Morgunblaðið - 11.08.1960, Side 16

Morgunblaðið - 11.08.1960, Side 16
Kalda stríðið Sjá bls. 9. 180. tbl. — Fimmtudagur 11. ágúst 1960 7200 mál síldar til Vopnafjarðar En vegna smœðar var hún ósöltunarhœf FRETTARITARI Mbl. á Vopna- firði símaði í gærk völdi að mikl- ar annir væru þar í kauptún- inu í sambandi við síldarvertíð- ina. Þangað höfðu komið í gær 29 skip með um 7200 mál síldar. Söltunarhæf sild var aðeins hverf andi lítill hluti af þessu magni, því svo smá var hún. Hæstu skip voru Björn Jónsson 658 mál, Sig- urvon AK 450, Freyja GK 450, Straumnes ÍS 450, Þorbjöm GK 492 og Helga RE 462. Nær 6000 tunnur síldar Á Vopnafirði er nú búið að Salta í rúmlega 5800 tunnur síld- ar, Auðbjörg heitir annað planið og búið að salta þar í 3350 tunn- ur en hjá Hafbliki í 2480. Nú er búið að fylla gömlu mjölskemmu síldarverksmiðjunn- ar. Er þegar byrjað að stafla Á unnoð hundr- oð sovétskip fyrir norðon KLUKKAN laust fyrir 11 í gærkvöidi hringdi fréttaritari Mbl. á Akureyri St. E. Sig. og skýrði frá því, að feikilegur floti rússneskra veiðiskipa væri kominn upp undir Norð- urland. Af því er sjómenn sem séð hafa hinn rússneska flota skýra frá, þá munu vera í honum á annað hundrað síld- veiðiskip — en ekkert móður- ikip hefur sézt. Kom floti þessi rpp undir Kolbeinsey í gærdag og var á svæðinu 10 mílur NA af eynni og voru skip búin reknetjum og byrjuð að láta / reka í gærkvöldi. sekkjum upp í nýju skemmuna, sem nú er verið að setja þakið á. SIÐ U S T U FRÉTTIR í gærkvöldi bárust frétt- ir til Vopnafjarðar frá Ægi þess efnis að hann hefði til- kynnt um lóðningu á síld NA af Langanesi. Fylgdi það fréttinni að mikið magn — meira en sérfræð- ingarnir um borð hafa mælt í sumar, væri í sjón- um á þessum slóðum. — Þetta gæti boðað meiri tíðindi af þessum slóðum, sagði fréttaritarinn að lok- um. — Góður heyþurrkur ÞÚFUM, 10. ágúst: — Undan- farna daga hefur verið góður þerr ir á hey. Bændur áttu orðið mikið hey, en nú hefur það allt þorn- að ágætlega. Náðst hefur inn mikill og vel nýttur heyfengur, svo ágætlega lítur út með hey- öflun. Seinni sláttur er almennt hafinn. Mikið af hánni fer jafnan í vot'hey. — PP. r t, £icf um v/ál ekki áé hafa te*kei& df smnleika m eá 7" MORGUNBLAÐIÐ sagði í 1«, fyrradag frá umræðum, er nýlega áttu sér stað um mál- gagn Framsóknarflokksins, „Tímann“, á almennum sam komustað í einum af eldri síldarbæjum landsins. Þeim lauk með því, að fréttaritari málgagnsins á staðnum mælti þessi hnyttnu orð: „Þið vitið það, strákar, að blaðamennskan er ekki nema teskeið af sannleika á móti poka af lygi“. — Þykir málflutningi „Tímans“ ekki hafa verið betur lýst í annan tíma — og hefur þó margt misjafnt verið réttilega um hann sagt. Mokafli í reknet SIGLUFIRÐI, 10. ágúst. — Mikill floti af erlendum sild- arbátum er nú á reknetjum fyrir Norðurlandi, Rússar, Svíar og Norðmenn. Mun all- ur flotinn hafa mokaflað í dag á svæðinu frá Kolbeins- ey og austur undir Langanes. Rússarnir fundu síldina í fyrrinótt, og komu hinir á eftir. Er þetta sögð stór og falleg síld ,og munu Norð- mennirnir veiða í bræðslu, ef þeir hafa ekki við að salta. Bátarnir frá Breiðafirði, sem eru hér á reknetjum, voru á öðrum stað, enda eru þeir með annars konar net. — Guðjón. I gær fór fram frá Dómkirkjunni útför Júlíusar Havsteen, fyrrum sýslumanns. — Kirkjan var þéttskipuð, en minningar- ræðuna flutti séra Bjarni Jónsson vígslubiskup, en þeir voru skólabræður hann og Júlíus. — Þessi mynd var tekin er v kista hins látna var borin úr Dómkirkjunni í líkvagninn. Blómosýningin í Hverngerði HVERAGERÐI, 19. ágúst: — Að- sókn er góð að hinni skemmtilegu blómasýningu 1 Skátaheimilinu. Höfðu um helgina komið 800 manns. Með tilliti til fréttarinnar um aðgangseyri að blómasýning- unni, skal þess getið að börn sem eru í fylgd með foreldrum sínum, yngri en 10 ára, fá ókeypis aðgang. Margvíslegur kostnaður er sam iara sýningu þessari og 20 kr. að- gangur fyrir fullorðna, sem geng ur m. a. til hins nýja Skáta-heim- ilis, verður að teljast í hóf stillt. Sýningin verður opin fram á næstu helgi. 15 bátar byrjaðir dragnótaveiðar Vaxandi vinna í frystihúsunum EFTIR því sem næst verður komizt eru nú 15 bátar héðan frá Reykjavík byrjaðir drag- nótaveiðar hér í Faxaflóa. — Hefur þegar orðið af þess- um veiðum hinna litlu báta, veruleg atvinnuaukning i hraðfrystihúsum bæjarins. Jt 30 bátar * Tala dragnótabáta fer nærri því daglega fjölgandi og eru 30 bátar búnir að fá leyfi til veiðanna. Reknetabátarnir koma yfirleitt að árdegis og er kolinri ýmist heilfrystur í fimm mismunandi stærðarflokkum, eða flakaður og roðflettur. ★ 5 þús. kr. hlutur ÖIl frystihúsin að einu und- anskyldu hafa nú byrjað kola- frystingu. Hefur af því leitt atvinnuaukningu fyrir starfs- fólk stöðvanna, því togurun- um hefur gengið erfiðlega und anfarið eins og kunnugt er af fréttum. Sjómenn á bátunum hafa haft góðan hlut. Eru þess dæmi að hásetahlutur hafi komizt upp í 5000 krónur eftir sex daga. ísbjörninn h.f. mun fyrst hafa byr jað að taka á móti kola „Sa^a“ se3d til Luxemburg SKYMASTER-VÉLIN Saga, sem var í eigu Loftleiða fram á síð- ustu helgi, er nú heimilisföst í Luxemburg. Nýi eigandinn heit- ir Interocean Airways. Saga var fjórða Skymaster-vélin, sem Loftleiðir eignuðust, kom til landsins 1955 Nú eiga Loftleiðir eina Skymaster-vél eftir, Heklu, en hafa Eddu á leigu frá Braat- hen. En þegar sumaráætluninni lýkur verður Edda ekki lengur á flugleiðum félagsins og næsta vor bætist væntanlega ný DC-6b í flota Loftleiða af Reykjavíkurbátum. Erhæsti báturinn þar Aðalbjörg með rúmlega 14 tonna _ afla eftir fjórar veiðiferðir. í tsbirnin- um er búið að frysta nær 36 tonn af kola, síðan dragnóta- veiðar byrjuðu. Enn hafa ekki verið gerðir sölu samningar á frystum kola. Á veg um Sölumiðstöðvar hraðfrystihús anna er að þessu unnið í Bret- landi, þar sem vonir standa til að markaður fáist fyrir heilfrysta kolann. — Til Bandaríkjanna hafa kolaflökin verið seld og er unnið að því þar á vegum S.H. að auka söluna þangað. Frímerkjamálið; Málflufn- ingur í gœr í GÆR hófst málflutningur fyrir sakadómi Reykjavíkur i Fmmerkjamálinu svokallaða. Var málflutningi haldið áfram til klukkan að ganga 8 i gær- kvöldi, en ekki lokið og heldur áfram i dag. Sæjandi málsins var Logi Einarsson fulltrúi í dómsmálaráðuneytinu, en verj endur fjórir, einn fyrir hvern hinna ákærðu. í málinu var lögð fram sem dómskjal rannsókn í öðru frí- merkjamáli, sem nefnt hefur verið ,,Lundgaard-málið“. Er þar um að ræða afhendingu á allmiklu magni af gömlum frímerkjum úr birgðum póst- stjórnarinnar, til tveggja danskra verkfræðinga, Lund- gaards og Östergaards. Rannsókn þess máls liggur nú fyrir til umsagnar í dóms- málaráðuneytinu, en verð- mæti frímerkja þeirra sem verkfræðingarnir fengu afhent mun á frjálsum markaði nema mjög hárri upphæð, — líklega allmikið á aðra milljón króna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.