Morgunblaðið - 08.01.1960, Síða 6

Morgunblaðið - 08.01.1960, Síða 6
6 MORCVNBLAÐIÐ Föstudagur 8. jan. 1960 óknfar um: * KVIKMYNDIR * Gamla Bíó: G I G I 1 YFIRLITI mínu hér í blaðinu um jóiamync1 irnar, sagði ég laus- lega frá þessari frábæru amerísku kvikmynd frá Metro- Goldwyn Mayer, sem tekin er í litum. Það sem ég þá sagði gaf ekki nema ófullkomna hugmynd um þessa ágætu mynd og vil ég því fara um hana nokkrum orð- um hér til viðbótar. Myndin gerist í París hinni glæsilegu heimsborg, um alda- mótin síðustu. Var París þá talin glaðværasta og léttúðugasta borg heimsins, heimkynni lista og lasta, auðs og örbrigðar. Enginn þótti maður með mönnum, sem ekki átti sér ástkonu og helst til skiptanna og á íburðarmiklum veitingahúsum og hinum óbrotn- ustu knæpum var þéttsetinn bekkurinn kvöld eftir kvöld og allan sólarhringinn og lifað þar taumlausu lífi yfir freyðandi skálum. — í þessari borg elst Gigi, þetta unga og aðlaðandi stúlkubarn upp á vegum ömmu sinnar, sem hún kallar Manitu Og Aliciu frænku sinnar. — Þær höfðu báðar lifað léttúðlega í samkvæmislífi borgarinnar á sínum yngri árum og nú hafa þær ákveðið að Gigi skuli feta í fótspor þeirra. En það er ýmsum erfiðleikum bundið. Gigi er nefni lega heilbrigð ung stúlka og barn í aðra röndina. Manita og Alicia frænka kenna henni að vísu þá list að heilla karlmennina, en lengra nær kennsla þeirra ekki, því að Gigi er aðeins hrifin af einum manni, hinum unga og glæsilega heimsmanni, Gaston Lachaille. Hann hefur átt margar ástkonur og hefur fengið auga stað á Gigi til þeirra hluta. Hann gerir allt sem hann má til að ná Gigi á vald sitt og eru Manita og Alicia þess mjög hvetjandi, en leikar fara þó svo að Gigi sigrar hinn veraldarvana unga mann með yndisþokka sínum og barns- legum innileik, en sá saga verður hér ekki sögð frekar. Mynd þessi er ákaflega heill- andi, enda afbragðsvel gerð og ágætlega leikin. Leslie Caron, sem leikur Gigi er blátt áfram töfrandi þó hún sé ekki sérstak- lega fríð og leikur hennar er skín andi góður. Louis Jourdan, sem leikur Gaston, er gæsilegur mað- ur og fer prýðilega með hlutverk sitt og þá verður maður að nefna hinn gamla „sjarmör" Maurice Chevalier, sem leikur þarna aldr aðan frænda Gastons og gamla samkvæmishetju og kvenna- mann með þeim þokka, sem hon- um einum er gefinn. Reyndar má segja að allir leikendurnir fari Höfuðbólið Þ'.ngeyrar í Húnaþingi er laust til ábúðar í næstu fardögum. Sala á jörð- inni, ásamt meðfylgjandi veiðiréttindum í Vatns- dalsá og Víðidalsá, kemur einnig til greina. Tilboð um ábúð, eða kauptilboð, óskast send undirrituðum fyrir 1. febr. n.k. PÁLL S. PÁLSSON, hæstaréttarlögmaður Bankastræti 7 — Sími 24200. Sjóvinnunámskeið fyrir drengi 13—17 ára, hefjast í þessum mánuði. Kennd verða undirstöðuatriði almennra sjóvinnu björgun og fleira, sem sjómennsku við kemur. Þátttaka tilkynnist að Lindargötu 50 eða í síma 15937 fyrir 12. þ.m. Æskulýðsráð Reykjavíkur. TILKYNINIIIMG frá póst- og símamálasjórninni Fyrirtæki og einstaklingar, sem eiga reikninga við- komandi árinu 1959 á póst- og síma, eru hér með beðnir að framvísa þeim eigi síðar en 14. jan. 1960. Reykjavík, 7. janúar 1960. Lagermaður Ábyggilegur maður óskast á vöoruaf- greiðslu hjá heilverzlun í Reykjavík. Þarf að vera vanur bílkeyrslu. Góð með- mæli nauðsynleg. Upplýsingar hjá Ráðn- ingarstofu Reykjavíkurbæjar, Hafnar- stræti 20. ágætlega með hlutverk sín þó að fleiri nöfn séu ekki nefnd. — Þá hefur tekizt mjög vel að skapa myndinni það rétta umhverfi og þá stemmingu, sem auðkenndi París þessara tíma. Tjarnarbíó: DANNY KEY OG HLJÓMSVEIT ÞETTA er ný amerísk mynd, tek- in í litum. — Danny Kay er mik- ill æringi og bráðsnjall gaman- leikari og þannig höfum við oft- ast séð hann ,,á léreftinu“. Mynd sú, sem hér ræðir um á þó nokkra sérstöðu að því leyti, að það er ekki fyrst og fremst ær- inginn Danny Kay, sem leikur listir sínar. Það koma að vísu mörg hlægileg atriði fyrir í mynd inni, en að meginefni er hún alvarlegs eðlis. — Loring „Red“ Nichols er ungur hljómlistarmað ur, sem leikur á horn.. Hann er kröfuharður listamaður við sjálf- an sig og aðra og því á hann bágt með að vinna með hvaða hljóm- sveit sem er. Hann öðlast þó að lokum mikinn frama í list sinni. Kynnist Louis Armstrong, sem verður honum stoð og stytta og stendur þá vegur hans sem hæst. Hann er nú kvæntur og á eina dóttur, en þá steðjar óhamingj- an að. Dóttirin fær lömunarveiki og „Red“ Nirhols kennir sér um. Hann ákveður að hætta að leika á hljóðfæri — og varpar því út í fljót eitt. Líður svo tíminn að „Redd“ vinnur önnur störf, — en þegar dóttir hans fer að batna verður bjartara í huga „Reds“. Hann ákveður að snúa sér að list sinni á ný. Það virðist ekki ætla að heppnast í fyrstu, en þá kem- ur Louis Armstrong aftur til sög- unnar . . . Um mynd þessa er margt gott að segja. Hún er hugnæm að efni, en sérstaklega er hún athyglis- verð fyrir það að við sjáum hér nýja hlið á leikgáfu Danny Kay’s, sem sýnir að hánn ræður fult eins vel við alvarleg hlut- verk og gamanhlutverkin- Trípolibíó: FRÍDAGUR í PARÍS ÞESSI mynd, sem tekin er í lit- um og Cinemascope, gerist í Par- ís. Lystiskipið „Ile de France“, er á leið frá New York til Frakk- lands. Meðal farþega eru skop- Austurbæjarbíó hefur síðan um áramót sýnt amerísku stór- myndina „Sayonara“, sem byggð er á samnefndri skáldsöga James A. Michener. Marlon Brandon og japanska leikkonan Miiko Taka fara með aðalhlutverkin, en myndin fjallar um ástir þeirra. Texti við lagið „Sayonara", sem sungið er í myndinnt er eftir Irving Berlin. leikarinn ameríski Bob Hunter (Bob Hope) og franski gaman- leikarinn Fernydel (Fernandel). Verða þeir góðkunningjar á ferða laginu. Auk þeirra eru um borð tvær ungar og fríðar stúlkur, Zara (Anita Ekberg) og Ann McCall (Martha Hyer), sem koma mjög við sögu. Erindi Bob Hunter til Parísar er að kaupa handrit að nýju leikriti eftir rit- höfundinn Serge Vitry. En það er ekki eins auðgert og ætla hefði mátt. Dularfull öfl eru að verki að reyna að ná handritinu úr greipum Bobs (sem reyndar hef- ur ekki náð í það) og gengur svo langt í því efni, að reynt er að myrða Bob. Það mistekst þó, en hinum dularfullu bófum tekst að koma honum á geðveikrahæli. Gerist nú margt spennandi þegar reynt er að frelsa Bob úr hönd- um geðveikralæknanna og er vin ur hans Fernydel gamanleikari höfuðpersónan í þeim tilraunum. En hversu því lýkur skal ekki sagt hér, en mörg sagan hefur endað ver. Mynd þessi er skemmtileg, en full öfgakennd á köflum. Bob Hope og hinn góði kunningi okk- ar Fernandel eru báðir bráð- skemmtilegir og má ekki á milli sjá hver fremri er í því efni. Hinsvegar er leikur kvenfólks- ins framur tilþrifalítilL Urn ung- barnaföt leiðbeiningabœkl- ingur Neytenda- samtakanna NÝLEGA er kominn út bækling- ur um Ungbarnaföt, og er hann gefinn út af Neytendasamtökun- um. Er hann 15. bæklingurinn, sem samtökin hafa gefið út. Segir þar, að bæklingur þessi sé snið- inn eftir dönskum ritlingi, sem náð hafi mikilli útbreiðslu þar í landi og gefinn hafi verið út af Neytendasamtökum þar. Honum er ætlað að vera til líiðbeiningar um vöruval — fyrst og fremst fyrir þær, sem þurfa að kaupa bamafatnað í allra fyrsta sina. Hin verðandi móðir hefur sjaldan reynslu af því, hvað á barnafót getur reynt í notkun og þvotti. En ef til vill hefur hin reyndari móðir einnig áhuga á því að bera þekkingu sína saman við álit annarra, og þá er hugsanlegt, að hún geti fundið eitthvað, sem henni gæti komið að gagni. Bæklingur þessi er sendur með limum samtakanna, sem benda þeim á að gefa hann öðrum, þurfi þeir hann ekki sjálfir. Tekið er á móti nýjum meðlimum í síma 19722 milli kl. 1 og 4 og 5 og 7. Árgjald er kr. 25. — ur skrifar , . dagleoa lifmu • Við hvað er miðað? Það hefur verið farið mörg- um orðum um hve óvenju frið samlegt hafi verið á gamlárs- kvöld. Hefði þetta ekki verið tekið svona ákveðið fram, hefði mér sjálfsagt ekki dottið í hug að fara að hugleiða hvernig kvöld það væri, sem talizt gæti þó ekki væri nema svolítið órólegt, hvað þá á- kaflega ófriðsamlegt. Smámunir eins og brotnar rúður vegna sprenginga, og skemmdir á stöðumælum af sömu sökum eru víst ekki um- talsverðir. Og kvöldið er víst jafn ákaflega friðsamlegt, þótt alla nóttina streymi á Slysa- varðstofuna fólk, sem hefur skaðað sig í gleði sinni á að sprengja rakettur, við að klappa náunganum helzt til harkalega, eða við að stinga hnefanum gegnum gler. Ekki gerir það kvöldið heldur neitt órólegt, þó kvikni tvisvar í sama húsinu, seoailec* aI mannavöldum. Og þó sprengt sé í loft upp listaverk, sem Listaverkanefnd bæjarins hef- ur valið og borgararnir keypt, þá kemur það ekki í veg fyrir að talað sé um sérlega rólegt kvöld. Við hverju er búizt á gaml- árskvöid? Einn hjólastóll — ekkert dagatal Sjúklingur skrifar: Ég hef legið á Landspítalan- um í nokkrar vikur, og þar sem ég hef legið víðar á sjúkra húsum, undraði mig mjög ýmislegt smávegis, sem ég sá þar. Eitt var það, að hvergi var dagatal á sjúkrastofu. Er ekk- ert fyrirtæki, sem gefur út slík dagatöl, svo efnum búið, að það sjái sér fært að gefa daga- töl á sjúkrastofur Landsspítal- ans? Annað fannst mér einnig öm urlegt og það er, að á hand- læknisdeild Landspítalans er aðeins einn hjólastóll og hana mjög f. íálegur. Eru engir efnaðir einstaklingar, sem eiga Landspítalanum þakkir að færa, og vildu sýna það á þana hátt að gefa í hjólastól, sem gæti orðið sjúklingunum til á- nægju og hjúkrunarkonum til hægðarauka við þeirra fórn- fúsa starf. Sjúklingur"

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.