Morgunblaðið - 14.10.1959, Blaðsíða 16
16
MORCVISBLAÐIÐ
Miðvikudagur 14. okt. 1959
Skuldabréf
Til sölu er eitt skuldabréf að upphæð kr. 80.000,00,
útgefið af Bæjarsjóði Reykjavíkur til 5 ára 7%
ársvextir. 20 afföll. Tilboð merkt: Skuldabréf —
8830“ sendist Morgunbl. fyrir 17. þ.m.
ChevroSet 1958 (Yellow Cab)
Selst í því ástandi, sem hann kom frá U.S.A.
Aðal Bílasalan, ASalstr. 16, S. 15-0-14.
LÓÐ
á góðum stað helzt £ Laugarásnum áskast til kaups
nú þegar. ,
RANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR hrl.,
Laugaveg 2 — Sími 19960.
5 herbergja íbúð
í smíðum í nýju húsi á hitaveitusvæði í Vesturbæn-
um til sölu.
STEINN JÓNSSON, hdl.
Lögfræðistofa ■— Fasteignasala
Krkjuhvoli — Símar 1-4951 og 1-9090.
Hjálparmótorhjól
Goericka notað til sölu ódýrt, til sýnis í bifreiða-
verzlun Sveins Egilssonar h.f., Laugavegi 105 í dag
og á mofgun.
TIL SÖLU .
Vélbáturinn
KÁRI EA 44
12 lestir. með 75 ha. GM-vél og Elacdýptarmæli.
Upplýsíngar gefur Ragnar Steinbergsson, hdl.,
Akureyri.
SKANDINAVISK BOLDKLUB REYKJAVÍK
Badminton æfingar eru byrjaðar í KR-húsinu laug-
ardaga kl. 6 og sunnudaga kl. 5,10.
Öllum heimil þátttaka.
Atvinnurekendur
Vélvirki óskar eftir þrifalegri vinnu. Hefur síðast-
liðin 15 ár unnið við viðgerðir og niðursetningar á
dieselvélum í skip og báta. Talar bæði dönsku og
ensku. Tilb. merkt: ,.Vinna — 8893“ sendist Mbl.
Kaf nai ijörður -
Ung bamlaus hjón, hjúkrunarkona og kennaranemi,
óska eftir 1—2 herbérgja íbúð strax. Uppl. í síma
33404.
Nýtízku 3ja herb. íbúB
mjög rúmgóð á 1. hæð, ásamt stóru kvistherbergi
og eldunarplássi í risi, til sölu í sem nýju húsi í Vest-
urbænum. ,
STEINN JÖNSSON, hdl.
Lögfræðistofa — Fasteignasala
Krkjuhvoli — Símar 1-4951 og 1-9090.
Op/ð bréf til forstöðu-
manns Crœnmetisverzl-
unarinnar
í TÍMANUM, 10. þ.m., er grein-
arkorn frá þér, Jóhann Jónasson,
sem er svar við grein, skrifaðri
af fréttamanni frá Morgunblað-
inu, sem hér var á ferð um upp-
skerutímann, og hafði tal af
ýmsum bændum, þar sem þeir
voru að störfum á kartöfluökrun-
um. í Morgunblaðs-greininni er,
að því er ég fæ séð, ekkert of-
sagt, en vantar í ýmsum tiifellum
nánari skýringar um einstök at-
riði. Morgunblaðs-grein þessi er
ekki skrifuð af mér, og af þeim
ástæðum ekki mitt, að svara
henni. — En orðaval þitt í grein
þinni í Tímanum, er með þeim
hætti og svo villandi, að ég get
ekki stillt mig um, að stinga nið-
ur penna og svara þeim, að pví
leiti, sem þau snerta kartöflu-
framleiðendur í Þykkvabæ.
Þú segir: „Ef Þykkvbæingar
ætla sér að láta breyta matsregl-
unum árlega, eftir því hvernig
uppskera er hjá þeim, þá eiga
þeir um það mál við Landbún-
aðarráðuneytið, en ekki við
Grænmetisverzlun landbúnaðar-
ins“.
Þú virðist vera að komast í
þann flokk íslenzkra embættis-
manna, sem vill smeygja allri á-
byrgð af sér. Það sem miður fer,
er. alltaf einhverjum öðrum að
kenna. Reglugerð um Grænmet-
isverzlun landbúnaðarins og mát
og flokkun á kartöflum, er að
ýmsu leiti flausturslega saman-
sett, og þó sérstaklega 14. greinin,
sem er þunga-punktur reglugerð-
arinnar. Ef til vill er þetta eðli-
legt, þegar haft er í huga, að hún
Brei&firðingafélagið
hefur vetrarstarfsemi
BREIÐFIRÐIN G AFÉL AGIÐ
í Reykjavík er nú í þann veginn
að hefja vetrarstarf sitt. Hinn 9.
okt. nk verður fyrsta skemmti-
kyöldið að þessu sinni í Breið-
firðingabúð. Hyggst félagið þá að
bjóða ungum Breiðfirðingum
ókeypis upp á félagsvist Og dans,
einkum þeim, sem nýkomnir eru
í borgina.
Félagið vinnur nú sem áðyr að
ýmsurh áhugamálum tií aiikrhn-
ar menningar við Breiðafjörð.
Eitt aðalmál, sem nú er á dag-
skrá, er að efla Björgunarskútu-
sjóð Breiðafjarðar og safnaðist í
þeim tilgangi nær tuttugu þús-
und krónur síðasta vetrardag í
vor. En sá dagur er sérstaklega
heigaður þessu málefni.
Er nú vakinn áhugi ýmissa fé-
iagsheiida og byggðarlaga fyrir
vestan, og safnaðist þar mikið til
,,skútunnar“ í vor. Ætlai; Breið-
firöingafélagið nú að gangast
fyrir sameiginlegu starfi og sam-
komu breiðfirzkra átthagafélaga
Félagslíf
Frá Farfuglum
Um næstu helgi verður farið
í Heiðarból, til þess að íagfæra
og hreinsa skálann fyrir vetur-
inn. Fjölménnið upp eftir, svo
hægt verði að ljúka nauðsynleg-
ustu verkum um helgina, því
vetrarfagnaðuT er framundan. —
Allár upplýsingar veittar i skrif
stofunni, Lindargötu 50, sem er
opin fimmtudagskvöld k). 6,30—
8, — sími 15937. — Nefndin.
Handknattleiksdeild Þróttar
Æfing verður í dag kl. 6,50 að
Hálogalandi, fyrir 3. og 4. fl. —
Mjög áríðandi æfing. Valið verð-
ur í kapplið 3. og 4. fl. fyrir af-
mælismótið. — Þjálfararnir.
Knatspyrnufélagið Þróttur
Æfing verður í dag fyrir M.-
og 2. fl., í KR-húsinu kl. 9,25. —
Mjög áríðandi að allir 2. fl.-menn
mæti. — Þjálfarinn.
10 ára afmælis hraðkeppnismót
Þróttar í handknattleik
fer fram að Hálogalandi dag-
ana 17. og 18. okt., í M.-fl. karla
og kvenna. Þátttökutilkynningar
verða að berast fyrir fimmtudags
kvöld, í síma 36437. Kf. Þróttur
Körfuknattleiksdeild K.R. —
Takið eftir: — Æiingar verða
framvegis sem hér segir: — Mið-
vikudagur kl. 10,15, 2. fl. karla;
laugardagur kl. 5,15, 4. fl. karla;
laugardagur kl. 8,35, 3. fl, karla;
sunnudagur kl. 6,50, kvennafl.
sunnudagur kl. 8,00, 2. fl. karla.
Mjög áríðandi er að þið mætið
vel og stundvíslega á æfingarnar.
Látið kunningja og félaga vita
um þessa æfingatíma og að nýir
íélagar séu velkomnir. Stjórnin.
hér í Reykjavík og fá helzt alla
Breiðfirðinga bæjarins og heima
til að leggja eitthvað af mörkum,
svo að verkið komist í fram-
kvæmd sem allra fyrst. Verður
samkoman auglýst síðar í haust.
Félagið hefur lagt fram krafta
sína til að vekja áhuga á hinni
myndarlegu kirkjubyggingu að
Reykhólum, stofnað þar minn-
ingarsjóð breiðfirzkra mæðra í
sambandi við þá hugmynd að
kirkjan þar skuli helguð mæðg-
inunum frá Skógum, Þóru Ein-
arsdóttur og Matthíasi Jochums-
syni.
Hefur nú þegar safnazt í þann
sjóð svo og til skreytingar nýju
kirkjunni, sem miðar vel áfram,
og hljóðfæri hefur verið keypt
fyrir fé, sem safn’azt hefur. Svip-
uð hugmynd er studd viðvíkjandi
kirkjúbyggingu í Grafarnesi við
Grundarfjörð og hafa mertn úr
Breiðfirðingafélaginu lofað þang
að góðum gjöfum og eflt sjóðinn
með dálítillí upphæð.
Auk þess starfar félagið að
margþættri félagsstarfsemi hér i
bænum. Það er nú þegar hafizt
handa við undirbúning að
byggðasafni fyrir Breiðafjörð,
safnar t d. i þeim tilgangi mynd-
um af eldra fólki að vestan og
heitir á þá, sem ættu myndir af
merkum Breiðfirðingum að lána
þær til að gera af þeim eftir-
mýndir.
Timaritið Breiðfirðingur kem-
ur út árlega, og nú er hafin ritun
þátta úr menningarsögu Breiða-
f jarðar. Skrifar Bergsveinn Skúla
son frá Skáleyjum þar um at-
vinnuhætti í Breiðafjarðareyjum.
Félagið safnar einnig í Minn-
ingasjóð Breiðfirðinga, sem nú
nemur nokkrum tugum þúsunda
að upphæð. En þar hefur hver
persóna sinn sérstaka sjóð og
minningu skráða í sérstaka minn-
ingabók, þótt út á við starfi þess-
ir sjóðir sem einn. Og er þetta
fyrirkomulag mjög athyglisvert.
Breiðfirðingafélagið rekur
starfsemi sína, fundahöld og
skemmtanir aðallega í Breið-
firðingabúð. Spila- og danssam-
komur eru margar á hverjum
vetri og auk þess þorrablót, vetr-
arfagnaður og sumarfagnaður við
upphaf og endi hvers starfsárs.
Stjórn félagsins vill eindregið
minna íélaga sína á þá sjálfsögðu
skyldu að tilkynna bústaðaskipti
til einhvers úr stjórninni, t. d.
gjaldkera eða formanns.
Stjórn félagsins skipa nú þess-
ir menn'
Árelíus Níelsson, form.; Jó-
hannes Ólafsson, varaformaður;
Alfons OddSson, gjaldkeri; Erling
ur Hansson, ritari; Ólafur Jó-
hannesson, Grundarstíg 2; Þórar-
inn Sigurðssoh, Asbjörn Jónsson,
Jón Júlíus Sigurðsson, Björg-
ólfur Sigurðsson og Sigvaldi Þor-
steinsson.
mun að mestu smíðuð og saman-
sett af sprenglærðum sérfræð-
ingum, sem litla þekkingu hafa,
hvorki á kartöflurækt á fslandi,
seng aðalatvinnuvegi einstakra
manna og byggðarlaga, né held-
ur á sölu og dreifingu vörunnar
til . neytenda. Má, sem dæmi,
benda á, að 14. grein reglugerðar-
innar mælir svo fýrir, að ráð-
herra ákveði og auglýsi, eítir til-
lögum Tilraunaráðs jarðræktai,
hverjar tegundir skuli teljast til
úrvalsflokks og fyrsta flokks. —
Þarna telst algjörlega ónauðsyn-
legt, frá hinum háa sjónarhóli,
að lúta svo lágt, að hafa nokkur
samráð við fulltrúa framleiðenda
eða fulltrúa neytenda, — senni-
lega rökrétt niðurstaða eftir hugs
anagangi hinna há-vísindalegu
stórmenna, þó svo, að hún komi
okkur, hinum óbreittu alþýðu-
mönnum, einkennilega fyrir sjón-
ir. — f 14. grein segir ennfremur:
a) Um úrvalsflokk: „Stærðin
skal vera sem jöfnust, og þyngd
ekki minni en 30 gr.“
b) Um I. flokk: „Stærðin skal
vera sem jöfnust. Lágmarks-
þyngd 25 gr.“
c) Um II. flokk: „ — — _______
þyngd ekki minni en 20 gr.“
Nú er það öllum, sem til þess-
ara málá þekkja, augljóst, að
óframkvæmanlegt er, að vigta
hverja einustn kariöfiu, sem er
nálægt takmörkum þeim, að ná
lágmarksþyngd ákveðins gæða-
flokks. Það væru í Þykkvabæn-
um einum um 2000 til 2500 tunn-
ur að ræða árlega, af þessan tak-
marka stærð, eða 8 til 10 milljónir
kartaflna. Þó að framleiðandinn
gæti vigtað 15 til 20 kartöflur á
mínútu, yrðu þetta, í þessu byggð
arlagi, 1100—-1400 dagsverk. Og
svo næði ekki nema hluti af þesS-
um kartöflum tilskilinni lág.
marksþyngd, yrði þá lítill tekju-
auki af öllúm þessum dagsverk-
um. Kartöflurnár eru því sigtáð-
ar á möskvasi’gtum og réynt að
notá niöskVástærð, sem samrým-
ist sem bézt lágmárksþung'a þ'éss
gæðaflöklrs, sem frámléiðánÖinn
telur, að 1 karrtöflur hans komist
í, hverjú sirtni. Þétta er 'þó ékki
viðurkennd aðferð af hálfú kart.
öflumatsins óg GrænmetisVerzl-
unar landbúrtaðarins. Kertiur, að
sjálfsögðu, fyrir, að ein og ein
kartafla, sem ekki nær tilskild-
um þunga, - flýtur yfir möskv-
ana, og þá byrjar rexið: „Þarna
reynið þið að svíkja. Þið takið
þessar kartöflur heim aftur og
yfirfarið þær betur, eðá að við
gerum það á ykkar kostnað!“ —
Ákvæði um ákveðna möskva-
stærð hefir ekki fengizt sett inn
í reglugerðina, þrátt fyrir ein-
dregin tilmæli framleiðenda.
Þú segir ennfremur í grein
þinni: „Erfitt á ég með, að trúa
því, jafnvel þó það stæði í Mörg.
unblaðinu, að bændur í Þykkva-
bænum, séu svo lélegir búmenn,
að þeir hefðu ekki heldur notað
þær kartöflur, sem þeir gátu
selt, til fóðurs, heldur en að
henda þeim á „flög út“.“
Á þetta hefði þér verið sæmst
að minnast ekki. Það var fyrir
vilyrði frá þér, úm xaup á kart-
öflum, 20 til 30 grömm að þyngd,
(II. flokks kartöflur), að þesslr
kartöflur voru geymdar. Vilyrði
þitt, sem að vísú ekki var ákveð-
ið loforð, stóðst ekki. Um fóður-
gjöf var ekki að ræða, þar sera
'komin var útibeit, þegar til-
kynntir, að um kaup á þessum
kartöflum yrði ekki að ræða. Því
var ekki annað að gera, en aka
kartöflunum á „flög út“. Iiin
voru síðart fluttar kartoflur er-
lendis frá, sumt tegúndir, sem
ekki er leyfð framleiðsla á á ís-
landi.
Sé um búskussahátt að ræða
hjá Þykkvbæingum, er sá skussa.
háttur helzt í því fólginn, að taka
vilyrði þín svo hátíðlega, og stór.
skaðast fyrir. Vildi ég því mjög
beina þeim tilmælum til þín, að
þú hugsir þig ofurlítið um, áður
en þú sendir frá þér annað eins
léttmeti og grein þín í Tímanum
er, og að þú kynnir þér betur
viðhorf framleiðenda á hverjum
tíma, svo ákunnur, sem þú virð-
ist þeim vera. > ■ -
Þykkvabæ, 11. okt. 1959,
Magnús Sigurlásson.