Morgunblaðið - 11.08.1960, Síða 14
14
MORCmSTtZAÐin
Timmtudagur 11. ágúst 1960
Olympíueldur
tendraöur
Jón og
Hilmar
Athöfnin fer fram í Olympíu í
Grikklandi d morgun kl. 9
til Róm
OLYMPÍUNEFND íslands
hélt fund á þriðjudaginn og
valdi þá tvo menn til þátt>
töku í Olympíuleikunum I
Róm til viðbótar þeim 5 er
voru valdir. Þessir tveir nýju
Rómarfarar eru Jón Péturs-
son KR og Hilmar Þorbjörns-
son Á.
Jafnframt samþykkti nefnd
in samkvæmt beiðni FRl að
senda þjálfara með frjáis-
íþróttamönnunum, sem jafn-
framt yrði flokksstjóri. Stjórn
FRÍ var falið að tiinefna
mann til þessa starfs.
Ennfremur var ákveðið eft-
ir ósk FRÍ að halda opinni
leið til þátttöku í 110 m
grindahlaupi til 14. þ. m.
Biargið okkur
undan lögreglunni
NÚ þegar allt er tilbúið fyrir
Olympíuieikina, þá hefur Ol-
ympíunefndin vaknaði við vond-
an draum sem verður að ráðast
farsællega. — Hún hefur sem sé
komizt að því að eitbhvað verð-
ur að gera vegna lögreglumann.
anna, sem vilja fá ókeypis að-
gang að leikjunum.
OLYMPÍUELDURINN, sem
loga mun á Rómarleikunum,
verður á morgun tendraður i
Olympíu á Grikklandi —
staðnum þar sem Olympiu-
leikar fornaidar voru haldnir.
Hann verður síðan borinn til
Rómar og koma nær 1200
manns við sögu við þann
burð. —
• Strax af stað tiJ Rómar
Eldurinn verður kveiktur kl.
9 árdegis á morgun. Og eldber-
arnir leggja strax af stað með
blysið og síðan verður eldurinn
borinn um Korinþuborg til Aþenu
Þangað verður komið 13. ágúst
kl. 9 síðdegis. Þar fer fram hátíð-
leg athöfn á gamla Olympíuleik-
vanginum — sem notaður var
m.a. 1896 — og að hennj lokinni
verður eldurinn borinn um borð
í hersnekkjuna Vespucci.
Þann 18. ágúst kl. 20:30 kem-
ur skipið til Syrakus, hins gamla
gríska héraðs á Ítalíu. Þaðan
verður hlaupið með eldinn til
Rómar og farið m.a. um Napoli.
Olvmpíublysið kemur til
Capitol í Róm 24. ágúst kl. 21.
Þar logar hann um nóttina og
verður borinn á Olympíuleik-
vanginn 25. ágúst.
Leiðin frá Olympíu í Grikk-
landi til Rómar er 1526 km. Blys-
ið verður 104 klst. og 56 rnínút-
ur á leiðinni. 1199 blysberar bera
eldinn og eldurinn mun loga á
Olympíuleikvanginum frá 25.
ágúst til leiksioka 11. september.
Bikorkeppnin
heisl í kvöld
í KVÖLD hefst bikarkeppni KSl,
hin fyrsta í röðinni, með leik B-
liða KR og Fram á Melavellinum
1 keppni þessari taka þátt 16
lið frá 11 aðilum, en 5 aðilanna
senda 2 lið, KR, Fram, Valur,
Þróttur og IA. Er keppni þessi
hrein útsláttarkeppni og fellur
það lið, sem tapar leik, úr keppn-
inni. Gerir það leikinn miklu
skemmtilegri og tvísýnni, þar
sem liðin liggja ekki á liði sínu
Keppninni er skipt í forkeppni
og aðalkeppni. - 1 forkeppninni
taka þátt B-liðin og 2. deildar-
liðin og leika um 3. sæti í aðal-
keppninni, en þá koma inn í
keppnina 5 Jið úr 1. deild, en
Akureyringar taka ekki þátt í
keppninni að þessu sinni.
Nýlokið er meistaramótinu í útihandknattleik. í karlaflokki
sigraði FH með yfirburðum. Hér eru þeir í úrslitaleik gegn
KR. Örn Hallsteinsson reynir markskot. Að baki hans er Birgir
Bjarnason fyrirliði FH. (Ljósm. Sv. Þormóðsson).
Annab sterkasta knattspyrnu
félag Færeyja í Keflavík
Endurgeldur heimsókn Keflvikinga
með 3 leikjum
Heimir hond-
arbrolnoði
HEIMIR Guðjónsson mark-
maður KR varð að yfirgefa
völlinn í fyrrakvöld, 'egna
þess að hann fékk sp'rk í
hægri höndina, og fann mikið
til. Farið var með Heimi á
slysavarðstofuna og þar tekin
mynd af hendinni og kom þá /
í ljós að höndin var brotin rétt J
fyrir neðan úlnliðinn. Heimir
vax settur í gips og mun verða
frá vinnu í nokkurn tíma. All-
ar líkur eru á að knattspyrn-
unni sé lokið fyrir Heimi í
sumar, en þetta sumar hefir
verið harla slæmt fyrir hann
því í vor varð hann af fyrstu
leikjunum vegna þess að hann
missti járnstykki ofan á ann-
an fótinn og var þess vegna
frá í nokkurn tíma.
SAMSTARF íslenzkra og
færeyskra knattspyrnumanna
hefur farið vaxandi á undan-
förnum árum. í fyrra háði
ísland sinn íyrsta B-landsleik
í Þórshöfn og á þessu ári hafa
tvö ísl. knattspyrnulið farið í
keppnisför til Færeyja, eða
Reynir í Sandgerði og 1. fl.
KR. Allir knattspyrnumenn
sem til Færeyja hafa farið eru
sammála um að knattspyrnu-
áhugi sé þar mikill og gest-
risni eyjaskeggja frábær.
Fjórir komnir
Færeyskir knattspyrnumenn
hafa ekki verið jafn t’ðir gestir
á íslandi. En nú n.æstu daga mun
liðið B-36 frá Þórshöfn keppa i
Keflavík.
Er þetta lið að endurgjalda
heimsókn ÍBK til Þórshafnar
1957.
Fjórir hinna færeysku leik-
manna komu með Gullfossi og
hitti fréttamaður Mbl. þá að máli
hjá formanni ÍBK Bjarna Al-
bertssyni. Færeyingunum sagðist
svo frá, að aðalliðið kæmi á föstu
dagsmorgun til Vestmannaeyja
með danska varðskipinu Ternen
en það yrði flogið til Keflavíkur.
Alls verða í förinni 19 menn, þar
af 16 leikmenn og varamenn.
Gott lið
B-36 er annað tveggja knatt-
spyrnufélaga í Þórshöfn og
varð Færeyjameistari 1959, en
í sumar tapaði það titlinum til
keppinautar síns HB í Þórs-
höfn. Alls taka 5 félög þátt
i meistaraflokkskeppni í Fær
eyjum. Með B-36 keppa tveir
lánsmenn frá HB, þeir Pétur
Sigurður Rasmussen mark-
vörður og Burmann Niclasen
miðherji.
Landskeppni og bæjarkeppni
Færeyíngar fara árlega i lands
keppni við Shetlandseyjar. í
fyrra sigraði landslið Færeyja í
Lervik með 4:1 og í bæjakeppni
sigraði Þórshöfn Lervik 4:2. í
sumar hafa Danir heimsótt Fær-
eyjar en SBU lék þar 3 leiki og
sigraði SBU Þórshafnarúrvalið
með 4:2, í Klakksvík með 3:1 og
sameinað lið Klakksvíkur og
Þórshafnar með 3:2. Þessi marka
tala gefur til kynna að Færey-
ingar geta verið harðir 1 horn
að taka.
3 menn frá B leiknum
í liði B-36 verða þrir leikmenn
sem kepptu í B-landsleiknum í
fyrra og einn sem þá var vara-
maður. Aðspurður um það hver
væri bezti knattspyrnumaður
Færeyja í dag, töldu þeir það
vera hægri útherjann Thorstein
Magnússon, en hann stóð sig
mjög vel í landsleiknum i fyrra.
3 leikir
Færeyingarnir keppa hér 3
leiki og verður sá fyrsti gegn
IBK á grasvellinum í Njarðvík
á föstudagskvöld kl. 8. Á mánu-
dag keppa þeir við KFK og á
miðvikudag við UMFK.
Liðið heldur utan með Drottn-
ingunni nk. föstudagskvöld. Án
efa mun mörgum leika hugur á
að sjá knattspyrnugetu þessara
frænda vorra er þeir mæta ísl.
1. deildarliði á föstudagskvöldið.
LONDON, 1. ágúst. — Gordon
Pirie, ein af Olympíuvonum
Breta, vann hér í dag nauman
sigur í 5000 metra hlaupinu, og
átti þar með sinn þátt í því að
Bretar unnu Frakka í frjáls-
íþróttum með 11614 stigi gegn
95%. — Þessi landskeppni var
úrtökumót beggja þjóðanna fyr-
ir Olympiuleikina í Róm.
Pirie, sem hafði möguleika á
að komast til Rómar fyrir árang
ur sinn í 5000 og 10000 metra
hlaupinu, var mjög hvattur af
hinum 40.000 áhorfendum, er
hann vann hlaupið með góðum
loka.spretti. Tími hans varð 13
mín. 51,6 sek. en það er 16,6 sek
frá heimsmeti rússans Viadimir
í síðustu viku fór fram hnefa-
leikakeppni í hinni nýju íþrótta-
höll leikjanna. 15000 áhorfendur
greiddu aðgang að keppninni og
var því vel skipað í höllina, en
það sem verra var — 2500 lög-
regluþjórar mættu við hiiðar-
dyrnar og ruddu sér irin, þótt
hvergi væri pláss fyrir ailan sæg
inn. Þeii fylltu ganga og sumir
stálu sætum frá fólki, sem hafði
keypt sig inn. Það er því engin
furða þótt þetta dæmi um íþrótta
áhuga itölsku lögreglunnar hrelli
forystumenn Olympíuleikjanna,
því margar greinar Olympíuleikj
anna munu verða þýðingarmeiri
og eftirsóttari en hnefaleika-
keppni, þo um atvinnumenn væri
að ræða. — Og þegar öll sæti eru
uppseld, hvar á þó að koma lög-
regluþjónunum fyrir. — íþrótta
forustan hefir miklá ást á lög-
reglunni, en þrátt fyrir það mun
það nú samt verða lausn þessa
máls eða annað hvort verða lög_
regluþjónarnir að greiða aðgangs
eyri, ellegar sitja heima.
Kutsin frá 1957. — Annar í
hlaupinu varð Frakkinn Frank
Salvat, sem kom nokkrum metr-
um á eftir Englendingnum í
mark á eftir Rússanum Kuts á
Olympíuleikjunum 1956. —
Bretinn Ken Matthews setti
brezkt met í 10000 metra göngu.
Tíminn var 42 mínútur 35,6 sek.
Bretar settu einnig brezkt met í
4x100 metra boðhlaupi 40,1 sek
og fyrrverandi grindahlaupar-
inn Tom Farrell vann 800 m
hlaupið á 1:48,5 mín.
Frakkinn Abdoulaye Seye
setti franskt met í 400 metra
hlaupinu 45,6 sek og Frakkinn
Victor Sillon vann stangarstökk
ið 4,36 metra. —
Ford Taunus 1960
4ra dyra, De-Luxe, með útvarpi o. fl., óskráður og
ókeyrður. Sérlega fallegur einkabíll.
A»AL BlLASALAN
Ingólfsstræti 11 — Sími 15-0-14 og 2-31-36.
Fyrirtæki — stofnanir
Húsgagnasmiður óskar eftir fastri hreinlegri atvinnu.
Hefi rúmgott V/nnupláss og vélar. Ýmislegt fleira en
smíðar kemur til greina. Tilboð sendist Mbl. íyrir
20. þ. m. merkt: „Reglusamur — 809“.
Bretor unnu Frnkkn í irjnlsum