fyrir ýmsum málum, t. d. safnað gögnum og upplýsingum um þessi mál, heimsótt presta og söfnuði, hafið útgáfu æskulýðs- blaðs, unnið er að útgáfu söng- bókar fyrir æskufólk, efnt til æskulýðsmóta og æskulýðsdags meðal skólaæskunnar, efnt til jólasöngva. Þá hafa sumarbúðir starfað að Löngumýri í Skaga- firði og nú er unnið að byggingu sumarbúða og skóla í Skálholti, þar sem börnum og unglingum verður í framtíðinni búinn stað- ur til náms, sumardvalar og móta á kristilegum grundvelli. Er þetta hið þarfasta málefni og þegar mikill áhugi á því meðal ýmissa áhugamanna og er þess að vænta, að það hljóti almenn- an stuðning. I vor munu þessi merki verða seld víðs vegar um landið, en nk. sunnudag verður efnt til merkja- sölu sérstaklega í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði máli þessu til stuðnings. Kvenfélög í hinum ýmsu söfnuðum þessara bæja hafa veitt ötulan stuðning við sölu merkjanna og verða merkin afhent börnum á eftir- töldum stöðum: Reykjavík: Að Hólatorgi 2, sunnudag, kl. 10—12; að Lindar- götu 50, sunnudag, kl. 10—12; í félagsheimili Neskirkju, laugar- dag, kl. 6—8 e. h.; í Melaskólan- um, sunnudag, kl. 10—12 f. h.; í Sjómannaskólanum, sunnudag, kl. 9—12 f. h.; í Eskihlíðarskóla, sunnudag, kl. 9—12 f. h.; í Háa- gerðisskóla, sunnudag, kl. 10—12 f. h.; í húsi UMFR við Holtaveg, sunnudag, kl. 10—12 f. h. og í húsi KFUM, Kirkjuteigi 33, sunnudag, kl. 10—12 f. h. Kópavogur: I báðum barna- skólunum, sunnudag, kL 9—11 fyrir hádegi. Hafnarfjörður: í skátaskólan- um, laugardag, kl. 5—7 e. h. Auk sölulauna verða þeim börnum, sem mest selja veitt sér- stök söluverðlaun. Vetrarlegt SIGLUFIRÐI, 17. apríl. Hér er vetrarlegt um að litast í dag, snjór yfir öllu, og bílar á keðjum um allar götur. Veðrið er bjart í dag og ólíkt því sem verið hefur. I fyrrinótt var hið mesta óveður, svo að þakplötur tók af þrem húsum. Þá nótt gekk á með dimm um éljum. Spenningurinn og tvísýn- an eykst að Hálogalandi I KVÖLD fara fram 4 leikir að Hálogalandi og er sá fyrsti raun- verulegur úrslitaleikur en tveir þeir síðustu hafa mikil áhrif á úrslit Mfl. 1. deild. Fyrsti leikurinn sem er milli K. R. og Þróttar í 1. fl. kvenna er úrslitaleikur voru ekki fleiri lið með í þessum flokki. Annar leikurinn sem er milli Víkings og Ármanns í 3. flokki B-riðils hefur ekki áhrif á úrslit in þar sem Ármann hefur þegar unnið riðilinn. Þriðji leikur kvöldsins er milli Fram og K. R. í Mfl. karla 1. deild og verður þessi leikur væntan- lega mjög spennandi því Fram mun nú ekki fá annað tækifæri í þessu móti að ná í 2 stig til að halda sér í 1. deild. Ef Fram vinnur K. R. verður það leikur- inn milli Vals og Ármanns á fimmtudag sem sker úr um hvaða lið fellur niður í 2 deild. Valur Benediktsson á að dæma leikinn. Síðasti leikur kvöldsins verður væntanlega einnig spennandi, þá mætast FH og ÍR. Þessi lið hafa bæði sýnt léttan og hraðan leik. Ekki var ákveðið þegar síðast fréttist hver á að dæma leikinn en vonandi verður vandað til valsins. Á sunnudagskvöld fara svo fram þessir 4 leikir að Háloga- landi, í 2. fl. kvenna leika K. R. og Fram, 3. fl. karla I.B.K. og Valur, 2. fl. karla Vík. Ármann, Mfl. kdrla II. deild ÍBK Aftur- elding. f íþróttahúsi Vals verður leikin síðasta umférð í B-mótinu. Þar er því miður ekki hægt að leyfa áhorfendum aðgang en áhorfend ur munu væntanlega fjölmenna á handknattleiksmótið um helgina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.