Morgunblaðið - 08.01.1960, Síða 2
2
MORCTJNfíT/AÐIÐ
Fostudagur 8. jan. 1960
Um 1500 manns á skemmt-
unum Sjálfstæðisfélaganna
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Rvík,
Landsmálafélagið Yörður, Sjálf-
stæðiskvennafélagið Hvöt, Félag
ungra Sjálfstæðismanna, Heim-
dallur, og Málfundafélagið Óð-
inn, efndu til spilakvölds og ára-
mótafagnaðar í þrem stærstu
samkomuhúsum bæjarins í gær-
kvöldi. Voru samkomur þessar í
Sjálfstæðishúsinu, Hótel Borg og
Lídó. Mjög mikil þátttaka var í
skemmtunum þessum og sóttu
þær um 1000 manns.
Samkomurnar hófust með því
að spiluð var félagsvist. Síðan
voru flutt ávörp, og talaði Bjami
Benediktsson, ráðherra, í Sjáif-
stæðishúsinu, Jóhann Hafstein,
alþingismaður, að Hótel Borg, og
10 stiga hiti við ísland
t í GÆR var sunnanátt með 6—
S 9 stiga hita um allt land og
$ svarar það til meðalhita í maí
\ og júní. Á kortinu ber mest á
S háþrýstisvæði yfir Bretlands-
) eyjum og nær hæðarhryggur-
\ inn norðureftir milli fslands
$ og Noregs allt norður um
5 Svalbarða. Hinsvegar er all-
\ djúp lægð nálægt suðurodda
S Grænlands og hreyfist hún
J norður eða norðvestur eftir og
^ lítur út fyrir áframhaldandi
S sunnanátt og þýðviðri hér á
landi. Kaldast var í gær á
Goose Bay, 33 stiga frost, en
við írlandsstrendur er 10 stiga
\ hiti.
Veðurhorfur kl. 10 í gær- 5
kvöldi: \
Suð-Vesturland til Vest- s
fjarða, Suðvesturmið til Vest- )
fjarðamiða: Vaxandi suðaust- \
an og síðar sunnanátt, hvass- s
viðri i nótt ,en lægir aftur á £
morgun, þíðviðri og rigning ^
með köflum. Norðurland til s
Austfjarða, Norðurm. til Aust- )
fjarðamiða: Hægviðri í nótt, ^
en sunnan kaldi á morgun, úr- s
kcmulítið og víðast þíðviðri •
í lágsveitum. Suð-Austurland S
og Suðausturmið: Suðaustan- \
átt .allhvasst vestan til, þoku- ^
loft og þíðviðri. s
S
Birgir Kjaran, alþingismaður, í
Lídó. Þá söng Kristinn Hallsson,
óperusöngvari, með undirleik F.
Weisshappels í öllum húsunum og
sömuleiðis skemmti Ómar Ragn-
arsson með aðstoð Einars Loga
Einarssonar í öllum stöðunum.
Að lokum var svo stiginn dans.
Samkomunni í Sjálfstæðishús-
inu var stjórnað af Sveini Helga-
syni, stórkaupmanni, að Hótel
Borg stjórnaði Baldur Jónsson,
vallarstjóri, og Sveinn Björns-
son, kaupmaður í Lídó.
Samkomur þessar báru vott
um þann mikla þrótt, er ein-
kennir starfsemi Sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík. Ánægja, gleði
og samhugur ríkti á þessu fyrsta
spilakvöldi ársins. Máli ræðu-
manna var sérlega vel tekið. Fé-
lagsvistin var spiluð af áhuga og
þeirr heppnu þágu vönduð spila-
verðlaun, sem veitt voru að
vanda. Hinn mikli fjöldi þátttak-
enda átti hér saman skemmtilega
kvöldstund.
Fyrr um daginn í gær hafði
Landsmálafélagið Vörður jóla-
trésskemmtun í Sjálfstæðishús-
inu. Þessa skemmtun sóttu um
.500 manns, börn og fullorðnir.
Var bömunum skemmt með að-
stoð Ólafs Magnússonar, Baldurs
Hólmgeirssonar og hinnar ágætu
hljómsveitar hússins undir stjórn
Svavars Gests. Samskonar jóla-
trésskemmtun hafði Vörður og
haldið 2. janúar sl. og var þá
þátttaka um 600 manns, börn og
íullorðnir.
Veg og vanda af þessum sam-
komum öllum hefir skemmti-
nefnd Varðarfélagsins haft. Hefir
hún unnið mjög mikið og gott
starf við undirbúning og forstöðu
fyrir spilakvöldum og jólatrés-
skemmtunum. í skemmtinefnd
Varðar eiga sæti eftirtaldir menn:
Baldur Jónsson vallarstjóri for-
maður, Sveinn Björnsson kaup-
maður, Hafliði Andrésson skrif-
stofumaður, Valdimar Ólafsson
skrifstofumaður og Jón Jónsson
skrifstofustjórL
Skýrir hrun verka-
mannaflokksins
UTRECHT, Hollandi, 7. jan.
(Reuter) — Einn af leiðtog-
um brezka verkamannaflokksins,
sagði í dag að hin nánu tengsl
flokksins við verkalýðsfélögin
væru „ef til vill orðin stjórn-
málaleg byrði“. Anthony Cros-
land, sem er mikill vinur Gait-
skell, formanns verkamanna-
flokksins, og er þingmaður flokks
ins fyrir Grimsby, hefur samið
fyrirlestur, er hann mUn flytja
hér á alþjóðafundi jafnaðar-
manna. f fyrirlestrinum mun
Crosland berjast fyrir nýsköpun
á stefnu flokksins, til að endur-
heimta stuðning þjóðarirmar.
„Nafnið verkamenn er að glata
aðdráttarafli sínu í Bretlandi'1,
segir Crosland. „Eftir því sem að
búnaður fólks batnar og það fer
að öðlast hugsunarhátt millistétt-
anna, fer það að fá óbeit á merk-
ingum' orðanna verkamenn og
verkalýður“.
Aukin velmegun, sagði hann,
hefur rænt jafnaðarmennskuna
miklu af vinsældum hennar.
Verkamenn eru ekki lengur fórn-
arlömb arðráns auðvaldsins.
„Meiri hluti þjóðarinnar — í
stað þess að hafa samúð með
verkalýðsfélögunum, sem vernd-
urum niðurtroðinnar stéttar —
óttast að þau hafi of mikil völd i
þjóðfélaginu og að þau beri á-
birgð bæði á sí-hækkandi vöru-
verði og á síendurteknum spreng-
ingum efnahagskerfisins með o-
þörfum verkföllum."
Crcteland sagði að í stað kenn-
ingarinnar um hið „miskunnar-
lausa auðvald“ væri komin trú
á nýjar, bættar aðferðir við
starfsstjórn.
Þá sagði hann ennfremur að
flestir frambjóðendur verka-
mannaflokksins hafi litið á þjóð-
nýtingarstefnuna sem kosninga-
byrði.
Jafnaðarmannaráðstefnan hefst
á morgun og mun standa í tvo
daga. Að henni stendur Verka-
mannaflokkur Hollands en full-
trúar frá Bretlandi, Belgíu, Aust-
urríki og fleiri Evrópulöndum
hafa boðað komu sína.
Stærsta eldflaugin
MOSKVU, 7 jan. — Tass-frétta-
stofan skýrði svo frá í kvöld, að
Rússar væru nú að leggja síðustu
hönd á eldflaug, sem tæki öllu
öðru fram, sem þeir hefðu áður
gert á því sviði, bæði hvað snertl
stærð og afl.
Sagði í fréttinni, að eldflaug
þessi mundi komast til annarra
stjarna og geta flutt út í geim-
inn miklu stærri gervitungl én
hingað til hefði verið unnt að
skjóta á loft. — Fyrstu tilraunir
mundu gerðar með þessa nýju
eldflaug, henni skotið út i kyrra
haf — og yrði fremsta þrepið
ekki haft á henni við tilraunirn-
ar. Þær eiga að fara fram milli
15. jan. og 15. febrúar, sagði
fréttastofan.
Góð tíð
ÞÚFUM, 5. jan.: — Nýbyrjaða
árið heilsaði með góðviðri, sem
verið hefir hér undanfarið, snjó
létt mjög í byggð. Vantar lítið
eitt til að Þorskafjarðarheiði sé
bílfær, skaflar eru á sunnanveðri
heiðinni, sem ófærir eru. I dag
kemur fjöldi nemenda til hér-
aðsskólans í Reykjanesi. Verða
þar um 70 nemendur næstu 3
mánuði. Eru þeir víðsveg-
ar að af landinu og koma ýmist
með skipum, lofteiðis eða land-
veg. Heilsufar er fremur gott í
héraðinu nema hvað kíghásti og
hlaupabóla hafa verið sumsstað-
ar en af þeim sjúkdómum eru
engar alvarlegar afleiðingar enn-
þá. — P.P.
Leiðréttino
f GREIN um Ingmar Bergman í
blaðinu í gær urðu þau mistök
að ranglega var farið með nafn
ið á kvikmyndahúsi því sem sýndi
hér stórmyndina „Undur lífsins".
Það var jólamyndin í Hafnar-
fjarðarbíói í fyrra.
f greininni var þess getið að
leikstjórmn frægi og kvikmynda-
leikarinn Victor Sjöström lægi
fyrir dauðanum í Stokkhólmi. í
gærkvöldi bárust þær fréttir með
nýjum sænskum blöðum, að Sjö-
ström væri látinn.
Esso neitar
FORRÁÐAMENN Olíufé-
lagsins tilkynntu bæjaryfir
völdunum um áramótin að
félagiö myndi ékki hœtta
starfrœkslu benzínstöövar
sinnar í Hafnarstræti nú
um áramótin, eins og bœj-
aryfirvöldin höföu lagt fyr
ir oliufélögin aö gera. Fyr-
ir löngu var ákveöiö aö fé-
lögin skyldu öll samtímis
hœtta benzínsölu í Miö-
bœnum. Athafnasvœöum
þeirra skyldi svo síöar
veröa breytt — í bílastœöi.
Eftir þessum fyrirmœl-
um fóru BP og Shell og
benzinafgreiöslur félag-
anna við Grófina hœttu um
áramótin, svo sem kunnugt
er. Enn er Esso-stööin við
Hafnarstrœti starfrœkt og
hefur þetta aö vonum vak-
iö athygli.
Félagiö á sjálft athafna-
svœðiö sem benzínsálan er
á. Frá þessu olíufélagi
munu þó ekki hafa borizt
nein mótmœli gegn ákvörö-
un bæjaryfirváldanna, fyrr
en um þaö leyti sem félag-
iö skyldi hœtta benzínsöl-
unni. Heyrzt hefur aö bœj-
aryfirvöldin hafi nú ráöa-
geröir á prjónunum um aö
láta krók koma á móti