Morgunblaðið - 05.07.1960, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 05.07.1960, Qupperneq 10
10 MORGVISBLAÐIÐ Þrlðjudagur 5. júlí 1960 tltg.: H.f. Arvakur Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefónsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. • Matthías Johannesse'n. Eyjólfur Konráð Jónsson. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22480. Áskriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 3.00 eintakið. FÁRÁNLEG SKILYRÐI 'JTvF ríkisstjórnin hverfur frá vaxtahækkun, fellir nið- ur almenna söluskattinn, Jiættir við að afnema uppbóta kerfið, — „þá ætti að geta skapazt hér það ástand að launastéttirnar sjái sig ekki knúðar til verkfalla“. Þetta er aðalinnihaldið í boðskap Tímans sl. sunnudag. JEf ríkisstjórnin vill hverfa frá öllum ráðstöfunum sínum til sköpunar jstfnvægis í efna- hagsmálum þjóðarinnar, þá finnst Tímamönnum að at- hugandi sé fyrir launastétt- irnar að hefja ekki baráttu fyrir kauphækkunum með nýjum verkföllum! Að öðr- um kosti virðist Tímamönn- um sem ekkert sé eðlilegra og sjálfsagðara en að ný verk- fallsalda ríði yfir þjóðfélagið til þess að brjóta viðreisnar- Táðstafanir ríkisstjórnarinnar niður. Þetta er þá stefna Fram- sóknarflokksins í efnahags- málunum um þessar mundir. „Það,er rétt af launastétt- unum að veita ríkisstjórninni nokkurn tíma til að íhuga ráð sitt“. Með öðrum orðum, aðal- málgagn Framsóknarflokks- ins vill veita ríkisstjórninni gálgafrest til þess að afnema allar þær ráðstafanir, sem hún hefur gert til viðreisnar í efnahagsmálum lands- manna! Öllu fáránlegri og ábyrgðar lausari skrif hafa víst varla sézt en þessar sunnudagshug- leiðingar Tímans. Kjarni þeirra er enginn annar en sá að sjálfsagt sé að hefja nýja verkfallsbaráttu, ef ríkis- stjórnin vilji ekki gefast upp, falla frá öllum sínum fyrri tillögum, hleypa verðbólgu- skriðunni af stað og taka upp stefnuleysi vinstri stjórnar tímabilsins. Við hlið kommúnista Eftir þessa yfirlýsingu Framsóknarmanna þarf eng- inn að fara í grafgötur um það, sem var raunar vitað áð- ur, að leiðtogar Framsóknar- flokksins róa að því öllum ár- um að sú viðreisnartilraun verði eyðilögð, sem gerð var á síðasta Alþingi fyrir frum- kvæði núverandi ríkisstjórn- ar. Kommúnistar hafa mark- að stefnuna í þessum efnum. Þjóðviljinn hefur marglýst því yfir, að „rífa beri niður skaðræðiskerfi ríkisstjórnar- innar“. Tíminn og leiðtogar Framsóknarflokksins hafa skipað sér undir þetta merki. AUKIN TÓN- LISTARFRÆÐSLA á SÍÐASTA Alþingi var En jafnframt hefur þeim vr -**■ samþykkt svohljóðandi þingsályktunartillaga um tón- listarfræðslu frá Magnús Jóns syni og fleiri þingmönnum: „Alþingi ályktar að skora á xíkisstjórnina að láta undir- búa löggjöf um tónlistar- Jræðslu, þar sem m. a. séu sett skýr ákvæði um aðild TÍkisins að þessari fræðslu, hlutdeild ríkissjóðs í greiðslu kostnaðar við tónlistarskóla og hvaða skilyrði skólar þess- ir þurfi að uppfylla til að mjóta ríkisstyrks“. Misjafn stuðningur Þessi tillaga er fyllilega tímabær. Á undanförnum ár- nm hafa risið upp tónlistar- skólar í flestum, ef ekki öllum landshlutum. Hafa þeir fyrst og fremst verið kostaðir af þeim héruðum, þar sem þeir hafa starfað og af einstakling- um, sem áhuga hafa haft á aukinni tónlistarfræðslu. ver- ið veittur nokkur styrkur úr ríkissjóði. En í þeim styrk- veitingum ríkisins hefur ekki verið fylgt neinum ákyeðn- um reglum, og hinir ýmsu tónlistarskólar því fengið mis jafnlega mikinn stuðning. Áhugi á góðri hljóm- list hefur farið mjög vax- andi hér á landi á undan- förnum árum. Er óhætt að fullýrða, að hin aukna tón- listarfræðsla eigi í því rík- an þátt. Ennfremur hefur starfsemi Sinfóníuhljóm- sveitar íslands glætt mjög tónlistaráhugann, ekki að- eins hér í höfuðborginni, þar sem hún fyrst og fremst hefur starfað, held- ur og um land allt. Þingsályktunartillaga Magn úsar Jónssonar um lagasetn- ingu um tónlistarfræðslu á því fullan rétt á sér og verð- ur vonandi framkvæmd. Andsfœðingur einrœðisherrans rekinn úr her Portúgals fyrir „óþjóðlega starfsemi" Þ Æ R fregnir bárust frá Portúgal á dögunum, að hinn 54 ára gamli hershöfðingi, Huberto Delgado, sem menn munu minnast sem keppi- nautar Salazars einræðish. um forsetaembættið í kosn- ingunum 1958, hefði verið rekinn úr portúgalska hern- um fyrir „óþjóðlega starf- semi“. Þessi brottrekstur gæti í fljótu bragði virzt einbert vindhögg, þar sem Delgado hefur þegar dvalizt rúmt ár í Brazilíu sem útlagi úr föður- landi sínu — en samt sem áð- ur er þetta atvik vottur þess, að Salazar-stjórnin lítur á þennan þróttmikla mann sem hættulegan andstæðing. — ★ — En hver er hann þá, þessi merkilegi hershöfðingi, sem í augum heimsins er í rauninni einasta táknið um andstöðu gegn dr. Salazar, einræðisherran um, sem um hefur verið sagt, að hann „beri embætti sitt eins og kross“? • TRÚR FYLGISMAÐUR DR. SALAZARS . . . Fyrir fáum árum var hann aðeins maður, sem hlotið hafði góðan frama í portúgalska flug- hernum og flugmálastarfsemi þar í landi yfirleitt, en hann var aðalflugmálastjóri Portúgals. — Ekki er þó hægt að segja, að nafn hans hafi orðið frægt af þessu. — Hann var ungur mað- ur, þegar dr. Salazar kom til valda í landinu árið 1932, tók honum fagnandi — og var um langt árabil einn af trúustu fylgis- og samstarfsmönnum hans. Honum þótti það ganga kraftaverki næst, hve skjótar urðu breytingarnar til bóta á ýmsum sviðum undir sterkri stjórn dr. Salazars. Og það eru aðeins fá ár síðan Delgado tók að tala gegn honum og stjórn hans. • . . . SÍÐAN HARÐUR ANDSTÆÐINGUR Og af hverju stafaði þá sú kollsteypa? Það virðist reyndar ekki liggja ljóst fyrir. Margir vilja þar um kenna einskærri framgirni. Það var svo sem ekki neitt óvenjulegt hér á árum áð- ur, að einn eða annar portúgalsk- ur herforingi reyndi að hrifsa til sín völdin í landinu — en þeir, sem þekkja Delgado persónulega, vilja leggja allt annað til grund- vallar hér en pólitíska metorða- girni. — Þessir menn halda því fram, að hershöfðinginn hafi verið tekinn að óttast þau áhrif, sem Salazar-stjórnin hefði á þjóðareigindir Portúgala. Hann hafi talið, að gjaldið fyrir alla velferðina á yfirborðinu yrði andleg stöðnun þjóðarinnar — ef ekki beinlínis andlegur dauði. „Þessi þjóð mun að lokum deyja úr leiðindum!" á hann að hafa sagt eitt sinn. — ★ — Og sennilega munu ýmsir, sem heimsótt hafa Portúgal, hafa veitt athygli einhverjum annar- legum andlegum doða hjá fólk- inu — einhverju tilgangsleysi, sem virðist liggja í loftinu, ef svo mætti segja. — Vel kann að Vera, að slíkar hugsanir hafi ráð- ið mestu um það, að Delgado ákvað vorið 1958 að bjóða sig fram til forseta gegn dr. Salazar, þótt hann hafi eflaust gert sér grein fyrir að slíkt tiltæki mundi að öllum líkindum verða honum dýrt spaug. A. m. k. kom þetta fram í ýmsum ræðum hans. • ATHYGLISVERÐUR ÁRANGUR Miðað við aðstæður má telja, að hann hafi náð góðum árangri — því að kosningar í einræðis- ríki eru yfirleitt ekki til annars en sýnast. Hann var ekki kosinn, en hann hlaut 20% atkvæða, sem verður að teljast athyglisvert. — Af þeim fáu fréttum, sem bárust frá Portúgal eftir kosningarnar, varð helzt skilið, að hann hygð- ist þé þegar hverfa frá stjórn- málum og starfa áfram sem \ Humberto Delgado $ | hershofðingi, sem j |bauð sig fram gegn| S , S i dr. Salazar við for- j s ) s setakosningarnar s ^1958, heldur áfram | \ baráttunni gegn \ s S S einræðisherranum flugmálastjóri. Hann mun einnig hafa haft í huga að gegna því embætti áfram. En hann varð þegar að greiða nokkuð fyrir kosningaævintýrið. — Haldið yð- ur við flugherinn yðar, hershöfð- ingi — þar eigið þér heima! var skipun stjórnarinnar. Það gerði fljótvirkustu leiðina til að efla andstöðu gegn einræðisstjórn- inni. — Hann hafði mikið dálæti á „uppreisnarmanninum frá Wales“, Aneurin Bevan, og bauð honum haustið 1958 til Lissabon til þess að tala þar á fjöldafundi. Hann taldi, að stjórnin myndi ekki telja sér fært að skipta sér af þessu — og koma Bevans og ræða myndi vekja athygli úti í heimi og verða málstað hans til skjóts framadráttar. — Honum skjátlaðist. Stjórnin leyfði reynd- ar, að Bevan kæmi — ef hann ekki héldi neina ræðu opinber- lega. • VIKIÐ ÚR EMBÆTTI Eftir þessa misheppnuðu til- raun gerðist Delgado stórhöggv- ari en áður í ræðum sínum gegn stjórninni. — Við munum jafn- vel beita vopnum til þess að ná markinu! sagði hann eitt sinn. — Þetta voru hættuleg orð — sama sem að hóta byltingu. Eftir þetta leit dr. Salazar ekki aðeins á hann sem hálfgerðan vand- ræðagemling, eins og fyrr, held- ur sem hættulegan andstæðing — en fór sér þó hægt gegn honum. Lögreglan var nú látin hafa vak- ándi auga á honum, og þegar hann hélt áfram að æsa til and- stöðu gegn stjórninni, var hann látinn víkja úr herforingjastöðu sinni — en þó látinn halda 75% venjulegra eftirlauna. Allskarp- ar aðgerðir raunar, en þó ekki þannig, að hann gæti klæðzt kápu píslarvottsins og öðlazt það áhrifavald, sem slíkir oftast hafa. • OFSÓTTUR, EÐA . . . ? Var hann raunverulega of- sóttur — eða var honum aðeins í mun að vekja athygli á sér svo sem framast var unnt? — Það má víst segja, að hann hafi gert það, þegar hann í janúar í fyrra leitaði hælis í brasilíska sendi- ráðinu í Portúgal. Fylgjendur hans efndu þá til kröftugri mót- mæla en áður höfðu þekkzt á Salazar-tímanum — en af opin- berri hálfu var spurt með furðu: — Hvað í ósköpunum á þessi skrípaleikur eiginlega að 'þýða? Það hefur alls ekki komið til mála að handtaka manninn. — Og nokkuð er það, að eftir nokkra mánuði gat hann óhindr- Humberto Delgado er sagður ákaflega kröftugur og snarpur ræðumaður. hann líka — en það kom bara fljótlega í Ijós, að Delgado hafði alls ekki í hyggju að leggja stjórnmálin á hilluna. Hann leit á það sem skyldu sína að reyna nú að safna fylgjendum sínum saman í skipulagðan flokk — gegn dr. Salazar og stjórn hans. Boðskapur hans var í stuttu máli: — Við viljum leggja háa skatta á hina ríku — og síðan hefðja þjóðnýtingu á ýmsum sviðum. • MISHEPPNUÐ TILRAUN Hann reyndi nú að koma á sambandi við sósíalista í ýmsum löndum. Ekki er þó þar með sagt, að hann hafi í upphafi að- hyllzt sósíalískar skoðanir, en kjósendur hans voru einkum úr hópi hinna fátækustu þegna, og hann hefur sennilega talið þetta að haldið til Rio de Janeiró, þar sem hann síðan hefur dvalizt. • BERST ENN GEGN DR. SALAZAR Ef hann hefði „haldið sér á mottunni" þar, hefði hann senni- lega fengið að halda fyrrgreind- um eftirlaunum sínum. En hann hefur haldið uppi hörðum and- róðri gegn Salazar-stjórninni í Brasilíu og öðrum Suður-Amer- íkuríkjum — og nú hefur dr. Salazar sem sagt misst þolin- mæðina. En menn geta verið nokkurn veginn vissir um, að Humberto Delgado taki ekki brottrekstri sínum úr hernum með þögn og þolinmæði. Enn mun væntanlega eitthvað frá honum heyrast.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.