Morgunblaðið - 15.12.1959, Page 15

Morgunblaðið - 15.12.1959, Page 15
Þriðjudagur 15. des. 1959 M o R c ri n n r 15 fram yfir þýddar. Bók Ingi- bjargar er um það bil að selj- ast upp hjá forlagi. Jakob Jónasson kemur nú fram í fyrsta skipti undir eigin nafni með skáldsögu. Og Bagnheiður er fyrir Iöngu búin að skipa sér á bekk með vinsælustu skáldsagnahöf- undum íslenzkum. Metsölubók Verð kr. 68,— Saga um íslenzk örlög Verð kr. 138.— islenzkar skáldsögur Smásögur með teikningum Verð kr. 138.— fslendingar hafa jafnan tekið Hið nýja verzlunarhús Verzlunarfélags Borgarf jarðar Glæsilegt verzlunarhús tekið í notkun í Borgarnesi Fyrsta kaupmannaverzlunin, sem setur upp kjörbúð utan Reykjavíkur SL. FÖSTUDAG var opnuð ný og glæsileg verzlun í Borgarnesi sem Verzlunarfélag Borgarfjarðar er eigandi að. Hér er um að ræða fyrstu kjörbúðina sem kaup- mannaverzlun setur upp utan Reykjavíkur. Verzlun þessi er í alla staði hin vistlegasta. Tíðindamaður blaðsins hafði tal af Friðriki Þórðarsyni fram- kvæmdastjóra Verzlunarféiags Borgarfjarðar og lagði fynr hann nokkrar spurningar í tilefni þess- ara tímamóta. Stofnað 1924 Verzlunarfélag Borgarfjarðar er stofnað árið 1924 upp úr firm- anu Jón Björnsson og Co., en það fyrirtæki hafði keypt verziunina af Johan Lange, norskum kaup- manni, árið 1906. Langes-verzlun hafði verið rekin um langt ára- bil í Borgarnesi og meðal verz'l- unarstjóra þar var hinn kunni athafnamaður Thor Jenaen. Verzlunarfélag Borgarfjarðar er nú önnur stærsta verzlun á verzlunarsvæði Borgarness. Það er fyrst og fremst byggt upp sem sveitaverzlun, selur allt frá saum- nálum upp í traktora. í hinni nýju verzlun eru í rauninni marg ar deildir undir sama þaki. Þar eru seldar alls konar nýlenduvör- ur, kjötvörur, búsáhöld og gler- varningur, fatnaður, ritföng og bækur svo nokkuð sé nefnt af hinu fjölmarga, sem þar er á boð- stólnum. Verzlunarfélagið hefir á hendi slátrun og rekur slátur- hús á fimm stöðum og slátrar árlega 10—12 þúsund fjár auk fjölda stórgripa. Félagið hefir þvi á hendi umboðssölu á öllum fram leiðsluvörum bænda nema mjólk urafurðum. Einn stærsti þáttur- inn í verzlun félagsins er sala á alls konar byggingarvörum og verður byggingarvörudeildin nú flutt í hið gamla verzlunarhús- næði félagsins. Nýja húsið 310 ferm. Nýja verzlunarhústð er tvær hæðir og er gert ráð fyrir að byggja þriðju hæðina ofan á það síðar og verður þar skrifstofuhús- næði. Húsið er 310 fermetrar að grunnfleti. Á efri hæðinni er hin stóra og myndarlega /erzlun, en á neðri hæðinni eru kæliklefar og frystigeymslur auk kjötvinnslu og matargerðar. Fram til þessa Friðrik Þórðarson framkvstj. hefir allt kjöt félagsins verið flutt til geymslu á Akranesi og Reykja vík. Auk hinnar fjölþættu verzl- unar, sem félagið rekur, starf- rækir það trésmiðju og er þar smíðað allt smátt og stórt, sem byggingu við kemur. Sá hún t.d. algerlega um alla innréttingu hinnar nýju búðar. Halldór Jónsson arkitekt teikn- aði hið nýja hús. Byggingameist- ari var Jóhann Snæbjörnsson og hann annaðist einnig miðstöðvar- lagningu. Múrarameistari var Halldór Gestsson en málarameist- ari Einar Ingimundarson og raf- lögn alla annaðist Ornrar Orms- son og synir hans. Forstöðumaður trésmiðjunnar er Björn Markús- son. Kristinn Kristinsson, Reykja vík, sérfræðingur í uppsetningu sjálfsvöruverzlana, hefir skipu- lagt hina nýju verzlun og mun þjálfa afgreiðslufólkið. 20 manna starfslið Hjá verzlunarfélagi Borgar- fjarðar vinna alls 20 manns og hefir verzlunin jafnan verið hjúa- sæl, ef svo má orða það, en sama fólkið hefir unnið mjög lengi hjá fyrirtækinu sumt lengst af starfs- ævi sinni. Framkvæmdastjórinn hefir unnið óslitið hjá fyrirtæk- inu síðan 1933. Stjórn Verzlunarfélags Borgar- fjarðar skipa Björn Jónsson bankafulltrúi, formaður, Halldór H. Jónsson arkitekt og Friðrik Þórðarson, en hann hefir stjórn- að fyrirtækinu frá árinu 1944. Með flutningi verzlunarinnar I hið nýja hús yfirgefur hún hús- næði, sem hún hefir verið í frá upphafi. Elzti hluti gamla húss- ins mun vera frá því fyrir 1880. fbúðarhús það sem fylgir eign- inni og var verzlunarstjórahús fyrr á árum er hið elzta í Borg- arnesi, þar sem enn er búið. En það var byggt 1876. Þessi kunna verzlun hefir jafn an átt miklum vinsældum að fagna. Jón heitinn Björnsson frá Bæ rak hana með miklum mynd- arbrag og sagði Friðrik Þórðar- son, að reynt hefði verið að halda í því horfinu síðan. ATHUGIÐ að borið saman við útbreiðslu er langtum -dýfara að auglýsa í Morgunblaðinu er í öðrum blöðum. — íbúðir til sölu til sölu í villubyggingu við Sigtún: Önnur hæð og rishæð á annari hæð, 4ra herb. stór og glæsileg íbúð. 1 rishæðinni 3ja. herb. íbúð, sem er laus tál íbúðar nú þegar. Uppl. gefur: MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA Vagns E. Jónssonar. Austurstræti 9. Sími 14400 Baðker Rússnesku baðkerin kosta aðeins kr. 1845.00 með botnventli, vatnslás og yfirfails-ventli. Birgðir væntanlegar inn- an skamms. Sýnishorn fyrirliggjandi. Tökum á móti pöntunum. Mors Troding Company Hf. Klaouarstíg 20 — Sími 1-73-73

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.