Morgunblaðið - 08.01.1960, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 08.01.1960, Qupperneq 4
4 MORCVmtLAÐIÐ Fðstudagur 8. ian. 1960 í dag er 8. dagur ársins. Föstudagur 8. janúar. Árdegisflæði kl. 1,13. Síðdegisflæði kl. 13,40. Siysavarðstofan er opin allan sólarhringinn. — Læknavórður L.R. (fyrii vitjanir), er á sama stað frá kl. 18—8. — Sími 15030 Næturvarzla vikuna 2.—8. janúar er í Vesturbæjar-apóteki. Sími 22290. Næturlæknir í Hafnarfirði er Kristján Jóhannesson. Sími 50056 H Helgafell 5960187. IV/V. 2. I.O.O.F. 1 = 141188 Vi = IHjónaefni A gamlárskvöld opinberuðu trúlofun sína.ungfrú Svava Val- geirsdóttir, Austurbæjarbarna. skóla, Rvík og Guðjón Ingi Sig- urðsson Suðurgötu 37, Rvík. _____Flugvélar Flugfélag fslands h.f.: — Milli- landaflug: Gullfaxi fer til Glas- gow og Kaupmannahafnar kl. 08:30 í dag. Væntanleg aftur til Reykjavíkur kl. 16:10 á morgun. Hrímfaxi fer til Oslóar, Kaup- mannahafnar og Hamborgar kl. 08:30 í fyrramálið. — Innanlands- flug: í dag: er áætlað að fljúga til Akureyrar, Fagurhólsmýrar, Hólmavíkur, Hofnafjarðar, ísa- fjarðar, Kirkjubæjarklausturs og Vestmannaeyja. Á morgun: er áætlað að fljúga til Akureyrar, Blönduóss, Egilsstaða, Isafjarðar, Sauðárkróks og Vestmannaeyja. Skipin Eimskipafélag Islands h.f. — Dettifoss fór frá Norðfirði 4. þ.m. til Hull. - Fjallfoss er í Hamborg. — Goðafoss fór frá Hull 6. þ.m. til Antwerpen. — Gullfoss fer frá Leith í dag til Thorshavn og Reykjavíkur. — Lagarfoss fór frá Bíldudal í gær til Reykjavíkur. — Reykjafoss fór frá Akureyri í gær til Flateyrar. — Selfoss er á leið til Rvíkur. — Tröllafoss er á leið til Bremerhaven. — Tungu foss fór frá Stykkishólmi í gær til Akraness og Reykjavíkur. Skipadeild SÍS: — Hvassafell átti að fara í gær frá Stettin áleiðis til Reykjavíkur. Arnar- fell er í Kristiansand, fer þaðan til Siglufjarðar, Akureyrar og Reykjavíkur. Jökulfell lestar og losar á Norðurlandshöfnum. Dís. arfell losar á Húnaflóahöfnum. Litlafell losar á Austfjörðum. Helgafell er í Ibiza. Hamrafell fró 4. þ.m. framhjá Gíbraltar á leið til Batúmi Skipaútgerð ríkisins: — Hekla er í Rvík. — Esja er á leið frá Austfjörðum til Rvíkur. — Herðu breið er á Austfjörðum á norð- urleið. — Skjaldbreið er á Skaga firði á leið til Akureyrar. — Þyr- ill er væntanlegur til Fredrik- stad í kvöld. — Herjólfur fer frá Rvík kl. 21 í kvöld til Vestmanna- eyja. Ymislegt Orð lífsins: — Því að dagur Drottins hersveitanna kemur yfir allt það, sem dramblátt er og hrokafullt, og yfir allt, er hátt gnæfir, það skal lægjast, og yfir hin hávöxnu og gnæfandi sedurs. tré á Líbanon og yfir allar Bas- ans-eikur, og yfir öll há fjöll og allar gnæfandi hæðir, og yfir alla háreista turna og yfir alla ókleifa múrveggi, og yfir alla Tarsis- knörru og yfir allt ginnandi glys. ( Jesaja 2.) Iðnaðarmálin: — f grein Braga Hannessonar um iðnaðarmálin í blaðinu í gær slæddist inn villa, þegar rætt var um tollamisrétti við yfirbyggingar langferða- vagna. Greinin hljóðar rétt: „Þannig þarf að greiða af efni til yfirbygginga 44% innflutnings- sjóðsgjald og 10% verðtoll, auk 9% söluskatts og útflutningssjóðs gjalds. Hins vegar á að greiða 30% toll af innfluttum yfirbygg- ingum á langferðavagna, en heim ilt er að lækka hann niður í 10% og hefir það verið gert fram að þessu“. Leiðrétting: — f kveðjuljóði um Sævar Kjartansson í blaðinu í gær misritaðist eitt orð. Rétt er ljóðlínan þannig: „Farinn er margur, sem faðm sinn opnar ...“ Leitarstöð Krabbameinsfélags íslands er opin alla virka daga, nema laugardaga, til kl. 18. Fólk, sem óskar eftir rannsókn, gefi sig fram í síma 16947. 1551 Félagsstörf Málfundafélagið Óðinn: — Stjórn félagsins er til viðtals í skrifstofunni á föstudögum kl. 8,30—10 s.d. Frá Guðspekifélaginu: — Fund ur verður í stúkunni Mörk kl. 8:30 í kvöld í húsi félagsins, Ingólfsstræti 22. — Gretar Fells flytur erindi: „Guðspeki og krist- indómur". — Hljóðfæraleikur. Kaffiveitingar á eftir. Allir vel- komnir. Stangaveiðifélag Hafnarfjarð- ar. Arshátíð félagsins verður í A1 þýðuhúsinu annað kvöld. Keflvíkingar: Kvenfélagið held ur skemmtun fyrir eldra fólkið sunnudaginn 10. janúar kl. 3 e.h. í Ungmennafé'lagshúsinu. Þeir sem óska að verða sóttir í bíl hringi í síma 2062 eftir kl 1 sama dag. Allt eldra fólk er hjartan- lega velkomið. K.F.U.M og K., Hafnarfirði. Jólatrésskemmtunin verður n.k. sunnudag, fyrir yngri börn kl. 2 og eldri kl. 5. — Aðgöngumiðar verða afhentir kl. 4—6 í dag (föstudag). BLOÐ OG TIMARIT Tímaritið Úrval. Blaðinu hef- ur borizt nýtt hefti af Urvali. All mikið af rúmi þessa heftis er helgað Knut Hamsun í tilefni af 100 ára afmæli hans. Fyrst er ræða um Hamsun, sem Sigurd Hoel flutti á hátíðarsal Oslóar- háskóla á afmæli skáldsins, þá er stutt grein eftir Maxim Gorki, sem hann nefnir Knut Hamsun og guð hans, og Loks er kafli úr skáldverki Hamsuns, „Landstryk -mtíf rr- — Það vill víst ekki svo vel til, fröken Hansen, að þér mun- ið hvenær þér skrifuðuð þetta bréf? Það er dagsett 79. zeptuber 1655. ★ Á nýársdag fleygði konan mín í mig tekönnu, aðeins vegna þess að ég kom dálítið seint heim. Kemur það nokkurntíma fyrir hjá þér? Nei, við drekkum bara kaffi. ★ Gesturinn, sem hafði fengið ólseigan kjúkling, kallaði á þjón- inn og sagði: Heyrið þér, haldið þér ekki að þessi kjúklingur hafi komið úr harðsoðnu eggi? ★ Það er aldrei hægt að átta sig á honum Sigurði, hann getur litið svo heimskulega út. Já, en það get ég líka. Vissulega, en Sigurður er ekki heimskur. ★ Þegar ég yar á ferðalaginu réðust ræningjar á mig og rændu mig öllu, úri, veski og farangri. Nú, varstu ekki með skamna- byssu? Jú, en sem betur fór fundu þeir hana ekki. ★ Kári litli, sem var þriggja ára, kom til nágrannanna og sagði hreykinn frá því að móðir síu væri komin heim af fæðingar- deildinni með lítinn bróður. Hefði ekki verið skemmtilegra að fá litla systur?, spurði ná- granninn. Jú, sagði Kári, en það var ekki hægt að fá skipt af því við vor- um búin að nota hann. ere“: Æviirtýri í Doppu. Annað efni heftisins er fjölbreytt að vanda: Skyndihjálp við fæðing- ar, Sjóveiki kyndarinn, I landi gammanna, Fundinn sekur — hvað svo?, Nýjar kenningar Rússa um tunglið, Karlfiflið, saga eftir Alberto Moravia, .Hvernig veljum við okkur maka?, Míðjarðarlínan <er sýni- leg, Með ástarkveðju til pabba, Að elta hattinn sinn, Að hugsa í tölurrt, Hver er leyndardómur langlífis?, Dýrið, sem getur ekki dáið, og Heimspeki heilbrigðrar skynsemi. Aheit&samskot Hallgrímskirkja í Saurbæ, afh. Mbl.: ÞUMALIIMA Ævintýri eftir H. C. Andersen Þumalína varð að syngja fyrir hann, og hún söng bæði „Aldinbori, fljúgðu, fljúgðu*' og „Munkur er á engi“ — og þá varð hann skotinn í henni, af því að hún hafði svo fallega söngrödd. En hann sagði ekk- ert, því að hann var hygginn náungi. Hann hafði nýlega lokið við að grafa löng göng neðan- jarðar heiman að frá sér og að húsi þeirra. Þar máttu þær Þumalína og hagamúsin ganga sér til skemmtunar, þegar þær vildu. Hann sagði, að þær skyldu ekkert vera hræddar við dauða fuglinn, sem lægi í göngunum. Það var heill fugl með fiðri og gogg, sem hafði víst dáið í vetrarbyrjun og verið jarðað- ur einmitt þar, sem hann hafði grafið göngin. Moldvarpan tók dálítið maurildi í kjaftinn — því að það lýsir í myrkri eins og eldur — gekk á undan þeim og lýsti þeim um löng og myrk göngin. FERDINAND Lítil orsök — miklar afleiðingar • n • =— * l! ^opyrighf P. I. B. Box 6 Copenhogeiv - , \\}f ■Sj V> ir- — Omerkt í bréfi kr. 500.00. Sólheimadrengurinn, afb. Mbl.: Stlna og Sveinn kr. 100,00. Flóttamannahjálpin, — ffjafir afh. i skrifstofu biskups: — Afh. af sr. Tórn- asi Guðmundssyni, Patreksfiröi kr. 300,00; H. kr. 100,00; Einar Erlendsson. Vík kr. 100,00; Onefndur kr. 500,00; afh. af sr. Kristjáni Búasyni, Olafsfirði kr. 3.909,85; afh. af sr. Olafi Skúlasyni. Keflavík frá Kristínu Mensaldersdótt- ur kr. 1.000,00; Guðný Björnes kr. 100,00; afh. af sr. Magnúsi Guðmunds- syni. Olafsvík kr. 450,00; afh. af sr. Gísla Brynjólfssyni, Kirkjubæjar- klaustri kr. 500,00 (viðbót); afh. af sr. Sigurði H. Guðjónsson, Hálsi kr. 500,00; afh. af sr. nga Jónssyni, Norðfirði kr. 2.630,00; afh. af sr. Kristjáni Bjarna- syni, Reynivöllum kr. 1.850,00; afh. af sr. Sigurði Lárussyni, Stykkishólmi kr. 400,00; afh. af sr. Stefáni Eggertssynl, Þingeyri kr. 3.500,00; afh. af sr. Sváfnl Sveinbjarnarsyni, Kálfafellsstað kr. 1.025,00; afh. af sr. Fjalari Sigurjóns- syni, Hrísey kr. 2.000,00; afh. af sr. Ragnari Fjalari Lárussyni. Siglufirði kr. 3.580,00; Barnastúkan „Æskan", Reykjavík kr. 600,00; Pálína Sveins- dóttir og Björn Ivarsson, Bergi, Reyk- holtsdal kr. 700,00; afh. af sr. Einarl Guðnasyni, Reykholti kr. 180,00 (við- bót), afh. af sr. Jóni Isfeld, Bíldudal kr. 2.000,00; afh. af sr. Pétri Ingjalds- syni, Höskuldsstöðum kr. 500,00; afh. af sr. Trausta Péturssyni, Djúpavogl kr. 1.280.00; frá Gaulverjabæjarsöfn- uði kr. 1.500,00; N.N., Hafnarfirði kr. 100,00; S. Ol. kr. 100,00; afh. af sr. Ingv ari Sigurðssyni. Desjamýri kr. 1.530,00; E.H. kr. 500,00; G.M. kr. 100,00; afh. af sr. Eggert Olafssyni. Kvennabrekku kr. 500,00; afh. af sr. Páii Þorleifssyni, Skinnastað kr. 100,00 (viðbót); afh. af sr. Andrési Olafssyni, Hólmavík kr. 3.940,00; afh. af sr. Pétri Sigurgeirs- syni, Akureyri (frá Grímseyingum) kr. 1.900,00; kona kr. 100,00; afh. af sr. Arelíusl Níelssyni (frá I.U.T.) kr. 1.000,00; afh. af sr. Sigurvin Elíassyni, Æsustöðum kr. 680.00; frá heimilisfólk- inu á Laxfossi kr. 200,00; frá heimilis- fólkinu í Neðra-Hjarðardal kr. 1.000,00, afh. af sr. Sigurði Kristjánssyni, Isa- firði kr. 1.300,00; afh. af sr. Kristjáni Bjarnasyni, Reynivöllum kr. 500,00; afh. af sr. Þorsteini Gíslasyni, Stein- nesi kr. 2.500,00; afh. af sr. Friðrik A. Friðrikssyni, Húsavík kr. 3.400,00; aflr. af sr. Benjamín Kristjánssyni, Lauga- landi (frá Munkaþverársókn) kr. 500,00; afh. af sr. Fjalari Sigurjónssyni. Hrlsey kr. 2.600,00; afh. af sr. Einari Þór Þorsteinssyni, Eiðum kr. 1.915,00; Eggert Kjartansson, Gerðubergi kr. 1.000,00; B.J. kr. 500,00; afh. af sr. Arngrími Jónssyni, Odda kr. 1.365,00, (Oddasókn);afh. af Morgunblaðinu kr. 21.566,00; afh. af sr. Einari Guðna- syni, Reykholti (frá Aðalheiði Jó- hannesdóttur, Hraunsási) kr. 120,00; af hent af sr. Arna Sigurðssyni, Hofs- ósi (frá Fellssókn) kr. 120,00; af- hent af sr. Pétri Sigurgeirssyni, Akur- eyri (frá ónefndri konu) kr. 300,00; afh. af sr. Erni Friðrikssyni (frá Skútu staðaprestakalli) kr. 4.570,00; afh. af sr. Guðmundi O. Olafssyni (frá Skál- holtsprestakalli) kr. 1.150,00; afh. af sr. Sigurði O. Lárussyni (frá Ebbu Ebeneserdóttur, Silfurgötu, Stykkis- hólmi kr. 150,00; frá Soffíu Jensdótt- ur, Ytri-Torfastöðum kr. 500,00; afh. af sr. Sigurði Stefánssyni, Möðruvöll- um (frá Möðruvallaklausturspresta- kalli) kr. 2.105,00; afh. af sr. Þorgeir Jónssyni (frá Eskifjarðarprestakalli) kr. 5.000,00; afh. af sr. Sigurði Páls- syni. Selfossi (frá Hraungerðispresta- kalli) kr. 2.020,00; H.U. kr. 200,00; afh. af sr. Pétri Sigurgeirssyni, Akureyri (frá ónefndum manni) kr. 500,00; og K.E.E. kr. 200.00.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.