Morgunblaðið - 11.08.1960, Side 5

Morgunblaðið - 11.08.1960, Side 5
Fimmtudagur 11. ágúst 1960 WORCVNLL4ÐIB 5 MENN 06 = mŒFNI= NORÐURLÖND hafa oft verið kölluð „tilraunastofa fyrir al- mannatryggingar“. Almanna- tryggingar þeirra eru allar byggðar á sama grundvelli, en framkvæmdin hefur í ýmsu orðið ólík vegna ólíkra sið- venja, efnahagsatriða og stjórn mála. Sömu vandamál í sam- bandi við almannatryggingar hafa ekki verið tekin sömu tökum í hverju landi, og er mjög gagnlegt fyrir menn, sem vilja kynna sér almannatrygg- ingar, að kanna árangurinn í hverju landi fyrir sig og bera hann saman. Þannig mælti Finn Alexand- er forstjóri norsku almanna- trygginganna, þegar fréttamað ur Mbl. hitti hann snöggvast að máli, en hann var meðal hinna erlendu fulltrúa, sem komu hingað til að sitja fimmta norræna almannatrygg ingamótið. Mótið sóttu um 100 fulltrúar austan um haf, auk rúmlega fimmt'íai frá íslandi. Finn Aiexander er sá þeirra manna á Norðurlöndum, sem nú nýtur einna mests álits fyr- ir þekkingu á stefnu og fram- kvæmd almannatrygginga. — Hann hefur verið forstjóri norsku almannatrygginganna siðan 1949. Hann greindi frá því í samtaiinu, að kerfi norsku og islenzku almanna- trygginganna séu likust al- mannatryggingakerfanna á Norðurlöndum, en í Noregi er fyrirkomulagið nokkru eldra, þar sem lögbundnum sjúkra- tryggingum var t.d. komið á fót í Noregi 1911. — Standa Norðurlandabúar öðrum þjóðum framar á sviði almannat ry g g in ga ? — Þau eru ekki lengur fremst. Síðan Bretar sam- þykktu Beveridge-áætlunina skömmu eftir stríð, verða þeir að teljast ganga lengra í al- mannatryggingum. En Norð- urlöndin njóta mikils álits á þessu sviði og sést það m.a. af því, að þangað koma menn frá öllum heimsálfum til að kynna sér almannatryggingar. Mikill fjöldi þeirra, sem fá bandariska námsstyrki til náms á Norðurlöndum, eru að kynna sér þær, og þeir telja sér flestir hagkvæmt að dvelj- ast nokkurn tíma á hverjum stað, í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, því að margt er hægt að læra af samanburði á a.l- 0 0 » 0 0-0000 0 0 0±0t0;s0ij$ — Hvað eyða Norðmenn miklu í almannatryggingar? — Það er nú taiið, að um 7% af þjóðartekjunum renni til þeirra. Hefur það hlutfall haldizt nú lítið breytt um skeið. Fyrir 4 til 5 árum var einnig varið um 7% af þjóð- artekjunum til hermála, en það hefur nú lækkað í 4%. Hjá okkur í Noregi greiða hin- ir tryggðu eða atvinnurekend- ur þeirra megnið af almanna- tryggingafénu eða um 80%. Afganginn greiða ríki og bæj- arfélög. — Standa miklar deilur í Noregi um almannatrygging- ar? — Nei, eftir stríðið hafa slík' ar deilur alveg hjaðnað niður. Allir stjórnmálaflokkarnir eru nú hlynntir almannatrygging- um, einstaka sinnum kemur fram nokkur ágreiningur um 00'00'0*0 01010 0,0'000L0 0K — Eg dvaldi þar alcinn með sál minni sjálfri í söngvum múgans hjá skálinni hálfri, og kenndir og þankar mér hverfðust í huga, svo hvikult er sinnið við gamalt lag. Mér varð sem þar suðaði fiðrildi og fluga um flugþreytta haukinn, sem átti sinn dag. Ó, sorganna líf, unz veröldin vaknar þú vonar og minnist, þú þráir og saknar. Einar Benediktsson: Ur Gamalt lag. • Gengið • Söiugengi 1 Sterlingspund ____......... Kr. 106.90 1 Bandankjadollar ______ — 38.10 1 Kanadadollar ......... — 39,27 100 Norsi 'crónur ....... — 534,40 100 Dans*. ónur ........... — 553,15 100 Sænskar krónur ........ — 738,50 100 Finnsk mörk ........... — 11,90 100 Austurrískir shiHingar — 147,50 framkvæmdaatriði, svo sem öflun tekna o. s. frv. — Hvað teljið þér nú helzta framfaramálið á sviði almanna trygginga? — Án efa það, að þær taki þátt í kostnaði við að bæta og lækna örorku. Eins og nú er greiða almannatryggingar ör- orkubætur, en þær þurfa að gera meira. Hugsum okkur, að maður hafi orðið öryrki af slysi. Þá eiga almannatrygging arnar að koma til móts við hann, kosta dvöl hans á æf- ingastöðvum, svo að hann geti tekið upp nýtt starf og jafnvel útvega honum vélar og tæki, Sem gera honum kleift að vinna eitthvert verk. mannatryggingunum í þessum löndum. — Eru almannatryggingar námsgrein við háskóla á Norð- urlöndum? — Nei, því miður er það ekki enn orðið. Danir hafa komið á fót sérstakri rannsókn arstofnun í almannatrygging- um og Svíar eru að stofna aðra. — Hvaða gagn teljið þér af hinum norrænu almannatrygg ingamótum? — Eins og ég sagði áðan, eru almannatryggingarnar á Norðurlöndum byggðar á sama grundvelli en fram- kvæmdin hefur orðið ólík í hverju landi. Þess vegna er sérlega gagnlegt fyrir okkur að koma saman og ræða sam- an um reynslu okkar við lausn ýmissa vandamála. Við slíkar umræður vakna og margar nýjar hugmyndir. Þá má nefna það, að í sambandi við þessi mót eru samin ýmis erindi og greinar um almannatrygging- ar, sem ekki yrðu til ef mótin vantaði. Loks stuðla mótin að auknu norrænu samstarfi á sviði almannatrygginga. Sér- stakar nefndir starfa að vísu að þessum málum í samráði við Norðurlandaráðið, en á hin um norrænu mótum eru málin oft undirbúin og rædd fyrir- fram. Takið eftir A dúnhreinsunarstöð Pét- urs Jónssonar, Sólvöllum, eru til sölu 1. fl. æðardún- sængur. Verðið sanngjarnt. Sími 17 um Voga. Til leigu Stór bilskúr, vel upphitað- ur. Heppilegur fyrir iéttan iðnað. Uppl. í sima 18398. Til sölu Svo til nýr Westinghouse ísskápur. Ennfremur dönsk stofuhúsgögn, hringsófi og tveir armstólar á lágu verði. Uppl. i sima 22234. Sumarbústaður óskast til kaups, í nágrenni Rvik ur eða í Mosfellssveit. Tilb. sem greini verð og ástand, sendist Mbl. fyrir mánu- dag, merkt: „Bústaður 810“ Til sölu golfspil, 7 kylfur, ný taska, ný borð vél með statífi og stóll. Uppl. i síma 14636. Kona óskast til heimilisstarfa háifan eða allan daginn. Uppl. að Snorrabraut 83 II. hæð eft- ir kl. 6. Sími 18962. Meistari i kjólasaum óskar eftir atvinnu. Tilb. leggist inn á afgr. Mbl. fyr ir mánudagskvöld merkt: „622“. LítiII sumarbústaður óskast til kaups í ná- grenni Reykjavíkur. UppL í síma 18636. Opel Kapitan 1960 Einkabill til sýnis og sölu í dag eftir ki. 1,30 við Þverhoit 15. Bilamálunin. Góð NSU skellinaðra til sölu. Uppl. í sima 19848 í kvöld og næstu kvöld milli kl. 8—9 e.h. Til leigu 3ja herb. ibúð með húsgögn um og sima í nokkra mán uði. Tilb. sendist Mb). merkt: „íbúð — 806“. Halló Viljum taka að okkur heimavinnu. Mjög margt kemur til greina. Uppi. i síma 17298. Til leigu 2 herb. með aðgang að eld húsi. Uppl. í sima 18398. 1—2ja herb. íbúð óskast til leigu fyrir fyrsta sept. Algjör reglusemi. — Simi 15016. Til leigu nýtt 5 herb. raðhús með bílskúr. Tilb. sendist Mbl. merkt „Nýtt — 101“. Sel góðan pússningasand Hagstætt verð. Kristján Steingrímsson. Sími 50210. Jarðý a til Ieigu Vélsmiðjan BJARG Höfðatúni 8. Sími 17184. Stúlka óskast í brauðbúð. Ekki yngri en 16 ára. Uppl. í sima 33435. Skrifstofustúlka ó s k a s t Mars Trading Company h.f. Sími 17373 — Klapparstíg 20. Handseijari (umbrotsmaður), reglusamur, óskast í mánaðartíma til Akureyrar. Frítt húsnæði. Prentsmiðja BJÖRNS JÓNSSONAR H.F. Sírnar 1024 og 1870, Akureyri. Skrifstofuhúsnœði Til leigu er ea. 200 ferm. skrifstofuhúsnæði. Leigist í einu eða möxgu iagi. Uppl. á skrifstofunni milli kl. 4 og 7. MARTEINN EINARSSON & CO.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.