Morgunblaðið - 18.09.1959, Síða 20

Morgunblaðið - 18.09.1959, Síða 20
VEORIÐ Allhvass SA — rigning’. Í204. tbl. — Föstudagur 18. september 1959 Höfundur Njálu Sjá bls. 11. Herlögregla stöbvar bíl á flugvellinum í GÆRDAG gerðist það á Keflavíkurflugvelli, að her- lögregla varnarliðsins stöðv- aði bílstjóra á leigubíl frá Keflavíkurbæ. Töldu lögreglu mennirnir að ökumaður bíls- KOSNINGASKFIF- STOFA SJÁLF- STÆÐISFLOKKSINS í REYKJAVÍK er í Morgunblaðshús- inu, Aðalstræti 6, II. hæð. — Skrifstofan er opin alla daga frá kl. 10—18. — k ★ 'k Stuðningsfólk flokksins er beðið að hafa sam- band við skrifstofuna og gefa henni upplýs- ingar varðandi kosn- ingarnar. 'k ★ 'k Athugið hvort þér séuð á kjörskrá í síma 12757. k ★ -k Gefið skrifstofunni upp- lýsingar um fólk sem verður fjarverandi á kjördag, innanlands og utan. k ★ k Símar skrifstofunnar eru 13560 og 10450. ins hefði ekið með ólöglegum hraða. Höfðu herlögreglu- menn veitt bílnum eftirför og loks króað bílinn af. íslenzkir lögregluþjónar komu brátt á vettvang. Lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli kom til skjalanna og tók hann sjálfur í sínar hendur rannsókn máls- ins og stóðu yfirheyrslur yfir er blaðið leitaði frétta í skrif- stofu lögreglustjóra síðdegis í gær. • Frásögn útvarpsins 1 gærkvöldi skýrði útvarp varnarliðsins frá atburði þessum. Gat það þess að leigubíllinn hefði ekið með um 50 mílna hraða um svæðið næst barnaskóla varnar- liðsins, en þar er hámarkshraði leyfður 20 mílur. Hefðu herlög- reglumenn veitt bifreiðinni eftir- för þar eð bílstjórinn hefði neit- að að stanza og hafi lögreglan stöðvað bílinn við stæði leigubíla þar á flugvellinum. Sagði útvarp- ið að ökumaðurinn hefði með akstri sínum um þetta svæði, sýnt mikið gáleysi. • Engin tilkynning í gærkvöldi hafði ekki borizt nein tilkynning frá lögreglustjór- anum á Keflavíkurflugvelli varð andi miál þetta. Fregnin af þess- um atburði hafði borizt stjórnar- ráðínu skömmu eftir að hann átti sér stað. .LONDON, 17. sept. — Brezki Rauðikrossinn hefur veitt 500 sterlingspund til alsírskra flótta- manna í Marokkó og Túnis. Er þetta gert samkvæmt tilmælun bandalags Rauða Krossins í Genf. — ★ — KAUPMANNAHÖFN, 17. sept — Danska ríkisstjórnin hefur nú í undirbúningi neyðarráðstafamr til þess að veita aðstoð um 200 þúsund bændum í landinu, sem hafa orðið illa úti vegna langvar- andi þurrka. Oýpsta vatn landsins FYRIR nokkru birtum við hér í biaðinu frétt um að' Hvalvatn fyrir botni Hval- fjarðar væri hið dýpsla á landimi, en áttum þá því mið- ur ekki mynd af því. Nýlega fór tíðindamaður blaðsins í flugvél yfir Hvalvatn og tók þessa mynd. Eins og Sigurjón Rist skírði frá I samtali við blaðið á dögunum er Hval- vatn 160 m. djúpt og því dýpsta vatn landsins, sem enn hefir verið mælt. Það er hins vegar aðeins 3,4 ferkm. að yfirborðsstærð eða um tí- undi hluti af yfirborðsstærð Mývatns, en sakir þess hve djúpt það er, er vatnsmagn- ið í því þrisvar sinraum meira en Mývatni. Hér blasir þá við okkur þetta litla, en þó stóra vatn. Til hægri á myndinni liggja rætur Hvalfells út í vatnið, en efst á myndinni t.h. sér suður til Botnsúlna. — Ljósm.: vig. Skipshöfnin rauð- vínslaus í Faxaflóa I GÆRDAG lagðist að Faxagarði hér f Reykjavík 2000 tonna olíu- skip. Skipshöfnin var bersýnilega orðin þreytt og jafnvel vonleys- issvipur á hinum suðrænu andlit- um þeirra. Skýringin kom brátt á þessu. Hér var um að ræða franskt olíuskip, sem haft hefur svo langa útivist að áilar rauð- vínsbirgðir voru þrotnar. ☆ Forsaga þess að þetta skip er hingað komið er ekki löng. Það hafði tekið benzín og olíu í Kaup mannahöfn og átti að sigla til Angmagsalik og landa farminum þar. En þegar nær dró Grænlands strönd fór ísinn að gera vart við sig. ísinn þéttist æ meir eftir því sem lengra var haldið, unz ekki varð lengra komizt. Var þá snú- ið til baka úr ísnum og beðið átektar. Við ísröndina hafði skip- ið legið samfellt í fimm daga, en ekki opnaðist leiðin inn til Ang- magsalik. Þá var tekin ákvörðun um að snúa skipinu og sigla til íslands. Var það gert. Fyrir fimm dögum var komið inn í Faxaflóa og þar beið skipið þar til í fyrra- dag. Á meðan var að því unnið að fá að landa hér farmi skipsins og það tókst. í gær var siglt inn að stöð BP við Laugames og farm inum landað í stöð Olíuverzlun- arinnar á Köllunarkletti. f gær kom skipið svo upp að Faxagarði og þar skýrði skip- stjórinn frá því, að rauðvíns- birgðir skipsins hefði þrotið er skipið kom inn í Faraflóa á dög- xmum og hefðu skipsmenn orðið að drekka vatn! Skipstjóranum sem er maður um þrítugt hafði tekizt að fá hér farm í skip sitt og mun það fara á nokkrar hafnir, Akranes og Akureyri og jafnvel víðar og taka lýsi. Skipið heitir Port de Bouc. Réðist á telpu- barn i rumi TUTTUGU og eins árs gamall piltur var í gærdag úrskurS- aður í 40 daga gæzluvarðhald og til að undirgangast geðheil ’ brigðisrannsókn á því tíma- bili. Hafði hann lagt hendur á sjö ára telpu. Þetta gerðist vestur í hæ í fyrrinótt. Maðurinn, sem var undir áhrifum áfengis, rangl- aði inn í íbúð í fjölbýlishúsi því er hann á heima í. Hafði forstofuhurðin verið kvik- læst. Þar var ljós í forstof- unni. Þar sá hann blómavasa, tók hann og fór inn í lítið her- bergi. Sá hann að þar svaf stúlka, taldi fyrst að hún myndi vera 15—16 ára. —. Kvaðst hann hafa sezt á rúm- stokkinn hjá henni, en þá um leið séð, að barn var í rúm- inu. Það vaknaði nærri því um leið, og hrópaði upp yfir sig af hræðslu. Maðurinn varð þá óttasleginn og sló hann telpuna í höfuðið með blómavasanum og greip fyrir vit hennar. Við ópin hafði faðir telpunnar vaknað og kom hann að árásar- manninum haldandi fyrir vit telpunnar, sem var alblóðug í framan eftir áverkan undan högg inu. Faðir telpunnar handtók ár- ásarmanninn og gerði lögregl- unni aðvart. Rannsóknardómarinn, sem tók málið fyrir í gær, úrskurðaði manninn til gæzluvarðhalds sem að ofan greinir. Ekki hefur ár- ásarmaðurinn áður komið við sögu lögreglunnar, svo að vitað sé. — —• Keres voitn í GÆR var tefld í Bled sjö- unda umferð skákmótsins þar og er þá fyrstu atrennu móts- ins lokið. Friðrik Ólafsson, sem tefldi við Keres, tapaði skák sinni og eins hafði Benkö tapað fyrir Tal. Aðrar skákir fóru í bif FulltrúaráSs- fundur í kvöld í KVÖLD kl. 20.30 heldur Fulltrúaráð Sjálfstæðisfé- laganna í Reykjavík fund í Sjálfstæðishúsinu. Á fundinum mun kjör- nefnd fulltrúaráðsins leggja fram tillögur sínar I s s s s s ) s i um framboðslista Sjálf- \ stæðisflokksins í Reykja- i vík við næstu alþingiskosn- s ingar. s Meðlimir fulltrúaráðsins | eru minntir á að sýna skír- ! teini sín við innganginn. — s

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.