Morgunblaðið - 20.12.1959, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 20.12.1959, Blaðsíða 23
Sunnudagur 20. des. 1959 MORGVTSBLAÐIÐ 23 GuSrún Þorsteinsdótfir Minning Fædd 5. sept. 1873 Dáin 23. nóv. 1959 HINN 30. nóv. sl. jarðsöng sr. Jón Þorvarðarson ekkjuna Guð- rúnu Þorsteinsdóttur að viðstödd- um mörgum vinum og vanda- mönnum. Guðrún Þorsteinsdóttir var fædd að Reykjakoti í Biskups- tungum þann 5. sept. 1873, dótt- ir hjónanna Vigdisar Jónsdóttur og Þorsteins Þorsteinssonar er þar bjuggu. Ólst hún upp við venjuleg sveitastörf með bræðr- um sínum Jóni, Páli og Krist- jáni er síðar bjó lengi að Einholti. Öll hlutu systkinin gott uppeldi, eins og fljótt fannst í viðkynn- ingu við hina dagfarsprúðu konu Guðrúnu, sem nú er kvödd héð- an síðust sinna systkina. JOLABOK NORDRA Um aldamótin fór hún úr föð- urgarði og giftist Gisla Gíslasyni frá Gerðum í Gaulverjabæjar- hreppi. Hin ungu hjón fluttust brátt til Reykjavíkur, því þar var lífsmöguleika að finna við vaxandi útgerð, enda þráði Gísli sjóinn og var þekktur dugnaðar- maður meðal sjómanna. Vegna atorku beggja efnuðust þau svo, að árið 192i byggðu þau húsið að Baldursgötu 39, þar sem þau bjuggu flest sín hjúskaparár. Það var á fyrstu árunum á Baldursgötu, sem ég kynntist þessum heiðurshjónum. Sonur þeirra, Alfreð, nú læknir og al- þingismaður hafði ásamt nokkr- um jafnöldrum sínum stofnað málfundafélagið Mími. Við vor- um átta unglingar, ákveðnir í að æfa okkur í ræðu og riti, en ytri aðbúnað skorti. Þá var það sem Guðrún og Gísli sýndu okkur það vinabragð að lána okkur húsnæði til fundarhalda, er við nutum í mörg ár. Þeim var annt um upp- eldi sonar síns, og einnig okkar félaga hans, því þetta fagra heim ili stóð okkur opið og leiddi okk- ur til aukins þroska. Guðrún var greind kona og gjörvuleg. Hún var óvenju smekkvís, það sýndu blómin og búnaður allur á henn- ar heimili. Okkur þótti vænt um hana. Gísli var hið sjóbarða karl- menni, sem við litum upp til. Síðar skildust leiðir, en ávallt voru þau vinir okkar. Gísli dó 1952 og hafði þá ver- ið blindur í mörg ár. Á efri ár- um nutu þau hjónin ástar og um- önnunar tengdadóttur sinnar Sig ríðar Þorsteinsdóttur, sonar og þriggja efnilegra barnabarna að heimili þeirra Barmahlíð 2 hér í bænum. J. O. J. Stokir steinar Nýrri bók úr hendi Kristjáns fagna ailir Islendingar. Þættir þessir munu verða auðfúsugestir ungum sem gömlum. Fjöldi mynda, 190 bls., kr. 165.00 innb. Vilja endorbæta Á AÐALFUNDI Bandalags lista manna nýlega var samkvæmt til- lögu fráfarandi stjórnar sam- þykkt einróma eftirfarandi álykt un: „Aðalfundur Bandalags ís- lenzkra listamanna skorar á menntamálaráðherra að flytja ekki á Alþingi frumvarp um ný höfundalög fyrr en höfundum og höfundarréttarfræðingum, inn- lendum og erlendum, og nefnd- um skipuðum þeim, hefir gefizt kostur á að endurskoða og endur bæta það eftir því sem nauðsyn- legt kann að reynast“. Þá samþykkti aðalfundurinn að fara þess á leit að Bandalags- félögin tilnefni hvert fyrir sig einn mann í nefnd til að endur- skoða ásamt lögfræðingi Banda- lagsins Sigurði Reyni Péturssyni hið nýja frumvarp til höfunda- laga. Þórður Eyjólfsson, forseti Hæstaréttar, hefir samkvæmt ósk menntamálaráðherra þegar tekið að undirbúa nýtt frumvarp höf- undalaga, en laganefnd alþjóða- sambands höfunda hefir kosið undirnefnd til aðstoðar við at- hugun málsins. 1 henni eiga sæti m.a. sænski Hæstaréttardómar- inn Sven Romanus, hollenzki höf undaréttarfræðingurinn van Nus, franski höfundaréttarfræðingur- inn Marcel Henrion og Sigurður Reynir Pétursson hæstaréttarlög maður. IB HENDRIK CAVLING er meir lesin og vinsælli en flestir aðrir ungir rithöfundar í Danmörku um þessar mundir. HÉRAÐSLÆKNIRINN segir frá ungum lækni, er setur sig niður í kauptúni á Jótlandi. Sem læknir kemst hann fljótlega í náin kynni við persónuleg vanda máj fólksins í héraðinu og sogast inn í rás margra dramatískra viðburða. Eins og vænta má um ungan mann, hafa kynni hans af konum örlagarík áhrif á líf hans. Hann kynnist þrem ungum stúlkum: æringj- anum og galgopanum Önnu-Mettu, rauðhærðu greifadótturinni Birgitte með smargaðsgrænu augun og Grétu, hinni örlyndu og skapheitu fósturdóttur starfsbróður hans og keppinauts. Allar grípa þessar ungu stúlkur hver með sínum hætti inn í líf hins unga læknis, en þó einna mest .... tJTGÁFAN HILDUB VIM LUX sápulögur OMO RINSO LUX spænir og SUNLIGHT Sápa AIR-WICK SILICOTE STERLING LYKTEYÐANDI HÚSGAGNAGLJÁI BÍLAGLJÁI GEORG JENSEN Silfurfægilögur Heildsölubirgðir: Óíafur Gíslason & Co hf. Hafnarstr. 10—12, sími 18370.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.