Morgunblaðið - 31.12.1959, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 31.12.1959, Qupperneq 8
8 MORCVN BLAÐÍÐ Fimmtudagur 31. des. 1959 IVIeð Valtý á Mföðruvöllum „Af hverju eru fjöllin blá?“ IV. Gunna nunna VALTÝR Stefánsson hóf nú frásögnina með því að segja mér frá Gunnu nunnu: — Af vinnufólkinu er mér minnisstæðust Guðrún Guð- mundsdóttir, sem í daglegu tali var kölluð Gunna nunna, því hún átti á tímabili heima á Nunnuhól, sem er í túninu á Möðruvöllum og var þurrabúð 1 mínu ungdæmi. Hún var af Þelamörk, systir Snorra bónda á Steðja, dugnaðar- manns sem gekk .á Möðru- vallaskóla á sínum tíma. Gunna nunna var víkingur að burðum og hafði það fram yfir aðrar vinnukonur að hún var baggatæk og gat þess vegna farið í viðlögum út í sveit að afla sjófangs fyrir heimilið. Úr því ég minnist á Gunnu verð ég að geta þess, að hún átiti það til að skvetta dug- lega í sig og fyrir kom að hún drakk brennivín af slíkum myndarskap að hún varð lítt vinnufær, en réðst þá á vinnu- fólkið, sem henni fannst hafa misboðið sér á einhvern hátt. Sérstaklega var mér það minn isstætt eitt sinn, þegar farið var að skyggja af hausti, að hún hafði fengið sér óvenju- mikið í kollinn og tolldi ekki í Vesturstofunni, þar sem kaupakonurnar sváfu. Hún fullyrti að kölski væri kominn að sækja sig og var engu tauti við hana komandi. Þá var gripið til þess bragðs að sækja Guðrúnu ömmu til að sefa hana en Gunna hafði óvenju- miklar mætur á þeirri gömlu, góðu konu, taldi hana slíka mannkostamanneskju — sem hún líka var. Stundum kom það fyrir, að Gunna skvetti í sig við heyskapinn. Ég man eftir því að Steini ráðsmaður sagði mér einhverju sinni, þeg ar vel lá á honum, að Gunna hefði verið í bindingi á Möðru vallanesi, sem eru nyrztu spildurnar á Möðruvallaengj- um, og gengið svo rösklega til verks að ekki hafi verið eftir nema sex tindar í hrifunni hennar, þegar yfir lauk. Hafði hún í ölæði trampað á hrífu- hausnum með fyrrgreindum afleiðingum. Ekkert skal ég um það segja, hvernig móttök- ur hún fékk hjá Stefáni afa, þegar heim kom! Heimþrá Skólastarfið og piltarnir höfðu auðvitað mikil áhrif á mig í úppvextinum. Ég segi piltarnir, því aðeins ein kona tók próf við skólann. Það var Jóhanna Jónsdóttir, frá Litlu- Brekku. Skólinn var eins kon- ar safngler, þar sem ólíkir geislar söfnuðust í einum punkti. Geislarnir voru úr mörgum byggðalögum lands- ins og áhrifin frá þeim vöktu mig til umhugsunar um margt, sem ég hefði ella látið liggja milli hluta. Hegðun pilt anna var mér líka oft og tíð- um framandleg og hátternið á ýmsa lund, til dæmis man ég glöggt eftir því, hversu sterkt það orkaði á mig og hve undr andi ég varð, þegar piltar sem áttu heima í fjarlægum sveit. um lögðu áherzlu á að komast heim um jólin og taka á sig bæði erfiði og jafnvel áhætt- una af ferðalaginu. Ég skildi ekki þessa heimþrá og var sannfærður um, að ástæðan væri sú, að þeir hefðu ekki hugmynd um, hve skemmti- legt væri á Möðruvöllum um jólin. Skólapiltarnir höfðu málfundafélag, sem efndi til umræðufunda á laugardags- kvöldum. Þar voru rædd mörg mál, sem vörðuðu almennan hag landsins og það kom fyr- ir, að þeir sem höfðu lokið námi á Möðruvöllum héldu tryggð við laugardagsfundina. Man ég sérstaklega eftir Guð- mundi Friðjónssyni, skáldi á Sandi, sem var tíður gestur á þessum fundum og féll Stefáni afa mínum einkarvel í geð, vegna afstöðu hans til Vestur- fara. Oft urðu umræður heit- ar og tóku kennarar stundum þátt í þeim, til dæmis Jón Hjaltalín og faðir minn. „Merkilegir“ brunar Það orð lék á, að með stofn un Möðruvallaskóla hefði kirkjusókn aukizt hjá séra Davíð á Hofi. Eins og þú veizt var Möðruvallaskóli stofnað- ur 1880. Hann var arftaki Hólaskóla hins forna, en fyr- irrennari norðlenzka mennta skólans. Skólinn var reistur á „Friðriksgáfu“-grunninum. „Friðriksgáfa" hafði verið steinhús á sínum tíma og Danakonungur gefið fé til hennar. Á staðnum hafa orðið marg- ir „merkilegir" brunar og varð sá fyrsti, þegar klaustr- ið brann þar 1316, vegna þess að bræður fóru óvarlega með ljós: „-----Auðunn biskup gaf bræðrum þær sakir, að fyrir óskynsamlega meðferð ljóss þess, sem þeir höfðu drukknir með farið um nótt- ina, sem þeir komu af Gás- eyri, mundi hafa lagt upp i þá refla, sem í kórnum voru, en sumt niður i skrúðkistu þá, sem þeir luku upp, því þar þótti mest upprás elds- ins“, — segir í sögu Laurent- íusar Pálssonar Hólabiskups. Síðar urðu enn nokkrir elds- voðar á staðnum, amtmanns- stofur voru tvær og brunnu báðar, hin fyrri 1826 í amt- mannstíð Gríms Jónssonar. Kirkjan á Möðruvöllum brann 1865 og var það mikill bruni, auk smábruna, sem þar urðu á staðnum á þessum ár- um. Loks brann Möðruvalla- skóli 22. marz 1902, en á það hef ég víst minnzt, í bruna- rústunum fannst öxi ein mik- il og var þar komin öxi sú, sem hafði verið notu- við af- tökuna í Vatnsdalshólum forð um og hafði hún verið flutt til amtmannssetursins á Möðru- völlum og orðið þar innlyksa, en síðast verið geymd í geymslukompu á skólaloftinu. Þrjú hús brunnu ofan af henni þau ár, sem hún var á Möðruvöllum, kirkjan 1865, „Friðriksgáfa" 1874 og skólinn 1902. Eftir það kom hún ekki undir þak, en lá nokkur ár á dyrapalili úti fyrir húsdyrum, þar sem gestir og gangandi gutu til hennar í laumi ótta- fullum augum oig vafalaust hafa einhverjir ferðalangar kviðrað því að samferðafólki sínu, að þarna væri tákn dauð ans í öllu sínu veldi. F.n þetta var útúrdúr, því við vorum að tala um skólann. Það var mikil aðsókn að honum fyrst í stað, en fljót- lega dofnaði yfir honum, og þegar faðir minn varð kenn- ari við hann 1887 mátti heita, að allt skólalíf væri í rústum. Það ár voru nemendur aðeins sjö í báðum bekkjum og allt eftir því. Strax og hann kom að skólanum tókst mikil vin- átta með honum og Jóni gamla Hjaltalín, skólameist- ara, sem var af léttasta skeiði (f. 1830) og ekki sá öndvegis- kennari, sem hann hafði ver- ið í upphafi. Það kom því í hlut föður míns að hefja mark vissan áróður um allar jarðir undir kjöroiðinu: „Skólinn skal upp!“ Tókst smám sam- an að blása nýju lífi í þessa virðulegu stofnun og áður en langt um leið var hvert sæti skipað í báðum bekkjum. Glæddist þá mjög allt félags- lif og staðurinn tók stakka- skiptum og óx nú álit hans með hverju ári sem leið. Dansað á föstudaginn langa Jón Hjaltalín var að eðlis- fari heldur íhaldssamur og formfastur maður og vildi hafa reglu á hlutunum: Dans- inn á Möðruvöllum þótti mik- il skemmtun og dró að staðn- um margt manna á sunnudög- um. Var þessi skemmtun fræg um allar sveitir. Steinunn, móðir Valtýs Auðvitað hófst dansinn ekki fyrr en undir kvöld, enda þótti óhæfa að byrja á honum áður en messu var lok ið. Aldrei var þó dansað fram á nætur, því skólareglurnar mæltu svo fyrir, að eftir kl. 10 skyldi vera komin á kyrrð á svefnloftunum. Venjulega um það leyti sem ballið átti að hætta og grunsemdir vökn- uðu hjá Hjaltalín um að pilt- arnir mundu gléyma sér, brá hann sér út úr skrifstofu sinni í „leikihúsið“, eins og það var kallað, og slökkti þar Ijós með þeim einfalda hætti að púa niður í lampaglasinu með blikkpípu. Á samri stundu hættu allir að dansa og yfirgáfu húsið. Enginn drykkjuskapur var á þessum skemmtunum og minnist ég þess aldrei að hafa séð vín á piltum. Þá höfðu menn meiri áhuga á kvenfólkinu en vin- inu. Enginn skortur var á kvenfólki á Möðruvöllum. Átta eða tíu stúlkur unnu á staðnum í sambandi við skól- ann, þjónuðu og matreiddu handa piltum og kennurum. og svo tóku þær stúlkur, sem verið höfðu kirkjugestir um daginn, þátt í dansinum, en hitt þekktist ekki að þær kæmu aðeins til að dansa. Held ég það hafi verið arfur frá gömlum tíma. Þá lifðu menn eftir því boðorði á ís- landi að gjalda keisaranum það sem keisarans er og guði það sem guðs er. Dansinn var afskaplega vin sæll hjá fólki og var alltaf dansað á messudögum, nema þegar sérstaklega stóð á. Margrét Jónsdóttir, mágkona mín, sagði mér einhverju sinni, að hún hefði verið send til séra Davíðs að fá hans sam þykki til þess, að kirkjugest- ir mættu slá upp balli eftir messu á föstudaginn langa. Veitti prestur leyfi til þess. En mönnum var svo þungt í skapi út af þessu, ekki sízt föður mínum, að Margrét- sagðist hafa heitið því með sjálfri sér að biðja aldrei aft- ur um leyfi til að dansa á föstudaginn langa. V. „Fjaðrahatturinn“ — Þú hefur sagt mér frá því Valtýr, að þú hefðir séð þá félaga Steindór og Ölaf Davíðsson heima á Möðruvöll- um eftir að báðir voru dauðir. Sástu stundum svona sýnir? — Það kom fyrir. En ég vil helzt sem minnst um það tala. Af því þú ert svo ágengur, skal ég samt minnast lítillega á tvö eða þrjú atriði til við- bótar. Góðkunningi minn, Ólafur Jónsson frá Leysingja- stöðum í Þingi, fylgdi mér tll Akureyrar í júní 1926. Þá var ég á ferðalagi um Skagafjörð og Eyjaf jörð til að athuga um útbreiðslu vikublaðsins Isa. foldar. Ólafur var dálítið hreyfur. af víni. Er við vorum komnir inn undir Mýrarlón, sá ég ekki betur en karlinn væri kominn með einhvern furðulegan höfuðbúnað og líktist þetta helzt fjaðrahatti. Einkennilegt var það, að ljós- trefjarnar veittu viðnám og fylgdu ekki líkamanum, þegar hann hossaðist á hestinum. Karlinn reið með þetta aftan úr höfðinu alla leiðina inn að Bændagerði, en þangað er að minnsta kosti fimm kílómetra leið. Það var kyrr júnínótt um lágnætti, þokuslæðingur, en góð birta, og þegar við riðum í hlað í Bændagerði, kom fjallakast úr Glerárdalnum og eyddi þunnri slæðunni. Með henni hvarf „fjaðrahatt- ur“ Ólafs. Þegar ég dvaldist í Kaup- mannahöfn 1916, upplifði ég nokkra undarlega hluti, sá t.d. Ijóta sýn eina nóttina, þegar við vorum saman Davíð Stef- ánsson og röbbuðum fram undir morgun um heima og geima. Þegar ég hef spurt Davíð um það síðar, hvort hann myndi eftir þessu, hefur hann neitað því, enda líklegast haldið að ég hafi verið að grínast eða þá ekki með öll- um mjalla. Mér leiddist þetta og fór til læknis og sagði hon- um allt af létta og meðal annars að ég hefði það ráð eitt við þessum „sjúkdómi" að drekka mig kenndan: „Það er alger óhæfa", sagði læknir- inn, „Þér verðið þá alltaf að vera undir áhrifum!“. Svo gaf hann mér einhverja mixtúru, Valtýr með föður sínum. Hann þorði ekki að vera einn á myndinni — hélt hann mundi meiða sig! sem gerði auðvitað lítið gagn, en þetta var allt svo ómerki- legt, að við skulum ekki vera að eyða tímanum í að tala 'um það. Faðir minn var afskaplega næmur á öllum sviðum. Hann sagði mér, að hann hefði aldrei séð neitt, en heyrt hafði hann aftur á móti ýmislegt. Má segja að hann hafi þjáðst af ofheyrn. Þegar ég var í for- eldrahúsum, vaknaði hann einhverju sinni við það, að honum fannst heimilisfólkið tala um, að móðir hans væri dáin og þegar hann sá hana í fullu fjöri um morguninn, ætlaði hann ekki að trúa sín- um eigin augum. Mér virðist þetta ofnæmi, sem var aðvitað heldur óþægilegt á köflum, hafa haft svipuð áhrif á hann og sýnirnar á mig, þó með ólíkum hætti hafi verið. Það er mikið lagt á ungan dreng að fá sönnur fyrir því að hann geti ekki trúað sínum eigin augum. Hann fer að óttast um andlegt heilrigði sitt. Þegar ég stálpaðist, tók faðir minn eftir því, að ég var langa stund hugsi og ólíkur öðrum börn- um og eins og úti á þekju. Ég sagði honum eins og var, að allt sem ég heyrði frá öðr- um, sæi ég í huganum og gæti gert mér nákvæma grein fyrir því. Hefði þetta alltaf svo verið. Faðir minn bað þá Ólaf Davíðsson að prófa mig og ganga úr skugga um, hvort ég væri við góða andlega heilsu. Ólafur valdi þá aðferð, að segja mér frá einni af ferð- um sínum til Akureyrar og þegar hann hafði tæpt á henni, reyndist mér auðvelt að lýsa henni fyrir honum. Þannig hefur þetta alltaf ver- ið, að ég „sé“ frásagnirnar um leið og ég heyri þær. Er ekki ólíklegt að það hafi hjálpað mér í blaðamannsstarfinu síðar. Á þúfunni Hallgrímur Sigtryggson, fulltrúi hjá Sambandinu, var mikill vinur minn í gamla daga, og var þá kallaður Grímsi. Einu sinni stríddi ég honum á því, að ég væri miklu merkilegri maður en hann: „Eg hef séð geislabaug kring. um höfuðið á mér, en ekki þér“, sagði ég ertnislega. Þannig stóð á; að einhverju sinni síðsumars, þegar kýrnar voru farnar að ganga á tún- inu, var ég með Grímsa í tún- jaðrinum og þá fannst mér allt í einu eins og ég sæi geislabaug fyrir ofan mig. Sólin var í Staðarskarði og varpaði skuggum okkar drengjanna niður í Syðri- Akramýrina. Ég hafði staðið uppi á lítilli þúfu og sagði nú

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.