Morgunblaðið - 26.11.1960, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 26.11.1960, Blaðsíða 23
Laugardagur 26. nóv. 1960 MOK CT’H PJ. AÐIÐ 23 Ammoniak-kúfum stolið I>JÓFNAÐUR hefur verið fram- inn úti í Örfirisey. Þ«ar voru geymdir 22 ammoniak kútar og um síðustu helgi var þeim öll- um stolið. Hver þessara kúta, en þeir voru opnir og tómir, vega um 100 kg. Þeir eru um 2 m á hæð og þvermálið 10 þumlungar. Eru slíkir kútar notaðir í frysti- húsum. Ekki hefur tekizt að upp- lýsa hverjir hér voru að verki. Augljóst þykir að þjófarnir hafi orðið að nota vörubíl við flutn- ing þýfisins, þvi alls vega kút- arnir rúmlega tvö tonn. Verð- mæti þeirra til peninga er um 20.000 krónur. Rannsóknarlögreglan hefur fengið þjófnað þennan til með- ferðar. Væntir hún þess fast- lega að þeir sem kynnu að geta gefið upplýsingar er á einn eða annan hátt snerta þetta mál, gefi sig fram hið fyrsta. Fyrsti snjórinn í Neskaupstað Neskaupstað, 25, nóv. í KVÖLD byrjaði að snjóa hér, svo jörð er hvít orðin. Er þetta fyrsti snjórinn sem fellur hér á þessu hausti. Undanfarnar tvær vikur hafa verið stöðugar rign- ingar. Gæftir hafa verið slæmar það sem af er þessum mánuði og lítið róið. I gær fór einn bátur og fékk hann 19 tonn af fiski og var mikið af grálúðu í aflanum, en ]>að er óvenjulegt hér um slóðir. Afskipanir af sjávarafurðum hafa farið fram nær því dag hvern undanfarið. í dag er t. d. Tröllafoss að taka 700 tonn af síldarmjöli og Jökulfellið lestar hraðfrystann fisk. — S.L. Flúði yfir BERLÍN, 25. nóv. (Reuter). Ein af fremstu íþróttakonum Þýzka- lands, spretthlauparinn Gisela Henning, sem búsett hefur verið í Austur Berlín hefur flúið það- an yfir til Vestur Þýzkalands. Hún hefur nú þegar hafið æfing ar með vestur þýzku íþrótta- félagi. - Utan úr heimi Framh. af bis. 12. vægi verði komið á í stjórninni. Mun það mál verða rætt á næsta þingi stofnunarinnar. , ★ 1 stjórninni eiga nú sæti full- trúar 23 aðildarríkja. Fulltrúar Afriku o gnálægari Austurlanda eru frá Suður-Afríku og frak. Eitt Norðurlandanna, Finnland, skipar nú sæti x stjórninni. Þingið samþykkti íjárhagsáætl un fyrir árið 1961. Niðurstöðu- tölur eru 6.168.000 dollarar. Þá var samþykkt upptaka fimm nýrra ríkja: Chile, Colombiu, Ghana, Malí og Senegal. Aðild- •rriki Alþjóða kjarnorkumála- stofnunarinnar eru því orðin 75. — Bridge Framhald af bls 22. þv! næst út laufa 4 og kastar síð- •sta spaðanum í og ætlaði þannig •ð komast hjá því að Austur gæti komið Vestur inn á spaða kóng. Austur var þó vel á verði því hann kastaði í laufa kónginn, laufa gosa og þegar Suður létu út laufa 4 þá komst Vestur inn á laufa 10. Vestur lét þvinæst út Tígul sem Austur trompaði Og þannig tapaðist spilið. Þess skal að lokum getið að •pil þetta var spilað í sveita- keppni og á hinu borðinu varð lokasögnin sú sama eða 4 hjörtu, en þar lét Vestur út í byrjun •paða kóng og það þýddi að hann komst aldrei inn til að spila Tígli og spilið vannst þannig auð veldlega. Kennedy-hjónunum fæddur sonur — Washington, 25. nóv. FRÚ Jaqueline Kennedy ól son snemma í morgun. Dreng- urinn sem vó rúmar 12 merk ur var tekinn með keisara- skurði. Að sögn föðurins og einkaritara frúarinnar, er hann hið fríðasta barn — með brúnt hár. Dóttir þeirra hjóna, sem nú er þriggja ára, var einnig tekin með keisara- skurði. John F. Kennedy, kjörinn forseti Bandaríkjanna, var kynnti að mæðgininum heils- aðist vel. Þegar hefur verið ákveðið, að drengurinn, sem er þeirra fyrsti sonur, skuli bera nafn föður síns, John Fitzgerald Kennedy. ★ Mikill fjöldi heillaskeyta hefur borizt þeim hjónum í dag og voru meðal hinna fyrstu skeyti frá Eisenhnwer forseta og frú hans. Væntanlegur varaforseti, Lyndon Johnson var staddur rétt kominn til Florida úr í París er fregnin um fæðing- ferðalagi, er honum barst fregn um að kona hans hefði í skyndi verið flutt í sjúkra- hús í Washington. Hann flaug þegar til Washington, en er hann kom þangað, var barnið fætt. Hann hraðaði sér til sjúkrahússins, þar sem hann varð að ryðja sér braut gegn- um fjölmennan hóp frétta- manna. Kom hann út til þeirra skömmu síðar og til- una barst honum. Hann lét fögnuð sinn í ljós við frétta- menn og sagði m. a.: Sökum þess að ég og John Kennedy börðumst báðir í heimsstyrj- öldinni megið þér vera pess fullvissir, að hin nýja stjórn Bandaríkjanna mun breyta á þann veg að þess verði aldrei krafizt af þessum litla dreng, að hann hætti lífi sínu til varnar frelsinu. Vigfús Guðjónsson — Helga sökk Frh. af bls. 1 vönu sjómenn, voru fljótir að átta sig á því að skipið ætti í erfiðleikum með að rétta sig aftur. Skipsmenn voru allir í stakk og stígvélum, snöruðu sér strax fram á til þess að reyna að opna lensportin og rétta skipið með þvi, en það tókst ekki. Skipið hélt áfram að síga og að 3—4 mín. liðnum lá Helga alveg á hliðinni. Var sýnt að skipið myndi sökkva. Gúmmíbjörgunarbáturinn Matsveinninn var kominn upp fáklæddur úr koju. Það var kuldanepja og dálítil ylgja, en allsstaðar mátti sjá ljós á nær- stöddum skipum. Þegar gúmmí- björgunarbáturinn kom í sjóinn sprengdi hann af sér öll bönd og blés sig sjálfur upp. Skipsmenn ösluðu að björgun- arbátnum. Tókst öllum 10 tals- ins að komast í hann ómeiddir, en matsveinninn féll í sjóinn við björgunarbátinn. Þegar skip brotsmenn voru komnir í bátinn lónaði hann hægt frá hinu 13 ára gamla happaskipi, sem seig dýpra og dýpra. Vart munu hafa liðið nema 10 minútur frá því skipið tók að hallast fyrst, unz það hvarf skipbrotsmönnum í djúpið út af Grindavík. Þýzkur togari bjargaði Það var kalt í björgunarbátn- um, en verst var biðin eftir björgun fyrir hinn fáklædda matsvein. Það leið nokkuð á aðra klukkustund unz skipbrots menn sáu að skipsljós nálguðust þá í myrkrinU. Brátt var ljóst að hér var rnn að ræða skip, sem séð hafði neyðarljósin og komið var til að bjarga. Þetta var togarinn Weser frá Bremer- haven, sem renndi að báti skip- brotsmanna. Gekk björgunin greiðlega um borð í togarann, var skipbrotsmönnum frábær lega vel tekið, þeim færð hlý föt, gefin hressing og að þeim hlúð á hinn bezta hátt. Sigldi togarinn síðan á fullri ferð til Reykjavíkur og var kominn á ytri höfnina klukkan rúmlega 7 í gærmorgun. Þar tók tollbátur við mönnunum. Óvænt heimkoma Á heimilum skipsmanna vissi enginn hvernig komið var fyrr en þeir komu heim snemma í gærmorgun. Var heimkoman tregablandin, er skipsmenn, sem margir hverjir hafa verið með „Armanni á Helgu“, eins og skipstjórinn er í daglegu tali nefndur, skýrðu ástvinum sínum frá því að nú væri þetta happa- skip ekki lengur í tölu hins ís- lenzka vélskipaflota. Orsök slyssins? Skipsmenn eru sammála um, að ástæðan til þess að skipið fórst með svo snöggum hætti, sé sú, að síldarfarmurinn hafi kastazt til. Eitthvað hafi bilað niðri í lestinni, þar sem, síldin var í stíum, sem orsakað hafi að hún seig öll yfir í stjórn- borðshliðina. Skipsmenn eru einnig sam- mála um að þeir myndu vart vera til frásagnar af því sem gerðist, ef gúmmíbjörgunar- báturinn hefSi ekki veriS á skipinu. og hann verið aS ötlu leyti í fullkomnasta lagi. Eru skipsmenn á Helgu, þriSja skipshöfnm héSan frá Reykjavík a. m. k., sem bjarg ast befur á þessu ári vegna þess aS gúmmíbjörgunarbát- ar voru á skipunum. — Sfeemmst er aS minnast þess er Straumey fórst og 7 menn komust af í gúmmibáti skips- ins, er Drangajökli hvolfdi sfeyndilega í sumar björguS- ust 19 menn í gúmmíbát skips ius. Ármann Friðriksson, skip- stjóri, hefur fullan hug á að eignast annað skip við fyrsta tækifæri. Þeir, sem þekkja hann vel, segja að það geti heldur ekki öðru vísi farið en að hann verði bráðlega kominn aftur á sjóinn á eigin skipi. Með honum voru í þessari hinztu ferð skips- ins: Indriði Sigurðsson, stýri maður, Melabraut 16, Hermann Helgason, 1. vélstjóri, Sólheim- um 32, Axel Sveinsson, 2. vél- stjóri, Sólvallagötu 66, Vilhjálm ur Oddsson, matsveinn, Knox- búðum R-5, og hásetarnir eru þeir: Haraldur Magnússon, Hofs vallagötu 23, Jón Erlendsson, Seljavegi 3A, Theodór Kristjáns- son, Blómvallagötu 13, Hörður Valdimarsson, Ljósheimum 8 og Lúkas Kárason, Langagerði 86. Vélskipið Helga var 110 lestir, byggt 1947. Var skipið vátryggt hjá Sjóvátryggingarfélagi ís lands. — sláturhús á Kirkjubæjarklaustri nokkur síðustu haust og þar var hann staddur þegar „kallið kom“. Vigfús mun hafa verið heilsu- veill alla ævi, en hann bar það eigi utan á sér og ókunnugir urðu þess lítt eða ekki varir. Hann virtist ætíð vera hress og kátur. Hann var góður félagi, hreinn og beinn og hrókur alls fagnaðar á góðra vina fundi. Hann var ætíð glaður og reifur. Hafnarfjörður i Sjálfstæðiskvennafélagið Vor boðinn heldur fund n.k. mánudagskvöld 28. nóv. kl. 1 8,30 í Sjálfstæðishúsinu. — Venjuleg fundarstörf.. — Skemmtiatriði og kaffi. Sjálf stæðiskonur eru beðnar um að fjölmenna og taka með sér gesti. Minningarorð VIGFÚS Guðjónsson á 'Syðri- Fljótum var fæddur á Lyngum í Meðallandi 3. júlí 1935. Hann andaðist snögglega 27. sept sl. Vigfús var einn af mörgum börnum hjónanna á Lyngum, Guðlaugar Oddsdóttur og Guð- jóns Ásmundssonar bónda þar. Vigfús ólst að mestu upp hjá föðursystrum sínum, Svein- björgu og Steinunni Ásmunds- dætrum á Syðri-Fijótum og þar ól hann allan sinn aldur. Vann að mestu heima, en stundaði þó vinnu innanhéraðs eftir því sem hún bauðst. Hann vann við Vigfús var góður og röskur verkmaður, lagtækur og góð skytta. Vér njótum nú ekki leng ur rösklegra handtaka hans. Hlátur hans er hljóðnaður. Hans er sárt saknað af ástvinum, vin- um og kunningjum. En minn- umst hins fornkveðna, „að þeir sem guðirnir elska deyja ungir“. Blessuð sé minning hans. S. B. t Fæddur 3. júlí 1935 Dáinn 27. sept. 1960 Skyndilega kallið kom, kvaddur var á herrans fund ungur maður, yndi og von, annarra um sína stund. * Hann var iðinn, hann var trúr, hlutgengur til hvers sem var, kominn er nú keppni úr, krossinn sinn með sóma bar. Hann kveður þetta ljúfa líf, og leggur upp í hinstu för. Hans veri drottinn vernd og hlí/ og veiti sína miskunn, ör. Hann þakkar þeim af heilum hufc, er honum sýndu ástarhót. Hann vann sitt verk með dáð og dug og drottins elsku tók á mót. Það er sárt að sjá á bak, sinna niður í kalda gröf. Með bljúgum huga bið og valC bæn er lífsins náðargjöf. Lífið hefir ljúfa brá en líka djúpa, sára und. Hið góða kemur guði frá gætum þess á hverri stund. Til hans því lyftum huga nú hann er oft í hverri raun. Góði faðir gef oss trú græddu lífsins bitru kaun. Valgeir Helgason Fengu lax í nótina AKRANESI, 25. nóv.: — Þar bar við í nótt er vélskipið Sigurður var að háfa úr nótinni, að I henni var stór og mikili fiskur, sem ekfei átti skylt við síld. Þetta reyndist vera lax, 80 cm langur og 9 kg að þyngd. Var hann strax færður matsveininum, sem mat- reiddi laxinn handa skipshöfn- inni. Báturinn var í Grindavíkur sjó er hann fékk laxinn, sem var frekar horaður. —Oddur Reykjavíkurskátar! Skemmtið ykkur í kvöld í Skátaheimilinu. Fjölbreytt skemmtiatriði. Góð hljómsveit. JOTNAK. Þakka innil.'ga öllum samstarfsmönnum mínum, yngri sem eldri fyrir lan^a og góða samvinnu á undanförnum árum. Einnig þakka ég þeim og öðrum fyrir skemmtilegt samsæti, góðai veitingar og hlýleg orð til mín töluð þann 12. þ. m. Með góðum óskum og kærrí kveðju. Kristján Snorrason. Eiginmaður minn og faðir okkar LOFTUR LOFTSSON útgerðarmaður, andaðist fimmtudaginn 24. nóvember. Ingveldur Olafsdóttir og börn. Hjartans þakklæti til allra, sem sýndu samúð og virð- ingu við fráfall og jarðarför eiginmanns míns HALLDORS FRIÐGEIRS SIGURÐSSONAR skipstjóra. Guð blessi alla, sem glöddu hann í veikindum hans. Fyrir hönd vandamanna. Svanfríður Albertsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.