Morgunblaðið - 26.06.1960, Síða 24
Reykjavíkurbréf
er á bls. 18.
BLEKKING
eða veruleikL — SJá bls. 22.
142. tbl. — Sunnudagur 26. júní 1960
Mikil sild
yið Rauðunúpa
Fyrsta síldin til Raufarhafnar
MIKIL síld var enn á stóru
svæði djúpt út af Kolbeinsey
sl. laugardagsnótt, sagði
fréttaritari blaðsins á Siglu-
j firði í Viðtali upp úr hádegi
í gær, og komu alls 35 bátar
með síld til Siglufjarðar frá
kl. 10 á föstudagskvöld þar til
1 á hádegi á laugardag. Veður
var gott á miðunum í gær-
morgun og búizt við góðri
I áframhaldandi veiði í gær-
' dag. Saltað var aðeins á einu
plani, söltunarstöð Daníels
Pórhallssonar, á Iaugardags-
nótt, en allur afli þessara 35
báta var settur í bræðslu.
I
MIKIL SÍLD
'\ •
/ Fréttaritari blaðsins á Rauf-
arhöfn sagði um hádegi í gær,
að tvö skip hefðu tilkynnt
löndun á Raufarhöfn um
morguninn og búizt við að
fleiri skip lönduðu þar í gær.
Verður það fyrsta síldin, sem
berst til Raufarhafnar á ver-
tíðinni. Þá fréttist einnig af
mikilli síld djúpt út af svo-
kölluðum Rauðunúpum, og
voru bátar að kasta þar, er
síðast fréttist.
-- Eftirtaldir bátar lönduðu 500
\ málum og þar yfir á Siglufirði
frá því á föstudagskvöld fram að
I hádegi á laugardag:
I Heimaskagi 500, Sigrún AK
700, Einar Hálfdáns 600, Hag-
barður 700, Jón Jónsson 600,
Hvanney 650, Freyja GK 700,
Andri BA 700, Gullver 700, Guð-
| rún Þorkelsdóttir 1000, Stefán
Ben 600, Hafnarey 650, Mummi
630, Ásgeir RE 700, Hafrenning-
ur 600, Guðbjörg 800, Heimir GK
800, Guðbjörg ÓF 550 og Ófeigur
VE 600.
Hinir bátamir voru með 400—
450 mál. Hafa bví alls um 18.000
mál borizt á land með þessum 35
bátum.
Aðgöngumiöar seldust
íyrir 1,3 miiijánii
á listahátíðinni í Þjóðleikhúsinu
Á LISTAHÁTÍÐ Þjóðleikhússins,
sem lauk sl. miðvikudag, seldust
aðgöngumiðar fyrir tæplega 1,3
millj. króna og sáu tæplega 10
þús. manns sýningarnar. Þessar
upplýsingar fékk Mbl. í viðtali
við Guðlaug Rósinkranz, þjóð-
leikhússtjóra í gær. Listahátíðin
stóð 3 vikur. Var Skáliholt sýnt
einu sinni, Rigoletto 8 sinnum,
þar af 4 aukasýningar, Selda
brúðurin 5 sinnum og ballettinn
Frk. Júlía 3 sinnum.
Þjóðleikhússtjóri kvaðst mjög
ánægður með útkomuna, bæði
fjárhagslega séð og listrænt. Sýn
ingarnar hefðu tekizt mjög vel,
þrátt fyrir stuttan samæfingar-
tíma og ýmsa erfiðleika, enda
fengist a. m. k. 4 erlendir lista-
menn, sem væru alveg á toppin-
um hver á sínu sviði, Nieoíai
Gedda tenórsöngvari, Stina
Britta Melander sópransöngkona,
Margaretha von Bahr sólódans-
mær og Birgitt Cullberg ballett-
höfundur.
Fjárhagslega liti út fyrir að
hátíðin mundi standa undir sér,
þó ekki búið að ganga frá upp-
gjöri enn. Að sýningunum unnu
alls 220 manns, þar af 23 útlend-
ir listamenn.
Nýtt Laxnes leikrit var áformað
Þjóðleikhússtjóri sagði, að hin
raunverulega afmælissýning
hefði verið sýningin á „I Skál-
holti“. Staðið hefði til að sýna
„Hjónaspil“ einnig á listasýning-
unni, en það hefði orðið að hætta
sýningum á því áður vegna ónógr
ar aðsóknar.
Upphaflega hefði verið búið að
ræða um að Laxness kæmi með
•nýtt leikrit á sýninguna, en það
varð að falla niður, vegna þess að
skáldið þurfti að ljúka skáldsögu
sinni og hafði ekki tíma til að
snúa sér að leikritinu. 'Vetrar-
dagskrá leikhússins sagði þjóð
leikhússtjóri að miðuð hefði ver-
ið við að íslenzku leikararnir
fengju góð hlutverk.
Tilganginn með því að fá er-
lendu listamennina kvað Þjóðleik
hússtjóri hafa verið að gefa áhorf
endum kost á að sjá eitthvað nýtt
og gott, hérlendu listafólki kost á
að kynnast starfsaðferðum
frægra listamanna á sínu sviði og
loks að vekja athygli á leikhúsi
okkar og kynna það út á við.
Hafði Gedda t. d. aflað sér upp-
lýsinga um leikmennt hér, í þeim
tilgangi til að geta gefið upplýs-
ingar um hana á blaðamanna-
fundi er hann kæmi vestur.
Apríl kom
í gœr
HAFNARFIRÐI. — Á síðastliðnu
vori keypti Bæjarútgerð Hafnar-
fjarðar togarann Vött og var
kaupverð hans 4,3 milljónir
króna. Hefir hann verið í „klöss-
un“ í Englandi og farið fram á
honum gagngerð endurbót, keypt
ný siglinga- og fiskileitartæki, ný
togvinda og ýmislegt annað.
Breytt hefir verið um nafn a
togaranum og heitir hann nú
Apríl GK 122. Kom hann hingað
til bæjarins í gær og mun hefja
veiðar, einhvern næstu daga.
Þetta er danska selveiði-
skipið Miki, sem sökk við
Grænland á fimmtudaginn.
Miki var ekki stórt skip, en
merkliegt að einu leyti: Það
var fyrsta skipið, sem Danir
og Grænlendingar gerðu út
til selveiða — og fyrstu
veiðiförina fór það í fyrra.
Þá veiddust 263 sélir og kóp
ar og flutti Miki þá tæp sjö
tonn af kjöti og 45 tunnur
af spiki til Angmagsaklik og
næ&ði það þorpsbúum til
mann- og hundaeldis í vetur.
Og ekkert var íbúum Ang-
magsaklik kærara en Miki
og áhöfn hans, enda kom
fregnin um skipstapann eins
og reiðarslag yfir þorpið.
Grænlendingar fá vart bætt
tapið í sumar og horfir nú
illa fyrir íbúum í Angmagsa
lik með öflun selkjöts
Borgariistas afn
húsinu Höfði?
r
I
Á FÖSTUDAGINN hélt bæjarráð
fund sinn. I upphafi þess fundar
Á þessu korti eru sýnd helztu síldarmiðin úti fyrir
Norðurlandi. Öll eru nöfnin meira og minna kunn
af fréttum blaðanna af síldveiðunum. Á þessari
síldarvertíð eru það aðallega tvö veiðisvæði sem
síldin hefur veiðzt á: Við Kolbeinsey og út af Mel-
rakkasléttu norður af Sléttugrunni. Fyrsta síldin
á vertíðinni veiddist 13 mílur norðaustur af Sel-
skeri.
brugðu bæjarráðsmenn sér í dá-
lítinn leiðangur.
Fyrir löngu síðan setti lista-
verkanefnd bæjarins fram þá
hugmynd við bæjaryfirvöldin, að
í húsinu Höfði við Borgartún,
verði komið fyrir Borgarlista-
safni Reykjavíkur.
Fóru bæjarráðsmenn til þess
að skoða Höfða, með hliðsjón af
þessum tillögum listaverkanefnd-
arinnar og var Tómas skáld Guð-
mundsson formaður þeirrar
nefndar í fylgd með bæjarráðs-
mönnum.
Höfði er um 50 ára gamallt
timburhús. Það byggði á sínum
tíma franski ræðismaðurinn Brill
ouin. Þar átti heima um skeið,
og var eigandi hússins, Einar
Benediktsson skáld. Þar bjó sið
ar hinn kunni skurðlæknir Matt
hías Einarsson, og enn síðar var
þar bústaður brezka sendiherr-
ans. Winston Churchill fyrr-
'um forsætisráðherra Breta er
meðal þeirra mörgu gesta
sem þangað hafa komið. Her-
bergin í Höfða eru allrúm-
góð og þar er> hátt til lofts. Er
listaverkanefnd bæjarins þeirr-
ar skoðunnar að Borgarlistasafn
myndi sóma sér vel í þessu
gamla húsi.
Ekki hafði bæjaráð að lokinni
heimsókninni í Höfða tekið af-
stöðu til uppástungu listaverka-
nefndarinnar.
Fyrir nokkrum árum keypti
bærinn Höfða af skipulags-
ástæðum.