Morgunblaðið - 15.12.1959, Blaðsíða 23
Þriðjudagúr 15. des. 1959
MORGU1SBLAÐ1Ð
23
— Samkomulagið
Framh. af bls. 1.
þurfa að fá vegna útflutnings
afurða þeirra, hefur verlð
horfið að því ráði að láta
bæta halla af honum úr út-
flutningssjóði.
Útfiutningsuppbætur mega
þó aldrei nema meiru en
10Í4 af heildarframleiðslu-
verðmæti viðkomandi árs.
3) Verðlagsgrundvðllurinn, sem
sex manna nefndin, eða yfir-
nefndin, sem ákveður hann,
ef samkomulag næst ekki
innan sex manna nefndar-
innar, gildir frá 1. september
1959 tíl 31. ágúst 1960.
Verðlag landbúnaðaraf-
urða helxt því óbreytt, frá
því sem nú er, þar til nýr
verðlagsgrundvöllur hefur
verið fundinn, samkvæmt
ákvæðum hinna nýju bráða-
birgðalaga, sem gefin munu
verða út í dag.
Samninganefndirnar
1 samninganefnd þeirri, sem
vann að ofangreindu samkomu-
lagi, áttu þessir menn sæti af
hálfu framleiðenda:
Sverrir Gíslason, formaður
Stéttarsambands bænda, Sigur-
jón Sigurðsson, bóndi í Raftholti,
Steingrímur Steinþórsson, bún-
aðarmálastjóri og Sveinn
Tryggvason, framkvæmdastjóri
Framleiðsluráðs landbúnaðarins.
Af hálfu neytenda áttu sæti í
nefndinni:
Eðvarð Sigurðsson, frá Alþýðu-
sambandi íslands, Einar Gislason,
frá Landssambandi iðnaðar-
manna og Sæmundur Ólafsson
frá Sjómannafélagi Reykjavíkur.
Gunnlaugur Briem ráðuneytis-
stjóri starfaði með nefndinni fyr-
ir hönd Ingólfs Jónssonar land-
búnaðarráðherra, sem einnig tók
mikinn þátt í störfum hennar.
Fréttatilkynning frá land-
búnaðarráðuneytinu
Mbl. barst í gærkvöldi svo-
hljóðandi fréttatilkynning um
þessi mál frá landbúnaðarráðu-
neytinu:
TJndanfarna 10 daga hafa staðið
yfir samningaviðræður milli full-
trúa Stéttarsambands bænda
annars vegar og hins vegar full-
trúa neytendasamtaka, Alþýðu-
sambands íslands, Landssam-
bands iðnaðarmanna og Sjó-
mannafélags Reykjavíkur, um
það, hvernig haga skuli verð-
lagningu landbúnaðarafurða. —
Landbúnaðarráðherra, Ingólfur
Jónsson og Gunnlaugur Briem,
ráðuneytisstjóri, tóku þátt í við-
ræðum þessum.
Sl. nótt náðist samkomulag
milli þessara aðila um það,
hvemig með þessi mál skuli far-
ið framvegis.
Aðal breytingar frá fyrra
skipulagi em sem hér segir:
L Svokölluð sexmannanefnd,
sem skipuð er tveim mönnum
frá Stéttarsambandi bænda,
einum frá Framleiðsluráði
landbúnaðarins og þremur
mönnum frá framangreindum
neytendasamtökum, skal skip-
uð að nýju þegar í stað.
Höfuðverkefni sexmanna-
nefndar verður að ákveða
verðlagsgrundvöll til bænda
og verð á búvörum í heildsölu
og smásölu. Gildir þessi skip-
an fyrst og fremst um verð-
lagningu að hausti til og aðr-
ar verðbreytingar, er veru-
legu máli skipta.
2. Söluverð landbúnaðarvara á
erlendum markaði skal ekki
bætt upp með því að hækka
söluverð búvara á innlendum
markaði. Hins vegar er bænd-
um tryggt að fá innlenda
verðið fyrir útfluttar búvörur.
3. Verðlagsgrundvöllur sá, sem
sexmannanefnd ákveður, skal
gilda frá 1. sept. sl.
Afdrifaríkasti ráðherra-
fundur NATO?
PARÍS, 14. desember. — Ráð-
herrafundur Atlantshafsbanda-
lagsins hefst á morgun undir for
sæti Lange utanríkisráðherra
Norðmanna. AHt bendir til þess,
að þetta verði einn afdrifarík-
asti ráðherrafundurinn í hinni 10
ára sögu bandalagsins. Ásakanir
Twining, yfirforingja varnamáia
Bandaríkjanna, þess efnis, að
Frakkar stæðu ekki við skuld-
bindingar sina við bandalagið,
hafa vakið athygli. Twining er
líka sagður hafa áfellzt Frakka
fyrir að standa gegn því, að her
bandalagsins verði settur undir
eina stjóm.
Á fundi, sem Paul Henri Spaak
framkvæmdastjóri NATO, hélt
með fréttamönnum í dag, sagði
hann, að bandalagsþjóðirn-
ar yrðu að viðurkenna fyrir sjálf
um sér, að margt mætti fara betur
en aðspurður um ræðu Twinings,
sagði Spaak, að Twining hefði
ekki sagt neitt, sem mönnum
hefði komið á óvart. Hann hefði
gagnrýnt vissa hluti, sem honum
hefði fundizt þess verðir og slíkt
væri ekki nema sjálfsagt og eðli-
legt.
Sagði Spaak, að ekkert væri
óeðlilegt við það, að ágreiningur
og skoðanamunur yrði innan
bandalags sem NATO, slíkt þyrfti
ekki að vera vísbending um veik
leika. Innan bandalagsins giltu
lýðræðisreglur, þar hefðu allir
rétt á að segja sitt álit á hlut-
unum.
Meginverkefni þessa fundar
verður að ræða væntanlegan
fund ríkisleiðtoga stórveldanna.
Væntanlega verður svo miklum
tíma varið til að reyna að jafna
deilurnar sem risið hafa með
Bandaríkjamönnum og Frökkum.
I»að, sem m. a. hefur verið nefnt
í því sambandi er, að Frakkar
hafa ekki viljað taka við kjarn-
orkusprengjum á sama hátt og
önnur bandalagsríki, enda þótt öll
bandalagsríkin telji bráðnauðsyn
legt að slík vopn séu varðveitt í
Frakklandi. Þá hafa Frakkar
verið mjög ósamvinnuþýðir hvað
stjórn Miðjarðarhafsflotans við-
kemur.
Undanfarna daga hafa herfor-
ingjar og varnarmálasérfærðing-
ar bandalagsríkjanna setið á rök-
stólum til að undirbúa mál ráð-
herrafundarins. I dag ræddust
margir utanaríkisráðherrarnu-
við, Herter, t. d. við Murville,
sem lét í ljós óánægju yfir því
að kaflar úr ræðu Twinigs höfðu
verið birtir í blöðum vestra.
Á laugardaginn mun Eisenhow-
er koma til Parísar. Gengur hann
þegar á fund de Gaulle, en síðar
munu þeir báðir ræða við Mac
millan og Adenauer.
Soraya
giftíst
Orsini
Mannfjöldi veittí söku-
dólgi gegn lögreglunni
Ruða brotin i lögreglustöðinni
SKÖMMU fyrir miðnætti aðfara-
nótt sunnudagsins kom unglings-
piltur inn á lögreglustöðina og
kærði árás, sem hann kvaðst hafa
orðið fyrir úti á götu þá rétt
áður. Sagðist pilturinn mundi
þekkja árásarmanninn ef hann
sæi hann aftur.
Fóru lögregluþjónar út með
piltinum, fyrst upp í Lækjargötu,
en síðan um Miðbæinn. I Aðal-
stræti benti pilturinn á ungan
mann og sagði að þar færi árásar-
maðurinn. Tók lögreglan þennan
mann höndum og ætlaði að færa
á lögreglustöðina. Ekki var mað-
ur þessi mikið ölvaður, en sýndi
mótþróa og lauk svo, að lögreglu
mennirnir settu á hann handjárn.
Bylgjusviðsbreyting
sjálfsvörn Útvarpsins
ÞEGAR Utvarp
lauk dagskrá sinni í gær-
kvöldi, var öldulengd stöðv-
arinnar breytt úr 1648 metr-
um í 1437 metra eða 209
kilórið.
Það stóð til að gera þessa
bretyingu fyrir jólin í fyrra, en
var horfið frá því. Nú kom þessi
breyting til framkvæmda af
knýjandi nauðsyn. Stöðin „Ev-
rópa 1“ í Saar, sem hefur fjór-
um sinnum meiri sendiorku en
Reykjavík flutti sig fast að
Reykjavík og eyðilagði viðtöku-
skilyrði frá henni á öllu austan-
verðu landinu. Það má þvi segja
að þetta sé gert í sjálfsvamar-
skyni, sagði Stefán Bjarnason,
yfirverkfræðingur útvarpsins, í
samtali við Mbl.
Reykjavík Búast má við að þessi breyting
standi um marga mánuði, eða
þar til bylgjulengd sú, sem Is-
landi var úthlutað á alþjóðlegri
ráðstefnu í Kaupmannahöfn fyr-
ir 7 árum, verði hreinsuð og það
tryggt að íslendingar hafi full
not af henni.
Það er margra klukkustunda
verk að breyta um bylgjusvið
fyrir útvarpsstöðvar, vegna þess
hve rafstraumar og rafsvið eru
sterk. Verður hinni eiginlegu
breytingu á bylgjusviðinu vart
lokið fyrr en undir morgun. Það
eru sterkar Iíkur til þess að með
þessari breytingu verði bætt til
muna hlustunarskilyrðin á Aust-
urlandi, sagði Stefán að lokum.
Bnlninir ekki
iró Hnns Hedtoit
EINS og menn rekur vafalaust
minni til rak tvo gúmmíbjörg-
Pilturinn kallaði þá á hjálp.
Margt manna var samankomið
þama í kring og reyndust það
margir nærstaddra fúsir að veita
piltinum, að lögreglumennirnir
urðu að berja frá sér með kylfum.
Barst leikurinn upp Austurstræti
og spyrnti sá handtekni mjög við
fótum. Krækti hann fótunum eitt
sinn utan um umferðarmerki og
hélt sér þar um stund.
Fólksskarinn fylgdi á eftir með
ópum og köllum og hélt þeirri
háreysti áfram fyrir utan lög-
reglustöðina. Var brotin ein rúða
í lögreglustöðinni.
Árásarmaðurinn var settur í
varðhald og rannsóknarlögreglan
tók mál hans að sér. Við yfir-
heyrslu játaði hann að hafa ráð
izt á piltinn, en því hafði hann
eindregið neitað allt frá því hann
fyrst var handtekinn. Gaf söku-
dólgurinn þá skýringu á árásinni,
að um gamlar erjur milli hans
og piltsins væri að ræða.
RÖMABORG. — Soraya, fyrrum
keisaradrottning í Persíu, er að
ganga til kaþólskrar trúar og ætl
ar giftast ítalska prinsinum Rai-
mondo Orsini. Samkvæmt góð-
um heimildum í Róm verður trú-
lofun þeirra kunngerð í sam-
kvæmi að kveldi 16. desember,
en þangað hefur 400 manns verið
boðlð. Fimm dögum síðar mun
Persakeisari, sem skildi við
Sorayu í fyrra, giftast í þriðja
sinn, nú hinni 21 árs gömlu
Farah Diba.
Soraya og Orsini prins eru
bæði 28 ára að aldri. Orsini fjöl-
skyldan er ein hin tignasta á
Italíu, í þeirri ætt er 21 dýrl-
ingur, 40 kardinálar hafa líka ver
ið af ættinni svo og 5 páfar og 11
drottningar.
Um skeið hefur það verið opin-
bert leyndarmál, að Soraya hefur
notið fræðslu í kaþólskum fræð-
um. En hún er fædd múhameðs-
trúar og hefur alla tíð verið
þeirrar trúar. En um leið og hún
kastar trú sinni og gerist kaþólsk
mun hjónaband hennar og Persa-
keisara ómerkt af hálfu Páfastóls
ins.
Keppa um sýslii-
bikar
KEFLA VÍKURFLU G VELLI, 14.
des. — Skákkeppni um sýslubik-
ar Gullbringu- og Kjósarsýslu
hófst í Keflavík á sunnudag.
Breiðablik í Kópavogi vann skák-
félag Sandgerðis með sjö vinning-
um gegn þremur. Keflavík sat
hjá, þar sem Njarðvíkingar
mættu ekki til leiks. Næst keppa
Keflavík og Kópavogur 3. janúar
í Keflavík. Keppt er í tíu manna
sveitum. — Bogi.
Sortnar í álinn
Chessman
fy
rir
WASHINGTON, 14. desember. _
Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi
þann úrskurð í dag, að mál Chess
mans skyldi ekki aftur upp tekiS.
Chessman hefur sem kunnugt er
^ setið í fangelsi i hálft tólfta ár
, , , . . ; og beðið lifláts sakir ýmissa af-
unarbata ekki alls fynr longu , brota en tekizt margsinllis að fá
austur a Langanesi. Ekki hefur fullnæffinffu dómsins frestað. Síð-
ast átti aftaka hans að fara fram
í október, en þá fékk hann enn
frestun með því að beita laga-
krókum og ætlaði að fá Hæsta-
rétt til að taka málið upp á ný.
Móðir okkar og tengdamóðir,
KRISTlN JÓNSDÓTTIR
andaðist að heimili sinu, Fálkagötu 13 sunnudaginn 13.
desember.
Börn og tengdabörn
enn tekizt að fullsanna af hvaða
skipi þeir eru, en sennilegast er
talið, að þeim hafi verið fleygt
af einhverju brezku herskipi. I
fyrstu héldu menn jafnvel, að
btáarnir væru frá Grænlandsfar-
inu Hans Hedtoft þar eð þeir
voru enskir að uppruna og af
svipaðri stærð og Hedtoft mun
hafa haft innanborðs. En við
nánari athugun hefur komið í
ljós, að svo er ekki. Hafa dönsku
blöðin gengið úr skugga um það.
Ég þakka af heilum huga öllum, sem heiðruðu mig og
glöddu á áttatíu á,ra afmæli mínu.
Ég bið ykkur édlrar blessunar.
Kristín Guðmundsdóttir frá Bildsey.
Hver hirði
siim frakka
RANN SÖKNARLÖGREGLAN
situr uppi með fjóra karlmanns-
frakka eftir helgina. Eru þeir
þannig komnir í hennar vörzlu,
að aðfaranótt sunnudagsins sáust
drengir með þá á ferðinni
skammt frá Vetrargarðinum. Var
talið líklegt að áhugasamir dans-
menn hefðu smeygt sér úr frökk
unum fyrir utan húsið.
Faðir minn, sonur, afi og bróðir
IÍARL G. MAGNÚSSON
andaðist 11. þessa mánaðar.
Dóttir. móðir og systur
Jarðarför h'tlu dóttir okkar
ÓLlNC
sem lézt að Landakotsspítala þann 10. þ.m. fer fram
fimmtudaginn 17. þ.m. kl. 10,30 fyrir hádegi.
Jón Björnsson, Beta Hannesdóttir.
Eiginmaður minn og faðir okkar,
KINAR HERMANNSSON
fyrrv. yfirprentari
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, miðvikudaginn 16.
des. kl. 2 e.h. Athöfninni verður útvarpað. Blóm éifþökk-
uð. Þeim, er vilja minnast hans, er bent á líknarstofnanir
Helga Helgadóttir og börn.
Útför föður okkar, tengdaföður og afa,
SIGURJÓNS ARNLAUGSSONAR
fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði, fimmtudaginn
17. des. kl. 1,30 e.h.
Börn, tengdabörn og barnabörn
Þökkum auðsýndar samúðarkveðjur við andlát manns
míns og föður okkar
BUEL DAVIS
Philadelphia
Fanny S. Davis og synir.