Morgunblaðið - 30.11.1960, Síða 1
20 síður
47. árgangur
275. tbl. — Miðvikudagur 30. nóvember 1960
Prentsmiðia Morgunblaðsin*
V • «««• <v '/VAYs ' W fXa&s ss -.■ \ sxp**' '••v^.vr'
Alvarlegar óeirbir
brjótast út í Caracas
Caracas í Venezuela 29. nóv.
— (Reuter). —.
FJÖLMENNAR liðssveitir úr
her og þjóðverði Venezuela
fóru um götur höfuðborgar-
innar í dag til að halda uppi
lögum og reglu. Hafa róstur
verið í borginni þrjú kvöld
í röð og er talið að fylgis-
menn Castro meðal stúdenta
standi fyrir ólátunum. Er
sagt að tala fallinna í róst-
unum í gær hafi verið 3 en
25 manns hafi særzt. Áður
hafði enginn fallið en um
80 særzt.
Brunarústir geymsluskúrsins I
og hinn stórskemmdi íbúöar-
skúr. Vátrygging hans var
fallin í gjalddaga, svo og inn-
anstokksmuna heimilisins.
(Ljósm. Sv. Þormóðsson).
Richard Wright
dáinn
PARÍS, 29. nóv. (Reuter). —-
Bandaríski rithöfundurinn Ric
hard Wright andaöist hér í nótt
52 ára að aldri. Hann var svert-
Ingi og varö frægastur fyrir bók
sína „Native Son“, en efni flestra
bóka hans var frá æskudögum
hans, sem svertingjadrengs í
Bandaríkjunum. Hann liaföi
lengi veriö búsettur í París. Á
laugardaginn veiktist hann og
var lagður á sjúkrahús. Var tal-
ið aö hann þjáöist af magasári,
en taliö er aö hjartaslag hafi
valdið dauða hans.
Fyrsti haustsiormurinn:
Húsbruni við Suðurlands-
braut og jbor fauk strætisvagn
FYRSTI stormurinn á haust-
inu gekk yfir Reykjavík í
fyrrinótt og gærmorgun. —
Veðurhæðin mældist mest,
á hinn sjálfritandi vindmæli
Veðurstofunnar, 11 vindstig,
en til jafnaðar voru 8 vind-
stig hér í bænum. í óveðr-
inu kom upp eldur í geymslu
skúr, sem áfastur var við
lítið íbúðarhús og skemmd-
ist það mikið. Einn strætis-
vagn fauk út af Suðurlands-
brautinni, en slys varð ekki
á mönnum.
if Bruni
Bruninn varð -að Suðurlands-
braut 116. Þar býr, ásamt konu
og þrem börnum, Geirharður
Jónsson. Var heimilisfóik allt
heima er eldurinn kom upp laust
eftir klukkan 8. Stóð geymslu-
skúrinn sem var úr timbri við
austurgafl hins litla íbúðarhúss.
Var hann orðinn alelda á svip-
stundu og stóð í björtu báli er
slökkviliðið kom á vettvang. Það
var þá svo hvasst, að illstætt var
fyrir brunaverði uppi á þaki
íbúðarhússins. Urðu þeir að rjúfa
það á tveim stöðum, því eldur
hafði komist þar undir.
Heimiliskötturinn fannst kafn-
aður inni i íbúðinni, þegar eld-
urinn hafði verið slökktur.
if Verulegt tjón
Skemmdist íbúðarhúsið svo af
vatni, reyk og eldi að það verð-
ur ekki haft til íbúðar unz all-
umfangsmikil viðgerð hefur farið
fram. Heimilisfólkið varð að
brjótast út um glugga í vestur-
gafli. Varð Geirharður fyrir veru
legu tjóni. Auk þess sem húsið
skemmdist mikið, og geymslu-
skúrinn brann, hafði fatnaður
eyðilagst og innanstokksmunir.
Ekki er vitað um eldsupptök,
en grunur leikur á að kviknað
hafi í út frá olíukyndingu. Brann
Framh. á bls. 2
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur til umræðu í bæjarstjórn
24% útsvarslækkunin gildi ’61
Reksturskostnaði haldið niðri
en megináherzla lógð á hita-
veitu- og gatnagerðarfram*
kvæmdir
FJÁRHAGSÁÆTLUN bæj-
arsjóðs Reykjavíkur fyrir ár-
ið 1961 var til fyrri umræðu
í bæjarstjórn í gær. Niður-
stöður rekstraráætlunar eru
kr. 288,503,000,00. Geir Hall-
grímsson, borgarstjóri, gat
þess, er hann fylgdi fjárhags
áætluninni úr hlaði, að meg-
insjónarmið við samningu
hennar hefði verið, að út-
svarsgreiðandi greiddi ekki
hærra útsvar á næsta ári en
í ár, að óbreyttum tekjum,
en í ár hefði útsvarslækkun-
in almennt numið 24%. —
Áherzla hefði verið lögð á
að halda öllum stjórnar- og
skrifstofukostnaði niðri, en
lögboðin gjöld hækka hins
Geir Hallgrímsson
vegar sjálfkrafa. Framlög til
gatna- og holræsagerðar eru
nú meiri en nokkru sinni áð-
ur, enda verður meginá-
herzla lögð á að sjá borgur-
unum fyrir byggingarlóðum
og fullgera götur. Jafnframt
verður hitaveituframkvæmd-
um hraðað eins og áður hef-
ur verið greint frá.
Hér fer á eftir ræða borgar-
stjóra á bæjarstjórnarfundinum
í gær:
Frumvarp að fjárhagsáætlun
1961 fyrir bæjarsjóð Reykjavík-
ur og stofnanir hans liggur hér
fyrir til fyrri umræðu. Frum-
varpið er samið af Gunnlaugi
Péturssyni, borgarrftara, Gutt-
ormi Erlendssyni, aðalendurskoð
anda og Guðmundi Vigni Jósefs-
syni, skrifstofustjóra, í samráði
við mig og forstöðumenn viðkom
andi bæjarstofnana. Fylgir frum
varpinu ítarleg greinargerð, þar
sem hinum einstöku liðum eru
gerð skil. Vil ég sérstaklega
Framh. a bls. 8
Á þaki háskóla
Síðastliðna nótt gerðist það aS
50 stúdentar, þeirra á meðal
tvær stúlkur, klifruðu upp á
þak háskólabyggingar og köst-
uðu Molotov-kokkteeilum, þ.e.
flöskum með benzíni að þjóð-
varðarliðsmönnum, sem sóttu að
þeim. Loks voru stúdentarnir
yfirbugaðir með táragasi.
Þetta sama kvöld réðust hóp-
ar óeirðarmanna inn í opinberar
byggingar og verzlanir í mið-
hluta borgarinnar. Þeir tóku og
upp á því að kveikja í strætis-
vögnum og gereyðilögðust 12
strætisvagnar.
Hernaöarástand
Betancourt, forseti Venezuela,
hefur lýst yfir hernaðarástandi
borginni og var þá bönnuð
útgáfa blaða kommúnista og
annarra öfgaflokka. Betancourt
hefur flutt ávarp í útvarp höf-
uðborgarinnar. Þar segir hann
að þjóðin eigi við efnahagsörð-
ugleika að stríða og muni þeir
eiga sinn þátt í þvi að óeirð-
irnar brutust út. En hann skor-
aði á fólk að sýna stillingu og
lagði áherzlu á það að vanda-
málin yrðu því aðeins leyst að
friður ríkti í landinu.
Flugvéla-
smiBur flýr
BERLÍN, 29. nóv. (Reuter). —
Frægasti flugvélateiknari A,-
Þýzkalands, Fritz Freytag hef
ur flúið til Vestur-Þýzkalands
og beöist hælis sem pólitískur
flóttamaður. Er talið að flótti
hans sé mikið áfall fyrir flug-
vélasmíði Austur-Þjóðverja.
Freytag stjórnaði meðal
annars teikningu fyrstu far-
þegaþo(<u landsins, hinni svo-
nefndu „152“, en illa fór með
frumgerö hennar, sem hrap-
aði. — Hann var yfirmaður
tæknideildar flugvélaverk-
smiöju austur-þýzka rikisins í
Dresden.
Vestur-þýzka flóttamanna-
skrifstofan hefur skýrt frá
flótta Freytags og bætir því
við að helzti reynsluflugmað-
ur Ðresden verksmiðjunnar,
Alfred Bormann hafi einnig
flúiö vestur á bóginn nýiega.
Tiros tekur
þúsund myndir
WASHINGTON, 29. nóv. _
Fram á hádegi í dag hefur veð-
urathuguana-gervitunglið Tiros
tekið og sent til jarðar 998 Ijós
myndir af skýjamyndunum.
Myndirnar eru teknar ýmist með
víðum linsum ,eða þröngum lins-
um. Af þeim myndum sem tekn
ar eru með þröngri linsu hafa
85% komið að gagni við veður-
athuganir en aðeins 20% af hin-
um sem teknar eru með viðri
linsu.
Á myndum þeim sem gervi-
tunglið hefur sent til jarðar í
dag má sjá, hvernig snjókomu-
ský eru að myndast yfir mið-
hluta Bandaríkjanna.