Morgunblaðið - 20.12.1959, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 20. des. 1959
Gissur Pálsson rafvirkja
meisfari 50 ára
„Stakir steinar"
ný bók Kristjáns Eldjárns um
fornar minjar
BÓKAÚTGÁFAN Norðri hefur
FRÁ uppvaxtarárum mínum á
fyrsta fjórðungi þessarar aidar
minnist ég sérstaklega eins heim-
ilis, sem mér var kunnugt í ná-
grenni mínu, er af bar um allan
þrifnað utan húss og innan,
smekkvísi, rausn og hvers kyns
híbýlaprýði. Það var Þykkvibær
í Landbroti. Þar var tvíbýli, og
mátti þetta vel eiga við um bæði
heimilin. En á suðurbænum var
ég kunnugri, þar sem réðu húsum
hjónin Páll Sigurðsson og Mar-
■grét Elíasdóttir, hann maður gáf-
aður, hugsandi og búhöldur ágæt-
ur, hún rausnarkona og einstök
um allan snyrtibrag á heimili.
Mörg voru þau systkinin, börn
þeirra, er ólust þar upp, og allt
hið mesta myndarfólk, er ber
hinn sama blæ snyrtimennsku og
dugnaðar. Næstyngstur þessara
systkina er Gissur Pálsson raf-
virkjameistari hér í bæ, er átti
fimmtugsafmæli hinn 13. des. sl.
Af einhverjum ástæðum láðist
mér að koma á framfæri afmæl-
iskveðju til hans á réttum degi,
og því er nú þessi síðbúna kveðja
á ferðinni, og vona ég að sannist
um það orðtakið, að betra er
seint en aldrei.
Atvikin höguðu því svo, að
þótt ég hefði allnáin kynni af
sumum eldri systkinum Gissurar
á uppvaxtarárum mínum, urðu
kynni okkar mest eftir að ég var
seztur að hér í Reykjavík fyrir
fjórtán árum, og mest innan góð-
templarareglunnar. Þar hefur
Gissur verið starfandi um langt
_ BÓK
ORLAGANNA
Töfrahringir greifans af Cagliostro
Þessi bók örlaganna
er hin merkilegasta spádóma-
bók, sem mannlegur heili hef-
ur framleitt. — Það þarf því
enginn að óttast nein von-
brigði, þegar hann spyr þessa
merkilegu véfrétt til ráða. —
Hún mun svara afdráttar-
laust, ótvírætt og nákvæmt. —
Til þess að skemmta mönn-
um í samkvæmum er hún til-
valin, og mun þar þykja bæði
eftirtektarverð og skemmtileg
Bók örlaganna kostar aðeins
50 kr. — Fæst víða hjá bók-
sölum eða gegn póstkröfu,
frá útgefanda, pósthóif 462,
Reykjavík.
Til jólagjafa
Undirfatnaður
í miklu úrvali
náttkjólar, undirkjólar
nátttreyjur, millipils
úr nylon og prjónasilki
nylonsokkar crepesokkar
herrasokkar drengjasokkar
Helancasokkabuxur
á böm og fullorðna
Verzlunin
U N N U R
Grettisgötu 64.
árabil, og oftast í fararbrjósti,
ýmist í stúku sinni Framtíðinni
eða í framkvæmdanefnd Stór-
stúku íslands, en í henni hefur
hann átt sæti sem stórgæziumað-
ur unglingastarfs frá 1954 þar til
á síðastliðnu sumri, er hann lét
af því starfi samkvæmt eigin ósk,
sakir mikilla anna við önnur
störf. I starfi sínu sem stórgæzlu-
maður sýndi Gissur Pálsson ein-
stakan dugnað og árvekni, og
em ótaldar þær stundir, sem
hann varði til ferðalaga og eftir-
lits og allra þeirra starfa, sem
því embætti fylgja. Lét hann sér
mjög umhugað um framgang ung
lingareglunnar og fylgdist ná-
kvæmlega með starfi hinna ein-
stöku bamastúkna, ætíð reiðu-
búainn að koma til hjálpar, og
útvega nýja forustumenn, þegar
aðrir féllu frá. Voru honum flutt-
ar sérstakar þakkir fyrir vel unn
in störf á síðasta stórstúkuþingi,
með sérstakri samþykkt þingsins.
En Gissur Pálsson á fleiri á-
hugamál en bindindismálið, þótt
það sé honum mjög hjartfólgið. í
Leikfélagi Reykjavíkur hefur
hann verið áhugasamur starfs-
maður sem ljósameistari um all-
langt skeið, og einnig þar leyst
af hendi hlutverk sitt með prýði.
Og í starfsgrein sinni sem raf-
virkjameistari er hann æ boðinn
og búinn að leysa hvers manns
vandkvæði, og hef ég einnig þar
oft notið hans að.
Gissur Pálsson er k 'Ventur
hinni ágætustu konu, Sigþrúði
Pétursdóttur, er verið hefur hon-
um mjög samhent í öllum áhuga-
málum. Hún hefur einnig um
margra ára skeið átt sæti í fram-
kvæmdanefnd Stórstúkunnar sem
stór-varatemplar, og minnist ég
með mikilli ánægju samstarfsins
á því sviði við þau hjón bæði.
Þau hafa eignazt tvær dætur.
Hina eldri þeirra, Bryndísi,
misstu þau á unglingsaldri, en
hin yngri, Sigrún, er uppkomin
og gift Sigurði Jörgenssyni við-
skiptafræðingi.
Heimili þeirra hjóna hefur æ-
tíð borið hinn sama snyrti- og
glæsibrag og ég kynntist í æsku
á bernskuheimili Gissurar, enda
hefur húsmóðirin þar sízt látið
sinn hlut eftir liggja. Nú hafa
þau nýlega eignazt nýtt og glæsi-
legt heimili að Álfheimum 48,
og bið ég þau njóta vel og lengi.
Lýk ég svo þessum fátæklegu
beztu þökkum fyrir vináttu og
orðum með hjartanlegri ham-
ingjuósk til afmælisbarnshis og
margs konar greiðvikni og lipurð
í samstarfi, og blessunaróskum
um gleðileg jól og farsæla fram-
tíð heimili þeirra og vandamönn-
um.
Björn Magnússon.
— Reykjavikurbréf
Framh. af bls. 13.
ár lifað umfram efni. Fram hjá
þessum staðreyndum verður ekki
með neinu móti komizt. Til þess
að hefja nýja sókn fram á við,
verður að hreinsa til og laga
það, sem nú er ábótavant. Með
því verður grundvöllurinn til
frambúðarvelmegunar lagður.
Á þeim grundvelli verður síðan
örúggast og farsællegast byggt
með því að velja þau úrræði, er
skapa mestar líkur fyrir harð-
astri framleiðsluaukningu þjóðar-
innar. Á framleiðslunni lifum við
öll saman og kjör okkar eru háð
því, að hún verði sem allra mest.
nú sent úr sína aðal-jólabók. Það
er bókin „Stakir steinar“, eftir
Kristján Eldjárn þjóðminjavörð.
Kristján Eldjárn
Bók þessi inniheldur tólf frá-
sagnir um íslenzkar minjar, sum-
ar fornar, aðrar frá síðari öld-
um.
„Aufúsugestur".
Bókin „Stakir steinar" er önn-
ur bók Kristjáns Eldjárns um
BUENOS AIRE3, 19. des. —
Reuter. Hópar uppreisnarmanna
sækja nú að annarri stærstu
borg í Paraguay, Encarnacion,
úr mörgum áttum. Er þetta haft
eftir góðum heimildum við landa
mæri Argentínu. Útvarpsstöðvar
uppreisnarmanna, sem hófu send
ingar fyrir viku, þegar útlagar
frá Paraguay, sem staddir voru
í Argentínu gerðu innrás í land-
slíkt efni. Hin fyrri var „Gengið
á reka“ og fékk mjög góðar við-
tökur. Má ætla að þessi bók verði
einnig aufúsugestur á heimilum
þeirra, er unna íslenzkum fróð-
leik og minjum um líf og starf
kynslóða í þessu landi.
47 myndir prýða bókina.
Um efni bókarinnar má fá
nokkra hugmynd af kaflaheitun-
um tólf, en þau eru. Munir og
minjar, Hannyrðakona úr heiðn-
um sið, Smásaga um tvær nælur
— og þrjár þó; íslands þúsund ár;
„Brunarústir á Bergþórshvoli,
Svipir í Flatatungubæ, Hringur
austurvegskonunga, Minnishorn
Skálholtsdómkirkju, Ögmundar-
brík, Þrætukistan frá Skálholti,
íslenzkur barokkmeistari (U:n
Guðmund Guðmundsson smið i
Bjarnastaðahlíð) og Meitill og
fjöður.
Bókin er mjög vönduð að frá-
gangi. Er hún prentuð á vandað-
an myndapappír, en bókina prýða
alls 47 Ijósmyndir, sem einnig
segja sína sögu um fornar minj-
ar og skýra vel það, sem um
er rætt í þáttunum tólf.
ið, sendu í dag viðvörun til íbú-
anna í Encarnacion, sem eru
40.000 talsins, og skipuðu þeim
að yfirgefa borgina og fara til
höfuðborgarinnar, Asuncion, sem
er rúma 300 kilómetra í burtu.
Útvarpsstöðvarnar tilkynntu að
lokaáhlaupið á Encarnacion
mundi hefjast eftir nokkrar
klukkustundir. Flóttamönnum frá
borginni var heitið griðum.
Góð bújörS
Jörðin Otradalur við Bíldudal til sölu og laus til
ábúðar á næstu fardögum. Góðar byggingar, raf-
magn, súgþurrkun, mjólkursala. Upplýsingar gefa
Gísli Jónsson alþingismaður, Ægisgötu 10 Rvk.
Sími 24040 og 11740 og Pétur Þorsteinsson, kaup-
félagsstjóri, Bíldudal.
Lögfræðingafélag fslands
Aðalfundur félagsins verður haldinn þriðjudaginn
29. desember n.k. kl. 17,30, í I. kennslustofu há-
skólans.
Fundarefnl:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Félagsmál.
STJÓRNIN.
í kjóla
MARKABURINN
HAFNARSTRÆTI 11
Kjósverjar — Kjalarnes — Mosfellssveit
Félagsgarður Kjós
Grímudansleikur verður haldinn að Félagsgarði
laugardaginn 2. jan. næstkomandi og hefst kl. 21,30.
Góð hljómsveit.
U. M. F. Drengur.
Eyfirðingar Reykjavík
M u n i ð
Jólatrésskemmtunina
í Framsóknarhúsinu sunnud. 27. des. kl. 3 e.h. og
Jóladansleikinn
sem verður þá um kvöldið fyrir félagsmenn og gesti
— og Akureyringar sjá um. — Til skemmtunar verð-
ur þar Jólakabarettinn og ýmsir beztu skemmti-
kraftar bæjarins.
Pantanir aðgöngumiða og nánari upplýsingar í
Hafliðabúð, Njálsgötu 1, sími 14771. — Ósóttar
pantanir afhentar öðrum eftir kl. 2 á sunnudag. í
Framsóknarhúsinu.
Fyfirðingafélagið
Uppreisn logar enn í Pnraguny