Morgunblaðið - 05.07.1960, Page 13

Morgunblaðið - 05.07.1960, Page 13
Þriðjudagur 5. júlí 1960 MORCVNBLAÐIÐ 13 Nokkur ártöl er marka tímamót í sögu lýðræðisins FYRIR nokkrum vikum voru liðin 184 ár frá því að undir- rituð var lagasamþykkt, sem varð lykillinn að sögu lýðræð- is í heiminum. Þetta var rétt- indayfirlýsíng Virginíu, sam- in af George Mason, sem nefnd nokkurra hugsjóna- og baráttumanna, kosin af íbúum Virginíufylkis, samþykkti ein- róm.a hinn 12. júní 1776 á fundi í Burgesseshúsi í höfuðborg nýlendunnar, Williamsburg. Þar er dreginn saman og sett- ur fram í lagaformi fjöldi frels ishugsjóna, em verið hafa að fæðast um aldaraðir. Hún varð grundvöllurinn að mannrétt- indalögum Bandaríkjanna og Frökkum var hún leiðarvísir við samningu mannréttinda- yfirlýsingar þeirra. Hugsjón- irnar, sem þar koma fram, lifa enn í dag í stjórnarskrám lýð- ræðisþjóða heimsins og í stofn skrá Sameinuðu þjóðanna. Fjórum vikum áður, eða hinn 15. maí, hafði sama nefnd samþykkt einum rómi hina frægu sjálfstæðisályktun, þar sem skorað var á sambands- þingið að lýsa yfir „frelsi og sjálfstæði“ nýlendnanna. Þá var það, að brezki fáninn var dreginn niður í höfuðborg ný lendunnar og fyrsti þjóðfáni nýlendnanna, „Grand Union“, dreginn að hún. Þessi atburður var upphafið að löggjafarstarf semi, sem stóð yfir í 40 daga samfleytt, og þá var gengið frá grundvallaratriðum, sem enn eru undirstaða bandarísks lýð- ræðis. Nefndarmenn fylgdu sjálf- stæðisályktuninni eftir til Fíla delfíu, og hinn 7. júní lagði Richard Henry Lee hana fyrir sambandsþingið og þar var hún samþykkt. Thomas Jeffer- son var fenginn til að semja sjálfstæðisyfirlýsingu fyrir hinar sameinuðu nýlendur. Því næst var hún loks sam- þykkt hinn 4. júlí 1776, og hef- ur þessi dagur æ síðan verið þjóðhátíðardagur Bandaríkja- manna. En það er af Virginíumönn- um að segja, að þegar þeir höfðu samþykkt réttindayfir- lýsingu George Masons, lög- giltu þeir fylkisstjórnarskrána, sem síðar varð öðrum fylkjum fyrirmynd, og gerðu Patrick Henry að landstjóra hins nýja samveldis Virginíu. Þessa tímabils í sögu Banda- ríkjanna er nú minnzt í ein- hverjum merkasta sögustað landsins — nýlenduborginni Williamsburg. Síðustu 34 ár hefur verið unnið að því að endurreisa byggingarnar i þessari sögu- frægu borg og endurskapa glæsileika og reisn 18. aldar- innar, sem borgin var svo auð- ug af. Þetta er mikið fyrir- tæki, sem kostað hefur verið af John D. Rockefeller yngri. Borgin nær yfir 130 ekrur lands, í henni eru 400 bygging- ar og skrúðgarðarnir ná yfir rúmlega 80 ekrur. Leiðsögu- menn og þjónustufólk, sem klæðist að sið nýlendubúa, tek ur á móti aðkomufólki og gest- um og sýnir þeim það sem markverðast er. I ár er þessa tímabils í sjálf- stæðisbaráttu nýlendnanna minnzt á margan hátt í Willi- amsburg, t.d. með heræfingu borgaraliðssveita nýlendunn- ar. Hámark hátíðahaldanna er ávarp flutt af Charles Malik, fyrrverandi forseta allsherjar- þings Sameinuðu þjóðanna, í sama herbergi og hin fræga réttindayfirlýsing Virginíu var undirrituð fyrir 184 árum. (Lynn Poole, The John Hopkins University). Sigríður Jónsdótfir í DAG verður til moldar borin frá Dómkirkjunni Sigríður Jóns- dóttir, kona háöldruð, er um langt skeið bjó í einum Hlíðarhúsabæj- anna við Vesturgötu. Sigríður var fædd á Ámýrum í Helgafellssveit 8. marz 1866. For- eldrar hennar voru Matthildur Nielsdóttir og Jón Þorsteinsson. Niels móðurafi Sigríðar bjó lengi í Höskuldsey, en foreldrar hans voru Jón Jónsson faktor á Stapa og Jórunn móðursystir Árna kaupmanns Thorlacíusar í Stykk- ishólmi. Föðurforeldrar Sigríðar voru Þorsteinn Þorsteinsson bóndi á Ámýrum og Sigríður Jó.nsdóttir Þorleifssonar frá Kleif um í Gilsfirði. Þegar Sigríður var níu ára, missti hún föður sinn og fluttist þá að Sellóni, sem er smáeyja fyrir landi Helgafellssveitar. Þar bjó þá gömul kona, Guðrún 111- ugadóttir, ásamt dóttur sinni og tveimur uppeldisdætrum. Það kom í hlut þessara kvenna að (sinna öllum störfum, sem til tfalla á eyjajörð. Þær reru í fisk, fóru í flyðrulegu, fluttu hey heim úr úthólmum, hirtu um varp og tóku kofu og ferjuðu fé á land og af. Sigríður vandist brátt öll- um þessum störfum, eftir að hún var í Sellón komin, og á ferming- araldri var henni ekki umhend- is að setjast undir stýri og sigla bitahöfuðsbyr, þá er hún þurfti að fara kaupstaðarferð í Hólm- inn. Alla ævi lék mikill ljómi í hug hennar um vistina í Sellóni og Guðrúnu fóstru sína dáði hún flestum mönnum frem.ur. Úr Sellóni lá leiðin í Fremri- Langey, en þar var hún vinnu- kona í nokkur ár hjá Eggert bónda Gíslasyni. Henni lét svalk ið, sem oft fylgir eyjamennskunni vel og hvergi taldi hún betra 4»undir bú. Engar fregnir komu verr við hana háaldraða, en þeg- ar hún hafðí spurnir af því, að eyjar vestra höfðu farið í eyði. Henni var ofraun að skilja, hvers vegna fólk var að yfirgefa slíkar matarkistur. En þrátt fyrir dá- læti hennar á eyjunum og eyja- búskapnum, skipaðist svo fyrir henni að strita lengst ævinnar í öðru umhverfi. — Eftir að hafa verið nokkur ár í vinnumennsku í Breiðafjarðardölum, fluttist hún til Reykjavíkur. Þangað kom hún 1894 og átti þar heima æ síðan, en hún lézt 28. júní sl., rösklega 94 ára. Á aðfangadag jóla 1897 giftist hún Guðjóni Þórðarsyni og settu þau bú saman í Vesturbænum í Hlíðarhúsum, en hann áttu for- eldrar Guðjóns: Lengst af, meðan Sigríður og Guðjón bjuggu saman, var hann háseti á „Skál- holti“, en það var í strandsigling um hér við land á sumrum, en utanlandssiglum á vetrum. Guð- jón kom því nánast sem gestur á heimili sitt. Það kom því í hlut Sigríðar að annast bú og börn. Við Vesturbæinn var dálítið stakkstæði og þar verkaði hún fisk fyrir Geir gamla Zoéga. Einnig þjónaði hún á sumrum þeim erlendu mönnum sem á „Skálholti“ voru og þvoði allt borðlín skipsins. Það var ekki ótítt, að hún leggði undir kvöld af stað inn í Laugar klyfjuð í bak og fyrir og stæði við þvott alla nóttina. Hún var hamhleypa við störf, kröftug og úthaldsmik- il ,en þó var sérstaklega til þess tekið, hversu velvirk hún var og vandvirk. Mann sinn missti Sigríður ár- ið 1919. Þau höfðu eignazt 4 börn: Magðalenu, sem er gift Kritjóni Ólafssyni húsgagnasmið. Ágúst, sem látinn er fyrir tveim- ur árum, og kvæntur var Sigríði Jónsdóttur, Guðrúnu gifta Magn- úsi Gíslasyni bifreiðastjóra og Ottó, kvæntan Svanhvítu Guð- mundsdóttur. Allmörg ár eftir að Sigríður var orðin ekkja, dvaldist hún 10 sumur vestur við Breiðafjörð. Af þeim sökum fagnaði hún sumar- komu sérstaklega, líkt og barn jólahátíð. Og allmjög mun hún hafa dvalizt vestra í huganum, eftir að hún var blind orðin og rúmlæg. Sigríður var bókelsk og fróð- leiksfús, en átti lengst af fáar næðisstundir til að sinna þeim hugðarefnum sínum, og þegar loks tóm gafst, brást henni sjón, en hún var blind í 18 ár. Bar hún þá raun með mesta æðruleysi. Margt varð til að ylja hug henn- ar og hjarta þau árin, ekki sízt heimsóknir barna hennar, tengda barna og barnabarna. Allan þann tíma, sem hún gat ei sjálf ann- ast sig, dvaldist hún hjá Magða- lenu dóttur sinni og Kristjóni mánni hennar, og naut þar slíkr- ar aðbúnaðar og umönnunar, að hún hefði trauðla á betra kosið. Þegar ég nú kveð þessa elztu frænku mína, stendur mér fyrir minni, hversu trygg hún var og raungóð. Hún hafði stórt skap og heitt geð, en hreinskiptin var hún og heillynd. Fleðulæti og loð- mælgi var fjarri henni, hún kvað ætíð fast að, hvort heldur hún þurfti að taka svari vina sinna eða hjóst við þá, sem gert höfðu á hlut hennar. Við fráfall henn- ar verður enginn héraðsbrestur. Hún vann vel og trúlega, meðan þrek entist og bjart var af degi. Minni sínu og andlegri sjón hélt hún til hinztu stundar, og þrek- lyndi hennar veiktist ei, hversu sem á bátinn gaf. L. K. 2 l 'í /VT/A/ r V Stúlka oskast til hcimilisstarfa strax. Upplýsingar í síma 34364. Afgreiðslustúlka oskast til að leysa af í sumarfríum. Upplýsingar í verzluninni Máfell, Hafnarstræti 16 kl. 3—4 í dag. Kvenfélagið Bylgjan og F.Í.L Farið verður í skemmtiferð laugardaginn 16. júlí. Þátttaka óskast tilkynnt fyrir 13. þ.m. í síma 34932, 33899 og 24916. NEFNDIN Bréf. itari Stúlka ekki yngri en 25 ára, sem getur annast bréfa- skriftir á aönsku og ensku, getur fengið atvinnu hálfan daginn eða jafnvel allan daginn eftir sam- komulagi. Tilboð með upplýsingum um fyrri störf og kunnáttu, sendist afgr. Mbl. sem fyrst, merkt: „Skrifstofustarf — 3629“. \Jér Pfytjum út m Kápu- dragta- og kjólaefni Margskonar nýtízku snið og gerðir úr gerfisilki í marglitum prentuðum Fataefni úr gerfisilki í margtium prentuðum og ofnum mynstrum. Rykfrakkapoplin 100% bómull í nýtízku litavali, mjög eftirsótt sérgrein. Vér væntum að fá að vita um hvers þér óskið. Ig, OEUTSCHER INNEN - UND AUSSENHANDEL TEXTIl BERLIN W 8 ■ BEHRENSTRASSE44 DEUTSCHE DEMOKRATISCHE REPUBLIK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.