Morgunblaðið - 30.11.1960, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 30.11.1960, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Baldur Johnsen, læknir, D.P.H.: BJÓRIMM Leikrit Kambans „í Skálholti" verður sýnt í 20. sinn n. k. föstudag og hcfur aðsókn að leiknum verið góð. Ákveðið hefur verið að hætta sýningum á „í Skálholti“ fyrir jól og eru þá eftir aðeins þrjár sýningar á þessum ágæta Ieik. — Ekki ei að efa að margir hafa enn hug á að sjá leikinn. — Myndin er af Val Gíslasyni í hlutverki Brynjólfs biskups og Kristbjörgu Kjeld í hlutverki dóttur hans. NÚ er ölmálið aftur á dagskrá. Og nú er það hvorki meira né minna en leiðaraefni Morgun- tolaðsins 11/11 sl., og boðið upp á umræður. Þökk. Rétt áður hafði verið birt nið- urstaða viðtala við fjóra menn, sem valdir voru þannig, að þrír reyndust bjórvinir, en aðeins einn á móti bjórnum. Að vísu má segja, að sá síðastnefndi sé einn af mikilhæfustu og mest virtu þjóðmálaskörungum í okk. ar landi, að öðrum ólöstuðum, og sé álit hans því æði þungt á metunum. En sleppum þyí að sinni. í áðumefndum leiðara er svo lagt út af umsögnum tveggja þeirra sem viðtölin voru við: þess síðastnefnda, Magnúsar Jónssonar alþingismanns frá Mel og kirkjuhöfðingjans Jó- hannesar, hins katólska Hóla- biskups. Álþingismaðurinn telur, að ó- takmörkuð sala áfengis öls í landinu muni auka á áfengis- notkunina, og stórauka drykkju- skapinn. Kirkjuhöfðinginn telur, að sala áfengs öls í landinu muni minnka áfengisnotkunina, draga úr drykkjuskap. Meira gat bilið ekki verið. En hver voru rökin? Hér koma þau: Magnús alþingismaður byggir skoðun sína á reynslu annarra þjóða og telur ölið muni bætast ofan á annað áfengi sem fyrir •r, en ekki koma í stað þess og leiða til daglegrar neyzlu áfeng- is. Jóhannes biskup segir orðrétt: „Gömlu kirkjufeðurnir predik- uðu gegn ofdrykkju, en þeir tala fallega um vínið, enda er það ein af guðs gjöfum og þær á hvorki að misnota né láta ónot- aðar.“ Svo mörg voru þau orð. Ég ætla mér ekki þá dul að deila við guðfræðinginn um guðsorð, né biblíu-bókstaf, en ég vil til gamans og fróðleiks benda á, að almenn söguskoðun heilbrigðis- fræðinnar viðurkennir fyllilega stjómvizku og skynsemi hinna fornu trúarbragðahöfunda, á sumum sviðum. Prestarnir voru nefnilega ekki aðeins predikarar í nútímaskilningi heldur og oft og einatt veraldlegir valdamenn. í langri rejmslu kynslóðanna urðu ýmsar heilbrigðisráðstaf- anir viturra forfeðra svo sjálf- sagðar og þýðingarmiklar, að þær runnu smám saman, í vit- und fólksins, saman við boðorð „hins hæsta“ undir handleiðslu æðstu prestanna Sem dæmi má nefna hvíldar- daginn, umskurð piltbarna og vínið. Vínið í þá daga hafði nefnilega allt annað gildi held- ur en í dag; í þann tíð voru engin ráð þekkt til að geyma ávaxtasafa, sérstaklega vínberja nema láta hann gerjast. Sama hefur gilt um ýms önnur mat- væli, eins og til dæmis skyr, skyrsýru og smjör o. fl. o. fl. Til drykkjar var oft ekki öðru að treysta en þessum vínum, sem að visu munu hafa verið mjög lítið áfeng. Ósoðið vatn var stór- hættulegt, sérstaklega úr yfir borðslindum og lækjum. Þess vegna bauð guð mönnum að drekka vínið í stað mengaðs vatns. Nokkuð svipað hefur til skamms tíma gilt um mörg önn- ur suðlæg lönd, t. d. ítaliu, Spán og Frakkland, þar sem léttu vín- in fjóta, þó alls ekki að skað- lausu. Hér á landi myndi guð áreið- anlega bjóða mönnum að drekka hið hreina og ómengaða upp- sprettuvatn, sem víðasthvar sr nóg af. Flestar aðrar þjóðir verða að nota til drykkjar, hreirs að, síað og klórínerað vatn með annarlegum keim, sem sótt er í skítug fljót, og er þeim því nokk ur vorkunn. Þetta var raunar, að sumu leyti útúrdúr, en þó ekki alveg óviðkomandi málinu, þegar rætt er um grundvallarsjónarmið. II. Ekki verður annað séð, en að Morgunblaðið vilji frekar hall- ast að skoðun guðsmannsins, og geri hans orð, að nokkru leyti, að sínum þannig orðrétt: „en hinn telur (þ. e. biskupinn) að slíkt fyrirkomulag (þ. e. áfengur bjór) myndi bæta úr því öng- þveiti, sem hér er óneitanlega í áfengismálunum". Þegar hér á árunum fyrir fyrri heimsstyrjöldina að áfengis bannið var lögleitt á íslandi, þá var það svar þjóðarinnar við vandræðaástandi áfengismál anna. Þá var ekki hægt að kenna neinu öðru en áfenginu sjálfu um vandræðin, því að þá skorti engar sérstakar tegundir, þá fékkst bæði létt vín, sterk vín og bjór, í stórum og smáum skömmtum, ódýrt og ekki skorti útsölustaðina. Yfirleitt má segja, að þjóðin hafi unað banninu vel. Það var eins og dytti bylur af húsi þegar •^JtristiiiJýðræðis^jóð í Kristilegu stúdentablaði, sem er nýkomið út, ritar pró- fessor Jóhann Hannesson at- hyglisverða grein, sem nefn- ist Áhrif skólafræðslunnar á kirkjulífið. Þar segir m. a. á þessa leið: „En tvennt virðist vera aukaatriði í þessu sambandi: Að þjóðin er kristin þjóð og að hún er lýðræðisþjóð. Þeg- ar fjallað er um uppeldið eftir skólaskyldualdurinn, er yfirleitt talað eins og engin kirkja væri til. Það þarf því ekki að undra oss þótt skóla- kerfið taki lítið tillit til þarfa kirkjunnar, þótt hún sé ein FERDI áfengið hvarf. Stórvandræðum létti víða af á stuttum tíma, ekki sízt í smærri kaupstöðum og í nágrenni þeirra, en þar sem mestar voru samgöngurnar við útlönd var auðvitað eitthvað smyglað eins og gengur og raun- ar enn er gert. En það var ekk- ert á móti frjálsri sölu. í stuttu máli er svo saga áfeng isins hér þessi: Verzlunarsamningar við Spán neyddu íslendinga til að kaupa spænsk vín, ef Spánverjar' áttu að kaupa íslenzkan fisk. Þar með var varnarmúrinn brotimi. Þáá höfðu íslendingar fengið svo kölluð létt vín, eins og hver vildi hafa. Þarmeð var aftur byrjað að venja íslendinga við áfengisnotkun, og þeir voru námfúsir, og brátt kom að því, að þeim nægði ekki léttu vinin og kröfðust sterkra drykkja. Það var og veitt. Ekki var hægt að segja að drykkjuskapur minnk- aði við meira úrval áfengisteg- unda, en jókst þvert á móti, eins og alþjóð er kunnugt. III. Og nú er talað um „öngþveiti“ og það á að lækna með sterkum bjór. Bjóráróðurinn er raunar ekki nýr af nálinni, því að hann hef- ir verið rekinn nú um nokkur ár. Ef áfengur bjór yrði aftur inn- leiddur hér, með fleiri útsölu- stöðum og ódýrara áfengi eins og margir vilja, þá værum við alveg komin í hring, til sama ástands og var fyrir bannið. Þarmeð hefði baínaleg ósk- hyggja sigrað raunvísindin, og raunar vill svo fara á fleiri svið- um þegar nautnalyf eru annars vegar. En væri slík afstaða sam- boðin þjóð, sem vill kenna sig við gáfur, vísindi og tækni? En hvað er þá að segja um bjórinn sem slíkan, Við skulum líta til nágrannanna, Englend- inga og Dana. Á báðum þessum stöðum hefir bjórinn hertekið alþýðu manna, og þó með tvennu móti. í Danmörku er bjórflaskan á lofti hvarvetna á vinnustöðum, en í Bretlandi er það „pub“-menningin eða ómenn ingin sem alls staðar ræður. í bááðum löndunum er bjórmn viðurkennt vandamál, sem ekki af stofnunum þjóðfélagsins og meira að segja sú, sem lang- flestir landsmenn hafa nokk- ur samskipti við. Og það virð- ist hafa gleymzt, að þeir, sem skólana sækja, eru flestir meðlimir kristinnar kirkju. Þetta tillitsleysi, bæði til kirkjunnar og til þeirra mörgu einstaklinga, sem eru meðlimir hennar, hefur leitt til þess að framandleiki hefur myndast milli skóla og kirkju og þetta ástand lofar ekki góðu, hvorki fyrir skóla né kirkju. •Fræðslukerfið Fræðslukerfið er mótað af N AIMD er hægt að leysa, þrátt fyrir ýmsar takmarkanir á opnunar- tíma bjórstofanna, sem Englend- ingar hafa reynt Að sumu leyti er bjórdrykkj- an ekki ósvipuð vindlingareyk- ingum, nema sljófgar þó meira, en hún hertekur menn á svipað- an hátt, og er enn meiri og lúmskari peningaþjófur; og rík- ið skattleggur líka bjórinn. Útkoman er sú, að bjór er intellektúalisma, þ. e. það stefnir að Því marki að miðia mönnum skynsamlegri og hagnýtri þekkingu, en yfir- leitt ekki að þroska einstakl- inga og þjóðfélags. Þessi in- tellektúalismi er þó ekki ný- myndun þessara ára, heldur beint framhald af því, sem áður var orðin gildandi meg- inregla. • BækurumsiðfræðF leg efni hvergi fáanlegar Menn munu gera þá athuga semd að bæði í kennaraskóla ☆ Miðvikudagur 30. nóv. 1960 drukkinn daglega, en þegar meira er haft við á hátíðum og tyllidögum, þykir bjórinn ekki nægilega sterkur og er þá gripið til sterku drykkjanna. Þessvegna er heildar áfengisneyzla hjá þessum þjóðum töluvert meiri er. hér á landi, þrátt fyrir allt, IV. Það er nú farið fram á, að hér Framh. á bls. 13. og í barnaskóla er kristnum fræðum ætlaður nokkur tími og nokkur áherzla á þau iögð. Og þessi grein er kenud í kennaraskóla vegna þess að hún er einnig kennd í barna skóla án þess að hitta kristin námið nær. En vér getum farið yfir hverja reglugerðina af annarri fyrir hina æðri skóla áán þess að hitta kristin. fræði fyrir meðal námsgrein. ahna. Fram til 14—15 ára ára aldurs tekur skólakerfið tillit til þess að menn eru meðlimir kristinnar kirkju, og þó aðeins að nokkru leyti. Mjög lítil áherzla virðist vera á það lögð að flestir lands- menn heyra i senn lýðræðis- þjóðfélagi og kristinni kirkju, en til þessara staðreynda beggja er nauðsynlegt að taka tillit ef samhengi þjáð- legrar menningar á ekki að rofna. Menn vænta þess af kirkjunni að hún veiti þjóð. inni fræðslu í félagslegu sið- gæði ekki síður en einstak- lingssiðgæði, en sé ekki tekið tillit til þess í hinum æðri í skólum, þá hlýtur fyrr eða síðar að reka að því að kirkj- una skortir menn til þess að leysa þetta hlutverk af hendi. Það kynni að geta opnað augu vor fyrir ástandinu að fara í bókaverzlanir og spyrja eftir bókum um siðfræðiieg efni og sjá síðan hver árang- urinn verður. Fyrir fólk, sem komið er yfir fermingu, hefur slík bók ekki verið fáanleg árum saman nema hjá forn- sölum.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.