Morgunblaðið - 31.12.1959, Page 13

Morgunblaðið - 31.12.1959, Page 13
Fimmf»<íacnir 31 1959 jfrtBcrnvnr inifi 13 Lag eftir Scliuberl 1>AÐ hafði verið ofsaveður milli jóla og nýárs. Járnbrautarlestirn ar sátu fastar í margra metra há- um sköflum; og dögum saman tepptist öll umferð um þjóðveg- ina. Enginn vogaði sér ótilneydd- ur út fyrir dyr í jólaheimsóknir, og ég var hættur við að efna gamalt loforð um að dveljast nokkra daga um jólin hjá göml- um vini, sem bjó á dálítið róman- tísku, hrörlegu óðalssetri á Norð- ur-Jótlandi. Ég hafði ekki komið þangað lengi. I>ó að við hefðum um nokkurra ára skeið í æsku verið óaðskiljanlegir, höfðu lífið og öriögin hagað því svo, að leið- ir okkar skildu, og við bjuggum nú hvor í sínu landshorni, áttum hvor sína kunningja og sín áhuga mál. Á undangengnum árum höfð um við annað veifið reynt að endurnýja samband okkar, en alltaf varð eitthvað til að hindra þetta, svo að ekkert varð úr framkvæmdum. En þá bar svo við, að þessi sí- vinnandi, dálítið fáláti pipar. sveinn tók á sig rögg og gifti sig. Og hlýlegt heillaóskabréf til þeirra beggja frá mér, varð til þess, að við endurnýjuðum sam- band okkar, sem virtist verða traustara en nokkru sinni. Okkur kom saman um, að ég heimsækti þau um sumarið, en því varð að slá á frest, og ekkert varð úr heim sókn um haustið vegna annríkis. En þá var ákveðið að gera úr þessu jólaheimsókn, sem stæði fram yfir nýár með öllu, sem því fylgdi. Og nú átti að láta verða af þessu. Og síðan versnaði veðrið svo mjög, að ekki varð betur séð en þessu yrði að fresta einu sinni enn. En þriðja í jólum birti upp, og þá hringdi siminn; þau bjugg- ust' við mér næsta dag. Þennan dag komust lestarferðirnar i samt lag, og næsta dag hlaut að falla ferð til norður-józka bæjarins, þangað sem þau voru vön að sækja gesti sína. Og það stóð heima. Þykkt snjó lag var á gömlu linditrjánum í skrúðgarðinum, svo að endarnir á greinunum dýfðust niður í sef- og reyrþykknið í virkisgröfinni. Veðurbitið, gamalt óðalssetrið var líka tilkomumikið, þar sem það blasti við augum, og snjóbreiðan á þakinu glitraði í sólskininu. Reykur liðaðist úr reykháfnum upp í tæran, bláan himininn, þegar sleðinn stöðvaðist fyrir framan dyrnar. Tröppurnar voru þaktar einiberjalyngi, og yfir úti- dyrunum hékk grenisveigur með löngum grenikönglum. Hér voru jól. Það gat ekki leikið nokkur vafi á því, að hér voru jól. Og þegar dyrnar opnuðust, barst að vitum mínum notalegur greniilm ur, og hjónin stóð þarna hlið við hlið hýr á svip og buðu mig vel- kominn. Og nú var komið kvöld. Þykk gluggatjöld voru dregin fyrir háu gluggana; eldurinn á arninum snarkaði kyrrlátlega og fyllti stof una birkiangan, seni varð undar- lega áfeng, er hún blandaðist greniilminum. Sumir þurfa vel útilátið glas af víni, góðan vindil eða hamborgar hrygg soðinn í búrgundarvíni til þéss að verða einlægir og opin- skair. En ekkert slíkt hefði getað rifjað upp fyrir okkur á svo Ijós- an og lifandi hátt allt samneyti okkar í æsku að sama marki og ilmurinn og hátíðablærinn, sem umvafði hægindástólana fyrir fr'aman arininn. Og allir viðburð- ir og barátta undangenginna ára hurfu í skuggann, svo að við vor- um að nýju tveir ungir vinir, sem lifðum lífinu í sama heimin- urri ög áttum sömu glæstu draum- ana. Hárið var reyndar tekið að grána, hrukkurnar á enninu orðn ar dálítið dýpri, og munnsvipur- inn bar ekki lengur vott um trúnaðartraust öllu heldur vor- kunnláta kaldhæðni, en andinn var eins ungur og leitaði útrásar iaf sama óbrigðula trúnaðar- traustinu og fyrir nærri 20 árum. Og síðan rann auðvitað upp sú stund, þegar varð að segja það. Fyrrum áttum við allan trúnað hvor annars; og nú ætluðum við aftur að hafa það svo. Ef til vill hefir augnaráð mitt verið ofur- lítið fjarrænt annað veifið, en ég vona, að hann hafi ekki tekið eft- ir því, þar sem við sátum í rökkr- inu. Vissulega brann ein spurning á vörum mér: Hvernig átti það sér stað? Hvernig fann hann hana? Hann, sem hafði lifað í undarlega einmannalegum draumaheimi, síðan leiðir okkar skildu, hvernig hafði hann fund- ið þessa dásamlegu veru, sem virtist sköpuð til að skipa sæti húsfreyju í þessari gömlu þyrni- rósahöll. Hann sat og var að spjalla um elskulega gamla prófessorinn P.C.V. Hansen, skakka hálsbind- ið hans og lafandi neðri vörina, sem sennilega hafði byrjað að slapa, af því að hann notaði hana alltaf til að þurrka krítina af fingrunum á sér. — Og þegar hann tók sér málhvíld andartak til að leggja nýtt skíði á eldinn, heyrðust tónar frá flyglinum í músíkstofunni; og skömmu síðar hljómaði Litanei eftir Schubert um stofurnar. Við sátum þögulir ofurlitla stund; en þegar tónverkinu var lokið, og tónarnir höfðu smogið á burt bak við gluggatjöld og dyratjöld og aftur var orðið kyrrt, þá sagði ég: Hvernig átti þetta sér stað? — Já, ég hefi hugsað mikið um, hvort ég ætti að segja þér það, því að ég hefi allt síðan þetta varð, þjáðst af samvizkubiti gagn vart þér. En nú verð ég að segja það, af því að ég get blátt áfram ekki afborið lengur að þegja yfir því. Manstu eftir því, þegar við kvöld nokkurt seint í maí geng- um eftir hafnarbakkanum á Löngulínu. Það úði og grúfði af ljósum í höfninni, og sífelld og tíð högg fallhamranna hljómuðu frá skipasmíðastöðinni. Við vor- um að labba og tala um konur — það varst þú, sem byrjaðir — það var nærri alltaf þú, sem brydd- aðir á því umtalsefni. Og við vor um mjög ungir og mjög barna- legir; og við röbbuðum um, hvernig hún ætti að vera; og ég held, að við höfum verið nokkurn veginn sammála. Þú sagðir nokk- uð, sem hefi aldrei getað gleymt, það var eitthvað, sem þú hafðir lesið hjá Gunnar Engberg: „Það skiptir engu máli, hvort hún er falleg eða ekki, en hún verður að vera yndisleg“. Og síðan bætt- ir þú við af allri þinni lífs- reynslu: En ef hún er falleg, má hún ekki vita af því sjálf. Þessi orð hafa geymzt í huga mínum öll þau ár, sem liðin eru síðan, og þegar ég hefi hitt ungar stúlkur — og ég hefi hitt töluvert margar eins og þú getur skilið — þá hefi ég notað þessi orð sem mælikvarða á þær. En ég fann enga, sem í mínum augum var yndisleg. Og ef þær voru það, voru þær líka fallegar — en vissu af því sjálfar. Ég héfi oft spurt sjálfan mig, hvort ég væri kröfu- harður, hvort ég krefðist ein- hvers, sem ég gæti ekki fengið. En nú lofa ég hamingjuna fyrir, að ég skyldi hafa þessa mæhstiku til að miða við, svo að ég tók engri með þökkum fyrr en sú rétta kom. Þú manst efthr henni Jóhönnu gömlu frænku þinni, sem þú bjóst hjá við Ole Suhrsgötu . . . — Ja hérna, henni Kristínu gömlu Eiturtungu, er það hún, sem hefir . . . — Nei, sagan er sennilega hversdagsleg, en ekki eins hvers- dagsleg og þú heldur. — Þú hlýt ur að muna, hvað hún var góð við mig, þegar ég kom og heim- sótti þig á þeim árum, sem við vorum við nám. Ég bjó líka einn í herbergiskytru og átti engan að til að hjálpa mér með fötin mín óg annað slíkt; og þar hljóp hún undir bagga, þó að hún hefði sannarlega nóg með þitt. Vegna þessa bauð ég henni hingað fyrsta sumarið, eftir að ég hafði tekið óðalsetrið í mínar hendur, og síð an hefir hún dvalizt hér töluvert. Og það hefir alltaf verið svo notalegt að hafa hana hérna. — Já, en hvernig gazt þú verið í friði fyrir hjónabandsáætlunum hennar? — Jú, er það ekki einkenni- legt, að henni fannst ekkert at- hugavert við, að ég væri pipar- sveinn, þó að hún velti því ber- sýnilega fyrir sér dag og nótt, hvernig hún ætti að koma þér í hjónabandið. Miklu fremur hef- ir hún varað mig við konum; og henni fannst, að hvorki ég né setrið þyrfti á húsfreyju að halda. Þegar hún var hér, gegndi hún því hlutverki, og hvers vegna þurfti ég þá að fá einhverja aðra? Smásaga eftir J. Plov — Nei, hún hefir aldrei ónáðað mig með því; og ég hefi oft hugs- að um, hvort hún hafi álitið, að ekki væri hægt að telja nokkra unga stúlku á það að giftast mér. Eða kannski áleit hún, að ég yrði sjálfur að sjá um þau mál, úr því að ég var ekki bróðursonur hennar. En skömmu fyrir jólin í fyrra fékk ég bréf frá henni, þar sem hún skrifaði, að nú hefði hún fundið rétta konu handa þér . . . — Handa mér? — Já, handa þér! Hún skrif- aði, að hún hefði einu sinni svar- ið, að hún skyldi finna réttu kon- una handa þér, þó að hún yrði að „grafa“ hana upp úr jörð- inni . . . — Ó, Guð minn góður, ég get heyrt hana segja „grafa“ með mjög löngu og flötu a-i. — Já, og nú hafði hún hitt þessa ungu stúlku. Og frænka vildi sömuleiðis „grafa" upp úr jörðinni mann handa henni, ef ekki væri annars úrkosta. Og svo lýsti hún ungu stúlkunni: hún var grönn og vel vaxin, fjörug, glaðlynd og spilaði og söng eins og engill. Hún saumaði frábær- lega vel út, óf dásamlegar ábreið- ur, bjó til stórkostlegan mat og kunni að gera heimili smekklegt og notalegt. Hún var viðförul, talaði þrjú erlend tungumál og bar skynbragð á bókmenntir og listir. Hún elskaði börn og blóm og hefði verið vís til að gefa einu skóna, sem hún átti, ef ein- hver hefði þurft þeirra með. En karlmenn sögðu, að hún væri ljót! Frænka gat nú ekki komið auga á þetta, og henni fannst, að unga stúlkan væri á vissan hátt áðlaðandi, Svo að manni gleymdist, að andlitsdrætt ir hennar voru ekki eins reglu- legir og venjulega er átt við, þeg- ar talað er um fagurt andlit, og frænka gat ekki skilið, hvers vegna karlmenn hópuðust ekki utan um hana. Hún var rúmlega þrítug og hana langaði til áð eign ast heimili og eiginmann, sem hún gæti umvafið elsku sinni. Og frænka ætlaði að útvega henni eiginmann. Og þú hafðir orðið fyrir valinu! Og ég átti að hjálpa henni við þetta. Hana langaði að koma í heimsókn hingað a jólunum og taka ungu stúlkuua með sér, og svo átti ég að bjóða þer án þess að segja, hvað væri á seyði. „Jól- in gera menn svo blíðlynda", skrifaði frænka, „að Vilheim hlýt ur að láta undan í þetta sinn‘. Eins og þú manst skrifaði ég þér og bauð þér hingað, hlýlegar og innilegar en nokkru sinni fyrr. Og frænka skrifaði þér líka. Og þú lofaðir að koma á annan í jólum. Frænka og Vibeke komu nokkrum dögum fyrir jól; og frænka hófst strax handa um að undirbúa jólin. Þú þekkir frænku, þegar hún hefst handa um eitthvað. Ég var vissulega vanur því; en það var eins og eitthvað nýtt hefði komið til sög- unnar. Það var ekki aðeins um að ræða matargerð og annað þess konar umstang heldur voru svo margir smáhlutir í stofunum, sem voru teknir til hangargagns — hlutir, sem aldrei hefði hvarflað að frænku að líta á. Það var Vibeke, sem fór sér að engu óðs- lega og fékkst við hitt og þetta, kom auga á horn, sem var dap- urlegt og snautt og gerði það í einu vetfangi svo aðlaðandi, að mann langaði til að setjast þar. Á liðnum árum hafa svo sann- arlega orðið á vegi mínum ýms- ar konur, sem langaði til að gera heimili mitt notarlegra — og framar öllu með því að setja sinn svip á það. Til þess að koma í veg fyrir nokkurn misskilning, sagði ég þegar fyrsta kvöldið við frænku: Segðu mér nokkuð: veit ungfrú Wulff, hvað á að gerast hérna, og hver er tilgangurinn með komu Vilhelms? — Já, auðvitað, sagði frænka; hún gerir reyndar gys að þessu, en hún hefir fallizt á að taka þátt í gamninu. Og ég vona, að þú hafir ekkert á móti því, að hún lagfæri ofurlítið i stofunum. Hún getur ekki stillt sig um það; og Vilhelm getur haft reglulega gott af því að sjá, hvernig heim- ili lítur út, þegar hún fær að bæta ofurlítið um. — Og sussu nei, sagði ég; og svo fór ég að hátta, um leið og ég velti því fyrir mér, hvort frænku hefði alls ekki dottið sá möguleiki í hug, að ég gæti einn- ig komið auga á, hvers virði konu hönd var — hönd þessarar konu. Aldrei fyrr hafði mér fundizt ég vera jafn hvorugkenndur í hönd- um frænku og þá. En, Vilhelm ,ég bið þig að trúa mér, þegar ég segi að ég gerði allt, sem í mínu valdi stóð til að vera áfram hvorugkyns mitt í öllum undirbúningnum að komu þinni, öllum þessum undir- búningi ,sem af hálfu frænku var löng keðja af vel skipulögðum gildrum sem voru vandlega dul- búnar og gerðar af nærri djöful- legri uppfinningasemi. Þáttur Vi- beke í þessu — það sá ég strax — var að leika hlutverk sitt bros- andi. Og þegar hún annað veifið varð niðursokkin í eitthvað var það mjög greinilegt, að sjálft við- fangsefnið hafði vakið áhuga hennar, en vélræði frænku voru henni fjarlæg og óviðkomandi. í ákafa sínum lét frænka oft og tíðum skína allt of greinilega í áorm sín, þá leit Vibeke bros- andi til mín, og ég fann til und- arlegrar sektartilinningar gagn- vart þér, að því að mér fannst að ég hefði farið á bak við þig og frænku og væri á laun í vitorði með tilvonandi eiginkonu þinni. Og þá stóð ég alltaf á fætur og fór, því að í öllu þessu var eitt- hvað, sem ég vildi spyrna gegn. Framh. á bls. 14. , , , / K-jlecilecjt nýar ! T O L E D O MiJ , , , I Cjlealegt niýar l Þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu. Verzlunin VEGt'R. u . , , j K-jleoileýt nijarí með hökk fyrir viðskiptin. Sigurður Kjartanssoa Laugavegi 41. rp a , ,, j K-jleoilegt nýar! Veið imaðurinn. / | (jle&ilecjt nýár l Reiðhjólaverksmiðjan Ö R N I N N i'/ / " I jleóilecjt nijar! H.F. DVERGUR Hafnarfirði. / (°f U L , . , Ljlealecjt nýar! KJÖT & ÁVEXTtR. /?/ t.f f .. / j K-jleoilecjt nýar! « Verzlunin LUNDUR. 5 rj u , ,, r z \-jleoiieýt nijar! Verzlunin JENNÝ. Cj!eoi!('ýt mjdr1 / tío o ooL OOOd J Qi4 rúði* rfif , ., / K-fleoilejt nýar! Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur Vesturveri. Pf {.( , . . / C-jleoilecjt ntýar! Húsgagnaverzlun Kristjáns Siggeirssonar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.