Morgunblaðið - 16.02.1960, Blaðsíða 4
4
MORCrHTtr.AÐIÐ
ÞriðjudaiErur 16. febr. 1960
í dag er þriðjudagur, 16. febrú-
ar, 47. dagur ársins.
Árdegisflæði er kl. 07.34.
Síðdegisflæði kl. 19.55.
RMR. Föstud. 19-2-60-20. —
Fjh-Hvb.
Slysavarðstofan er opin allan
sólarhringinn. — L.æk.iavórður
L.R ífyrij vitjanir). er á sama
stað frá kl. 18—8. — Simi 1503..
Næturvarzla vikuna 13.—19.
febrúar er í Vesturbæjar-apóteki
Sunnudagsvakt er í Apóteki
Austurbæjar.
Næturlæknir í Hafnarfirði vik
una 13.—19. febrúar er Ólafur
Einarsson, sími 50952.
□ EDDA 59602167 = 2
□ EDDA 59602177 = 2
I.O.O.F. = Ob. 1 P. =
1412168% = N. K.
+ Aímæíi +
70 ára verður í dag frú Guðrún
Jóhannesdóttir, Langholtvegi 6,
Reykjavík. Hún verður stödd á
heimili sonar síns að Lindarg. 11.
Silfurbrúðkaup eiga í dag hjón
in Sigurbjörg Sigurjónsdóttir og
Bogi Ólafsson, skipstjóri, Mið-
túni 32.
Hjónaefni
Sl. laugard. opinberuðu trúlof-
un sína ungfrú Sigríður Sigurð-
ardóttir, Hverfisg. 22B og Guð-
jón Jónsson, Grettisgötu 18A.
ggB Skipin
H.f. Eimskipafél. íslands.
Dettifos fór frá sRvík í gær-
kveldi til Ólafsvíkur. Fjallfoss
er á leið til Hamborgar. Dettifoss
er í New York. Gullfoss fer frá
Kaupm.höfn í dag ril Leith. Lag-
arfoss fór frá ísafirði í gær til
Súgandafjarðar. Reykjafoss fer
frá Akureyri í dag til Svalbarðs-
ur, ísafjarðar og Vestmanna-
eyja.
Loftleiðir. — Hekla er væntan
leg kl. 7,15 frá New York. Fer
til Glasgow og London kl. 8,45.
eyrar. Selfoss er í Álaborg. —
Tröllafoss er í Hamborg. Tungu-
foss er í Ábo.
Hafskip. — Laxá losar sement
á Austfjarðahöfnum.
H.f. Jöklar.
Drangajökull er í Rvík. —
Langjökull er væntanlegur til
Hafnarfjarðar á morgun. Vatna-
jökull fór frá Rvík 10. þ. m. á
leið til Ventspils og Finnlands.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.
Katla er væntanleg til Rvíkur
á fimmtudag. Askja er á Akra-
nesi.
Skipadeild SfS
Hvassafell lestar á Austfjörð-
um. Arnarfell fór 10. þ.m. frá
New York áleiðis til Rvíkur. —
Jökulfell er væntanlegt til Vents
pils á morgun. Dísarfell losar á
Norðurlandshöfnum. Litlafell los
ar á Austfjörðum. Helgafell
er væntanlegt til Rostock í dag.
Hamrafell fer væntanlega í dag
frá Batum áleiðis til Rvíkur.
Skipaútgerð ríkisins.
gH Ymislegt
Orð Iífsins: En Sál, sem ennþá
blés ógnum og manndrápum
gegn lærisveinum Drottins, gekk
til æðsta prestsins og beiddist
bréfa af honum til Damaskus, til
samkundnanna, til þess, ef hann
fyndi einhverja þessa vegar,
hvort heldur karla eða konur, þá
mætti hann fara með þá í bönd-
um til Jerúsalem..— Post. 9.
Félagsstörf
Svarfdælingar koma saman í
Framsóknarhúsinu, uppi, kl. 8,30
á miðvikudagskvöldið.
Kvenfélag Bústaðasóknar held
ur fund miðvikudaginn 17. þ. m.
kl. 8,30 í Háagerðisskóla. Kvik-
myndasýning.
Æskulýðsráð Reykjavíkur. —
Tómstunda- og félagsiðja þriðju-
daginn 16. febrúar 1960.
Hekla er í Rvík. Esja er í Rvík.
Herðubreið fer frá Rvík kl. 19 í
kvöld austur um land í hring-
ferð. Skjaldbreið fer frá Rvík
kl. 21 í kvöld til Breiðafjarðar-
hafna. Þyrill kom til Rvíkur í
gærkvöldi frá Fredrikstad. Herj-
ólfur fer frá Vestmannaeyjum
kl. 21 í kvöld til Rvíkur.
Flugvélar
Flugfélag Islands. — Milli-
landaflug: Hrimfaxi er vænleg-
ur til Reykjavíkur kl. 16:10 í dag
frá Kaupmannahöfn og Glasgow.
Flugvélin fer til Glasgow og
Kaupmannahafnar kl. 08:30 í
fyrramálið.
Innanlandsflug: í dag er áætl-
að að fljúga til Akureyrar,
Blönduóss, Egilsstaða, Flateyrar,
Sauðárkróks, Vestmannaeyja og
Þingeyrar. Á morgun er áætlað
að fljúga til Akureyrar, Húsavík
Lindargata 50
Kl. 5,45 e.h. Frímerkjaklúbbur
Kl. 7,00 e.h. Bast- og tágavinna
Kl. 7,30 e.h. Ljósmyndaiðja
Kl. 8,30 e.h. „Opið hús“
Golfskálinn
Kl. 6,45 e.h. Bast- og tágavinna
Laugarnesskóli
Kl. 7,30 e.h. Smíðar
Melaskóli
Kl. 7,30 e.h. Smíðar
Framheimilið
Kl. 7,30 e.h. Bast- og tágavinna
Kl. 7,30 e.h. Frímerkjaklúbbur
Víkingsheimilið
Kl. 7,30 e.h. Frímerkjaklúbbur
Kl. 9,00 e.h. Frímerkjaklúbbur
Söfn
BÆJARBÓKASAFN REYKJAVÍKUR
Sími 1-23-08.
Aðalsafnið. Þingholtsstræti 29A: —
Útlánadeild: Alla virka daga kl. 14—22,
nema laugard. kl. 14—19. Sunnud. kl.
Heimsækið Indland
17—19 — Lestrarsalur fyrir fullorðna:
Alla virka daga kl. 10—12 og 13—22,
nema laugard. kl. 10—12 og 13—19, og
sunnudaga kl. 17—19.
Útibúið Hólmgarði 34: — Útlánadeild
fyrir fullorðna: Mánudaga kl. 17—21,
aðra virka daga nema laugard. kl. 1'.—
19. Lesstofa og útlánsdeild fyrir börn:
Alla virka daga nema laugardaga kl.
kl. 17—19
Útibúið Hofsvallagötu 16: — Útláns-
deild fyrir börn og fullorðna: Alla
virka daga, nema laugardaga, kl
17.30—19.30.
Útibúið Efstasundi 26: — Útlánsdeild
fyrir börn og fullorðna: Mánudaga
miðvikudaga og föstudaga kl. 17—19.
Bókasafn Hafnarfjarðar
Ooið alla vírka ciaga ki 2—7. Mánu-
daga, miðvikudaga og föstudaga einníg
kl 8—10 síðd. Laugardaga kl. 2—5. —
Lesstofan er opin á sams tíma. —
Sími safnsins er J0790
Bæjarbókasafn Keflavíkur
Utlán eru á mánudögum, miðviku-
dögum og föstudögum kl. 4—7 og 8—10
ennfremur á fimmtudögum kl. 4—7
Lestrarsalurinn opinn mánud., mið-
vikud., fimmtud., og föstud. kl. 4—7
Hver skyldi hafa þorað að spá
því, þegar Hr. Hansen byrjaði
sem yngsti senditl fyrirtækis-
ins, að eftir 50 ár yrði hann
elsti sendill þess?
Minjasafn Reykjavíkur: — Safndelld
in Skúlatúni 2 er opin alla daga nema
mánudaga kl. 2—4. Arbæjarsafn et
lokað. Gæzlumaður símí 24073.
VILLISVANIRIMIR — Ævintýri eftir H. C. Andersen
Elísa lagðist á netið, og
þegar sólin kom upp og bræð-
urnir breyttust aftur í villi-
svani, bitu þeir meö nefinu í
netið og flugu hátt til lofts
með systur sína elskulega,
sem enn var í fastasvefni. —
Sólin skein beint í andlit
henni, og þess vegna flaug
einn þeirra yfir höfði hennar
og skýldi henni með vængj-
um sínum fyrir sólargeislun-
um.
Þau voru komin langt frá
landi, þegar Elísa vaknaði
loks. Hún hélt, að sig væri
enn að dreyma, svo furðulegt
fannst henni að svífa í háa-
lofti yfir hafið. — Við hlið
hennar lá grein með indæl-
um, þroskuðum berjum og
knippi af ljúffengum rótum.
Það var yngsti bróðirinn, sem
hafði tínt þetta handa henni
— og hún brosti til hans,
þakklátum huga, því að hún
þekkti, að það var hann, sem
flaug þarna beint yfir höfði
hennar og skýldi henni með
vængjum sínum.
Þau flugu svo hátt, að
fyrsta skipið, sem bar fyrir
augu þeirra, sýndist eins og
hvítur mávur á sjónum. —
Fyrir aftan þau var stórt ský,
eins og stærðar-fjall, og svo
stórir voru skuggarnir af
Elísu og bræðrum hennar, að
hún sá þá glöggt á skýinu,
um leið og þau flugu bar
fram hjá. Það var alveg eins
og stórt málverk, stórfeng-
legra en hún hafði nokkru
sinni séð áður. En eftir þvi
sem sólin hækkaði á lofti og
skýið fjarlægðist að baki
þeirra, hvarf þessi svífandi
skuggamynd smám saman.
FERDIINi AINID
Tæknibókasafn IMSl
(Nýja Iðnskólahúslnu)
Útlánstimi: Kl. 4.30—7 e.h. þriðjud..
fimmtud.. föstudaga og laugardaga —
Kl. 4,30—9 e.h. mánudaga og mið-
vikudaga. — Lesstofa safnsins er opua
á vanalegum skrifstofutíma og út-
lánstíma.
Listasafn ríkisins er opið þnðjudaga,
fimmtudaga og laugardaga kL l- -3,
sunnudaga kl. 1—4 síðdeg.
Þjpöminjasafnið: — Opið sunnudaga
kl. 1—4. þriðjudaga, fimmtudaga og
laugardaga kl. 1—3.
Náttúrugripasafnið: — Opíð á sunnu-
dögum kl. 13:30—15, og þriðjudögum
og fimmtudögum kl. 14—15.
Bókasafn Lestrarfélags kvenna, —
Grundarstíg 10. er opið til útlána
mánudaga, miðvikudaga og föstudaga
kl. 4—6 og 8—9.
Læknar fjarveiandi
Kristján Sveinsson, augnlæknir verfl
ur fjarverandi 1 til 2 mánuði. Stað-
gengill: Sveinn Pétursson, Hverfisg. 50.
Viðtalstími 10—12 og 5.30—6.30, nema
laugardaga kl. 10—12.
• Gengið •
Sölugengi:
1 Sterlingspund ----.... kr 45.7«
1 Bandaríkjadollar --- — — 16.31
1 Kanadadollar ......... — 17.11
100 Danskar Krónur —.....- — 236,3«
100 Norskar krónur ........ — 228.50
100 Sænskar krónur — 315,50
100 Finnsk mörk ........... — 5,10
1000 Franskir írankar ------ — 33,00
100 Beigískir frankar ----- — 32.90
100 Svissneskir frankar --- — 376,00
100 GyUini ..............- — 432,40
100 Tékkneskar krónur ----- — 220.67
100 úestur-pýzk mörk — 391,30
1000 JLírur ................ — 26.02
100 Austurrískir schillingar — 62,7ö
100 Pesetar ............... — 27.20
□_--------------------------D
STEFAN RAFN arkti vísur þessar í til-
efni af myndinni, sem birtist í biaö-
inu sl. sunnudag:
„RÓSA og KOLLI“
Eigum hótel „ekki par“.
Yfir jiau hjá „Polla“.
Hvernig væri að bjóða á „Bar“
bæði „Rósu“ og „Kolla“.
Á því getur orðið bið
allt er i svoddan „volli“.
Rólega stundum ræðast við
„Rósa“ litla og „Kolli“.
□