Morgunblaðið - 11.08.1960, Side 1

Morgunblaðið - 11.08.1960, Side 1
47 árgangur 180. tbl. — Fimmtudagur 11. ágúst 1960 Prentsmiðja Morgunblaðsins Ríkisstjdrnin reiðubúin til viðræðna við Breta ítrekar rétt Islands til 12 milna og vill kanna öll urræði til að koma í veg fyrir árekstra MORGUNBLAÐINU barst í gær fréttatilkynning frá ut- anríkisráðuneytinu þar sem frá því er skýrt, að ríkisstjórn in hafi fallizt á að taka upp viðræður við brezku ríkis- stjórnina, um deilu þá sem er um aðstöðu brezkra fiski- skipa á íslandsmiðum. Miða viðræður þessar að því að kanna til lilítar öll úrræði til að koma í veg fyrir áfram- haldandi árekstra. Jafnframt áréttar íslenzka ríkisstjórnin rétt íslands til 12 mílna fiski- veiðilögsögu og bendir á að vinna þurfi að framgangi á- lyktunar Alþingis frá 5. maí 1959, sem birt er hér á eftir. Með þessari afstöðu hafa íslendingar enn sannað vi 1 ja sinn til að leitast við að leysa fiskveiðideiluna friðsamlcga. Hlýtur þeirri ákvörðun ríkis- stjórnarinnar að verða fagn- að, þar sem nú er að renna út þriggja mánaða tímabil það, sem brezkir togaraeig- endur höfðu bannað skips- höfnum sínum veiðar innan ísl. fiskveiðilandhelgi, og hefði þá mátt búast við nyj- um og alvarlegum árekstrum, ef ekkert hefði verið gert. Fréttatilkynning utanríkisráðu- neitisins hljóðar á þessa leið: „Ríkisstjóm Bretlands hefur farið þess á leit við ríkisstjórn íslands að teknar verði upp við- ræður þeirra í milli um deilu þá, sem er um aðstöðu brezkra fiski- skipa á Íslandsmiðum. Þar sem íslenzku ríkisstjórnini virðist ein- sætt að kanna beri til hlítar öll úrræði, sem koma mættu í veg fyrir áframhaldandi árekstra á Hittast Eisenhow- er og Krúsjeff? WASHINGTON, 10. ágúst (NTB- Reuter) — Eisenhower Banda- ríkjaforseti sagði í dag, er hann svaraði fyrirspurnum á blaða- mannafundi, að ef Krúsjeff yrði leiðtogi sovézku sendinefndar- innar á næsta Allsherjarþingi S. þ. í haust, mundi fundum þeirra máske bera saman enn einu sinni. Eisenhower sagðist í slíku tilfelli vera reiðubúmn til að bjóða Krúsjeff að heimsækja sig til Washington, svo framar- lega sem nokkurt útlit væri fyr- ir árangur af viðræðum á ný á milli þeirra. Hann bætti því hins vegar við, að horfurnar á ár- angri af slíkri heimsókn væru nú svo sáralitlar, að hann hefði ekki hugleitt málið. íslandsmiðum, auk þess sem vinna þurfi að framgangi álykt- unar Alþingis frá 5. maí 1959, hef- ur hún tjáð sig reiðubúna til slíkra viðræðna, jafnframt því, sem hún hefur ítrekað við brezku stjórnina, að hún telur ísland Framh. á bls. 15 Verkfall í Fœreyjum ÞÓRSHÖFN, 10. ágúst Frá frétta- ritara Mfol.: — Allt starfsfólk landsstjórnarinnar hér í Færeyj- um hóf verkfall í morgun og eru allar stofnanir hennar því lokaðar í dag. Verkfallið er mjög víðtækt og hefur því haft mikil áhrif á athafnalíf hér í eyjunum. Verk- fallið er ólöglegt. ♦------------------♦ Mávur í hreyfilinn UM kl. 11,30 í fyrrakvöld, urðu þó á hreyflinum og fór þegar Gunnfaxi, Douglas- flugvél F.Í., var að koma frá Þórshöfn til Akureyrar flaug stór mávahópur fyrir framan vélina og lenti í öðr- um hreyflinum. FVugvélin var rétt að lenda og gekk lendingin vel. Skemmdir viðgerðarmaður norður gær og gerði við hann. Kom flugvélin suður um miðjan dag. Myndin hér fyrir ofan sýnir einn mávinn fastann í hreyflinum. (Ljósm. St. E. Sig.) Lumumba og Tshombe fall- asf á stefnu Öryggisráðsins Batnandi horfur i Kongó-deilunni Leopoldville, 10. ág. (Reuter). HORFURNAR í Kongó bötn- uðu til mikilla muna í dag, þegar bæði ríkisstjórn lýð- veldisins og héraðsstjórnin í Katanga lýstu sig reiðubúnar til samstarfs við Sameinuðu þjóðirnar. — Búizt er við að lið S.þ. haldi til Katanga á föstudag. — Urðu við tilmælum Hammar- skjölds Þessar yfirlýsingar beggja að- ila voru svar við mjög eindregn- um tilmælum Dag Hammar- skjölds. Hafði hann leitað eftir fulltingi þeirra við framkvæmd síðustu ályktunar Öryggisráðs- ins varðandi Kongómálið. Forsætisráðherra Kongó-lýð- veldisins, Patrice Lumumba, lýsti í svari sínu sem hann sendi til Ralph Bunche, yfir fullkom- inni samvinnu. Og forsætisráð- herra héraðsstjórnarinnar í Kat- anga, Moise Tshombe, sendi Hammarskjöld símskeyti um að „stjórn Katanga væri reiðubúin til að hefja viðræður". I ályktun Öryggisráðsins voru, eins og menn minnast, ákvæði um tafarlausan brottflutning belgískra herja og skyldu liðs- menn S. þ. leysa þá af hólmi í Katanga, án þess að blanda sér nokkuð inn j innanríkismál lands ins. Lið S. þ. alls staðar — nema í Katanga í orðsendingu sinni til Tshom- be minnist Hammarskjöld ekki á þær kröfur, sem leiðtogi héraðs- stjórnarinnar hafði sett fram, m. a. um að í liði því, sem til hér- aðsins yrði sent, yrðu engir liðs- menn úr kommúniskum löndum. Lið S. þ. er nú komið til allra héraða Kongó, að Katanga einu undanskyldu. í síðustu viku hót- aði Tshombe að veita vopnaða mótspyrnu, ef nokkrii af liðs- mönnum S. þ. kæmu ínn í hér- aðið. Hann skipti hins vegar um skoðun, þegar Öryggisráðið féllst á að láta deilu hans við stjórn lýðveldisins afskiptalausa. Lumumba þakkar Öryggisráðinu í Leopoidville hélt Lum- umba forsætisráðher.ra blaða- mannafund í dag, og lýsti m. a. yfir innilegu þakklæti til Örygg- isráðsins fyrir að hafa óskað eft- ir því við Belga, að þeir flyttu herlið sitt á brott frá Katanga. Hinn 34 ára gamli forsætis- ráðherra sagðist einnig vilja aðvara þá Kongóbúa, sem gerðust formælendur fyrir sjálfstæði einstakra héraða, að slíkt yðri ekki þolað. „Eng inn hefur rétt til að lýsa yfir sjálfstæði", sagði hann. „Hver og einn, sem slíkt reynir, mun verða handsamaður á stundinni." Þá sakaði Lumumba Belgíu- menn um að hafa framið skemmdarverk á ríkisútvarpinu og bætti því við, að vegna eyði- legginga á símalinum væri nú ekki hægt að hafa samband við öll héruð landsins. Loks veittist forsætisráðherrann harkalega að Tshombe og sagði að hann • lyti stjórn Belga bæði í orðum og gjörðum. Lumumba sagði einnig í ræðu Framh. á bls 2. 1 Fer belgískn stjdrnin fró? BRÍÍSSEL, 10. ágúst (Reut- er). — Forsætisráðherra Belgíu, Gaston Eyskens, gekk á fund Baudouins kon- ungs, eftir 90 mínútna ráðu- neytisfund hér í dag. Herma óstaðfestar fregnir, að stjórn in hyggist segja af sér, en hún hefur orðið að sætta sig við mikla gagnrýni fyrir að- gerðir sínar í Kongó-málinu. Fulltrúar fiskiðnaðar- ins ræða við Soames Þriggja mánaða tímabilið rennur út á morgun LONDON, 10. ágúst. (Reuter) — Fulltrúar brezka íiskiðn- aðarins munu á morgun ganga á fund Christopher Soamcs, fiskimálaráðherra, til áframhaldandi viðræðna um fiskveiðideiluna við íslend- inga. Áhyggjufullir um framtíðina Leiðtogar fiskiðnaðarins eru sagðir hafa áhyggjur af því, hvað ske muni, þegar á enda rennur það 3 mánaða tímabil, sem þeir féllust á af frjálsum vilja að stunda ekki veiðar innan 12- mílna markanna við ísland, en það er næstkomandi föstudag. Bretar viðurkenna ekki þessi tak mörk, sem kunnugt er. Engar samningaviðræður Talsmaður utanríkisráðuneytis- ins skýrði frá því í gær, að Bret- land hefðj verið í sambandi við íslenzku stjórnina eftir „diplo- matískum“ leikum. En hann bætti við, að sér væri ekki kunn- ugt um, að neinar samningavið- ræður hefðu átt sér stað milli ríkisstjóma landanna. Stjórnmálafréttaritarar segja, að engar viðræður hafi átt sér stað milli Bretlands og íslands, síðan önnur sjóréttarráðstefnan í Genf fór út um þúfur í apríl sL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.