Morgunblaðið - 08.01.1960, Side 1
20 síður
ttttMðMfe
47. árgangur
5. tbl. — Pöstudagur 8. janúar 1960
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Mr. Kennedy
Mr. Stevenson
Mr. WiHiams
Mr, Johnson
Mr. Níxon
Hanv & Ew;;w l'SXíEWR Vhow's
Mr. Brown
Mr. Symington Mr. Humphrey
Mr, Meyner
Mr, Rockefeiler
Fœreyingar fá
sömu
kjör og
íslend-
ingar
FISKIM ANN AFÉL AGIÐ
f Færeyjum hefur, eins og
■kýrt var frá í blaðinu í gær,
sett fram kröfur um bætt kjör
fyrir færeyska sjómenn á
vetrarvertíð á íslandi, og
bannað þeim að ráða sig á ís-
lenzk fiskiskip fyrr en sam-
komulag um þær hefur náðst.
Kl. 5 í gær hélt stjórn
Land$samhands íslenzkra út-
vegsmanna fund, og var að
þeim fundi loknum sent svar
til Fiskimannafélagsins í Fær-
eyjum. Svarið var á þá leið að
Landssambandið gæti ekki
boðið færeyskum sjómönnum
önnur kjör en þau sem ís-
lenzkum sjómönnum eru
boðin.
Um þann lið í kröfunum,
sem fjallar um niðurfellingu
á útsvörum fyrir færeyska
sjómenn, getur Landssam-
bandið að sjálfsögðu engin
svör gefið, þar eð það er bæj-
arfélaganna að ákveða slíkt.
ÞANN i. nóv. n.k. eiga for-
setakosningrar að fara fram í
Bandaríkjunum. Eisenhower
getur ekki boðið sig fram,
því að stjórnarskrá Banda-
rikjanna bannar að nokkur
maður sé forseti landsins
lengur en tvö kjörtímabil.
Mun mikill spenningur
ríkja í Bandaríkjunum um
það hver tekur við þessu
virðulega og valdamikla em-
bætti. Margir þykja koma til
mála einkum í hópi demo-
krata, en sá flokkur er nú
taiinn hafa meiri sigurmögu-
leika en republikanar.
Hér birtast myndir af þeim
mönnum sem helzt þykja
koma til greina. Vinstra meg
in eru republikanarnir tveir
NIXON varaforseti og
ROCKEFELLER ríkisstjóri í
New York. Þeir máttu heita
einu keppinautarnir um
framboð republikana. En um
áramótin ákvað Rockefeller
að draga sig í hlé og kemur
þá enginn annar til greina en
Nixon.
Hægra mcgin við strikið
eru hugsanlegir frambjóðend
ur demokrata. Þar er sam-
keppnin mikil og hörð, enda
eru sigurvonir demokrata
taldar meiri.
I efri röðinni eru: JOHN-
SON öldungadeildarþingmað
Uf fra Texas, STEVENSON
frambjóðandi demokrata í
tveimur síðustu forsetakosn-
dcildarþingmaður frá Mass-
achusetts, og WILLIAMS rík-
isstjóri í Michigan. í neðri
röðinni eru: SYMINGTON
öldungadeildarþingm. frá
Missouri, HUMPIIREY öld-
ungadeildarþingmaður frá
Minnesota, WEYNER rikis-
stjóri í New Jersey og
BROWN ríkisstjóri í Kali-
ingum, KENNEDY, öldunga- forníu.
Nkruma boðar þing Afríkuþjóða
til að rœða um
Bandaríki Afríku
ACCRA, 7. janúar.
NKRUMA, forsætisráðherra
Ghana, sagði á fundi með
fréttamönnum í dag, að
Ghana væri reiðubúið að
fórna sjálfstæði sínu, ef tak-
ast mætti að stofna upp úr
því Bandaríki Afríku.
Hann var spurður að því hvort
hann teldi, að önnur Afríkuriki
yrðu fús til að gera það sama.
— Já, sagði hann, sérstaklega
þau, sem nýlega hafa hlotið sjálf-
stæði. En ég geri ekki ráð fyrir
að öll önnur Afríkuríki komi
strax á eftir.
★
Hann sagði, að mjög vel gengi
að undirbúa sambandssáttmála
Ghana og Guineu. Tvö aðalmál
væru nú á dagskrá. 1 fyrsta lagi
gjaldmiðillinn, hvernig sam-
ræma mætti hann — og í öðru
lagi, hvort bæði ríkin ættu að af-
sala sér sjálfstæði og sameinast
í eitt.
Nkhruma var spurður að því
hvort hann teldi, að einstök ríki
í hinum hugsanlegu bandaríkjum
Afríku ættu að hafa völd og áhrif
inn á við í hlutfalli við stærð eða
fólksfjölda.
★
— Nei, svaraði forsætisráð-
herrann. Öll ríki ættu að hafa
jafna aðstöðu, allir ættu að sitja
við sama borð. Hitt er annað mál,
að ég tel, að lönd, sem væru
tæknilega framar öðrum mundu
í reyndinni hafa meiri áhrif,
enda þótt valdaaðstaða allra ætti
að vera jöfn.
Þá skýrði Nkruma frá því,
að á morgun ætlaði hann i
ræðu að gera þá tillögu, að
allir stjórnmálaflokkar í
Afríku kæmu saman til þings.
Slíkt mundi gera Afríku-
mönnum fært að samhæfa
stefnuskrá sína og gerðir.
Við munum ekki veikja
aðstöðu okkar
— sagði Eisenhower
WASHINGTON, 7. janúar.
EISENHOWER forseti hélt
hina árlegu ræðu sína um
ástand og hag ríkisins í þjóð-
þinginu í dag. í upphafi ræð-
unnar sagði hann, að eyðilegg
ingarmáttur vopnanna, sem
hinir tveir sundurskildu hlut-
ar heims, hefðu í fórum sín-
um, væri ótrúlega mikill. —
Mannkynið væri nú komið á
það stig, að gagnkvæm gjör-
eyðing væri hugsanleg. Ekk-
ert í vorum heimi er jafnör-
lagaríkt og þessi staðreynd
hefur áhrif á allt, sem við
segjunt, bollaleggjum og ger-
um, sagði Eisenhower.
N azistasamtök
bönnuð með lögum
Bonn, 7. janúar. —
BORGARSTJÓRNIN í Berlin
samþykkti í einu hljóði í dag að
nazistasamtök í borginni skyldu
öll bönnuð, þeir, sem gerzt hefðu
sekir um gyðingaofsóknir dregn-
ir fyrir lög og dóm — og víðtæk-
ar ráðstafanir gerðar til að upp-
ræta leifar nazismans. „Þessir
skammarlegu atburðir eru
hneysa fyrir borgina" sagði í sam
þykktinni.
Brandt borgarstjóri flutti ræðu
við þetta tækifæri og sagði:
— Erum við í rauninni svo
langt leiddir, að Þjóðverjar hafi
gleymt þeim, sem sviptu þá frels
inu ,steyptu þeim út í styrjöld
leiddu hörmungar eftirstríðsár-
anna yfir þjóðina og rændu hana
þjóðlegri einingu?
— Það er siðferðisleg og þjóð-
leg skylda okkar að kæfa aiiar
nazistiskar tilhneytingar í fæð-
ingunni, sagði Brandt.
Fulltrúi alheimsráðs Gyðinga
ræddi við von Brentano í Bonn
í dag og gerði tillögur um að-
gerðir gegn nazistum. Fulltrúinn
varð að viðræðunum loknum
mjög ánægður með afstöðu von
Brentano og sagði, að ráðherr-
ann hefði verið einbeittur.
Með varkárni
Hann sagði að Ráðstjómin
hefði að undanförnu látið í ljósi
áhuga á að draga úr styrjaldar-
hættunni. En hvorki Bandaríkin
né önnur frjáls ríki mundu
láta villa sér sjónir með blíð-
mælgi, en við reynum að kanna
með varkárni hvort einlægni er
hér að baki, sagði hann.
Það væri varla ástæða til að
taka fram, að Bandaríkin hefðu
ekki áhuga á að hafa afskipti af
nnanríkismálum annarra ríkja.
Tafnframt mundu . Bandaríkin
vísa á bug öllum tilraunum ann-
arra til að þröngva upp á þá eða
aðrar þjóðir þeirra skipulagi —
með valdi og moldvörpustarf-
semi.
Og umhyggja okkar fyrir
frelsi annarra þjóða er hin and-
lega kjölfesta, sem bindur okkur
og meira en fjörutíu aðrar þjóðir
í eina heild til varnar. Við gleym
um því ekki eitt andartak, að ör-
lög okkar eru samtengd örlögum
Framh. á bls 18.
Vörðurinn
drukhinn, 16
létu lífið
VARSJA, 7. janúar. — Sextán
manns létu lífið og 32 slösuð-
ust, sjö þeirra hættulega, er
járnbrautarlest ók á fullhlað
inn vörubíl í Opolc í gær-
kvöldi. Slysið varð þar sem
þjóðvegur liggur yfir járn-
brautarteinana. Vörubillinn
var að aka yfir, þegar lestin
kom á fleygi ferð og þeyttist
billinn um 100 metra. Lestar-
stjóranum tókst síðan naum-
lega að stöðva lestina.
Þarna átti að vera vörður.
sem lokaði þjóðveginum með
slá og ljósmerkjum, á meðan
lestin fór framhjá. En vörður-
inn fannst hvergi eftir slysið.
Síðar handtók lögreglan hann.
Hafði maðurinn verið drukk-
inn og vanrækt starf sitt með
f.vrrgreindum afleiðingum.
Bardot fangi
fréttamanna
PARÍS, 7. jan. — Þokkadísin
Brigitte Bardot hefur ákveðið að
ala barn sitt á heimili sínu í stað
þess að fara að ráði lækna og láta
flytja sig á fæðingarheimiii. Á-
kvörðun þessa tók hún vegna
þess að heimili hennar er stöð-
ugt umsetið af sæg blaðamanna
og fréttaljósmyndara. Henni
finnst hún engan veginn geta
hreyft sig út af heimilinu. Eigin-
maður hennar, Jacques Charri-
er, skrifaði fréttastofum og blöð
um í fyrri viku og bauðst til
þess að halda íund með frétta-
mönnum strax eftir ad kona hans
hefði alið barnið, ef þeir vildu
i staðinn hætta umsátinu um
heimili þeirra hjóna. En tilboðið
leysti Bardot ekki úr umsátinu.
Finna fiskimerki
ÁLASUNDI, 7. jan. (NTB) —
Fiskieftirlitinu í Álasundi liefur
borizt fjöldi af merkjum af fiski,
sem veiðzt hefur á heimaniií _,m,
við ísland, Grænland >g við
Bjarnarey. Eru merkin norsk,
íslenzk, þýzk og rússnesk að upp-
runa. Frá Grænlandi hafa borizt
færri merki en undanfarin ár, og
lítið hefur verið um dönsk merki.