Morgunblaðið - 26.06.1960, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 26.06.1960, Qupperneq 6
6 MORCVNBLAÐIÐ Sunnudagur 26. júní 1960 Hver fjölskyldumeðlimur heimsœkir ísland Samfal við afkomanda Baldvins Einarssonar íslands óhamingju verður allt að vopni. Eldur úr iðrum þess, ár úr fjöllum breiðum byggðum eyða. sagði Bjarni Thorarensen, er hann hóf að yrkja erfiljóð eftir Baldvin Einarsson, sem hann lauk að vísu aldrei við. í>að var vissulega óhamingja íslands, að Baldvin Einarsson skyldi deyja svo ungur, aðeins 33 ára að aldri. Hafði hann verið hinn þarfasti maður íslenzkuna málum á þess- um stutta starfsferli, skrifað m. a. nær einn fjóra árganga af „Armanni á aiþingi“, og var mik- ils af honum vænzt. Baldvin lézt sem kunnugt er af brunasárum í Kaupmannahöfn á öndverðu ári 1833. Hafði kerta- ljós kveikt í rúmtjöldum hans snemma morguns. Náði hann að rífa þau niður og slökkva eldinn, en brenndist svo á höndum og fótum, að hann lézt 8 vikum síðar. Skiptust íslenzkir vinir Baldvin Einarsson hans á að sitja hjá honum með- an hann lá banaleguna. ★ Þarna endar sagan um Bald- vin Einarsson í vitund flestra Is- lendinga. En afkomendur hans í þriðja og fjórða lið búa enn suður í Þýzkalandi og hafa alltaf samband við land forföður síns og ættingja hér á landi. — Það hefur verið'siður í okkar ætt, að hver fjölskyldumeðlimur fari einu sinni til Islands og vitji ætt lands Baldvins Einarssonar, og nú er röðin komin að mér, sagði ungur Ijóshærður maður,, er hann kom inn á skrifstofu Mbl. í gær. Þetta er dr. Jens Peder Ribe, efnafræðingur hjá Henkel- verksmiðjunum í Diisseldorf. Hann sjálfur, Hans Einar bróð- ir hans og móðir hans, Ingeborg Einarsson Ribe, eru einu núlif- andi afkomendur Baldvins. — íslenzka nafnið Einarsson er því miður að hverfa úr ætt okkar, því amma átti engan bróður og fékk ættarnafnið Ribe við gift- ingu, sagði Jens Peter Ribe. En til þess að átta okkur á ætt þessa unga manna, verðum við að víkja aftur að Baldvin Einars syni. Hann var kvæntur danskri konu, og átti tveggja ára gamlan son, Einar Bessa, er hann lézt. Nýfædd dóttir Baldvins, var skírð á greftrunardegi hans og gefið nafnið Baldvina, en hún dó ársgömul. Ekkja Baldvins gift Keramiksýningu Glits hf. í sýningarsal Ásmundar Sveinssonar að Freyjugötu 41 lýkur í kvöld kl. 10. ASsókn að sýningunni hefur verið mjög góð. Höfðu um 1000 manns séð hana á laugar- dag og meir en helmingur keramikmunanna selzt, Margir sýn- ingargesta hafa notað tækifærið og málað sjálfir diska o. fl. — Ljósmyndari Mbl., Markús, tók þessa mynd af skrautvösum á sýningunni. — ist síðan aftur til Suður-Jótlands og tók Einar Bessa með sér. Hann vann í tollinum í Tönner og gift- ist danskri konu. Arið 1864 var þetta danska landsvæði samein- að Prússlandi. — Kona Einars Bessa lærði þó aldrei þýzku. Þau bjuggu á elliárunum skammt frá Hamborg, og þegar mamma heim sótti þau,' talaði amma hennar alltaf dönsku við hana, en mamma svaraði á þýzku, segir Jens Peder Ribe. Þær skildu mál hvorrar annarrar, en gátu ekki talað þau. Sonur Einars Bessa var Bald- vin Einarsson yngri. Hann vann einnig í tollþjónustunni, en færð- ist upp eftir metorðastiganum, og afkomandi hans í 4. lið dr. Hans Peder Ribe fór fyrst til starfa í Hamborg og fluttist síðan í viðkomandi ráðu- neyti í Berlín. Dætur hans tvær, Sigrid og Ingeborg. fóru þangað með honum. Sigrid dó 26 ára gömul, en Ingeborg giftist í Berl- ín Hans Ribe lækni, og eignaðist tvo syni. Annar sonur hennar er dr. Jens Peder Ribe, sem nú er hér staddur. ★ — Baldvin Einarsson vann auð- vitað fyrst og fremst íslenzkum málum. Er afkomendum hans í Þýzkalandi kunnugt um það merkis starf, sem hann vann? spyrjum við. — Mamma veit mikið um þetta og talar stundum um það,. Afi fræddi hana um þessi mál og auk þess hefur þessi ættleggur alltaf verið í sambandi við til- svarandi ættlið frændfóiksins á Islandi. Baldvin Einarsson mun hafa skrifazt á við bróður sinn, Guðmundur held ég að hann hafi heitið, og Einar Bessi sonur hans skrifaðist á við Einar son Guð- mundar og kom hingað til Is- lands árið 1908, held ég. Heima er til mynd af honum og Einari GuðmunUssyni á íslenzkum hest- um. Afi minn hafði svo alltaf sam band við Pál Einarsson, hæsta- réttardómara og heimsótti hann einu sinni, og mamma hefur síð- an skrifast á við ekkju Páls og börn hennar. Hún og pabbi komu hingað árið 1938. Ættingjar okkar héðan hafa líka oft komið til okkar í Þýzka- landi. Dóttir Páls Einarssonar giftist þar og önnur börn hans hafa stundað þar nám. Mamma fylgist vel með því sem gerist á Islandi og talar oft um það og við erum auðvitað ótal sinnum búin að sjá kvik- myndina, sem þau pabbi og mamma tóku hér 1938 og sem bróðir minn bætti við, er hann kom hingað fyrir 6 árum. Nú ætla ég að reyna að bæta enn við þessa fjölskyldukvikmynd, ef veður verður sæmilegt. ★ — Er nokkuð af munum úr eigu Baldvins Einarssonar enn í ættinni? — Það sem til er, hlýtur að vera hjá mömmu, því við erum einustu afkomendurnir. Ég man ekki eftir öðru en einni íslenzkri bók, sem Baldvin mun hafa átt, og nokkrum bréfum. Gamlar myndir úr fjölskyldunni eru límd ar inn í albúm, en hvort nokkr- ar þeirra eru úr hans eigu, þori ég ekki að fara með. — Eigið þið eintak af Armanni á alþingi? —- Nei, það tímarit hefi ég aldrei séð. — Og hvað ætlarðu að sjá á Islandi? — Ég ætla að fara í Þórsmörk á morgun og norður til Akur- eyrar eftir helgina. Þaðan með bát til Siglufjarðar og með bil um Fljótin þar sem ég get séð Moldastaði, þar sem Baldvin Ein- arsson fæddist og ólst upp. — E. Pá. Fyrsta langa sumarleyfisferðin í sumar • Bjartar nætur Lengsta nótt ársins er liðin Og brátt fer að skyggja á lág- nættinu. Það er eins og maður finni allt í einu hvað sum- arið er stutt, þegar nóttina fer að stytta á nýjan leik. En björtu næturnar eru ekki all- ar farnar hjá á þessu ári og enn eiga menn þess kost að „auka degi 1 æviþátt", með bjartri næturvöku. En þegar Jónsmessan er lið- in fer hver að verða síðastur að notfæra sér yndisleik nótt leysisins á Islandi, sem skáld- in hafa sagt svo margt fallegt um. En það eru ekki aðeins skáldin, sem hafa notið bjartra nátta og eignazt um þær ógleymanlegar minning- ar. Bændur og sjómenn eiga sér marga ógleymanlega vor- næturstund við skyldustörf sín að ógleymdum elskendun- um, sem e. t. v. bezt allra kunna að meta nóttleysið. • Símaskrárauki í vikunni við þau vandkvæði, sem eru á því að hagnýta símaskrána, jafnvel skömmu eftir útkomu. Flutningar manna til og frá í bænum eru miklir og eftir að Grensásstöðin var tekin í notkun flytja margir símnot- endur milli símasvæða og verða að fá nýtt númer á nýja staðnum. Veldur þetta skjótt ruglingi og margir eru í síma- skránni skráðir fyrir allt öðr- um númerum en þeir hafa í raun og veru. Þá er oft engar uppiýsingar um símanúmer manns að hafa í því númeri, sem stendur við nafn hans í símaskránni. Það má því gleðiefni telj- ast, að nú í vikunni kemur út viðauki við símaskárna, að því er Velvakandi fékk upp- lýst á skrifstofu símans á dög unum. Verða í viðauka þessum leiðréttingar við síðustu skrá og hafa verið teknar með leið- réttingar á símum, sem breytt var fyrir u. þ. b. þremur vik- um. Er að þessu hinn mesti fengur og munu símnotend- ur fagna útkomu símaskrár- aukans. Ný símaskrá kemur svo væntanlega út um næstu ára- mót. * Gagnkvæmur misskilningur Afgreiðslukona á ísbarnum, sem rætt var um í Velvakanda í fyrradag, hefur hringt og harmað atvikið. Bað hún þess getið, að umræddum viðskipta vini hefði verið boðin leið- rétting, en þá hefði viðskipta vininum verið runnið svo í skap, að leiðréttingunni hefði verið hafnað. Sannast hér hið fomkveðna, að sjaldan veld- ur einn, þá tveir deila. FYRSTA langa sumarleyfisferð- in, sem farin verður á vegum ferðaskrifstofu Páls Arasonar á þessu sumri verður um helgina 2. júlí. Verður þá farið í 14 daga hringferð um ísland. Verður ekið norður yfir Kjöl til Skagafjarðar og komið við á ýmsum stöðum norðanlands og austan, m. a. Ak- ureyri, Mývatni, Hallormsstað og Bæjarstaðaskógi. Ennfremur verð ur farið út í Papey. Frá Fagur- hólsmýri verður flogið til Reykja víkur. Er þetta áttunda sumarið sem slík ferð er farin. Alls verða farnar 35 langar sumarleyfisferðir á vegum skrif- stofunnar í sumar. 22. júlí hefjast ferðir á hestum um óbyggðir, t.d. um Suðuröræfi og Sprengisands- veg. Ferðakostnaður í bílferðum er áætlaður um 270 kr. á dag og er þar innifalið matur og gist- ing í tjöldum. Allir Reykvíkingar kannast

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.