Morgunblaðið - 18.10.1959, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.10.1959, Blaðsíða 10
10 MORGVTSHLAÐlh Sunnudagur 18. okt. 1959 // Péturs- kaffi" öllu fremra PÉTUR SÍMONARSON írá Vatnskoti í Þingvallasveit 'er mikill aðdáandi íslenzku öræf- anna. Á hverju sumri fer hann með konu sína í jeppa til fjalla — og þykir alltaf 'eið- inlegt að koma aftur í bæinn. Þau hjónin hafa með sér tjaid, prímus og matarforða — og forðast mannabyggðir meðan matarögn er til í pokanum. — Skemmtilegast þykir okk- ur að liggja úti þar sem hverir eru í nánd, því þá þurfum við ekki að eiga við primusinn. Þá sjóðum við allan mat í hverum. Kartöflur, saltkjöt og saltfisk setjum við í striga- poka og slengjum í hverinn — og kaffið lögum við líka í hverum. Og ég tala nú ekki um, þegar maður krækir sér i silung. Þetta gerðu þeir líka áður og fyrr, þegar hestarnir voru svo til einu samgöngu- tækið, ef svo mætti segja. En nú er ekki jafnmikið gert að því, segir hann. Það var tilviljun, að Pétur rakst eitt sinn á þýzkan ferða- lang á Hveravöllum. Þetta var ungur maður, sem var að koma fótgangandi að noröan, hafði vaðið Blöndu og Stóru- Kvísl — og var orðinn þjak- aður og matarlítill. Pétur bauð pilti til snæð- ings — og þá var meðfylgj- andi mynd einmitt tekin, þeg- ar Pétur lagaði kaffisopá í hver eftir gómsæta kjötmál- tíð. Pilturinn var einmitt ljós- myndari, Hermann Schlenker að nafni, en hann hefur dval- izt hér tvö undanfarin sumur. Schlenker fór flugleiðis ut- an í morgun. Áður en hann ,1,111111S i111 j11111,111!1 i i' 11 i 1, 1111 1 l' 111' i I I I ii i' , 'jl'íjí’ "i'lnllíililíiiiinliliii! ,Copyrigh> P. I. B. Bo« 6 Copenhoqeft , * - * * •! ’.1 r V.11.! !'.i! .i Copyright P, I. B Bok 6 Copcnhoq* COSPER Sjálfsagt að nota góða veðrið. Núna er rigningin ekki jafn hráslagaleg og í fyrra. iót kom hann upp á ritstjóm Mbl. og sýndi okkur myndina af Pétri, sem hann sagði að vekja myndi mikla athygli, þegar hann kæmi heim. Þarna væri Pétur að laga indælasta kaffisopa, sem hann hefði fengið á íslandi. Það væri ekk ert varið í Kaaberskaffi og Bragakaffi á móts við „Péturs- kaffi“. iTl SKÁLDIÐ OG MAMMA LITLA Missera- skipfin Á LAUGARDAGSKV ÖLDIÐ ílytur séra Jóhann Hannesson, prófessor, hugleiðingu í út- varpinu um misseraskiptin. —. Jón Helgason prófessor les kvæði, Engel Lund syngur gömul íslenzk þjóðlög og Björn Th. Björnsson les úr skáldsögu sinni „Virkisvetur“. Litla krossgátan SKÝRINGAR Lárétt: — 1 telpa — 6 anzt — 8 áhald — 10 lét af hendi — 12 afkvæmanna — 14 sam- hljóðar — 15 sund — 16 hljóma — 18 bjálkana. Lóðrétt: —. 2 heiti — 3 snemma — 4 veldi — 5 vatns- föll — 7 ekki falda — 9 hvass- viðri — 11 flana — 13 sárt — 16 vatt — 17 tveir eins. 1) Halló? Nú, ert það þú Elísabet? Viltu leyfa mér að tala við mömmu þína? .... Ertu búin að fá nýja brúðu? 2) 1 gulum kjól? .... hérna .... og með hettu? Viltu ná í mömmu þína? 3) .... Viltu hlaupa út og segja henni .... Hvað? Já, ég lofa að senda þér þúsund karamellur! Viltu þá .... Er gullfiskurinn veikur? .... 4) .... Viltu segja henni .... Halló? — Elísabet .... Hvað? .... Er það miðstöð? .... Viljið þér gefa mér .... 1) Þú ert ekki með hausverk núna, pabbi? 2) Nei, hví hausverk? skyldi vera með 3) Þá veit ég, að þér er alveg sama þó ég spili á trommuna mína! Dieskau i kvöld t KVÖLD syngur Dietrich Fischer-Dieskau í útvarpinu. Hann syngur „Kindertoten- lieder" eftir Gustav Mahler með Filharmoníuhljómsveit- inni í Berlín. Enda þótt Dieskau sé ekki nema liðlega þrítugur er hann nú einn fremsti, ef ekki fremsti, Ijoða- söngvari heims. Hann mun hafa sungið eina mest allra núlifandi söngvara inn á hljóm plötur, ferðazt um allan heim til hljómleikahalds og m. a. komið tvisvar til íslands. ☆ Á LAUGARDAGINN (fyrsta vetrardag) er Háskólahátiðin og verður að vanda útvarpað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.