Morgunblaðið - 15.12.1959, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 15.12.1959, Blaðsíða 17
*Þriðjudagur 15. des. 1959 MORCVNfíLAfílÐ 17 Sjötug 1 dag Frú Olína Snæbjarnar- dóttir, frá Svefneyjum HINN 15. des. 1879 fæddist í Svefneyjum á Breiðafirði, merk- iskonan Ólina Kristín Snæbjarn- ardóttir, prestsfrú frá Stað á Reykjanesi. Frú Ólina er dóttir hins alkunna sægarps Snæbjarn- ar Kristjánssonar, hreppstjóra og bónda í Hergilsey og konu hans Guðrúnar Hafliðadóttur frá Svefneyjum. Þetta eru svo kunn- ar ættir að ég hirði ei að rekja þær lengra. Frú Ólína giftist 3. okt. 1903 séra Jóni Þorvaldlssyni hinum merka, trausta og vinsæla kenni- manni, sem þá hafði fengið veit- ingu fyrir Staðarprestakalli hinn 11. júní s. á. Þau hófu búskap á Stað einnig þetta sama ár, voru öll hús jarðarinnar mjög fom og að falli komin, en þau bættu þau fljótlega og byggðu allt upp. Þau bjuggu á Stað farsælu og góðu búi á meðan séra Jón lifði, en hann dó 31. des. 1938. Börn frú Ólínu og séra Jóns eru, sem nú lifa, þessi: Snæbjörn bóndi á Stað, Ragnheiður gift frú íReykja vík, Kristján sýslufulltrúi á Ak- ureyri og fóstursonur, séra Jón Árni Sigurðsson, prestur í Grinda vík. Öll eru börnin vel metin og gott fólk. Fyrst eftir lát séra Jóns dvald- ist frú Ólína á Stað, hjá Snæ- birni syni sínum, en eftir að séra Jón Árni varð prestur í Grinda- vík, hefur hún oft dvalizt hjá honum, en annars á hún heima á elliheimilinu Grund hér í Reykja vík. Ég sem þessar línur skrifa var svo heppinn að dveljast hjá þeim Staðarhjónum veturinn áður en ég fermdist og árið þar á eftir, en það voru fyrstu misserin eftir að þau komu að Stað. Ég var ávallt tíður gestur á Staðarheim- ilinu á meðan vegir lágu saman, enda fannst mér líkara því að ég væri sonur þeirra hjóna en vanda laus drengur, svo góð voru þau mér. Mér er margt minnisstætt frá þeim tímum og allt til hins betra, á þeim vetrum vorum við fjórir til sex piltar við nám hjá séra Jóni, kenndi frú Ólína okk- ur þegar embættisannir töfðu prestinn, en hann rækti störf sín af mikilli alúð og kappi. Þau hjón voru söngelsk og spiluðu bæði, hann á orgel og hún á gítar, voru margar kvöld- og rökkur- stundir mjög ánægjuríkar. Frú Ólína hafði góða rödd og söng og spilaði vel, eftir því sem ég hefi vit á að dæma um og séra Jón var annálaður bassamaður. Þótt við unglingar værum fyrst tregir og hálf feimnir við að taka þátt í söngnum fót svo að lokum að við vorum með Frú Ólína var stjórnsöm húsmóðir, féll aldrei verk úr hendi, hún var lagin til allra verka og hinn bezti klæð- skeri, hún var kvenna- og mat- reiðsluskólagengin og vel að sér um allt húshald, einnig vel að sér til bókar. Frú Ólína var með myndarlegustu konum og mátti kallast fríð, hún tók oft ungar stúlkur og kenndi þeim til munns og handa og unglingar sem dvöldu hjá henni urðu myndar- fólk. Frú Ólína hefur í rauninni ver- ið mikil gæfukona, þó hefur hún ekki síðan ég kynntist henni átt því láni að fagna að vera heilsu- sterk og hún hefur orðið að ganga undir marga uppskurði, en hún hefur borið vanheilsu sína með stillingu, hver reynsla hennar og Útvegum innflytjendum flestar stærðir af Hjólbörðum og slöngum fyrir bifreiðar og landbúnaðar- vélar frá Sovétríkjunum. Mors Troding Compony Hf. Klapparstíg 20 — Sími 1-73-73 i Á hverjum morgni. Fyrirtak. Ljúffengt, frískt í munni. OTA Corn Fiakes 0X4 CORN FLAKES “er pakkað i loftþéttar umbúðir pessvegna hrökk-purt” sársauki hefur borið hennar and- lega mann til meiri þroska, þ. e. hún hefur kafað að sorgarhafs- botninum og fengið sannleiks- perluna að launum. — Hún ber ekki kala til nokkurs manns og hefur fullt traust til tilverunnar og höfundar hennar. Þetta og fjö! skylduhamingja er í rauninni það bezta sem nokkur getur öðlazt. Og nú, um leið og ég lýk við þesar línur, með ósk hamingju og gleði henni til handa, allar henn- ar ólifuðu ævistundir, vil ég votta henni einlægt þakklæti mitt og míns fólks fyrir allt hið góða, sem við höfum notið í kynn ingu og viðskiptum frá henni og heimili þeirra hjóna. Bjarni Hákonarson. Crandaver h.f. við Grandagarð Önnumst allar viðgerðir á Gúmmíbjörgunar- bátum, allskonar sjófatnaður, veiðarfæri, Skiparakkettur og Flugeldar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.