Morgunblaðið - 18.04.1959, Page 6

Morgunblaðið - 18.04.1959, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 18. apríl 1959 Til sölu Vegna llutninga er til sðlu eftirfarandi Mahogny-borðstofuhúsgögn, StáJhúsgögn í borð- brók, General Electríc þvottavél. Upplýsingar í síma 13480 eða 10930. Nýkomnar Aluminínum allskonar svo sem Katlar, Könnur, Pott- ar, Skaftpottar, Pönnur. Húsvogir, ásamt miklu úrvali af ýmiskonar eldhúsáhöldum sem ómissandi eru á hverju heimili. Verzl. B. H. Bjarnason Lögtaksúrskur&ur Samkvæmt krö.fu bæjargjaldkerans í Hafnaríirði, úr- skurðast hér með lögtak fyrir útsvörum til Hafnarfjarð- arkaupstaðar, sem greiða ber fyrirfam árið 1959 hjá þeim gjaldendum sem eigi hafa greitt að fullu útsvars- hluta þá, er í gjalddaga féllu 1. marz og 1. apríl s.l. Lögtakið verður framkv. að 8 dögum liðnum, frá dag- setningu úrskurðar þessa, ef ekki verða gerð skil fyrir þann tíma. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði 16. apríl 1959 Björn Sveinbjörnsson settur Ml.'IGOL" er sérstaklega gott efni á steinsteypta húsgrunna og annarstaðar þar sem hætt er við ágangi vatns eða raka. fyrirliggjandi. J. Þorláksson & Norðmann h.f. Bankastræti 11 — Skúlagötu 30. N ý k o m i & Plastic efni fjölda margar tegundir mjög fallegt lita- úrval, sem ekki hefur sést hér áður. Ennfremur vaxdúkur í metra tali fimmtíu mismun- andi „munstur“. Einnig vaxdúkur afpassaður í hill- ur fjölda margir litir. Verzl. B. H. Bjarnason Fyrirliggjandi Topplyklasett með m/m máli og tommumáli, einnig lausir toppar með sama máli. Stjörnulyklasett fleiri stærðir, einnig mikið af öðr- um verkfærum, sérstaklega fyrir bifvélavirkja, og margar nýjungar á leiðinni sem munu koma bráð- lega. Verzl. B. H. Bjarnason N ý k o m i ð Allskonar verkfœri Svo sem Hamrar, Sagir, Skrúfjárn, Sporjárn, Heflar, Skrallskrúfjárn, Borar allskonar, einnig færanlegir Borar, Trésmíðaþvingur fleiri stærðir, Vinklar, Tangir allskonar, Naglbítar, Þjali og fjölda margt annað sem of langt er upp að telja. Verzl. B. H. Bjarnason — Efnahagsmálin Framhald af bls. 3 in hefur safnað, komið fyrir ai- mennings sjónir. Ólafur Björnsson sagði að lok um, að það væri æskilegt, ef ein hver af þeim fyrrverandi ráð- herrum, sem væri þessu kunnug ur, vildi upplýsa, hvaða störf þessi nefnd hefði unnið. ★ Jón Pálmason tók næstur til máls. Kvað hann sýnt, að með af- greiðslu þessa ríkisreiknings yrði eins og oft áður, að engar sér- stakar ráðstafanir myndu gerðar í tilefni af samþykkt hans. Væri þetta að vissu leyti vorkunn. Á hverju ári þegar ríkisreikningur- inn hefði verið til meðferðar, hefði blasað við annað verra. Fjárlög hefðu hækkað með hverju ári, sem hefði liðið og þá jafn- framt ríkisreikningarnir. Þessi rekningur væri svartasta plagg, sem Alþingi hefði enn haft til meðferðar, en von væri á öðru verra. Þá vék Jón Pálmason að ein- stökum atriðum reikningsins og skýrði frá því, að rekstrargjöld hefðu hækkað um 141 millj. kr. frá árinu áður. Útgjöld hefðu hækkað um 135 millj kr. sam- kvæmt sjóðsyfirliti, en árið 1956 hefði þó verið tekið út úr ríkis- reikningnum það, sem varið hefði verið til uppbóta og niður- greiðslna og fært á framleiðslu- sjóð, en hækkun á þeim lið hefði numið 137 millj. kr. frá árinu áður. Hér væri því raunverulega um að ræða 262 millj. kr. hækkun á útgjöldum rikissjóðs frá árinu áður og væri það stærsta stökk, sem enn hefði verið tekið í okk- ar f jármálum. Athugasemdir þær, sem gerðar hefðu verið við ríkisreikninginn væru einkum tvennskonar. Væru það athugasemdir við umfram- greiðslur og athugasemdir við ó- innheimtar skuldir i árslok, en sú skuldasöfnun næmi nú mörg- um milljónatugum og væri glöggt dæmi um óreiðu. Þá gat Jón Pálmason um þær sérathugasemdir, sem hann hefði gert við ríkisreikninginn að þessu sinni og sem sumpart stafaði af því, að hann hefði verið veikur um tíma meðan á endurskoðun reikningsins stóð. Þá gagnrýndi Jón Pólmason það, að reikningur útflutnings- sjóðs skyldi ekki fylgja ríkis- reikningnum og einnig það at- riði, að hinar ýmsu stofnanir ríkisins skyldu ekki taka tillt til þess hvernig fjáirlög væru og ekki haga útgjöldum sínum i samræmi við það, sem gert væri ráð fyrir í fjárlögum. Eysteinn Jónsson, fyrrv. fjár- málaráðherra, tók næstur til máls. Kvað hann orrustu hafa verið háða til að koma í veg fyr- ir umframgreiðslur. En verðbólg- an hefði vaxið ár frá ári og því hefðu fjárlög ekki staðizt. Verð- bólgan hefði einnig gert erfiðara fyrir að fylgjast með því, hvað raunverulega færi í umframút- gjöld. Eysteinn Jónsson sagði að Jón Pálmason væri mjög hlutdrægur endurskoðandi ríkisreikninga og hefði hann hagað athugasemdum sínum mjög eftir því hver væri fjármálaráðherra. Sérathuga- semdir hans við þennan reikning sýndu að hann ynni starf sitt ekki til að fá heildaryfirsýn, held ur til að geta komið með slettur og hann vidli geta sýnt fram á að öll umframgreiðsla væri Ey- steini að kenna. — Að lokum vék ræðumaður máli sínu til Ólafs Björnssonar og kvaðst ekki fyr- irvaralaust geta gefið upp sund- urliðaðan kostnað á störfum efnahagsmálanefndar fyrrver- andi ríkisstjórnar. Skúli Guðmundsson kvaðst vera sammála Jóni Pálmasyni um það, að hægt væri að gera lagfæringar á ríkisreikningnum til hagsbóta fyrir rikissjóð. Jón Pálmason talaði aftur. — Eysteinn Jónson virtist leggja á- herzlu á að sýna að ég væri hlut- drægur sem endurskoðandi ríkis- reikninga, sagði hann. Meðal ann arra er að þessari endurskoðun hafa starfað með mér er Jörundur Brynjólsson, flokksbróðir Ey- steins o.fl. Við höfum alltaf gert okkar athugasemdir sameiginlega og það stenzt ekki að þar sé um hlutdrægni að ræða af minni hálfu , nema menn trúi því, að ég hafi gert athugasemdirnar og hin ir hafi samþykkt þær. Eysteinn Jónsson kvaðst ekki hafa átt við hlutdrægni Jóns Pálmasonar í athugasemdunum heldur þær ásakanir, sem hann hefði borið á sig á Alþingi í sam- bandi við umræður um ríki3- reikningana. Jón Pálmason gerði athuga- semd og kvað það ekki nýtt, að Eysteinn Jónsson væri fljótur að snúa sinni snældu. Hann hefði i fyrri ræðu sagt sig hlutdrægan við störf, en nú segði hann sig aðeins hafa verið híutdrægan i umræðum um rikisreikningana. Eysteinn Jónson gerði athuga- semd og sagði að Jón Pálmason hefði sem endurskoðandi rikis- reikninga flutt á sig ádeiluræður á Alþingi. á Eyjaf jallajökul I DAG, laugardag, gengst Ferðaskrifstofa Páls Arasonar fyrir hópferð austur að Eyjafjöll- um, og mun verða gengið á Eyja- fjallajökul. — Lagt verður af stað frá ferðaskrifstofunni við Hafnarstræti kl. 2 e. h. í dag. Verður þá ekið austur að Selja- völlum undir Eyjafjöllum, en það an verður síðan gengið á jökulinn á morgun, en komið til Reykja- víkur aftur einhvern tíma um kvöldið. — Að Seljavöllum er heit laug, Seljavallalaug, og hefir margur ferðalangurinn notið hressandi baðs þar að lok- inni fjallgöngu. Ferðaskrifstofa Páls hefir oft áður gengizt fyrir ferðum á þess- ar slóðir, og hefir þátttaka jafn- an verið mikil ,enda er fagurt víða undir Eyjafjöllum, og út- sýni er mikið og gott af jöklmum í góðu skyggni. skrifar úr daqlegq lífinu Endurnar séu betur verndaðar Kjartan Ólafsson, brunavörður, skrifar: VELVAKANDA þykir það nú kannski ekki skemmtilegt umræðuefni, að skrifað sé um útileguketti í pistlum hans dag eftir dag. En um og ég þakka J. S. ágæta grein hans nú nýlega, um þessi skaðræðisdýr, langar mig að beina málaleitun þessari til réttra aðila. Svoleiðis er mál með vexti, að á grunni Búnaðarfélagsins við Tjömina eru loftgöt, sem einu Sinni hefur verið lokað með rist, en hún er nú fyrir löngu brotin. Inn um þessi göt skjótast nú villi- kettir i stórum stíl, og hafa þarna rúmgott og öruggt athafnasvæði. Væri vel ef ráðamenn þessa húss létu setja ristar í þessi loftgöt til að fyrirbyggja þennan ófögn- uð áður en endurnar fara að koma með unga sina þarna á Tjöruina og stéttina fyrir framan. J. S. minnist ennnfremur á þörfina fyrir fleiri hólma í Tjörn ina, og eru áreiðanlega margir þar honum sammála. Síðastliðinn vetur skrifaði ég bæjarráði bréf, Verksmiðjuvinna Ungur maður, um tvítugt. get- ur fengið atvinnu í Coca-Oola verksmiðjunni. Alger reglusemi áskilin. — Upplýsingar lijá ve rksm ið j ust j óra. — Vetksmiðjan Vífilfell og bað um hólma í syðri Tjörn- ina, vegna fjölgunar fuglategunda og ekki sízt þar sem æðarfugl hafði nú bætzt í hóp allra anda- tegundanna. Bæjarráð tók þessu vel, eins og vænta mátti og sendi bréfið til Finns Guðmundssonar, fuglafræðings, en hann lagði ein- dregið á móti því að hólmi yrði byggður þarna, en benti á vernd- að svæði, sem varpland innan girðingar fyrir sunnan Hring- brautina, sem J. S. minnist á, og þar sem fuglinn hefur auðvitað engan frið. Síðan hef ég álitið Finn meiri fuglafræðing en fugla vin. En ég ætla að gera aðra til- raun, ef ég lifi næsta vetur, og þá fá fleiri í lið með mér, og biðja bæjarráð um myndarlegan hólma í syðri tjörnina til góða fyrir fuglalífið þar“. Göngnm við í hæfilega þykkri skel? EKKERT er áreiðanlegt. Sjald- an hefur það komið betur í ljós en á þessum síðustu framfara og þróunartímum. Nú er ekki hægt að reiða sig á neitt. Jörðin er meira að segja ekki hnöttótt. Hún kú vera í laginu eins og pera. Með braut sinni sannaði Vaneuard flueskeyti. sem sett var á loft í marzmánuði sl., að sjáv- armál Norður-Pólsins er 50 fet- um lengra frá jarðarmiðju en áð- ur hafði verið haldið, og að Suður Póllinn er álika mikið nær miðju. Ennfremur mun norðurhelmingur jarðarinnar íhvolfur um 25 fet, en suðurhelmingurinn bungar álíka mikið út. Nú getur Velvakandi ekki al- mennilega gert sér grein fyrir því hvort beri að gleðjast yfir þessu eður ei — hvort þetta gef- ur til kynna að við sitjum á ör- þunnri skorpu utan á heitum, vellandi „massa“ eða hvort það bendir til þess að skelin sé held- ur þykkari og öruggari. Einhvern tima, þegar allir voru enn sann- færðir um að jörðin væri hnött- ótt og Velvakandi var í skóla, hafði kennarinn orð á því, að líklega væri jarðskorpan svo þunn að hún sigi undan þungum og miklum landsvæðum. Og er ekki einmitt miklu meira af lönd um á norður- en suður-helm- ingnum. Samkvæmt þessari kenn ingu er því ekkert eðlilegra en að norðurhelmingurinn sé íhvolf- ur. Aftur á móti segja prófessor- arnir, sem nýlega gáfu skýrslu um lögun jarðarinnar, að þessi nýja uppgötvun gæfi til kynna að heita grjótið, sem styður jarð- skorpuna, geti ekki látið mjög vel undan, því seigfljótandi efni mundi ekki vera nægilega sterkt til að halda þessu í lagi á jörð- inni. Og sennilega verða bæði Vel- vakandi og gamli kennarinn hans að beygja sig fyrir vizku þeirra. Enda er það miklu „huggulegra'* að hugsa til þess að við göngum á sæmilega þéttri skel.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.