Morgunblaðið - 15.12.1959, Blaðsíða 10
10
MORCTJNRL4Ð1Ð
Þriðjudaerur 15. des. 1959
„Jarðnesk íjóð
44
— ný Ijóðabók eftir Vilhjálm trá Skáholti
ÚT ER KOMIÐ úrval úr ljóðum Vilhjálms frá Skáholti og nefnist'
það „Jarðnesk ljóð“. Helgi Sæmundsson ritar formála fyrir bók-
inni, sem hefur að geyma 62 ljóð. — Egill Bjarnason gaf bókina út
á forlagi Kristjáns Kristjánssonar og er frágangur hennar prýðilega
vandaður. Bókin er 128 blaðsíður í stóru broti.
Skáldsaga í smiðum
Eins og fyrr getur ritar Helgi
Sæmundsson formála fyrir bók
Vilhjálms og kemst þar m. a. svo
að orði í niðurlagi hans: „Vil-
hjálmur frá Skáholti gaf út
fyrstu bók sína 1931 og kallaði
Næturljóð. Vort daglega brauð
kom fjórum árum síðar og skip-
aði höfundi sínum á bekk sjálf-
stæðra og sérkennilegra skálda.
Hún var endurprentuð ári síðar
og öðru sinni 1950, en flutti þá
ennfremur ný kvæði, sem þóttu
ærinn viðburður. Aðrar ljóða-
bækur Vilhjálms eru Sól og
menn (1948) og Blóð og vín
(1957). Nú hefur hann í smíðum
skáldsögu um ævi sína og félaga
sinna. Jarðnesk ljóð eru úrval
kvæðanna í nefndum bókum Vil-
hjálms“.
Vilhjálmur frá Skáholti
Guðný Jósefsdóttir
— Minningarorð —
HÚN dó á Elliheimilinu Grund,
miðvikudaginn 9. þ. m. eftir að
velur hinn
rit- m júka
Pwker f-Bell
endingargóða
Hagsýnn maður! Hann veit að
skriftin verður að vera jöfn
og áferðarfalleg. Þessvegna
notar hann hinn frábæra
Parker T-Ball . . . þann gæða-
penna sem skrifar jafnt og
áferðarfallega. Gefur strax
og honum er beitt. Rispar
ekki.
Pourous kúla einkaleyfi PARKERS
Blekið streymir um kúluna og matar
hina fjölmörgu blekholur . . . Þetta
tryggir að blekið er alltaf skrifhæft
í oddinum.
Parker kúlupenni
A PROOUCT OF
THE PARKER PEN COMPANV
f-M14
hafa legið þar nokkuð á 10. ár
samfleitt.
Það þarf ekki mikið til að
segja frá svona hlutum, en að
þola það, líða það allt og lifa
það meira og minna þjáð, alla
þessa mörgu daga og nætur ár
eftir ár, það er meiri manndóms-
raun en í fljótu bragði er hægt
að átta sig á að nokkur maður
geti þolað, enda þarf til þess
óvanalega mikið þolgæði, þraut-
seigju og trúarstyrk. Þessa raun
stóðst Guðný möglunarlaust og
án allrar æðru. Aldrei heyrðist
nokkur kvörtun af hennar munni.
Oft var hún meira að segja með
glens og gaman og sagði sér liði
ekki verr en það, að mörgum
mundi líða verr, enda væri vel
um sig búið og að sér hlynnt svo
sem bezt yrði á kosið. Hún var
löngum glöð í sinni og létt í
lund, þegar við vinir hennar vor-
um að heimsækja hana. Dýrmæt
er sú guðsgjöf að geta glaður og
reifur og æðrulaus gengið gegn
svona stórkostlegum mannraun-
um og langvarandi þjáningum.
Hvað má þeim finnast sem æðr-
ast og kvarta næstum hvað lítið
sem í móti blæs eða að þeim
amar.
Guðný Jósefsdóttir var fædd
í Hafnarfirði 19. sept. 1876. Flutt-
ist föður- og móðurlaus ungling-
ur norður í Skagafjörð 17 eða 18
ára að Selá á Skaga þar sem hún
var í 2 ár. Þaðan fluttist hún til
foreldra minna að Veðramóti og
var hjá þeim, þar til faðir minn,
þá ekkjumaður, hætti að búa árið
1912. Þá kom hún til okkar hjóna,
sem það ár byrjuðum búskap á
Veðramóti og var hjá okkur upp
frá því meðan við bjuggum og
fluttist svo með okkur hingað
suður, og var nánast sem ein af
fjölskyldunni. Öll þessi 47 ár
vann hún, meðan heilsan leyfði,
okkar heimili með einstakri trú-
mennsku og áhuga fyrir velferð
heimilisins og umgekkst börnin
með mikilli hlýju og vinsemd,
sem leiddi til þess að þau unnu
henni öll og vildu allt fyrir hana
gera er mætti gleðja hana og
Framh. á bls. 22.
Gísli Sveinsson
F. 7. 12. 1880. — D. 30. 11. 1959.
KVEÐJA.
SÉRA Valgeir Helgason, að Ás-
um í Skaftártungu, afhenti mér
eftirfarandi kvæði, er útför Gísla
Sveinssonar, fyrrum sendiherra,
var gerð frá Vikurkirkju í Mýr-
dal. Bið ég Morgunblaðið að birta
kvæðið. — Páll Pálsson.
Genginri er Gísli,
gegn og mætur,
þing forseti,
þjóðin grætur.
Hann var í öllu
heill og sterkur,
lýða sómi,
löngum merkur.
Margt var starfað,
því stór var hugur,
að mörgu unnið,
mikill var dugur.
Sýslumaður
og sendiherra,
sígild verkin
ekki þverra.
Mælska og málsnilld
manninn prýddu.
svo andagtugir
aðrir hlýddu.
Stjórnmál lét han*
til sín taka,
trúði á mátt
og gildi raka.
Hann lét sér annt
um kirkju og kristnl,
unni því ei
að lífstréð visni.
Við þökkum honum
snjöllu störfin,
stór var þeirra
jafnan þörfin.
Hans ævidagur
er nú liðinn,
enginn hreppir
lífsins griðin.
Við kveðjum hann
með klökkum huga,
Kristur megi nú
honum duga.
Valgeir Helgason.
Skrásett vörumerki: Minnesota Mining Mfg. Co. U.S.A
Einkaumboð:
G. ÞORSTEINSSON tc JOHNSON H.F.
Grjótagötu 7 — Sími 2-4250
Allskonar karlmannafatnaður
vörur fyrir karlmenn
Skólavörðustíg 2 — Vesturveri
Skóiavörðustig 2 — Vestui veri
Skolavoröustíg 2 — Vesturveri
Skólavörðustíg 2 — Vesturveri