Morgunblaðið - 20.12.1959, Síða 15
Sunnurtaenir 90 des 10FÍ0
M ff r, rnv n r * nifþ
15
Sr. Emil Björnsson:
*
Ræðusafn Asmundar biskups
Fyrir nokkrum dögum kom
til Keflavíkurflugvallar DC-3,
sem var á vegum gæzluliðs
Sameinuðu þjóðanna á Gaza-
svæðinu, á landamærum
ísrael og Egyptalands. Flug-
vél þessi hafði næturdvöl á
Keflavíkurfiugvelli, en hélt
þaðan áleiðist til Gander.
Áhöfn flugvélarinnar var úr
Kanadiska flughernum, en
eins og menn vita þá eru
Kanadamenn ein þeirra þjóða,
sem lagt hafa mikið til her-
sveitir í verndargæzlulið Sam
einuðu þjóðanna austur þar.
Á styrjaldarárunum og fyrst
á eftir var algengt að flugvél-
um af þessari gerð væri flogið
yfir hafið að vetrarlagi, en nú
er slíkt orðið mjög fátítt. Það
tekur líka DC-3 meira en
þrisvar sinnum lengri tíma að
fljúga frá Keflavík til Gander
í Nýfundnalandi heldur en
það tekur nýtízku farþegaþot-
BRIDCE
♦ +
AÐ 5 umferðum loknum í sveita-
keppni Bridgefélags kvenna er
röð sveitanna þessi:
1. Sv. Dagbj. Bjarnad. 591 st.
2. — Júlíönu ísebarn 580 —
3. — Eggrúnar Arnórsd. 562 —
4. — Vigdísar Guðjónsd. 552 —
5. — Þorg. Þórarinsd. 540 —
6. — Sigríðar Jónsdóttur 531 —
7. — Elínar Jónsdóttur 523 —
8. — Margrétar Ásgeirsd. 509 —
9. — Ástu Guðjónsdóttur 497 —
10. — Guðrúnar Bergsd. 493 —
11. — Guðrúnar Eiríksd. 492 —
12. — Fríðu Austmann 492 —
13. — Elínar Hlíðdal 485 —
14. Dóru Magnúsdóttur 433 —
Næst verður spilað mánudag-
inn 11. janúar n.k.
Lauk námi í
hagnýtri
lélagsfræði
SVAVA Stefánsdóttir (læknis
Guðnasonar á Akureyri) hefur
nú nýlega lokið námi í hagnýtri
félagsfræði (socionomi) við Soc-
ialinstitutet í Stokkhólmi.
Nám þetta nær til ýmissa
greina félagsfræði, sálarfræði og
heilbrigðisfræði, og starfa þeir,
sern því hafa lokið, síðan við
sjúkrahús, heilsuverndarstöðvar
og fleiri heilbrigðis- og félags-
stofnanir, sem leiðbeinendur og
ráðgjafar í ýmsum félagslegum
vandamálum, í sambandi við
heilsuvernd, geðvernd, barna-
vernd, áfengisvarnir o. s. frv.
Að loknu skólanámi starfar
Svava nú sem kurator (ráðgjafi)
við sjúkrahús í Stokkhólmi, en
hyggst hverfa bráðlega heim til
íslands til starfa hér, enda munu
vera næg verkefni við sjúkrahús
og aðrar heilbrigðisstofnanir hér,
eigi síður en erlendis, fyrir þá
sem sérmenntun hafa á þessu
sviði.
íslenzk orð mun vanta yfir
aocionom eða socialrádgiver og
kurator, og ættu orðhagir menn
að spreyta sig á að finna eða
smíða orð yfir þessi heiti.
Að 5 umferðum loknum í
sveitakeppni starfsmanna ríkis-
stofnana er röð sveitanna þessi:
1. Sv. Ríkisútvarpsins 8 st.
2. — Stjórnarráðsins A 6 —
3. — Fiskifélagsins 6 —
4. — Brunabótafélagsins 6 —
5. — Innfl.skrifstofunnar 6 —
6. — Stjórnarráðsins B 5 —
7. — Skipaútgerðar. 4 —
9. Tollstjóraskrifstofunnar 3 —
8. — Pósthússins 4 —
10. — ReykjavíkurJlugv. 0 —
Um síðustu helgi fór fram á
vegum Bridgefélags Reykjavík-
ur svonefnd „jólakeppni". Keppni
þessi var tvímenningskeppni og
voru góð verðlaun veitt. Einar
Þorfinnsson og örn Guðmunds-
son sigruðu í keppni þessari. Nr.
2 urðu þeir Guðjón Tómasson og
Róbert Sigmundsson og í þriðja
sæti náðu Ásta Flygering og Agn
ar Jörngensson.
7. janúar n.k. mun fara fram
mikil keppni milli Bridgefélags
Reykjavíkur og Tafl- og Bridge-
félags Reykjavíkur og Tafl- og
Bridgeklúbbsins. Ekki hefur enn
verið ákveðið á hve mörgum
borðum spilað verður.
Stundum kemur það fyrir að
spilari tvöfaldar sögn, sem með-
spilari hans hefur þegar tvöfald-
að. Hafa spilarar oftast brosað að
þessum mistökum og látið sögn-
ina standa óbreytta. — Þeir eru
sárafáir, sem vita, að ákveðnar
reglur eru til einmitt um þetta
atriði.
36. grein alþjóðalaga um
bridge tekur af allan vafa um
hvað gera eigi í slíkum tilfell-
um. Greinin hljóðar svo:
„Ef spilari tvöfaldar eða fjór-
faldar sögn, sem meðspilari hans
þegar hefur tvöfaldað eða fjór-
faldað, verður hann í staðinn að
segja eitthverja löglega sögn, og
meðspilari hans verður þá að
segja pass ávallt, þegar að hon-
um kemur að segja (viðurlög).
Ef hinn- brotlegi ákveður að
segja pass, bætist hér við, að báð-
ir mótspilararnir hafa rétt til
þess að láta hurtu falla allar tvö-
faldanir og fjórfaldanir, sem áð-
ur voru gerðar“.
ÞAÐ koma margar bækur út j
fyrir jólin, og eru allar kallaðar
jólabækur. En þar á það við sem I
oftar, að „margir eru kallaðir en
fáir útvaldir“. Margar þessara
bóka eru vel úr garði gerðar,
ytra sem innra, en eiga það eitt
skylt við jólin og jólaboðskapinn,
að þær eru gefnar út til að verða
að jólagjöfum.
Fáeinar bækur eru þó gefnar
út fyrir hver jól, sem helgaðar
eru boðskap jólabarnsins, og eru
þess vegna öðrum fremur sann-
nefndar „jólabækur".
Ég sting að þessu sinni niður
penna til að minna á ræðusaín
herra Ásmundar Guðmundssonar
fyrrv. biskups íslands, sem er ný
komið út hjá Isafoldarprent-
smiðju hf. Ræðusafnið nefnist
Frá heimi fagnaðarerindsins' og
eru í því 16 helgidagaræður og
8 tækifærisræður. Helgidaga-
ræðumar eru framhald af ræðu
safni, sem bar hið sama heiti,
Frá heimi fagnaðarerindisins og
kom út fyrir 40 árum.
Tækifærisræðurnar í nýju bók-
inni eru þegar orðnar hluti af
Kirkjusögu íslands. Þeirra á
meðal er ræða flutt við setningu
Alþingis 1930, ræða flutt á Skái
holtshátíðinni, á 900 ára afmæ'.i
biskupsstóls á íslandi. biskups-
vígsluræða herra Ásmundar og
ræðan sem hann flutti við vígslu
eftirmanns síns, herra Sigur-
bjarnar Einarssonar, biskups
íslands:
Það var siður á mínu bernsku-
heimili að lesa húslestra á helg-
um dögum og hugvekjur á föst-
unni, og þannig var það allvíða.
Einstaka sinnum var lesið úr
Vídalínspostillu og undir þeim
lestri svaf engin rótt þótt lang-
ur væri. Langoftast var þó lesið
úr Péturs postillu og Péturshug-
vekjum, og ég verð að játa að ég
var að jafnaði lítt snortinn undir
þeim lestri og ekki trútt um að
mér hafi runnið í brjóst á vök-
unni.
En tveimur eða þremur árum
áður en ég fór að heiman kom
ný húslestrabók á heimilið: Frá
heimi fagnaðarerindisins hét hún
og var það að mínum dómi. Þvílík
umskipti frá Péturspostillu, sem
var án efa góð fyrir sinn tíma.
Hér var fagnaðarboðskapur
Krists fluttur í fyrsta sinn á því
máli, sem ég skildi til fulls, máli
sem ég drakk í mig. Ég minnist
ætíð með þakklæti og fögnuði
sumra húslestranna, svo sem á
jóladag og annan í páskum. Mér
þótti vænt um þann mann, sem.
þannig opnaði augu min og eyru
fyrir frelsara mínum og fagnaðar
boðskap jólanna.
Löngu síðar varð hinn ósýni-
legi ræðúmaður mér sýnlegur og
átti nýjan þátt í mótun minni,
kenndi mér ræðugerð í Guðfræði-
deild Háskóla íslands.
Ég hygg þó að hann hafi kennt
mér bezt í verki, með sínum eigin
ræðum, er vöktu mig í æsku.Nú ar
nýkomið út framhald þessa ræðu-
safns, sem fyrr segir, og af fram-
ansögðu er ofureðlilegt að ég
fagni því og ali þá von í brjósti,
að það komi fyrir augu og eyru
sem allra flestra á hátíða- og
helgistundum, í gleði og harmi.
Höfundurinn er löngu þjóð-
kunnur sem háskólaprófessor og
biskup landsins. En hann er þó
mestur í því sem sjaldnast öðlast
þjóðfrægð í auðmýkt sinni og lotn
ingu frammi fyrir frelsara heims-
ins í jötunni lágu. Það kemur
skýrt í ljós við lestur hins nýja
ræðusafns. Fyrra ræðusafnið
sem hreif mig forðum, var sem
vorleysing í fjallshlíð. Nýja safn-
inu mætti fremur líkja við djúpt
og breitt fljót, sem mörg vötn
hafa runnið í á langri leið. Það
streymir fram máttugt og milt.
Eim berjast
svartir í Kongó
LULUABOURG, Belg.-Kongó, S.
des. Reuter: — Fimmtán manns,
þar á meðal kona og tvö börn,
léfu lífið, er bardagar blossuðu
hér upp á ný milli innfæddra
manna í gærkvöldi. — Það efu
einkum menn af kynþáttunum
Lulua og Baluba, sem eigast við,
en fyrir nær tveim mánuðum
blossuðu hér upp óeirðir milli
sömu aðila, er þeir fyrrnefndu,
sem eru hinir herskáustu, réð-
ust á Balubamenn, er lengi hafa
sýnt Belgum hollustu.
í gærkvöldi settu belgísku
stjórnarvöldin strangan hervörð
í þeim hverfum, þar sem átökin
voru mest, og tókst víða að dreifa
hinum stríðandi blökkumönnum,
sem voru vopnaðir gamaldags-
riflum, spjótum og bogum og örv-
um. — í morgun var svo lýst
„hernámsástandi“ í allri Lulua--
borg.
Bráðskemmtileg
bók fyrir krakka
á aldrinum
8 —12 ára.
ST RÁKU R
I STRÍÐI
19
Eftir Gest Hansson
í fyrra kom út bókin „Strákur á kú-
skinnsskóm" eftir sama höfund. Sú bók
seldist upp á einni viku. Um hana ritaði
Steingrímur Sigurðsson m.a.: „Strákur
á kúskinnsskóm er skemmtileg bók, og
þá er nokkuð sagt. Og hún er vel' skrifuð
barnabók, þar sem sitt hvað gerist, sem
í frásögur er færandi. Það er langt síðan
ég hef rekizt á jafn ómegnaða fyndni
í íslenzkri bók . . .“
„Strákur í stríði“ er jafnvel ennþá
skemmtilegri aflestrar en fyrri bókin.
Margar bráðsnjallar teikningar eru I
bókinni eftir bróður höfundar.
Bókin er 148 bls. — Verð kr. 58.00.
(
BÓKAFORLAG
ODDS BJÖRNSSONAR
nii