Morgunblaðið - 30.11.1960, Side 13
Mifivikudagur 30. nóv. 1960
MORGVNRLAÐIÐ
13
- BJÓRINN
Framh. af Dls. 6.
verði hafður á boðstólum áfeng-
ur ojór.
Slíkar kröfur eru svo sem ekki
fram bornar til að auka á afeng-
isneyzluna, nei, ekki aldeilis >ví
að jafnvel bjórunnendur viður-
kenna skaðsemi áfengis,_ þegar
svo ber undir. Jafnvel .f G. Þ.
í Alþýðublaðinu viðurkennir, að
menn kunni að drepa sig á á-
fengi, en slík sjálfsmorð séu
bara „prívat“ málefni, sem eng-
um öðrum komi við. Og sami
maður hefir reyndar nýlega birt
leynvopn þeirra bjórmanna í
útvarpinu. Það átti að hæna að
rika ferðamenn með sterkum
bjór. Þá yrðu góð gistihús Hk_
legast óþörf og afskrifa mætti
Gullfoss og Geysi!!
V.
Það væri mikið glapræði, að
fara nú vitandi vits að innleiða
sterkan bjór hér á landi. þar
sem menn hafa verið svo bless-
unarlega lausir við bjórsýkina.
Ég veit að sumir sem dvaiið
hafa lengi erlendis sakna bjórs-|
ins, eins og gengur rneð nautna-,
lyf, jafnvel þótt væg séu, og |
jafnvel þótt um hófsmenn sé að
ræða, sem telji sig örugga. En
þessir verða að draga sig í h'é
þegar um er að ræða hagsmur.a-
mál almennings.
Ö1 er einskisvirði til manneld-
ís Það kann þó að hjálpa möun-
um til að þola betur ofát, sam-
anber bjórvambirnar svoköll-
uðu. Það er einnig mikill mis-
skilningur, að bjórinn muni
koma í stað sterku drykkjanna.
Reynsla annarra þjóða ætti að
vera um það ólygnust, enda
skapferli íslendingsins slíkt, að
ekki er slíklegt, að hann láti sér
nægja bjór þar sem hann áður
notaði sterka drykki, frekar en
Skotinn bjór í stað wiskís við
tækifæri.
Nei. — Reynslan verður sú, að
bjórinn bætist ofan á pær /in-
tegundir sem fyrir eru.
Það verður drukkinn bjór dag
lega á vinnustöðum, við höfnina,
í byggingarvinnu og á skrifstof-
um. Varla verður það til að
bæta vinnuafköstin, né til að.
drýgja lítil daglaun, og ekki er
ég í vafa um, að ríkissjóður
muni sjá sér leik á borði þegar
biórinn er orðinn mönnum
ómissandi.
Það er deginum Ijósara, eða
ætti að vera það. þeim sem ferð-
ast með opin augun, að afköst
verkamanna okkar eru meiri en
starfsbræðra þeirra erlendis, og
ég held, að það séu ekki ýkjur
þótt ég segi, að íslenzkir verka-
menn séu betur andlega vakandi
en tíðkast víða annars staðar,
enda mun ekki af veita í harð-
býlu landi. Og ég er ekki i nokkr
um vafa um að ástandið myndi
breytast íslendingum mjög í
óhag ef slóvgandi sídrvkkja
bjórs yrði innleidd hér. Þá er
einnig hætt við, að launamenn
myndi skorta fjármuni, áhuga og
þrek til að hefja byggingarvinnu
eigin íbúðar að afloknu venju-
legu dagsverki, eins og hér hefir
tíðkazt, en mun nærri óbekkt
fvrirbrigði þar sem við bekkjum
til í nágrannalöndum okkar.
VI.
f STUTTU MÁLl
Hér hafa verið leidd rök að
því, að frjáls sala áfengs öls í |
landinu myndi stórlega auka á
áfengisneyzluna, Ieiða til dag-
legrar áfengisneyzlu, sídrykk.iu
bjórs, eins og annarsstaðar tíð.
kast. Slíkt myndi hafa sljóvg-
andi áhrif á þjóðina, bæði and-
lega og líkamlega. Þannig myndi
áfenga ölið draga úr vinnuaf-
köstum og vera öllum almenn-
ingi lúmskur peningaþjófur.
Það væri mikið glapræði að
leiða slíkt ástand yfir þjóðina,
vitandi vits, ofan á erfiðleika þá
sem fyrir eru, þrátt fyrir varn.
aðarorð þeirra, sem til þekkja og
ótvíæða reynslu ná.grannaþjóða,
þar scm bjórinn er viðurkennt
vandamál, sem engin viðunandi
lausn finnst á.
Rvk, 23 nóv. ,1960.
Baldur Johnsen.
— Sendibréf
frá Vesturheimi
Framh. af bls. 11.
breiðslu og vöxt hinna ýmsu trjá
tegunda langt upp um öll fjöll.
Af því, sem ég hafði séð og að
viðbættum upplýsingum Karls er
ég ekki lengur í vafa um, að það
er mögulegt að ná í fræ af svo
harðgerðum stofnun Douglas-
grenis, að unnt væri að rækta
það hér á allmörgum stöðum.
Annars er hvítgreni aðaltréð
í skógunum, en víða vex bæði
stafafura, Douglasgreni og fjalla
þinur hvað innan um annað og
ásamt hvítgreninu, og eru slíkir
skógar langtum skemmtilegri en
hinir, þar sem ein tegundin ræð-
ur mestu eða öllu. Allur gróður
verður miklu fjölbreytilegri þar
sem trjátegundirnar eru margar
saman. Fyrir norðan fjöllin sem
við vorum í koma svo blágreni
og lerki til sögunnar, en ég gaf
mér ekki tíma til þess að fara
á þá staði. Sunnar í Klettafjöll-
um koma svo enn aðrar tegundir
til, og minnir mig að í British
Columbia séu alls 22 barrtrjá-
tegundir, en eitthvað færri lauf-
tré.
Þegar ég hef litið yfir þessi
norðlægu lönd, sem ég hef verið
að ferðast um undanfarið, þá
hef ég verið með hugann heima
og borið þetta saman við hrjóstr
in okkar. Þessi lönd eru gagn-
auðug í samanburði við vesalings
landið okkar. Nú eru víða síst
betri gróðrarskilyrði hér en
heima, og því liggur í augum
uppi að við getum flutt mikið af
þessum gróðri heim, ekki aðeins
trén heldur líka runna og hvers-
konar nytsamar plöntur aðrar.
Ég vildi láta gera úr 2 — 3
manna leiðangur frá íslandi á
þessar slóðir til þess að safna öllu
því, sem að gagni mætti koma
heima. Þessi leiðangur færi auð-
vitað ekki að heiman fyrr en við
værum búnir að athuga nákvæm
lega, hvað æskilegt væri að taka,
en svo þyrftu þeir að vera um
3 mánuði á ýmsum slóðum til
þess að ná öllu, sem okkur van-
hagar um. Ekki mundu líða mörg
ár áður en slík ferð væri búin
að margborga sig.
Þá slæ ég botn í þetta. Á
morgun flýg ég í einum áfanga
til New York með stuttri við-
stöðu í Vancouver.
Á leið til New York aðfara-
nótt 28. sept. 1960.
Eftirmáli
Aðeins fáein orð til viðbótar.
Ég varð að dvelja í Vancouver í
nærri 3 tíma. Hringdi ég til séra
E-ríks Brynjóifssonar, sem áður
var prestur á Útskálum, en þjón-„
ar nú litlum íslenzkum söfnuði í
Vancouver. Hittumst við og röbb
uðum saman i eina tvo tíma og
meðal annars skauzt ég með hon-
um í kirkju safnaðarins, sem er
nýbyggt hús. Ég hef sjaldan kom-
i« í jafn fallega kirkju. Húsið er
einfalt og látlaust en vandað í
hólf og gólf. öllu er smekklega
fyrirkomið. En kirkjurnar í Vest-
urheimi eru meira en guðshús,
þær eru líka fyrir dauðlegt fólk,
því að þær eru samkomustaður
safnaðarins og miðstöð félagslífs-
ins, enda bar húsið það með sér,
að það var opið alla vikuna. Mest
hissa varð ég á því, þegar séra
Eiríkur sagði mér, að söfnuður-
inn teldi ekki nema um 250
manns, eða um heiming af öllum
íslendingum, sem búa í Vancouv-
er, og að söfnuðurinn hefði byggt
þessa kirkju af eigin ramleik og
héldj henni við. Þar að auki laun-
KAGNAR JÓNSSON
hæstarettarlogmaóur
Vonarstr 4 VR-húsið Sími 1775?
ibglræðiscórl og eignaumsýsla
Tapast hefur
ballettbúningur
ballettbúningur í síðastliðinni
viku í miðbænum. Finnandi
vinsamlega hringi í síma
18259.
aði söfnuðurinn prest sinn að
öliu. Mér fannst þetta alit svo til
fyrirmyndar, að ég varð að bæta
þessu við.
Við töluðum ýmislegt u n líf og
starf fólksins þarna vestra. Sagði
séra Eiríkur mér, að það fólk,
sem kæmi að heiman og legði
hart að sér fyrstu 2—3 árin kæm-
ist yfirleitt áfram. Aftur á móti
væru þeir til, og ekki fáir, er
kæmu að heiman og héldu að
þeir gætu gripið upp fjármuni
með lítilli fyrirhöfn. En slíkum
mönnum farnast yfirleitt þannig,
að þeir hverfa til íslands aftur.
Útleggingin af þessu er sú, að
ef svo fer að fólk fari að tínast
af íslandi til þess að fá betra lífs-
viðurværi, þá misstum við dug-
legasta fólkið en amlóðarnir sitja
heima eða koma aftur. Útflutn-
ingur fólks, og þó einkum fólks,
sem eitthvað kann fyrir sér, er
háski fyrir litla þjóð eins og okk-
ur. Þess vegna verðum við að
flytja skóg og annan gróður
heim af vesturströnd Ameríku til
þess að gefa þjóðinni sömu lífs-
skilyrði hér og hún er að sækj-
ast eftir þangað vestur.
Og þá ekki meira í þetta sinn.
Ferðinni er sama og lokið.
Þinn einlægur,
Hákon Bjarnason.
BELGRAD, 28. nóv. — Tito upp
lýsti í ræðu í dag, að eftir tvö
ár yrði stjórnarskrá Júgóslavíu
breytt og mundi þá stigið nýtt
skref til uppbyggingar sósíal-
ismans. Yrði það fólgið í meiri
dreifingu yfirstjórnar atvinnu-
veganna.
Aðalfundur
Dómkirkjusafnaðarins
verður haldinn í Dómkirkjunni sunnudag-
inn 4. des. 1960 og hefst kl. 5 s.d.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Sóknarnefndin
Austfirðingafélagið
í Reykjavík heldur félagsvist og dans í Breiðfirð-
ingabúð annað kvöld, 1. desember, kl. 20,30.
STJÖRNIN
Húsmæður:
ROYAL
ávaxtahlaup
(Gelatin) er ljúf-
fengt og nærandi,
inniheldur C bæti-
efni.
Einnig mjög fallegt til
skreytingar á tertum.
Margar bragðtegundir,
auðvelt í notkun.
E X A
Topað — Fundið
Fimmtudaginn 17. nóvember
tapaðist gult umslag, ómerkt,
með 10 þúsundkrónaseðlum.
Finnandi vinsamlegast skili
því til skrifstofu Leikhúskjall-
arans, sími 19636, gegn fund-
arlaunum.
Loftpressur
með krana, til ieigu.
Gustur l,f.
Simar 12424 og 23956.
Fjölvirkasta myndavél í heimi.
Söluumboð:
Lítil ibúð
Gleraugnaverzliinin OPTIK
Hafnarstræti 18
2 herb. ásamt eldhúsi og baði
ÓSKAST KEYPT, nú þegar
eða á vori komanda. Mikii
útborgun. Tilb, sendist Mbl.
merkt: „1299“
G.
Einkaumboðsmenn :
Helgason Sl Melsled hf.
Hafnarstræti 19