Morgunblaðið - 18.10.1959, Blaðsíða 12
12
MORCVP/BL4Ð1Ð
Sunnudagur 18. okt. 1959
Utg.: H.f. Arvakur Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsscn.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm..
Bjarni Benediktsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22480.
Askriftargald kr 35,00 á mánuði innaruands.
I lausasölu kr. 2.00 eintakið.
FRÆÐSLA NORSKA
FJÁRMÁLARÁÐHERRANS
ALÞÝÐUBLAÐIÐ í gær er
fullt gremju í garð Morg-
unblaðsins fyrir að hafa
bent á að Alþýðuflokkurinn hafi
með sinnaskiptum í skattamálum
horfið frá fyrsta höfuðstefnu-
máli sínu. Alþýðublaðið játar
raunar sinnaskyptin og segir:
„Þetta er rétt, en annað eins
hefur breytzt í heiminum síðustu
fjóra áratugi og að islenzki Al-
þýðuflokkurinn endurskoði af-
stöðu sína í skattamálum með
hliðsjón af breyttum viðhorfum”.
Þá segir blaðið:
„Tekjuskatturinn, sem upp var
tekinn hér á landi einmitt árið
1917, var mikil framför á þeim
tíma og baráttumál Alþýðuflokks
ins.------Nú eru viðhorfin ger
breytt------. Tekjuskatturinn
hefur hins vegar gefizt inna.
Skattsvikin eru óþolandi og inn-
heimtukerfið orðið að bákni. svo
að engri átt nær. Beinu skattarn-
ir leggjast þyngst á launamenn
og Reykvíkinga sér í lagi“.
Misskilningur er hjá Alþýðu-
blaðinu, að það sé ný til komið,
að beinu skattarnir leggist þyngst
á launamenn og Reykvíkinga
sér í lagi. Sá, er þetta ritar minn-
ist þess að hann heyrði um þetta
talað á fyrsta kosningafundinum,
er hann fór á, sem var 1921.
Var tekjuskatturinn þá þó smá-
ræði miðað við það, sem varð
eftir að áhrif Alþýðuflokksins á
stjórn landsins fóru verulega að
aukast og hvað þá eftir að Ey-
steinn Jónsson bættist í hópinn.
Alþýðuflokkur og Framsókn
hafa ætíð keppt að því að hafa
tekjuskatt sem allra hæstan, en
Sjálfstæðismenn staðið þar á
naóti og varað við afleiðingun-
um. En auðvitað hafa þær orð-
ið því varhugaverðari eftir því,
sem lengur hefur liðið og áhrif-
inna þess vegna gætt meira.
★
En Alþýðubláðið játar sjálft,
að það er dálítið til viðbótar sem
veldur hinum ánægjulegu sinna-
skiptum Alþýðuflokksins. Niður-
lag forystugreinar blaðsins í gær
hljóðar svo:
„fslenzki Alþýðuflokkurinn er
heldur ekki einn um að endur-
skoða afstöðu sína í skattamálum
Og hyggja á nýjungar.---------
Alþýðublaðið vill í þessu sam-
bandi minna á fyrirlestur, sem
GREIN
(~^ REIN Páls Zóphoníassonar
sem Morgunblaðið birti í
gær um Rannsóknarstofu
Háskólans og hið ómetanlega
starf, sem prófessor Níels Dung-
al hefur unnið þar, er harla lær-
dómsrík. Sízt er orðum aukið, þó
að sagt sé að Tíminn hafi ára-
tugum saman ofsótt Níels Dungal,
vegna verka þeirra, sem hann
vann þá í þágu landbúnaðar.
Nú játar Páll Zóphoníasson
skyndilega, að allir bændur
standi í þakkarskuld við Níels
Dungal fyrir hans framúrskar-
andi starf. Það er Páli Zóphanías
syni til saemdar að hann skuli
hafa kjark til þess að skrifa þetta
Tryggve Bratteli fjármálaráð-
herra 'Norðmanna, hélt hér í
Reykjavík um þetta efni sum-
arið 1957.
Niðurstaða hans var sú, að
beinu skattarnir væru ranglátari
og miklu þyngri í innheimtuvöf-
unum en óbeinu skattarnir, eins
og nú er komið málum á Norður-
löndum. Þetta er að læra af
reynslunni. En þessi fræða
norska fjármálaráðherrans fór
víst fram hjá Morgunblaðinu. Al-
þýðuflokknum finnst hún hins
vegar næsta athyglisverð. Hann
hætti ekki að læra 1917“.
Það hlaut að vera, Alþýðuflokk
urinn er ekki svo „simpill“, að
láta sér nægja reynslu launþega
á fslandi og sér í lagi í Reykja-
vík. Það var hvorki meira né
minna en sjálfur fjármálaráð-
herra Noregs, sem sagði orðið,
þá þurfti ekki meira. Horfið var
frá 40 ára stefnu og lagt inn á
brautina á eftir „íhaldinu". En
ef hingað kæmi einhver enn þá
fínni kratahöfðingi, sem flytti
þveröfugan boðskap?
Er þá treystandi á Alþýðu-
flokkinn? Eða mundi hann
hverfa jafn snögglega frá sinni
nýju stefnu og hinni, sem hann
var búinn að fylgja í 40 ár?
★
E. t. v. er hættan á því ekki
svo mikil, vegna þess að „bræðra
flokkar" Alþýðuflokksins á Vest-
urlöndum eru hvarvetna að
hverfa frá fyrri kenningum. í
brezku kosningunum á dögunum
reyndi Verkamannaflokkurinn
þar í landi að láta sem minnst
bera á þjóðnýtingaráformum sín-
um. Manchester Guardian, sem
þó óskaði flokknum sigurs að
þessu sinni, segir, að það, sem
eftir var af þjóðnýtingarfyrirheit-
unum hafi ráðið miklu um ósig-
ur flokksins. Eina yon hans um
sigur í framtíðinni sé að leggja
þjóðnýtingaráform alveg á hill-
una.
Þetta er sennilega rétt. Hin
gamla stefna socialdemokrata er
brðin úrelt. Hún er ekki lengur
í samræmi við hinn „nýja tíma“,
svo sem Alþýðublaðið rökstyður
í gær.
Almenningur á fslandi veit
það. Þess vegna sýnir hann Sjálf-
stæðisflokknum mest traust. Þeir
hafa reynzt bezt hingað til og
markað skýrasta og heillaríkasta
stefnu fyrir framtíðina.
PÁLS
allan róg Tímans og Framsóknar
á umliðnum árum.
E. t. v. er það ekki einber til-
viljun, að Páll skrifaði grein
sína, eftir að fullráðið var, að
hann yrði ekki framar í kjöri
fyrir Framsókn. Páll hefur raun-
ar oftar en flestir aðrir Fram-
sóknarþingmenn farið eigin göt-
ur. Þó hefur hin andlega þving-
un, sem þar liggur á öllum eins
og mara einnig haft sín áhrif á
Pál. Nú finnst honum hann vera
orðinn frjáls maður, og tekur sig
þá til og ómerkir marga árganga
af Tímanum með einu penna-
striki,
UTAN ÚR HEIMI
Rambler 6
Rambler
1960
Brautrydjandi
bandarisku
smábilanna
AMERICAN Motors Corpora-
tion hóf hinn 14. þ. m. sölu á
bifreiðum sínum af árgerð
1960. Er hér um að ræða fjór-
ar aðal-gerðir: „Rambler 6*‘,
„Rambler Rebel V-8“, „Am-
bassador V-8“ og „Rambler
American“, en af þeim öllum
fást hins vegar mismunandi
„afbrigði“ — svo sem tveggja
eða fjögurra dyra, með mis-
munandi innréttingum, og
allir fást þeir sem „station“-
vagnar.
— *k —
Allt eru þetta tiltölulega
litlir vagnar — og hafa verið
hinir langminnstu banda-
rískra bíla, þar til „hinir þrír
stóru“, General Motors, Ford
og Chrysler, senda nú í fyrsta
sinn „smábíla“ á markaðinn.
— Stærsti bíll American
Motors er „Ambassadorinn“.
Hann er 5,4 m á lengd, breidd-
in 1,83 m og fullhlaðinn er
hann 1,44 m á hæð. í honum
er 250 ha. V-mótor með topp-
ventlum, 8-strokka. — Rambl-
er 6 og Rambler Rebel V-8
eru mjög svipaðir, t. d. er
stærðin hin sama: 4,81 m.
lengd, 1,83 m. breidd og um
1,45 m. hæð. Munurinn er
einkum í vélinni. Sá fyrr-
nefndi hefir 6-strokka topp-
ventlavél, 127 ha., en sá síðar-
nefndi V-mótor með topp-
ventlum, 8-strokka, 200 ha.
Minnstur í „fjölskyldunni"
er Rambler American — um
4,5 m. langur. Aftur á móti
er hann ívið breiðari en hin-
ir, eða 1,85 m. Hæðin er ná-
lega hin sama, um 1,45 m. —
í honum er 6 strokka vél, 90
ha. —•
— *&■ —
Eins og fyrr er að vikið
rann American Motors
Corporation á vaðið í Banda-
ríkjunum um framleiðslu
hinna smærri bíla. Félagið
er til orðið úr tveim bílafyr-
irtækjum, sem steypt var
saman fyrir nokkrum árum,
I Nash-Kelvinator og Hudson.
— Núverandi aðalforstjóri
AMC, George W. Romney,
hafði starfað sem aðstoðar-
maður fyrrverandi forstjóra,
George Mason, um nokkurt
skeið, er sá síðarnefndi lézt —
ENN er löngum vísað til Marilyn
Monroe, þegar rætt er um lögu-
legar, ungar leikkonur. Þannig
hefir t.d. Diana Dors oft verið
nefnd „Marilyn Monroe Eng-
lands“. En undanfarið hefir önn-
ur ung leikkona þar í landi einnig
verið skreytt þeim virðulega titli
við og við. Vera Day heitir hún
og hefir leikið bæði í kvikmynd-
um og sjónvarpi. — Ljóshærð
er hún að sjálfsögðu — og hi
lögulegasta til líkamans.
— • —
------♦ En nú vill Vera feta í
fótspor Marilyn Monroe, líka að
því leyti að nota ekki líkams-
fegurðina eina sér til framdrátt-
ar. Hún þykist nefnilega geta
leikið líka. Og nú neitar hún öll-
um tilboðum um hlutverk, þar
sem ætlazt er til að hún sýni að-
eins sínar fögru „línur". — Ég
vil ekki sjá meira af þessum „for-
færandi" hlutverkum, segir hún
— héðan í frá vil ég leika gaman-
hlutvérk.
— • —
------1 Hún hefir reyndar þeg
ar sannað það í sjónvarpinu, að
hún hefir hæfileika á því sviði
— og nú sýnir hún það einnig í
nýrri kvikmynd, sem nefnist „Too
Many Crooks“ — léttur gaman-
leikur. — Upphaflega voru
reyndar ekki gerðar meiri kröf-
ur til stúlkunnar, sem léki um-
rætt hlutverk, en að brjóstmál
hennar væri 105 sentímetrar. —
Satt að segja er Vera Day „að-
eins“ 95 sm. um brjóstin, en leik-
stjórinn, Mario Zampi, komst að
því, að stúlkan hafði leikhæfi-
leika — og þá sló hann af kröf-
um sínum um brjóstastærðina.
— • —
------1 Hin fagra Vera á ann-
ars miklum framgangi að fagna
um þessar mundir, því að auk
— „station“
og Honney var falin forusta
fyrirtækisins. — Hann tók við
því á barmi gjaldþrots, en
hefir nú eflt það svo, að það
annar varla eftirspurninni —
og sífellt er verið að auka
framleiðsluna.
Eftir að Romney varð for-
stjóri AMC 1954, hvarf fyrir-
tækið alveg frá framleiðslu
hinna stóru og dýru bifreiða,
en einbeitti sér að minni bíl-
unum. Árið 1956 tapaði pað
reyndar enn miklu fé — um
20 milljónum dala — en síðari
hluta árs 1957 tók eftirspurn
eftir Rambler bílnum mjög
að aukast, og helzt svo enn.
—• Til dæmis um það, hve eft-
framangreinds hefir hún „slegið
í gegn“ á leiksviðinu — í leikrit-
inu „Bus Stop“, sem á sínum
tíma varð frægt sem kvikmynd,
með Marilyn Monroe í aðalhlut-
verki. — Vera leikur einmitt það
hlutverk á leiksviðinu — og sann-
ar þar enn, að skaparinn hefir
gefið henni fleira í vöggugjöf en
fagran kropp ....
Vera Da
Framh. á bls. 23.
/ fótspor Monroe