Morgunblaðið - 30.11.1960, Page 12
12
MOnr.rMiLAÐIÐ
Miðvikudagur 30. nóv. 1960
Uppboð
eftir kröfu Jóns N. Sigurðssonar, hrl. verður bif-
reiðin G—1741 Austin sendiferðabifreið, árgerð 1946
seld á opinberu uppboði, sem haldið verður við Máln-
' ingastofuna Lækjargötu, Hafnarfirði í dag, mið-
vikudaginn 30. nóv. kl. 11. f.h.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
HALLÓ !
HALLÓ !
Ódýrir sokkar
Hnéháir mislitir kvensokkar á 16 kr., mjög hent-
ugir og hlýir. Geta alveg komið í staðinn fyrir sokka-
buxur. Herrasokkar 12—16 kr. Alls konar barna-
sokkar. —
Komið og sjáið allar ódýru vörurnar.
NÆKFATAVEBKSMIÖJAN LILLA
Smásalan — Víðimel 63
B.v. „Sigurður*4
er til sölu.
Upplýsingar gefur
EINAR SIGURÐSSON
Jón Hermannsson
fyrrverandi tollstjóri
JÓN Hermannsson, fyrrum lög-
reglustjóri og tollstjóri í Reykja-
vík, andaðist að heimili sínu hér
í bæ hinn 14. þ. m., rúmlega 87
ára að aldri, og var borinn til
grafar hinn 21. þ. m.
Hann var fæddur á Velli í
Hvolhreppi 28. maí 1875, sonur
Hermanníusar Elíasar Johnson,
er sýslumaður var í Rangár-
vallasýslu á árunum 1861—
1890. og konu hans, Ingunnar
Halldórsdóttur. Eignuðust þau
hjón fimm börn auk Jóns, Guð
rúnu, er átti Eggert prófast
Pálsson á Breiðabólstað í Fljóts
hlíð, Guðbjörgu, er átti séra Jón
Thorstensen á Þingvöllum, Krist
ínu, er átti séra Halldór Jónsson
á Reynivöllum, Halldór bóka-
vörð og prófessor í Cornell í
Ithaca, og Odd, skrifstofustjóra í
atvinnumálaráðuneytinu. Þetta
var fríður systkinahópur og
voru þau orðlögð fyrir mann-
kosti og gáfur. Lifði" Jón þau öll.
Jón Hermannsson lauk stúd-
entsprófi við lærða skólann í
Reykjavík árið 1893. Lagaprófi
við háskólann í Kaupmannahöfn
lauk hann með hárri einkunn ár.
ið 1899. Að því loknu var hann
þegar í stað um nokkurra ára
skeið skipaður aðstoðarmaður í
islenzku stjórnardeildinni í Kaup
mannahöfn. En þegar æðsta
stjórn íslands var flutt inn í
landið hinn 1. febrúar 1904, var
hann þann sama dag settur
skrifstofustjóri í II. skrifstofu
stjórnarráðsins, sem svo var
kölluð þá, (atvinnu- og sam-
göngumálaráðuneyti), en siðan
skipaður 2. marz sama ár. Þessu
embætti gegndi hann fram til 1.
april 1918. Hafði sérstakt lög-
reglustjóraembætti í Reykjavík
verið stofnað með lögum nr. 26
1917, og var hann þá skipaður
fyrstur manna lögreglustjóri
í Reykjavík. Auk þess hafði
hann með höndum forstjórn toll.
gæzlu og ýmiskonar skattheimtú,
skipaafgreiðslur o. fl. Lögreglu-
stjóraembættinu gegndi hann
fram til 1. janúar 1929, en em-
bættinu hafði verið skipt með
lögum nr. 67 7. maí 1928 og toll-
stjóraembættið í Reykjavík var
stofnað. Var hann þá skipaður
tollstjóri í Reykjavík og gegndi
því embætti til 1. október 1943.
Þá lét hann af störfum fyrir
aldurs sakir og hafði þá verið
um 44 ár embættismaður í þjón-
ustu ríkisins.
Hinn 7. febrúar 1907 kvæntist
Jón Ástu, dóttur Péturs J. Thor-
steinsson, kaupmanns á Bíldu-
dal. Hún andaðist 30. ágúst 1950.
Áttu þau fagurt heimili og voru
annáluð fyrir rausn og gestrisni
heima fyrir. Börn áttu þau þrjú,
Gyðu, konu Lorenz Thors, for-
stjóra, Hermann, fulltrúa toll-
stjóra og hæstaréttarlögmann,
kvæntan Auði Auðuns, og Ing-
unni, konu Kristjáns G. Gísla-
sonar, stórkaupmanns.
Auk þeirra embætta, sem nú
PHILCO
Heimilistækin
Kæliskápar
Frystikistur
Frystiskápar
Þvottavélar
4.4 cub. ft.
5,6--------
8.4 -------
10,1---------
10,5---------
11,0---------
12,2---------
8,4 cub. ft.
13,0--------
8 cub. ft.
11,6--------
margar gerðir
GJÖRIÐ SVO VEL AÐ LÍTA INN
O. Johnsson & Kaaber h.f,
Hafnarstræti 1
hafa verið nefnd hér að framan
voru Jóni á langri ævi falin
mörg og margvísleg trúnaðar-
störf, sem hér verða ekki talin.
Var oft leitað til hans og þótti
þeim málum vel borgið, er nann
tókst á hendur að vinna að.
Allir sem til þekkja munu
vera á einu máli um það, að
hann var óvenjulega iðjusamur,
samvizkusamur og réttsýnn em-
bættismaður. Ég sem þessar lin-
ur rita, get vel um það borið af
eigin raun. Ég réðist til hans sem
fulltrúi í lögreglumálum i nóv-
ember 1927 og vann hjá honum
ti 1. janúar 1929, er lögreglu-
stjóraembættið var skilið frá
tollstjóraembættinu, og fylgdist
ég þá með lögreglustjóraembætt
inu. Það var mikið happ fyrir
ungan mann og óreyndan að
byrja vinnu undir handleiðslu
slíks embættismanns sem Jón
var. Þar sá maður fyrir sér sam-
vizkusemi og reglusemi um alla
embættisfærslu sem vel mátti
vera til fyrirmyndar. Hann var
og alltaf boðinn og búinn til
leiðbeiningar, fáskiptinn að jafn-
aði en viðmótsþýður og hjarta-
hlýr við nánari kynningu. Hann
var hamhleypa til allrar vinnu
og vinnudagur hans var oft æði
langur. Þann tíma, sem ég vann
hjá honum kom hann að jafnaði
fyrstur til vinnu á morgnana.
Fram eftir kvöldum var haqn
löngum að vinnu og sást oft ljós
á einkaskrifstofu lögreglustiór.
ans, þegar starfsdagur annarra,
sem hjá honum unnu, var löngu
liðinn.
Þótt samvinna okkar Jóns
Hermannssonar hafi ekki verið
löng, svo sem fyrr segir, og nú
sé nær mannsaldur síðan henni
lauk, mun ég ávallt minnast
hans með þakklæti og virðingu.
Hann var góður húsbóndi, góður
og grandvar maður, sem í engu
mátti vamm sitt vita. Með hon-
um er fallinn í valin einn af
síðustu embætiismönnum á ís-
landi af gamla skólanum.
Gústav A. Jónasson.
EGGERT CLAEStiEN og
GUSTAV A. SVEINSSON
hæstaréttarlögm en
Þórshamrj við Templarasund.
Atvinnurekendur
Ungan og reglusaman mann
vantar atvinnu nú þegar. Hef
ur meira bíipróf og er vanur
að aka bifreiðum. Tilb. sendist
afgr. Mbl. sem fyrst merkt:
„Atvinna — 1230“
Ráðskona
Ráðskona óskast frá næstu ára
mótum eða fyrr, í sveit á suð
urlandi. Bætti hafa með sér
barn. Tilb. leggist inn á afgr.
Mbl. fyrir hádegi föstudag, __
merkt: „Áramót — 1301“
SI-SLETT P0PLIN
(N0-IR0M)
MINERVAcÆ*-te>»
STRAUNING
ÓÞÖRF