Morgunblaðið - 19.11.1960, Qupperneq 20
íþróttir
eru á bls. 18.
Útsvörin
Sjá bls. 11
266. tbl. — Laugardagur 19. nóvember 1960
Síldin komin á
Selvogsbanka
HAFNARFIRÐI — Þá virð-
ist síldin vera komin á mið-
in, eða svo gera sjómenn sér
a.m.k. vonir um. í gær var
eiginlega fyrsti dagurinn,
sem almenn veiði var hjá
bátunum, sérstaklega þeim,
sem eru með hringnót. Þá
kom Auðunn hingað með
milli 500 og 600 tunnur, sem
hann fékk í hringnót — og
daginn áður var landað 503
tunnum úr Faxaborginni suð
ur í Grindavík.
Síldin er á Selvogsbank-
anum og er allur bátaflot-
inn þar úr nærliggjandi ver-
stöðvum.
Héðan munu vera gerðir út
um 15 bátar og leggja margir
þeirra upp í Grindavík á meðan
síldin heldur sig á þessum slóð-
um. Er síldinni ekið hingað inn
í Fjörð og hún ýmist söltuð eða
fryst. Segja sjómenn hana stóra
og feita.
1 gær fengu reknetabátarnir
yfirieitt frá 30 og upp í 70 tunn
ur. Faxaborgin var þá með 150
tunnur. Flóaklettur, sem er með
troll, var með 80 tunnur. — G.E.
AKRANESX: — Bátarnir höfðu
mokað upp síldinni suður á Sel-
vogsbanka í nótt. Mikið af síld-
inni er fremur smátt og tekið í
bræðslu. Alls hafa borizt hing-
að um 4000 tunnur. Aflahæstir
voru þessir: Höfrungur II 1060
tunnur, Sveinn Guðmundsson
700, Sigurvon 650 og Sigurður
550 tunnur. — Oddur. ,
KEFLAVÍK: — Dagurinn í dag
var fyrsti afladagurinn á síld-
veiðunum og hann allgóður. —
Veiddist síldin SV af Reykjanesi
út undir Eldey. Alls komu 8 bát
ar með um 3000 tunnur samtals.
Var sá afli allur veiddur í herpi-
nót. Mestan afla hafði Freyja
600 tunnur, þá Ólafur Magnússon
400 og Kristbjörg 400 tunnur.
Sandgerðisbátar höfðu sæmi-
legan afla og sömuleiðis Grinda-
víkurbátar.
í fyrradag komu tveir Hring-
nótabátar til Reykjavíkur, Guð-
mundur Þórðarson með 700 tunn
ur og Heiðrún með 500 tunnur.
Síldin var smá og fór í bræðslu.
Síldveiðibátar við Vestmannaeyjar.
(Ljósm. Sigurgeir Jónasson)
Þrjú þúsund tunnur til Eyja
VESTMANNAEYJUM, 18. nóv.
— Yfir 40 bátar fóru héðan á
síldveiðar í dag upp úr hádegi
og voru að veiðum skammt und-
an landi austan við eyjar. Tals-
verð veiði varð en þó minni hjá
bátum með grunnnætur, en
mikill afli hjá bátum með stærri
hringnætur. T. d. fengu Reynir
og Huginn 6—700 tunnur hvor
í einu kasti og nokkrir fengu
2—300 tunnur. Heildaraflinn,
sem á land berst í dag mun vera
um 3000 tunnur. Sérstaklega
Fiskverkunarstöð og þrjú
skip d 8 millj. króna
Davíð Stefánsson
Ný Ijóðabók eftir
Davíð Stefánsson
Landsbankinn kaupir þrotabúseignir
Jóns Kr. Cunnarssonar
HAFNARFIRÐI — Líklegast hafa ekki fyrr í sögu bæjarins verið
seldar á opinberu uppboði jafnmargar stóreignir og gert var í
gær. Fór þá fram nauðungaruppboð á eignum úr þrotabúi Jóns
Kr. Gunnarssonar útgerðarmanns.
Á þrem stöðum veður var og margt manna við-
Uppboðið fór fram á þremur statt, en einkum voru það tveir
stöðum: í fiskverkunarstöð þrota aðilar, sem buðu í eignirnar.
búsins, sem er við Hvaleyrar- Uppboðið hófst kl. 10 árd. í
braut, við hafnargarðinn og í fiskverkunarstöðinni. Landsbanki
skipasmíðastöð Drafnar. Bezta íslands og fyrirtækið Lýsi & mjöl
hér í bænum gerðu boð í stöð-
ina. Hæsta boð hins síðarnefnda
var 1,9 millj. kr. og hækkaði þá
Landsbankinn sitt boð. upp í 2
milljónir, og á það verð seldist
stöðin.
1 GÆR kom út ný ljóðabók eftir
Davíð Stefánsson skáld irá Fagra
skógi, og nefnist hún „í dögun“.
Bókin er tæpar 200 bls. að stærð
og kemur út á forlagi Helgafells.
Síðasta ljóðabók skáldsins, Ljóð
frá liðnu sumri, kom út fyrir fjór
um árum.
í þessari nýju ljóðabók Daviðs
Stefánssonar er 61 Ijóð, og fjalla
þau um ýmis efni, eins og sjá má
ef litið er á nokkur ljóðaheiti:
Óður til lífsins, Blómasaga, Fjalla
vatn, Gamall sjómaður, Sykur,
Þingeyrarbræður á leið til Hóla-
staðar, Papar, Við Sinaifjall (í
tveim köflum), Ómar Kajam, í
Ódáðahrauni, Látrabjörg, Skip-
tapar, íslenzku handritin, Efnis-
VARÐARKAFFl
i Valhöll i dag
kl. 3—5 siðd.
hyggja, Atlantis og Hans þögn er
ljóð, sem ier hér á eftir:
Hver sinnir því, sem út með
fjörum fer,
þó flæði yfir gamalt eyðisker?
Og oft er myrkrið mest í kring-
um þann,
sem mælir fæst, en dýpst og
heitast ann.
Hans þögn er ljóð um það, sem
eitt sinn var,
um þráðan gest, sem hæst af
öllum bar.
Og margoft kom í morgunroða
inn
og mælti blítt við einkavininn
sinn.
Það minnast fáir manns, sem
hvergi fer
og myrkrið einn á herðum sín-
um ber.
Frágangur bókarinnar er hinn
bezti. Hún ei prentuð í Víkings
prenti h.f.
Skipin boðin upp
Eftir hádegi hélt uppboðið
áfram og þá um borð í vélskip-
Síldortorfur
ú Skerjufirði?
í GÆR sagði Ingvi Loftsson,
múrarameistari blaðinu þau
tíðindi að hann hefði undan-
farna tvo daga orðið var við
mikið líf á Skerjafirði, en
þessiu veitti hann athygli er
hann var að vínna að hús-
byggingu vestur á Nesi. Virt-
ist honum sem þar væri um
að ræða vaðandi síldartorfur,
en slíku er hann kunnugur
sem síldveiðimaður á árum
áður. Yfir torfunum var mik-
ið af fugli, sem benti til þess
að þarna væri síldar- eða fiski
torfur undir. Virtist þetta
vera á stóru svæði.
inu Haförninni. Allmargt manna
kom þar um borð, m. a. lögfræð-
ingar, sem komnir voru til að
gæta hagsmuna skuldaeigenda.
Jón Finnsson og Jóhann Þórðar-
son, fulltrúar hjá bæjarfógeta,
stjórnuðu uppboðinu. — Guðjón
Steingrímsson lögfræðingur bauð
fyrst í skipið fyrir hönd sjó-
veðshafa eina milljón króna. Það
boð var strax hækkað af lög-
fræðingi Landsbankans upp í 3
milljónir. Guðm. Guðmundsson,
forstjóri Lýsi & mjöls bauð á
móti bankanum 3% milljón.
Bauð fyrirtækið og Landsbank-
inn á víxl í skipið, sem er tæpra
200 tonna stálskip og byggt í
Noregi fyrir nokkrum árum.
Framhald á bls. 19.
gekk bátum með grunnnætur
erfiðlega að ná síldinni vegna
þess hve stygg hún var.
Síldin er sæmileg millisíld og
mest landað í bræðslu, talsvert
fer til frystingar og einnig er
nokkuð í bát sem flytur sildina
ísvarða út, sennilega til Þýzka-
lands. — Fréttaritari.
4,6
millj. kr 1
••
í DAG hefir stjórn Kvenfé-
lagsins Hringsins afhent ráðu-
neytinu kr. 400.000,00 til við-
byggingar Landsspítalans
vegna væntanlegs barnaspít-
ala. Hefir Hringurinn þá lagt
samtals 4,6 milljónir króna til
byggingarframkvæmdanna og
hafa fjárframlög félagsins ver
ið mjög mikilsverð fyrir fram
gang byggingaframkvæmd-
anna, en fjárframlög Hrings-
ins nema meira en tíunda
hluta heildarbyggingarkostn-
aðar fram að þessu.
(Fréttatilkynning frá
Dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu).
20 óro ofmæli Akureyror-
kirkju minnst d sunnudug
AKUREYRI, 15. nóv.: — Næst-
komandi sunnud. verður minnzt
20 ára afmælis Akureyrarkirkju
með hátíðarguðsþjónustu í kirkj
unni kl. 2. Sr. Benjamín Krist-
jánsson prédikar, sr. Pétur Sig-
urgeirsson flytur ávarp og hinn
nýi sóknarprestur, sr. Birgir
Snæbjönsson mun taka þátt í
guðsþjónustunni. Kirkjukórinn
syngur undir stjórn Jakobs
Tryggvasonar.
Um kvöldið kl. 8,30 veiður há-
tíðarkvöld í kirkjunni. Þar flyt-
ur Jón Júi. Þorsteinss m, form.
sóknarnefndar, ávarp, kirkjukór
Akureyrar syngur, Jóhann Kon-
ráðsson, Kristinn Þorsteinsson
og Sverrir Pálsson syngja ein-
og tvisöng og sr. Friðrik A.
Friðriksson, prófastur á Húsa-
vík, flytur erindi um helgileik-
ana í Oberammergau í Þyzka-
landi, sem haldnir eru tíunda
hvert ár. Sr. Friðrik var þar
viðstaddur sh sumar.
Þess má geta að nýbúið er
að setja upp gluggamálverk í
kórglugga kirkjunnar og gefst
tækifæri til að sjá þá.
Páll Sigurgeirsson, formaður
orgelnefndar, gat þess að afhend
ingu pípuorgelsins mundi seinka
nokkuð, en þegar er búið að
greiða þiðjung andvirðisins. Þá
hefur stjórnin látið gera sér-
staka minningargjafabók, er mun
liggja frammi í kirkjunni. Geta
menn þár skráð sig fyrir minn-
ingargjöfum vegna ástvina sinna
og ættingja.
Kvenfélag Akureyrarkirkju
mun hafa kaffisölu í kirkjunni
þennan dag. —Mag.