Morgunblaðið - 08.01.1960, Síða 20
Rúmlega
stolið í
AÐFARANÓTT miðvikudagsins
fóru innbrotsþjófar með miklu
brambolti um húsnæði Bifreiða-
stöðvar íslands, hér í „hjarta“
höfuðstaðarins. Gerðu þeir æðis-
gengna leit að peningum, en hún
bar ekki árangur. I fyrrinótt
færðust þjófarnir meira í fang,
er þeir hugðust- ræna fjárhirzlur
Benzín- og smurstöðvar Olíufél-
agsins Skeljungs við Hafnarfjarð
arveg.
Þar inni er allþungur peninga
skápur og eru undir honum lítil
hjól. Þjófarnir hafa ýtt skápn-
um út úr stöðinni. Þeir hafa
sjálfir haft verkfæri meðferðis,
til þess að sprengja skápinn upp.
Það mun hafa verið a.m.k. 1—2
klst. verk að sprengja skápinn,
og það tókst þeim um síðir. I
Nýjo vorðskipið
ofhent í dog
í DAG verður afhent í Álaborg
hið nýja varðskip Landhelgis-
gæzlunnar. Pétur Sigurðsson,
forstjóri Landhelgisgæzlunnar
veitir skipinu móttöku. í dag
og á morgun fer skipið í
reynsluferðir, en áætlað er að
það haldi heimleiðis um miðj-
an janúar.
Óðinn er 700—800 lestir að
stærð, eins og áður hefur verið
getið, og verður á skipinu 26
manna áhöfn. Skipherra verð-
ur Eiríkur Kristófersson.
Togaraútgerð
kaupir frystihús
EIGENDASKIPTI hafa nú
orðið á frystihúsinu við Fífu-
hvammsveg í Kópavogi. Gísli
Jónsson, alþm., er var síðasti
eigandi þess, seldi það nýstofn-
uðu hlutafélagi, Kóp. hf.
Að þessu hlutafélagi stendur
Axel Kristjánsson framkvæmda-
stjóri í Hafnarfirði, eigandi tog-
arans Keilis, Karl Bjarnason, er
verið hefur verkstjóri í hrað-
frystihúsi Bæjarútgerðar Hafn-
arfjarðar og Hilmar A. Kristjáns
son, forstjóri.
Togaraútgerð sú er Axel Krist-
jánsson er fyrir, á einn togara,
Keili, og rekur’ annan, Brimnes,
frá Seyðisfirði.
Föðurlausu
börnin eru 19
1 FRÁSÖGNINNI af sjóslysinu
mikla í blaðinu í gær, féll niður,
að Jón Sveinsson háseti í Sand-
gerði, lætur^ eftir sig tvö börn.
Vilhjálmur Ásmundsson vélstjóri
lætur eftir sig 4 börn. Hafa því
19 börn orðið föðurlaus, er vél-
báturinn Rafnkell fórst, en í
blaðinu í gær var sagt a'ð þau
væru 15. Eru aðstandendur beðn-
ir afsökunar á þessum mistókum.
AKRANESI, 7. janúar. — Fjórir
línubátar, sinn frá hverju útgerð-
arfélagi, reru í nótt og var afli
tregur. Þetta voru Sigurvon,
Böðvar, Skipaskagi og Sigrún.
Enginn síldarbáta fóru héðan á
veiðar í dag. — Oddur.
6000 kr.
fyrrinótt
skápunum var 1000—1500 krónur
í peningum, — allt skiptimynt í
smápokum, en annað fémætt var
þar ekki, því skápurinn er ekki
notaður til geymslu á öðrum pen
ingum en skiptimynt.
f fyrrinótt var brotizt inn í
Brauðborg á horni Frakkastígs
og Grettisgötu. Var þar stolið úr
peningakassa rúmlega 5000 kr.
í peningum, en að auki 15—20
lengjum af sígarettum.
Þessir innbrotaþjófnaðir eru
báðir í rannsókn.
Hurfu eins og
dögg fyrir sól
UMBOÐSMENNIRNIR okkar
hafa nú aðeins undir höndum ó-
endurnýjaða miða viðskipta-
manna sinna, en að öðru leyti er
hver einasti miði í happdrættinu
seldur, og hvaðanæfa berast fyr-
irspurnir til okkar, hvort við get
um veitt úrlausn. Þannig komst
Páll H. Pálsson skrifstofustjóri
Háskólahappdrættisins, að orði í
samtali við Mbl. í gær. Við gerð-
um þá breytingu nú að fjölga
verulega hálf. og heilmiðum, á
kostnað fjórðungsmiðanna. Öll
þessi viðbót, alls 5000 miðar,
hvarf eins og dögg fyrir sól.
Á föstudaginn kemur, eftir
viku, verða viðskiptamenn happ-
drættisins, sem ekki hafa enn
endurnýjað miða sína, að hafa
lokið því, ella verða miðarnir án
tafar seldir þeim mörgu, sem nú
bíða þess að fá miða keypta.
Á þessu happdrættisári verða
í umferð 20,625 heilmiðar, 38,300
hálfmiðar og 56,900 fjórðungs-
miðar. Alls eru miðar Háskóla-
happdrættisins 116.000 og greið-
ir happdrættið 18,5 millj. kr.
í vinninga. Dregið verður í 1.
flokki 18. þ.m.
Aflinn 42 þús lest-
sl.
um meiri en
ar
Síldaraflinn meiri, fogarafiskurinn minni
FISKAFLINN á sl. ári hcfur orð-
ið 42 þús. lestum meiri en árið
1958. Það er síldaraflinn, sem hef
ur orðið miklu meiri eða 76 þús.
lestum meiri. Aftur á móti hefur
afli togaranna orðið 34 þús. lest-
um mínni. Heildaraflinn er 623
þús. lestir og er það mesta afla-
magn, sem komið hefur á land á
einu ári.
Aflinn í desembermánuði sl.
er áætlaður 25 þús. lestir miðað
við fisk upp úr sjó og mun það
vera varlega áætlað. Skv. skýrslu
Fiskifélagsins var aflinn orðinn
525.723 lestir í lok nóvembermán-
aðar eða 598 þús. lestir, ef hann
er umreiknaður í fisk upp úr sjó.
Samanlagt er þetta 623 þús. lest-
ir og er síldin um 183 þús. lestir
af því.
Árið 1958, sem var metár í afla
brögðum, var heildaraflinn 581
lest miðað við fisk upp úr sjó
og var síldaraflinn 107 þús. lestir
þar af. Sé'st af því að aflaaukn-
ingin er í síldinni, en fiskaflinn
er minni.
■ um þeim, sem taldir enu sek-
s ir um banatilræðið við Kass-
'í em, eru nú hafin í Bagdad.
j Hér eru 57 þeirra ákærðu í
S sakborningastúkunni í rétt-
S arsalnum, allir í handjárn-
• um. Á borðinu fyrir framan
S stúkuna eru vopn, sem fund-
í izt hafa í fórum mannanna.
| Dauðadóms hefur verið kraf- i
S izt yfir þeim öllum. ■
s i
Stefnis-skemmtiin
HAFNARFIRÐI. — Stefnir, félag
ungra Sjálfstæðismanna, heklur
skemmtun í Sjálfstæðishúsinu
annað kvöld, og hefst hún kl. 9.
— Lions-kvintettinnn leikur fyr-
ir dansinum, en auk þess verðh
skemmtiatriði.
Möguleikar athugaðir a að
„Syngjandi maður“ heitir þessi höggmynd eftir Ernst Barlach
myndhöggvara. Hefur hún verið steypt í bronz og stendur í
listasafni í Köln. Barlach, sem var þekktur þýzkur mynd-
höggvari og rithöfundur var fæddur árið 1870 en lézt árið
1938. Hann stundaði nám í París, Dresden og í Rússlandi.
Hin persónulegu séreinkenni hans birtust m. a. í mörgum lista-
verkum er hann skar i tré. En hann hjó einnig í stein og vann
að „keramik“ og „grafik“.
Bæjarútgerðin reki
niðursuðuverksmiðjú
Á SÍÐASTA fundi útgerðarráðs
Bæjarútgerðar Reykjavíkur
skýrðu framkvæmdastjórar út-
gerðarinnar frá því að miklar
breytingar og endurbætur færu
nú fram í fiskiðjuveri útgerðar-
innar á Grandagarði.
Á þessum fundi var samþykkt
ákvörðun framkvæmdastjóranna
um kaup á þorskflökunarvél og
- flatningsvél frá Baaderverk-
smiðjunum í V-Þýzkalandi. Hafði
Framkvæmdabanki íslands haft
um þetta milligöngu.
Þá var rætt um fiskniðursuðu-
vélarnar sem Bæjarútgerðin eign
aðist með kaupunum á fiskiðju-
verinu. Gerði útgerðarráðið sér-
staka samþykkt viðvíkjandi þess-
um vélakosti. Er þar ákveðið að
láta fram fara athugun á því
hvort hagkvæmt muni að reka
niðursuðuverksmiðju á sjávar-
afurðum til útflutnings, á vegum
Bæj arútgerðarinnar. Til þess að
framkvæma þessa athugun ákvað
útgerðarráðið að kjósa fimm
manna nefnd og skal hún skila
áliti fyrir lok marzmánaðar n.k.
Eru í þessari nefnd þeir Sigurð-
ur Pétursson gerlafræðingur, Sig
urður Ingimundarson efnafræð-
ingur, Jóhannes Zoega, verk-
fræðingur, Sveinn Benediktsson,
framkvæmdastjóri og Gunnar
Flóventz, skrifstofustjóri.
28 menn
í hœttu
á ísjaka
— Washington, 7. jan.
l'M 710 km. undan strönd
Alaska er ísjaki á reki með
28 mönnum. Þetta eru banda-
rískir vísindamenn og her-
flugmenn, en vísindamenn-
irnir hafa veriff á jakanum
um árs skeið. 1 morgun brotn
affi jakinn og eru mennirnir
á broti, sem er fjórðungi
minna en jakinn var allur
áður. — Fjöldi bandarískra
herflugvéla af mörgum
stærffum hefur veriff sendur
á vettvang og á að freista
þess að lenda á jakanum og
bjarga mönnunum. Flug-
brautin ,sem rudd hafffi ver-
ið á jakanum styttist veru-
lega, þegar jakinn brotnaði,
er nú aðeins 1,100 m löng.