Morgunblaðið - 19.11.1960, Side 19
Laugardagur 19. nóv. 1960
MORGUISBLAÐIÐ
19
85 dra
í dag
í DAG eru liðin 85 ár írá
stofnun Thorvaldsensfélags-
ins hér í Reykjavík. Á þess
vegum er nú verið að byggja
vöggustofu inn við Sunnu-
torg. — Standa vonir til að
stofan verði komin upp eftir
2—3 ár. Teikningin hér að JÝ
ofan er af suðurhlið stofunn-
ar. Hún á að geta verið heim-
ili fyrir 30 ungbörn í senn.
Thorveldsensfélagið hefur,
sem kunnugt er, rekið hinn
víðkunna bazar sinn Thor-
valdsensbazar, í mörg ár. —
Það hefur jafnan stutt og
styrkt fátækar mæður við
ýmis tækifæri, og vinnur slík
njálparstörf í kyrþey. Eins
og skýrt er frá á öðrum stað
í blaðinu, er jólamerki félags-
ins 1960, komið á markaðinn.
Vantraust á
frönsku stjórnina
Meiri líkur til, að jboð verði samþykkt
nú en fyrir þrem vikum
París, 18. nóvember.
— (NTB / Reuter / AFP) —
1 D A G var lögð fram í
franska þinginu tillaga um
vantraust á frönsku stjórn-
ina í sambandi við áætlan-
irnar um að búa franska her
inn eigin kjarnorkuvopnum.
Það voru 66 þingmenn stjórn
arandstöðunnar, sem lögðu
tillöguna fram — 25 sósíal-
istar, 24 íhaldsmenn og 17
róttækir. — Debre forsætis-
ráðherra hefir áður tilkynnt,
að hann krefjist trausts í
sambandi við afgreiðslu varn
aráætlananna. Fyrir um
þrem vikum var sams konar
vantrauststillaga og nú er
lögð fram,- felld með aðeins
70 atkv. meirihluta.
★ Verður það samþykkt?
Talin er nokkur hætta á, að
nú muni takast að fella stjórn-
ina, er gengið verður til at-
kvæða eftir helgina — þar sem
ýmsir þingmenn, sem kannski
séu ekki andvígir varnarmála-
áætlunum stjórnarinnar bein-
línis, muni samt sem áður greiða
vantrauststillögunni atkvæði
þar sem þeir vilji stjórnina
feiga vegna Alsírmálsins. —
Þannig álíta margir stjórnmála-
fréttaritarar t. d., að hinir öfga-
fyllstu þjóðernissinnar vilji allt
til vinna að koma í veg fyrir
áætlanir de Gaulles um þjóðar-
atkvæðagreiðslu um stefnu hans
í Alsírtnálinu.
★ Alræðisvald
Hins vegar er einnig á það
bcnt, að enda þótt tækist að
fella stjórnina eftir helgina, sé
alls ekki víst, að efnt yrði til
nýrra kosninga. Liklegra sé, að
de Gaulle myndi þá nota sér á-
kvæði stjórnarskrárinnar til þess
að taka sér alræðisvald, þar til
Alsírmálið væri útkljáð.
— Uppbob
Frh. af bls. 20.
Landsbankinn braut svo alla
„mótspyrnu" á bak aftur og fékk
skipið fyrir 4,2 milljónir króna
ásamt tveimur síldamótum.
Landsbankinn sá sterki
Enn hélt hersingin á stað og
nú í slipp Drafnar, þar sem tvö
skip Jóns Gunnarssonar hafa
staðið uppi. Þau stóðu hlið við
hlið og fór uppboðið fram við
stefni þeirra. Hið fyrra er Blíð-
fari, 80 tonna stálskip, sem upp-
haflega mun hafa verið byggt
fyrir síðustu aldamót. — Eitt boð
kom í skipið, 1,5 millj. kr., og
enn var það Landsbankinn, sem
það boð átti. Og hann fékk
einnig hitt skipið, Harald, sem er
30 tonna skip. Kaupverðið var
340 þús. kr., en þá hafði Fisk-
veiðisjóður boðið í skipið 330 þús.
krónur.
Eins og komið hefir fram af
fréttum, var bú Jóns Kr. Gunn-
arssonar tekið til skipta eftir
kröfu Landsbankans, en það var
vegna skulda hans, sem bank-
inn kemur svo mjög við sögu
við þessi uppboð.
Hvað verður um eignirnar
Ekki er mönnum hér í bæ
fyllilega kunnugt hvað Lands-
bankinn hyggst fyrir varðandi
eignirnar, en talið er sennilegast
að hann muni selja skipin og
fiskverunarstöðina á frjálsum
markaði. — G. E.
- Fundur LÍU
Frh. af bls. 1.
Hafsteinn Bergþórsson, Reykja-
vík. Ólafur H. Jónsson, Reykja-
vík. Matthías Bjarnason, ísa-
firði.
Verðlagsráð L. í. Ú.
Formaður: Sverrir Júlíusson,
Reykjavík.
Aðalráð: Baldur Guðmunds-
son, Reykjavík. Valtýr Þorsteins
son, Akureyri. Ól^Jur Tr. Einars
son, Hafnarfirði. Hafsteinn Berg
þórsson, Reykjavík.
Vararáð: Jón Halldórsson, Hafn
arfirði. Guðfinnur Einarsson, Bol
ungarvík. Björn Guðmundsson,
Vestmannaeyjum. Sæmundur
Auðunsson, Reykjavík. Ragnar
Thorsteinsson, Reykjavík.
Að kosningu lokinni þakkaði
formaður það traust, sem sér og
meðstjórnendum sínum hefði ver
ið sýnt með kosningunni.
í þessu sambandi gat formað-
ur þess að tveir menn, þeir
Kjartan Thors og Asgeir G. Stef-
ánsson, sem átt hefðu sæti í
stjórn samtakanna, og hefði
Kjartan verið formaður þeirra
fyrstu 5 árin, hefðu nú eindreg-
ið skorazt undan endurkosningu.
— Þakkaði hann þeim báðum
vel unnin störf í þágu samtak-
anna.
Þá þakkaði formaður fundar-
mönnum fundarsetuna og óskaði
þeim góðrar heimferðar.
Að svo mæltu frestaði hann
fundinum til 12. desember n.k.
Um 100 fulltrúar sátu fundinn.
- 'lbróttir
Framh. af bts. 18.
ar auknar kröfur til okkar um
meiri hæfni, betri leik, betri
árangur fyrir félög og fyrir
þjóðina. Þessum kröfum getum
við ekki fulnægt, nema að fá
bættan að einhverju leyti allan
frítíma okkar, sem í þetta fer.
Blaðið hefur tal af einum
leikmanni en leynir nafni hans
að sjálfsögðu og spyr hann um
kröfur knattspyrnumanna.
Segir hann að hópar Ieik-
manna í 1. deildinni dönsku
hafi rætt málið og samkomu-
lag hafi náðst um eftirfar-
andi kröfur.
100 kr. (danskar) fyrir leik
í deildakeppni eða bikar-
keppni.
50 kr. (danskar) fyrir aðra
leiki t. d. landsleiki.
25 kr. fyrir æfingaleiki.
Varamenn fái helming
„Iauna“, en engin uppbót
verði greidd fyrir að vinna
Ieik.
Ekki kemur knattspyrnumönn
unum saman um hvenær greiða
eigi „launin“. Fram héfur kom-
ið tillaga um að peningarnir séu
settir inn í lokaðan reikning
viðkomandi leikmanns og séu
ekki útleysanlegir fyrr en hann
hefur leikið sinn síðasta 1. deild
ar leik.
Leikmennirnir eru sam-
mála um að ekki beri að
greiða fyrir æfingar. Þar með
verður áfram haldið keppn-
inni um að komast í bezta
lið félagsins — en þá fyrst
sé leikmaður hlutgengur til
áðurnefndra „launa“.
Það virðist því ekki vera
— ennþá að minnsta kosti
— kröfur frá leikmönnum,
sem miði að auðæfum fyrir
knattspymuleikmenn.
- L I. U.
Framh. af bls. 8
við strendur landsins, að loka
vissum hrygningasvæðum, fyrir
öllum veiðum, einu og einu í
senn, yfir ákveðin árabil á hrygn
ingatíma þorsksins, eftir tillögu
reyndra og sérfróðra manna.
Starfsfræðsla sem skyldunám
Landssamband íslenzkra út-
vegsm,anna leyfir sér að benda á,
að þrátt fyrir átta ára skyldu-
nám er fjöldi íslenzkra unglinga
rnjög illa á vegi staddur, að því
er þekkingu á atvinnulífinu
snertir.
Landssambandið tekur þetta
mjög varhugarvert og hættulegt
allri eðlilegri framþróun í þjóð-
félaginu.
Vill L.Í.Ú. í því sambandi leyfa
sér að benda á, að í nágranna-
löndum vorum, þar sem efna-
hagsleg velmegun stendur með
mestum blóma hefur skólakerfið
verið aðlagað nútímaaðstæðum
og umfangsmikil starfsfræðsla
tekin upp í öllum unglinga- og
framhaldsskólum.
Landssamband íslenzkra út-
vegsmanna vill leyfa sér að
beina þeirri áskorun til ríkis-
stjórnarinnar, að hún geri nú
þegar ráðstafanir til þess að
starfsfræðsla verði gerð að
skyldunámsgrein í unglinga- og
framhaldsskólum og heitir fyrir
sitt leyti fullu samstarfi um
framkvæmdaatriði, sem varða út
gerðina.
Rakarastofur
ATHYGLI skal vakin á því, að
rakarastofur bæjarins eru opnar
til kl. 4 á laugardögum.
Bílaverksfœði
Til sölu áhöld handa 7 mönnum, ásamt rennibekk,
ventla- og sæta fræsivélum, rafsuðu og m. fl. —
Ca. kr. 150.000. Útborgun eftir samkomulagL —
Kaupandi getur fengið leigt húsnæði, sem tekur ca.
8—10 bíla. — Þeir, sem óska frekari upplýsinga,
sendi nöfn sín til afgr. Mbl. sem fyrst merkt:
„Bílaverkstæði — 1250“.
Skattar starfsfólks
Atvinnurekendur í Reykjavík, sem ekki hafa þegar
gert fullnaðarskil á sköttum starfsmanna sinna, eru
minntir á að gera það nú þegar að viðlagðri ábyrgð
og aðför; — Lcgtök fara nú fram hjá atvinnurekend-
um til lúkníngar vangreiddum sköttum starfsmanna
þeirra.
Tollstjóraskrifstofan, Arnarhvoli.
Æviminningabók
Menningar- og minningarsjóð kvenna
H. hefti er komið út. — Fæst á skrifstofu Kvenrétt-
indafélags Islands, Laufásvegi 3, opið þriðjudaga,
fimmtudaga og föstudaga kl. 4—6 s.d.
Pantanir óskast sóttar sem fyrst. — Nýjar pantan-
ir sendist til Svövu Þorleifsdóttur, Laugavegi 33 A.
Dbbbbbbbbbbbbfcbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbböb
Amerísku
MÁLNINGARSPRAUTUR
f jórar gerðir nýkomnar
Ennfremur stakar sprautu-
könnur.
[yggingavörur h.f.
Siml 35Ó97
Lougoveg 178
b
b
b
b
b
b
b
b
b
t>
b
.fc
Móðir mín
JAKOBlNA JAKOBSDÓTTIB
kennari
lézt að Elliheimilinu Grund 18. þ.m.
Hálfdán Eiríkssoo
Ástkær eiginmaður minn
ÞÓRARINN BJÖRNSSON
Ljósvallagötu 12,
andaðist í Landsspítalanum 18. þessa mánaðar.
Pálína Þorsteinsdóttir.
Útför
JÓNS HERMANNSSONAR
fyrrv. tollstjóra,
fer fram frá Dómkirkjunni, mánudaginn 21. þ.m. ki.
2 e.h.
Börn hins látna
Þökkum hjartaniega öllum fjær og nær, auðsýnda
samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
PÉTURS SNÆLANDS
Sigríður Snæland, börn, fósturbörn og tengdaböm
Við þökkum auðsýnda samúð við andlát
SVEINBJARNAR ARINBJARNAR
Aðstandendur
Þökkum öllum þeim, sem tjáð hafa okkur vináttu og
samúð vegna atidláts eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, systur og mágkonu
SIGLKBORGAR HALLDÓRSDÓTTUR
Jón Brynjólfsson,
synir, tengdadætur, systkini og aðrir aðstandendur