Alþýðublaðið - 20.11.1929, Qupperneq 2
2
A L Þ V Ð U S b A ÐIÐ
FiskaUi
á ðUa landinu pann 15. nóvembe? 1929.
Veiðistöðvar: Stórfiskur skpd. Smá- liskur skpd. Ýsa skpd. Upsi skpd. Samtals wln 1929 Samtals 16/u 1928
Vestmannaeyjar . . . 36 341 99 879 107 37 426 35921
Stokkseyri 1087 »» »» »t 1087 1760
Eyrarbakki 388 »» 73 »» 461 939
Þorlákshöfn .... 88 »» »» »» 88 548
Grindavík ..... 4290 8 23 2 4 323 3858
Hafnir 1035 52 27 *» 1114 1160
Sandgerði 6 493 485 243 7 221 5 553
Garður og Leira . . 483 56 »» 10 549 749
Keflavík og Njarðvíkur 9455 594 494 V, 10543 7758
Vatnl.str. og Vogar . 439 »» ,, 1» 439 542
Hafnarfjörður (togarar) 22322 2586 897 6153 31 958 42 217
do (önnur skip) 13709 1463 786 26 15 9841) 6 965
Reykjavik (togarar) 58 804 9 938 2987 15 726 87 455 104944
do. (önnur skip) 43524 3750 1086 275 48 6353) 27 873
Akranes 8398 444 175 >» 9017 5 799
Hellissandur .... 2170 175 25 2 370 1392
Ölafsvík 435 40) 52 887 605
Stykkishólmur . , . 773 1914 26 2 2 715 2854
Sunnlendingafjórðungur 210 234 21964 7 773 22 301 262 272 251 437
Vestfirðingafjörðungur 25 001 21222 3087 1245 50 5558) 46 894
Norðlendingafjórðungur 282Í.6 20169 3 027 170 51 5924) 44 610
Austfirðingafjórðungur 16 579 14858 3141 159 34 7376) 42 366
Samtals 15. nóv. 1929 . 280040 78213 17 028 23875 399 156 385 307
Samtals 15. nóv. 1928 . 234 463 93 940 12204 44700 38) 307
Samtals 15.nóv. 1927 . 190190 82 283 8082 25106 305 661
Samtals 15. nóv. 1926 . 169 156 54 932 3498 10235 237 825
Aflinn er miðaður við skippund (160 kg’.) af fullverkuðum fiski.
*) Þar með talið 2 754 skpd. keypt af erlendum skipum.
~ 20 780 — —
8) . __ _ 2361 — — - - —
4) - - - 1854 — - - - -
5) . _ , 3838 — — - -
Fiskifélag íslands.
Sambandsþingið.
Þingfundur hófst í gær kl. 1
®g stóð til kl. 12 á miðnætti.
Ýms alþingismál voru rædd, m.
a. frumv. um veðlánasjóð fiski-
manna, verkamannabústaðir, lána-
deild til smábýla o. fl. Voru mikl-
ar umræður um þessi mál og
inargar ályktanir samþyktar. —
Verður síðar skýrt nánar frá á-
lyktunum þingsins í heild. Sam-
kvæmt till. frá forseta Alþýðu-
sambandsins var Sambandi ungra
gafnaðarmanna boðið að senda
fulltrúa á næsta sambandsþing,
sem halda á hér á næsta ári.
Hafi fulltrúar þess málfrelsi og
tillögurétt þar til gerð hefir ver-
ið fullnaðarsamþykt um sam-
band þess við Aiþýðusamband
íslands.
Þingfundur hófst kl. 1 í dag í
alþýðuhúsinu Iðnó. Á dagskrá er
afstaðan til borgaralegu flokk-
anna, landkjörið og skipulags-
mál.
Uugir jafnaðarmenn
á Siglufirði.
Eins og getið hefir verið um
hér í blaðinu var stofnað Félag
angra jafnaðarmanna á Siglu-
firði fyrir skömmu. Við stofnun
taldi félagið 30 félaga. Nú hefir
það haldið þrjá fundi og hafa
því nú bæzt 30 nýir félagar og
eru þeir því orðnir 60, er skipa
félagið. Á fundunum hefir verið
rætt um ýms æskulýðsmál og fé-
lagsmál. Ákveðið hefir verið, að
félagar skuli bera sérstakan bún-
ing, sem er grá treyja með rauð-
xtm böndum og stafirnir F. U. J,
saumaðir á brjóstið. Ákveðið hef-
ir verið að fara í skíða- og sleða-
ferðir og talað hefir verið um
söngflokk og íþróttaflokk. Á öll-
um fundunum hafa verið fluttir
fyrirlestrar um jafnaðarstefnuna
og verklýðshreyfinguna.
Afturhaldið á SiglufirÖi tók
stofnun F. U. J. með miklum
hrópum og ólátum. „Siglfirðing-
ur“ og „Norðlingur" köstuðu
skamyrðum að unga fólkinu og
íhaldið reyndi að stofna félag
með ungum afturhaldsmönnum,
en það lenti að eins í árangurs-
lausu brölti. Tengdasonur Thors
Jensens sendi út með áskriftar-
lista, en þeir voru að eins 7 að
tölu ungu mennirnir, sem töldu
sig fylgja afturhaldinu og gamla
thnanum, og ekkert varð því úr
að stofnað yrði félag, en þetta
brölt varð að eins til þess að
auka viðgang F. U. J.
Búist er við, að félagið aukist
mjög á næstu fundum, og eru
ö!l skilyrði fyrír hendi til þess
að það verði mjög öflugt og
sterkt og er ekki að efa, að
það verði enn til eflingar meiri-
hlutavaldi verklýðsins á Siglu-
firði.
Mð verðor bverjom lisí, sem
haim leikur.
Allir kannast við Hnifsdalsmáí-
ið. Þar var upplýst um atkvæða-
fölsun í stórum stíl. Þrír at-
kvæðasmalar íhaldsins voru
dæmdir fyrir kosningasvik. íhald-
ið afsakaði þá á alla lund. lhald-
ið varði kosningasvikin.
Nýlega var aðalfundur Stúd-
entafélagsins haldinn. Ihaldið var
hrætt um, að goði þess yrði
steypt af stalli. Liðinu var smal-
að. En það þótti ekki örugt. Aft-
ur var gripið til aðfaranna frá
Hnífsdal.
Þetta er upplýst í því máli:
Hátt settur íhaldsmaður var
séður kjósa á 2 seðla. Lágt settur
íhaldsmaður var einnig séður
kjósa á 2 seðla. Ölvuðum íhalds-
manni voru fengnir þrír atkvæða-
seðlar/ Övíst er, hvort hann gat
notað þá alla. En hvorki skorti
hann vilja né flokksmenn hans.
Það verður hverjum að list,
sem hann leikur.
A.
Rðöagerðir um flugferðir yfir
Atiantskaf m\ fsland.
Parísarútgáfa blaðsins „Chica-
go Tribune“ birtir 6. þ. m. eftir-
farandi skeyti frá Ottawa:
Kanadastjórnin hefir nú fengið
í sínar hendur áætlanirnar um
reglubundnar Atlantshafsflug-
ferðir. Áætlanirnar em samdar
af Mr. School, flúgvélafræðingi
í Chicago. Samkvæmt áætlunum
hans verður lagt af stað daglega
frá Chicago til Croydon (í Eng-
landi). Aðal-viðkomustaður í Ka-
nada verður Winnipeg. Ráðgert
er að fljúga þessa leið: Frá
Chicago til Winnipeg, þaðan til
Baker Lake, þaðan til Dwyer-
höfða á suðurströnd Grænlands,
þaðan til íslands, Færeyja og
yfir írland til Croydon.
School gerir ráð fyrir, að stofn-
uð verði prjú félög, er vinni sam-
an að framkvæmdum í málinu,
amerísku [þ. e. bandarískuj, ka-
nadisku og ensku félagi, er beri
kostnaðinn í sameiningu.
(FR)
Löo við hátíðarljóð 1930.
FB., 19. nóv.
Undirbúningsnefnd alþingishá-
tíðar 1930 tilkynnir:
Dómnefndin um söngvana við
hátíðarljóðin 1930 hefir lagt fyrir
hátíðarnefndina svo látandi álit
og tillögur, sem hátiðarnefndin
óskar birt í heild, út af ósönn-
um sögusögnum, er gengið hafa
um málið hér í bænum:
Vér undirritaðir, er kvaddír
vorum.til þess að dæma um há-
tiðasöngva af tilefni 1000 ára af-
mælis alþingis, leyfum oss hér
’ V
með að tilkynna, að vér hófum
starf vort 26. okt. þ. á. og að
)vér í dag höfum orðið ásáttir um
eftirfarandi tillögur:
Það varö oss, hverjum um sig,
brátt ljóst, að af öllum þeim
verkum, er send voru, myndi ekki
verða nema milli tveggja að
velja, sem báru tvímælalaust af
hinum, sem sé hátíðasöngvar Páls
fsólfssonar, er hann hafði að
öllu leyti gengið frá í píanó-
búnaði, og Emils Thoroddsens,
er hann hafði að nokkru búið
fyrir hljóðfæraflokk, en ekki eru
fullsamdir, með því að lítið eitt
vantar á niðurlag tónsmíðarinn-
ar. Var þó ekki tekið tillit til
þess við dómsúrslitin. Eftir sam-
eiginlegan lokafund um málið er
niðurstaða vor sú, að tónsmíð
Páls Isólfssonar sé bezt fallin
til flutnings á hátíðinni, með því
að hún gerir hvorttveggja að
lýsa gáfum og hagleik og er auk
þess skýr að framsetningu og
auðskilin að efni. Þó getum vér
ekki afdráttarlaust metið honum
1. verðlaun fyrir verkið, nema
hann vilji gera breytingar á til-
teknum minni háttar atriðum,
sem honum mun verða bent á.
Þegar þessar breytingar hafa
verið gerðar, svo að oss þykir
fullnægjandi, leggjum vér til, að
verk Páls ísólfssonar hljóti fyrstu
verðlaun og verk Emils Thor-
oddsens 2. verðlaun.
Vér viljum um leið taka það
fram, að einstakir þættir í tón-
smið Emils Thoroddsens hafa
vakið alveg sérstaka athyglí
vora, fyrir sakir hugkvæmni
þeirrar og skáldlegra tilþrifa, sem
þar verður vart. Bregður þar og
fyrir frumlegum blæ, sem kem-
ur mönnum á óvart. En kunn-
átta og leikni er því miður ekki
á borð við eðlisgáfu hans. Höf-
um vér því, að vandlega athug-
uðu máli, komist að framanritaðrf
bráðabirgða-niðurstöðu.
Kaupmannahöfn, 8. nóv. 1929.
Carl Nielsen. Sigfús Einarsson.
Haraldur Sigurdsson.
Hátíðamefndin hefir samþykt
tillögur dómnefndar um að veita
Páli ísólfssyni 1. verðlaun með
þeim skilyrðum, er í álitinu
greinir, og taka tónsmíð hans tií
flutnings á hátíðinni og að veita
Emil Thoroddsen 2. verðlaun.
[1. verðlaun eru 2500 kr., 2.
verðlaun 1000 kr. Sá, er 1. verð-
e
laun fær, veTður að skila tón-
smíðinni albúinni til söngs, hafa
búið hana í hendur hljómsveitar.]
Togararnlr.
„Tryggvi gamli“ kom af veið-
ium í gær með miðlungsafla og
„Karlsefni" með 950—1000 kassa
ísfiskjar. í morgun kom „Hannes
ráðherra" af saltfiskveiðum með
127 tunnur lifrar. „Gylfi“ kom i
nótt frá Englandi. — Þýzkur tog-
ari kom í gær að fá sér kol og
annar í nótt til aðgeröar á véÞ
ínni: