Morgunblaðið - 18.09.1959, Side 3

Morgunblaðið - 18.09.1959, Side 3
í'östudagur 18. sepí. 1959 morcvwbt/aðið 3 Séð út um neðra op Jarðganganna við Efra-Sog. Mótið, sem notað er til þess að steypa eftir veggi og loft ganganna, stendur fyr- ir iraman opið, en fjærst sést uppslátturinn við aðalinntakið í stöðvarhúsið. — Stór krani er notaður við að reisa uppsláttinn. — . Myndirnar tók vig. Vonandi verður jólagjdfin: Rafmagn frá Efra-Sogi 1 GÆR brá tíðindamaður blaðsins sér austur að Efra- Sogi til þess að frétta af því hvernig framkvæmdir gengju þar eftir skemmdirnar sem urðu af flóðinu í júní í sumar, er varnarstíflan við Þing- vallavatn sprakk og vatnið flæddi gegnum hin 350 metra löngu jarðgöng og skall á vélahúsinu og olli þar með töf og tjóni á hinu þýðingar- mikla mannvirki. Sogsstíflan hálfnuð Árni Snævarr verkfræðingur fylgdi mér um svæðið og sýndi mannvirkin. Fyrst fórum við norður að Þingvallavatni og skoð uðum stífluhlutann, sem búið er að byggja fyrir Sogið. Lokið er við helming hennar og er verið að koma fyrir lokum í flóðgátt- ina. Starfsmennirnir létu glóandi hnoðin ganga á milli sín og not- uðu við það skaftlangar tengur, en lofthamar hnoðaði boltana í stálþilið. Eftir er svo að byggja hinn helming stíflunnar, sem mun alveg loka Soginu, en það verk verður ekki unnið fyrr en næsta vor. Lokið er nú að slá upp fyrir lnntaksmannvirkinu við efra op ganganna, en þar verður komið fyrir lokum svo hægt sé að loka göngunum ef þurfa þykir. Lokið við gólfið í göngunum I gær var einmitt verið að steypa síðasta kaflann af gólfinu í göngunum og innan skamms verður síðan haldið áfram að fóðra göngin innan með steypu- lagi, bæði hliðar og loft. Áður var búið að ganga að fullu frá einum þriðja af jarðgöngunum eða 120 metrum. Verið er nú einnig að vinna að því að setja steypulag innan í jöfnunarþróna, sem er við neðra op ganganna og jafnframt er verið að byggja að- alinntakið í vélahúsið og er það verk vel á veg komið. Þá er unnið að byggingu húsa fyrir vélgæzlumenn stöðvarinn- ar, en þau standa á uppfylling- unni vestan við stöðvarhúsið. Er annað þeirra þegar fokhelt. Vélar settar upp Inni í stöðvarhúsinu er unnið að uppsetningu véla og tækja og er þegar lokið að setja túrbínurn- ar upp en verið að koma fyrir rafölum og öðrum rafbúnaði. Af þessu má sjá að unnið er af miklum krafti við framkvæmd- irnar við Efra-Sog. Ekki verða nú lengur greind nein vegsum- ( merki þeirrar eyðileggingar, sem varð við flóðið í sumar. Verkinu er á öllum stöðum komið miklum mun lengra en var áður en flóð.ð skall á. Hjá verktökunum, sem annast byggingu mannvirkisins eru nú um 170 manns í vinnu, en auk þess eru 80 manns, sem vinna að vélauppsetningu og linubyggingu á vegum Sogsvirkjunarinnar. Auk þess sem ég ræddi við Árna Snævarr gafst mér tæki- færi til þess að leggja nokkrar spurningar fyrir Kay Langvad verkfræðing, framkvæmdastjóra verktakafyrirtækisins. Sex vikna töf Spurði ég hann m. a. hve hann teldi að verkið hefði tafizt við það að stíflan í Þingvallavatni sprakk. Taldi hann að í heild svaraði sú töf 2 % mánuði og væri þar fyrst og fremst um að ræða töf á ýmisskonar ytri frágangi raforkuversins. Hins vegar myndu vélar rafstöðvarinnar komast í gang 6—7 vikum seinna en ella hefði orðið, ef ekkert óhapp hefði viljað til. Að öllu þessu athuguðu telja þeir verkfræðingarnir að raf- stöðin geti tekið til starfa um jól í vetur. Þetta er þó háð því að tíðarfar verði ekki einmuna siæmt og jafnframt, að ekki verði hörgull á starfsfólki, bæði fag- lærðum mönnum og verkamönn- um. Eins og stendur er skortur á starfsfólki. Sögur um eyðileggingu ýktar Við flóðið varð engin eyðilegg- ing á vélum orkuversins, sem þeg ar var búið að setja upp, og mjög lítið af því, sem að mestu eða öllu var frágengið, lét sig. Hins vegar skemmdust uppslættir og verk er skammt voru á veg kom- in. Sögusagnir þær, sem gengið hafa um eyðilegginguna við Efra- Sog eru margar hverjar mjög ýktar, bæði fjártjón af þeim sök- um og töf sú er verður á því að stöðin taki til starfa. Sem fyrr segir nemur töfin 6—7 vikum frá fyrri áætlun og starfsáætlanir eru nú miðaðar við að rafmagn frá Efra Sogi komi sem jólagjöf. Vonandi er að það takist. — vig. SIAKSTEIMR „Hentistefna og óheiðar- legur hringlandaháttur Framsóknar í varnar- málunum“ TJndir þessari fyrirsögn segir Alþýðubiaðið í fyrradag: „Tímanum er svo mikið áhuga- mál að nota vandræðin á Kefla- víkurflugvelli til pólitískra árása, að blaðið dró í þrjá daga að birta leiðréttingar frá Fram- sóknarmönnum, sem stjórna varnarmáladeild. Var þessi drátt- ur sýnilega viljandi gerður til að blaðið gæti truflunarlaust haldið áfram að fara með blekkingar og rangfærslur um málið. Varnarmáladeild, sem er ein- göngu skipuð Framsóknarmönn- um, sendi Tímanum leiðréttingu á viðtali við flugmálastjóra og staðfesti, að hann hefði svikizt um að láta rétt, íslenzk yfirvöld vita um atburðinn við flugskýlið fyrr en á þriðjudag. Þessa leið- réttingu skrifaði varnarmála nefnd 10. september, en af dular- fullum ástæðum birtist hún ekki fyrr en 13 — eftir að lögreglu- skýrslan hafði upplýst málið. Af hverju gat Tíminn ekki birt ies- endum sínum sannleikann fyrr?44 Alvarlegar ásakanir Þessi ummæli málgagns utan- ríkisráðherra eru harla lærdóms- rík. Þar er því haldið fram að: 1) Tíminn sé staðinn að „blekk ingum og rangfærslum“. Þetta er engin nýjung, en er eftirtektar- vert vegna þess nána sambands, sem til skamms tíma var á milii Alþýðublaðsins og Timans. Tim- inn reynist öllum illa og verst þeim sem honum hafa bezt treyst. 2) Flugmálastjóri hafi „svikizt um skyldu“ sína. Þessi ásökun er svo alvarlegs.eðlis, að ekki verð- ur unað við annað en það mál sé upplýst hlitar. 3) Varnarmáladeild sé „ein göngu skipuð Framsóknarmönn- um“. Hér er að vísu einungis staðfest það, sem áður var vitað. En málgagn utanríkisráðherra mundi naumast leggja slíka áherzlu á þetta nú, nema þess hefði orðið alvarlega vart i starfi þessara manna af hverju sauða- húsi þeir eru. ,,Kom aldrei upp nema girðingarbútum“ Alþýðublaðið heldur áfram: „Þar er furðulegt gort, sem Tím inn birtir dag eftir dag þess efn- is, að dr. Kristinn Guðmundsson hafi gert einhver kraftaverk, meðan hann stjórnaði varnarmál unura. Sannleikurinn er sá, að doktorinn setti engar reglur um ferðir hermanna — það gerðu Ameríkumenn sjálfir. Oft mikl- ast Tíminn yfir girðingu, sem doktorinn eigi að hafa látið setja umhverfis völlinn, en sannleikur- inn er sá ,að hann kom aldrei upp nema girðingarbútum ,sem aldrei náðu alla leið umhverfis flug- völlinn. Almenningur fordæmir óheið- arleik og hringlandahátt Fram- sóknar í varnarmálunqm. Flokk- urinn rekur þar ómerkilegustu hentistefnu, sem hugsazt getur“. Við þessa frásögn er það að at- huga, að sök dr. Kristins er fyrst og fremst sú, að hann lét mis- nota nafn sitt. Sjálfur er maður- inn saklaust góðmenni, er ekki varaðist að Hermann Jónasson hafði hann að leiksoppi. Hann gerði aldrei neitt nema að fyrir- Iagi Hermanns. Raunverulega er það Hermann, sem ber ábyrgöina á því gróða- bralli og fálmi er á þessu tímabili einkenndi meðferð varnarmál- anna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.