Morgunblaðið - 24.12.1959, Qupperneq 23
FJmmtudagur 24. des. 1959
MORGVNBLAÐ1Ð
23
Kl. 4 á annan jóladag verður 62. sýning á Delerium bubonis
eftir Jónas og Jón Múla Árnasyni, en næsta sýning á sunnu-
dagskvöld kl. 20. — Delerium bubonis var frumsýnt 21. janúar
í fyrra og var sýnt allt leikárið og sýningar teknar upp aftur
í haust. Ekkert lát virðist vera á aðsókn, en sýningum fer nú
að fækka, þar sem ný verkefni koma eftir áramótin. — Leik-
arar LR hafa nú sungið lögin inn á plötu, sem kemur á mark-
aðinn um áramótin. — Æfingar standa nú yfir á nýju leikriti,
sem verður frumsýnt eftir áramótin.
Vogun vinnur
í síðasta sinn
Á SUNNUDAGINN, þriðja í jól-
um, verður útvarpsþættinum
Vogun vinnur, vogun tapar, út-
varpað í síðasta sinn á þessum
vetri. Enginn hefur hreppt hinar
eftirsóttu 10.000 krónur í þetta
sinn, en einn keppandi er eftir,
Guðrún Ámundadóttir. Keppir
hún nú til úrslita í viðfangsefni
sínu og svarar spurningum úr rit
verkum Einars Kvarans.
Auk hennar fá viðstaddir að
keppa um 500 krónu vinninga,
eins og í síðasta þætti, og verður
það að sjálfsögðu í síðasta sinn,
Svör við frétto-
getrouninni
1-3, 2-1, 3-3, 4-4, 5-1, 6-3, 7-1, 8-2,
9-1, 10-4, 11-1, 12-2, 13-4, 14-2,
15-4, 16-3, 17-1, 18-4, 19-2, 20-2,
21-3, 22-3, 23-1, 24-1, 25-3, 26-3,
27-4, 28-1, 29-4, 30-1, 31-2, 32-1,
33-2, 34-3, 35-4, 36-2, 37-4- 38-4,
39-1, 40-2, 41-3, 42-4, 43,2, 44-3,
45-2, 46-4, 47-1, 48-2, 49-4, 50-2
51-3, 52-1, 53-3, 54-4, 55-3, 56-3,
57-3, 58-2, 59-3, 60-3, 61-3, 62-1,
63-3, 64-2;, 65-1, 66-1, 67-2, 68-4,
69-2, 70-4, 71-4, 72-1, 73-1, 74-2,
75-1, 76-4, 77-3, 78-4, 79-2, 80-2.
1. Pretios skipstjóri
2. Herter utanríkisráðherra
3. Lollobrigida leikkona
4. Pritchard hershöfðingi
5. Helle Virker leikkona
6. Farah Diba
7. Ingemar Johansson
8. Frank Sinatra
9. Tal skákmeistari
10. Björn Pálsson
11. Averell Harriman
12. Maria Callas
13. Gomulka
14. Onassis
15. Nina Krúsjeff
MÁLFLUTNIN GS SKRIFSTOFA
Páll 5. Pálsson
Bankastræti 7. — Sími 24 200.
Jóhannes Larusson
héraðsdómslögmaður
lögfræðiskrifstofa-fasteignasala
Kirkjuhvoli. Sími 13842.
sem menn fá tækifæri til að
hreppa þá upphæð á staðnum
fyrir rétt svör.
Þátturinn verður tekinn upp
síðdegis á sunnudag í veitinga-
húsinu Lido og útvarpað um
kvöldið, eins og venjan er.
Skákmeistaramót
Keflavíkur
Keflavíkurflugvelli, 20. des. ’59.
Skákmeistaramóti Keflávíkur er
nýlega lokið. Keppnin í meistara
flokki var hörð og tvísýn. Efstir
og jafnir í meinstaraflokki urðu
þeir Skúli Thorarensen lögreglu-
þjórm og Páll G. Jónsson flug-
umsjónarmaður með 5 vinninga
hvor.
Þar sem Skúli tefldi sem gest-
ur á mótinu, þá hlaut Páll hinn
eftirsótta titil „'Skákmeistari
Keflavíkur".
Önnur úrslit í meistaraflokki
urðu þau, að Borgþór H. Jónsson
hlaut 4% vinning, Hörður Jóns-
son 3 vinninga og Ragnar Karls-
son 2% vinning. Tefld var tvö-
föld umferð.
í 1. flokki sigraði Marteinn
Jónsson með 4 Vinninga.
I 2. flokki sigraði hinn 15 ára
gamli Pálmar Breiðfjörð glæsi-
lega, vann allar sínar skákir og
hlaut því 8 vinninga. Næstur
honum varð annar ungur skák-
maður Haukur Angantýsson 11
ára, en hann hlaut 6 vinninga.
Keflvíkingar eiga mikið af ung
um og upprennandi skákmönnum
og enda þótt þátttaka í meistara-
flokki væri ekki mikil að þessu j
sinni, þá er talsvert líf og fjör
í skákfélaginu og taflæfingar jafn
an vel sóttar, einkum þó af yngri
kynslóðinni.
Það vakti eftirtekt mína, að
allir keppendur í meistaraflokki
starfa á Keflavíkurflugvellí. Ekki
ber að skilja þetta svo, að ekki
sé einnig mikið um góða skák-
menn í Keflavík, en atvinru
manna er þannig háttað. að marg-
ir eiga erfitt með að stunda skák-
mót á þessúm tíma árs. BÞ.
Volkswagen 1956
Volkswagen bifreið, árgangur 1956 (desember) er til
sölu. Bifreiðin er vel meðfarin og keyrð aðeins rúma
35000 km. Bifreiðin er til sýnis að Austurbrún 17 sunnu-
daginn 27. des. kl. 1—3 e.h. Tilboðum sé skilað til af-
greiðslu Morgunblaðsins eigi síðar en hádegi þriðjudag-
inn 29. des. merkt: „4364“. Réttur áskilinn til að taka
hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Framtíðarafvinna
Eitt af stærri innflutningsfyrirtækjum bæjarins
vantar duglegan skrifstofumann sem allra fyrst.
Nokkur enskukunnátta nauðsynleg.
. Umsóknir er greini aldur og fyrri störf sendist
blaðinu fyrir 30. þ.m. merkt: „Framtíðaratvinna —
8126“.
IM YTT
o * *
o ur
s er
?o sem
í/í
co*
S
M
S
GU
G*
o
æ
M
M
★
(^azz — f^ocL
U^anó
^t^ce^urla^atextat
★
Nóvember blaðið
- IJPPSELT -
K*
3
CD
tn
N
N
Mjólkur og rjómaís
á jólaborðið
Úr rjómaís frá ísborg getið þér framleitt margs-
konar ísrétti m.a.:
Is desert m/ ávöxtum á jólaborðið
Is-tertur á kaffiborðið og
Milk-shake í jólaboð barnanna.
Athugið að rjómaísinn geymist vel
í frystihólfinu í ísskápnum.
Búðir vorar í Austurstræti og við Miklatorg verða
opnar: á aðfangadag til kl. 4 e.h., annan jóladag frá
kl. 10 f.h. til 11,30 e.h.
*
Ishorg
SVEINN JÓNSSON
frá Þykkvabæjarklaustri,
andaðist á Landsspítalanum aðfaranótt 23. þ.m.
Hildur Jónsdóttir, börn og tengdabörn.
Móðir mín og tengdamóðir
ANNA EINARSDÓTTIR
frá Sölfholti,
andaðist 22. þ.m. að heimili okkar Sviðholti Álftanesi.
Kristín Sigurðardóttir, Jón Ingvi Eyjólfsson
Eiginmaður minn og faðir okkar
JÓN SIGFÚSSON
andaðist að Elliheimilinu Grund 21. þ.m.
Sigrún Sigfúsdóttir, böm og tengdaböm.
Móðir okkar
ÞÓRUNN BJÖRNSDÓTTIR
frá Seli,
andaðist að heimili sínu Njálsgötu 71 22. desember.
Börn hinnar látnu.
Hjartkær móðir, fósturmóðir og amma
SIGRlÐUR ÞORSTEINSDÖTTIR
sem andaðist 21. þ.m. verður jarðsungin mánudaginn
28. þ.m. frá Fossvogskirkju kl. 1,30 e.h.
Börn, tengdabörn og barnaböm.