Morgunblaðið - 18.10.1959, Side 2

Morgunblaðið - 18.10.1959, Side 2
2 MORCVNBLAÐ9Ð Sunnudagur 18. okt. 1959 Höfundur Marshall Fyrlr mánuði kom Pablo Picasso, sem margir álíta mest- an málara 20. aldarinnar, í heim Mnvminn olli skemmdum SVO sem Mbl. skýrði frá í gær olli mávur smábilun á einum hreyfli Gullfaxa í Glasgow á fimmtudag. Eftir að flugvélin hafði verið skoðuð í London virt ist ekkert að, en á heimleiðinni kom aftur fram bilun í J>essum sama hreyfli og mávurinn hafði sogazt inn í — og þegar um hálfr ar stundar flug var eftir til Reykjavíkur stöðvaði flugstjór- inn hreyfilinn. Gullfaxi átti að fara utan í gærmorgun til Osló, Kaupmanna hafnar og Hamborgar, en sakir bilunarinnar frestaðist sú ferð. Hrímfaxi var í Kaupmannahöfn i gær og kom hann kl. 5 e.h. Fór hann áætlunarferð Gullfaxa út um kl. 7 e.h. £ gær. Vélvirkjar Flugfélagsins hafa nú athugað hreyfil Gullfaxa og þykir sýnt, að skipta verði um hreyfil. Skymasterflugvélin Sól- faxi mun sækja hreyfilinn til London á mánudaginn — og verlur hreyfillinn settur í Gull- faxa hér heima. Tekur viðgerð- in einn dag — og er þess að vænta, að Gullfaxi verði kom- inn í lag á miðvikudag. Þannig getur einn mávur valdið töfum á samgöngum við ísland. sókn til vinar síns kastala ekki mjög langt frá ein býlishúsi listamannsins á Miðjarðarhafsströndinni. „Mig mundi langa til að eiga svona kastala", sagði Picasso. Og hann lét ekki standa við orðin tóm. Vinur hans ók honum og Jacque- line Roque, stúlkunni sem alltaf er í fylgd með honum, til næsta kastala. sem sagt var að væri til sölu. Picasso keypti hann dag inn eftir og nú er hann fluttur í hann. Meistarinn er búinn að skreyta baðherbergið með vegg- myndum. Myndin ofan við bað- éerið er af Jacqueline að greiða sér. Hér sjáum við Picasso að tína sporðdreka upp úr baðker- inu. Myndin af Jacquline fyrir ofan. Ólæti unglinga 9 a AKUREYRI, 15. okt — Síð astliðið sunnudagskvöld tóku unglingar hér í bænum upp á því að trufla umferð á aðal- götum bæjarins, líkt og stund um kemur fyrir á gamlárs- kvöld eða þegar skólum er lok að sakir rafmagnsleysis eða umgangspestar. Gengu ung- lingarnir í fylkingu um ak- brautirnar og stöðvuðu bíla- umferðina. Einnig drógu þeir alls kyns rusl, tunnur, stiga og þess háttar fram á götuna, allt í þeim tilgangi að trufla umferð. Að sögn lögreglunn- ar er hér um að ræða skóla- unglinga, sem ekki ráða við ungæðisháttinn. Á mánudags- kvöld héldu unglingarnir ó- látunum áfram. — vig. Á útbreiðslufundi Stefnis, fé- lags ungra Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði kl. 4 í dag, tala Matt- hías Á. -Mjatthiesen, þingmaður Hafnfirðinga, Axel Jónsson, um- sjónarmaður, Árni Gretar Fins- son, ritstjóri, Þorgrímur Halldórs son, raffræðingur, Jóhann Ragn- arsson, stud. jur. Gísli, Stefáns- son, málari, Sveinn Guðbjarts- son iðnnemi, Jens Jónsson, hús- gagnabólstrari og Pétur Sigurðs- son, sjómaður. — Fundarstjóri verður Guðlaug Kristinsdóttir, verzlunarskólanemi. Hafnfirðingar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn og kynna sér stefnu ungra Sjálfstæðis- manna. — Bærinn kaupir hús BÆJARRÁÐ hefur nú ákveðið að kaupa gamalt timburhús í Grjótaþorpinu, vegna skipulags- ins þar. Er hér um að ræða hús- ið Grjótagötu 14 b, en eigandi þess er Alfreð Þórðarson kaup- maður. GEORGE MARSHALL hers- höfðingi og fyrrum utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, lézt í Washington á föstudaginn, 78 ára að aldri. Marshalls verður lengi minnzt sem foringja banda- ríska herráðsins og því raun- verulegs yfirmanns alls her- afla Bandaríkjanna í síðari heimsstyrjöldinni. Hann var sá maður sem öll heildarskipu- lagning hernaðaraðgerða Bandaríkjanna hvíldi á, hvort sem var í Evrópu eða á Kyrra- hafinu. Líta Bandaríkjamenn á hann, sem mesta hershöfð- ingja, sem þeir hafa nokkru sinni átt. Þeir setja hann jafn vel skör hærra en þá Eisen- hower og Mac Arthur, enda voru þeir báðir undirmenn hans á styrjaldarárunum. í Evrópu verður Marshalls þó minnst fyrst og fremst sem höfundar Marshall-hjálparinn- ar, sem varð undirstaða efna- hagslegrar viðreisnar Evrópu, eftir heimsstyrjöldina. ★ Marshall fæddist í bænum Uniontown í Pennsylvaníu á gamlársdag 1880. Forfeður hans voru enskir innflytjend. ur, sem tekið höfðu sér ból. festu í Kentucky. Faðir hans var ríkur kolakaupmaður. Hann sótti um inngöngu í frægasta herskóla Bandaríkj- anna, West Point, en fékk ekki aðgöngu, að því að talið er vegna stjórnmálaskoðanna föður hans, sem var demo- krati í héraði, sem fylgdi republikanaflokknum að mál- um. Hann gekk þá í Virginía herskólann og útskrifaðist þaðan 1901. Lengi vel hlaut Marshall lítinn frama í hernum, en þeg- ar Bandaríkin hófu þátttöku í fyrri heimsstyrjöldinnx, var hann sendur sem deildarfor- ingi til Frakklands. Þar gat hann sér frábæran orðstír fyrir skipulagsgáfu sína og lýsti Pershing hershöfðingi, yfirmaður bandaríska hersins í Evrópu því yfir, að hann teldi Marshall færasta for- ingjann í bandaríska liðinu. . ★ A milhstríðsarunum naut Marshall vaxandi virðingar fyrir hæfileika og gáfur sínar, en þó kom það mönnum nokk- uð á óvart, þear Roosevelt for seti ákvað 1. sept. 1939, sama daginn og Þjóðverjar réðust inn í Pólland, að skipa hann herráðsforingja og yfirmann Bandaríkjahers. Var talið að með skipun hans hefði verið gengið framhjá 34 hershöfð- ingjum sem voru honum æðri að tign. Marshall gegndi miklu hlut- verki í að ákvarða hernaðar- áætlanir Bandamanna. Hann sat Atlantshafsráðstefnu þeirra Roosevelts og Qhurch- ills, og ráðstefnumar í Casa- blanca, Kairo, Teheran, Yalta og Potsdam. Það var hans skoð un sem réði, að ráðizt skyldi til landgöngu í Normandy 1944, áætlunarinnar látinn en þar með var hafnað tillög. um Churchills um að innrás yrði gerð á Balkanskaga. Marshall hafði ákvörðunar- vald um ótal málefni í hermál- um Bandaríkjanna, smá og stór. Það var hann sem ákvað að skipa Eisenhower yf- irmann landgönguliðs Banda- manna í Evrópu og það var einnig hann sem tók ákvörðun um atriði eins og það, að haf- in skyldi fjöldaframleiðsla á „jeppanum", þessum litla bíl, sem átti eftir að hafa svo stór fellda þýðingu fyrir sam- göngur og flutninga í herjum Bandamanna. ★ f nóvember 1945 þóttist Marshall hafa gert skyldu sína Samtök til hjálpar afvegaleiddu fólki í RÁÐI er að stofna samtök til hjálpar íólki, sem hefur brotið lögin og afplánað refsingu. Kjör- in hefur verið bráðabirgðastjórn samtakanna. Er séra Bragi Frið- riksson formaður he.nnar, en aðr- ir í stjórn eru Þóra Einarsdótt- ir, Rannveig Þorsteinsdóttir, Lára Sigurbjörnsdóttir og Benedikt Bjarklind. Morgunblaðið hafði i Nýr viti í TILKYNNINGU til sjófar- enda frá Vitamálastofunni, skýrt frá því, að tekinn hafi ver- ið í notkun hinn nýi viti á Galtar vita. Stendur nýi vítinn skammt norðan við gamla vitann. Er vitahúsið sjálft rúmlega 10 metr- ar á hæð, ljósgult að lit með lóðréttum dökkgiltiim röndum og er ljósker vitans 3 metrar á hæð. 100 Jbús. kr. sjóður frá iðnrekendum í TILEFNI af 25 ára afmæli Iðju Félags verksmiðjufólks, hér í Reykjavík, í gær, hefur Félag ísl. iðnrekenda ákveðið að gang- ast fyrir stofnun sjóðs til að stuðla að aukinni verklegri menntun iðnaðarfólks. Frá þessu skýrði formaður Fél. ísl. iðnrekenda, Sveinn B. Valfells, á almennum félagsfundi samtakanna í gærdag. Gat hann þess að sjóðurinn yrði stofnaður af F.Í.I. með 100,000 króna fram- lagi frá samtökum iðnrekenda. Er að vænta nánari fregna af þessari merku sjóðsstofnun inn- an skamms. gær samband við Þóru Einars- dóttur, og sagði hún svo írá þess- um samtökum: í fyrra kom fram tillaga á fundi Kvenréttindafélags íslands um það, hvort ekki væri tíma- bært að stofna samtök, sem tækju að sér að hjálpa fólki, sem hefur brotið lögin. Til fyrirmyndar þessari hugmynd höfum við sams konar samtök á Norðurlöndum, „Det Danske Forsörgsselskab og Vernelaget £ Noregi. Skipuð var nefnd síðastliðið vor til að hefj- ast handa um myndun samtak- er anna og var síðan kjörin bráða- birgðastjórn samtakanna. Leitað var liðveizlu stjórnvalda landsins og hafa þau heitið samtökunum stuðningi. Það er eingöngu áhuga fólk, sem stendur að samtökun- um og er öllum almenningi boðin þátttaka, svo og stofnunum og félögum. Áframhalds stofnfundur verð- ur haldinn í 1. kennslustofu Há- skólans kl. 8,30 á mánudagskvöld- ið. Geta einstaklingar og félög gerzt stofnendur samtakanna á þeim fundi. Félagið hefur fengið lánaða kvikmynd frá Kofoedskól anum í Kaupmannahöfn, sem er þekktur skóli til hjálpar þeim, sem hafa lent á glapstigum. Kvik- myndin verður sýnd á stofnfund- inum í Háskólanum, en auk þess verður hún sýnd í Tjarnarbíói kl. 1,30 á sunnudag. Kvikmynd- in er framúrskarandi vel {|jrð og sýnir á áhrifaríkan hátt, \vern- ig fólki, sem komist hefur í kast við lögin, er hjálpað til að hjálpa sjálfu sér. Dg óskaði eftir lausn frá störf- ' um sem herráðsforingi. Hon-'; um var veitt það, og ætlaði ( hann þá að setjast í helganí stein að búgarði sínum í Lees-/ burg í Virgina. En varla var/ liðin Vika, þegar Truman for-1 seti fór þess á leit við hann/ að hann færi til Kína til að( sætta Þjóðernissinna og komm( únista. Kínaför Marshalls mis/ heppnaðist og lágu mistök) hans e.t.v. fyrst og fremst ÍJ því, að hann ímyndaði sér eins ( og margir Bandaríkjamenn( jjerðu þá, að hægt væri að ( semja vió kommúnista. Varð/ för hans aðeins til þess að) veikja mótspyrnu Þjóðernis-i sinna gegn kommúnistum og( stöðva hernaðaraðstoð Banda-( .ríkjanna við þá, svo að Kína( lá opið fyrir framsókn komm-/ ) únista. En nokkru síðar eða í janúar' 11947 var hann skipaður utan-' I ríkisráðherra Bandaríkjanna. ( Fyrsta verk hans var að( ' reyna að ná samningum við / Rússa um allsherjarafvopnun,, ) en það mistókst er Rússar ) | höfnuðu öllu samkomulagi um ( i slíkt. Sumarið 1947 var Marshall1 jsæmdur nafnbót heiðursdokt-( .ors í Harvard-háskóla. Flutti( i hann þá ræðu sem lengi verð-, ur minnzt. Kom hann þar í' fyrsta skipti fram með hug-' /myndina um að Evrópuþjóðir( /sameinuðust í einu átaki og( )með stuðningi Bandaríkjanna, \í viðreisn álfunnar. Það var ætlun hans, að Austur-Evrópu ( (þjóðir ekki síður en þjóðir1 /Vestur-Evrópu yrðu aðstoðar-i )innar aðnjótandi, en Rússar ( /snerust gegn hugmyndinni. Evrópa lá í sárum eftir / ) heimsstyrjöldina. Þegar menn, . litast um í Evrópu og / sjá þá miklu viðreísn sem þar ■ /hefur farið fram og þróun þá( )sem nú á sér stað tíl batnandij ilífskjara, þá fer ekki hjá þvi,, (að Marshall verði minnzt með (þakklæti. íslendingar nutu( ’ einnig Marshall-hjálpar og1 ) verður seint of metið hvílíka ( )þýðingu hún hafði fyrir efna- | ) hagslega viðreisn okkar. Marshall lét af störfum sem( i utanríkisráðherra í jan. 1949, \ vegna heilsubrests. Síðan hef iir hann verið heilsuveill, m. a. þjáðst af nýrnasjúkdómi og< ) ellihrumleiki færzt yfir hann. ( Hann var sæmdur friðar-( I verðlaunum Nóbels 1953 fyrir, vfrumkvæði sitt að Marshall-' hjálpinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.