Morgunblaðið - 30.11.1960, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.11.1960, Blaðsíða 18
18 MORGTlNnr AÐ1» Miðvik'udagur 30. nóv. 1960 Góður þjálfari er lykill að meiri ágóða knattspyrnuleikja Karl Guðmundsson segir þjálfara- mál okkar i megnusfa ólagi — en fáir vildu ræða málið með honum ÞAÐ er ekkert launungar- mál, að þjálfaramálin hjá okkur eru í megnasta ólestri, og það ástand, sem nú ríkir, er óviðunandi. Það beinlínis kemur í veg fyrir þroska knattspyrnumanna okkar allt frá því að þeir eru smástrák- ar og það kemur í veg fyrir að landslið okkar sé betra en raun er á. Á þessa leið fórust Karli Guðmundssyni, knattspyrnuþjálf ara og íþróttakennara, orð, er hann einn manna rseddi þjalfara- vandamálið á ársþingi KSÍ á dög unum. Var furðulega deyfðarlega tekið á þessum málum og eigin- lega reynt að hespa af afgreiðslu þeirra meira en góðu hófi gegndi. Karl var eini maðurinn á þing- inu sem ræddi málin gjörla og kom fram með staðreyndir' og ákveðnar tillögur. ★ GÓÐUR LEIKUR SKAPAR AUKIÐ FÉ „Þetta er alvarlegt mál“, hélt Karl áfram. „Þetta er mál málanna sem liggja fyrir þessu þingi. Aukin knatt- spyrnuleg geta 1. deildar lið- anna skapar harðari keppni, og dregur fleiri áhorfendur að. Landsliðssigrar örva alla, bæði knattspyrnumenn og að- sókn fólks að leikum þeirra. Þetta hefur því bein áhrif á aðgang-.eyri, sem knattspyrnu hreyfingin byggir afkomu sína á. Samt er sofið á verðinum varðandi þetta hagsmunamál knattspyrnunnar". bbbbbbbbbbbbbLLibbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbb b b b Amerískar GL málningarsprautur fjórar gerðir fyrirliggjandi Ennfremur stakar sprautukönnur ggingavörur h.f. Simi 35697 Lougaveg 178 b b b b b b b b .b LION •etutme CfrcmM WtTE pepper) IHTCROM0!? Serial No'jíf 1423 uniTtsH (mmmmmmh GVAMlANræES NffUNO Of MONET OR RfPlACfMfNT . *f NOI IN CONfORMIÍY WIIN iHf ^NSIITUIfS SIANDARDS Pipar, Kanel, Karrí, núskat, Negull, Engifer, Kumen, Paprika og Allrahanda. Húsmæður:— LION kryddvörur eru góðar og ódýrar. BORÐLAM Pl Bjart, þægilegt ljós á augabragði. Fallegur lampi. Auðveldur í notkun. Brennur 13 stundir á 1 líter af steinolíu. ALADDIN Industries Limited, Aladdin Building, Greenford, England. Og Karl hélt áfram: „Okkur skortir fleiri þjá.fara fyrir yngri flokkana og við þörfnumst fleiri og velmenntaðra þjálfara fyrir 1. deildar liðin. Fullyrða má að fyrir utan þjálfun og uppeldi í yngri flokkunum þá er góð þjátf- un meistaraflokksliðanna skil- yrði fyrir því að hægt sé að tefia fram sterku landsliði, sem á hverjum tíma speglar knatt- spyrnugetu hverrar þjóðar“. ★ LÉLEG SÁNING — LÉLEG UPPSKERA Þegar litið er til sl. sum- ars og árangurs landsliðs okk- ar — tap í Noregi, 4:0; tap i trlandi, 2:1; tap í Reykjavík, 5:0 — þá má furðulegt teljast hvert tómlæti og úrræðaleysi hefur ríkt í þessum málum. Það er sár staðreynd að 4 af 6 1. deildar liðum á íslandi eru þjálfaralaus. Það er ekki von að landsliðið geti sýnt góða leiki. * AÐ SKYLDA MENN TIL ÞJÁLFARASTARFA Karl sagði að frá því að reynt hefði verið að hrinda fram víðtækri áætlun um námskeið fyrir knattspyrnuleiðbeinendur á sl. sumri. Undirtektir aðilanna, sem njóta áttu þjónustunnar voru svo öaufar að lítið sem ekk- ert varð úr framkvæmdum. Hér haft margir brugðizt, sagði Karl, Það verður að skylda félögin íil að senda ákveðinn hóp manna á þjálfaranámskeið. Þetta er hægt alveg eins og félögin til- nefna menn til að fara á dómara- námskeið. Menn, sem valdir eru til þjálf- unarstarfa, verður síðan að styðja og styrkja og örfa. Áhugi þeirra verður að vera brennandi. Þeir verða alltaf að viðhalda þekkingu sinni og auka hana. — Þeir verða að vera sívakandi, annars eru þeir ekki til gagns. Kyrrstaða í þessum málum er sama og afturför. En kannski þýðingarmest af öllu er upplag mannsins sem fyrir valinu verð- ur. Það er ekki hægt að gera neinn mann að þjálfara — það verður hann eiginlega að gera sjálfur. En margvíslega aðstoð er hægt að veita á þeirri braut og það er skylda hreyfingarinnar í heild og yfirstjórnar hennar sér- staklega a& sjá um að slíkt sé fyrir hendi. Karl ræddi síðan um íþrótta- kennaraskóla Islands og einnig ítarlega um það hvernig aðrar þjóðir haga sér í þessum efnum, eu því hefur Karl kynnzt. Hin ítarlega ræða Karls um þetta er efni í fleiri greinar næstu daga. Hvað er hann að gera? Það vissi ljósmyndarinn ekki en sagði að myndi væri góð. Myndina tók Sv. Þormóðsson. Körfuknattleiksmótið ; JT’ Armann vann t 2. flokki karla Á MÁNUDAGSKVÖLDIÐ fór fram úrslitaleikur í II. flokki, á Reykjavíkurmótinu í körfuknattleik. — Ármann sigraði í hröðum og skemmti legum leik gegn ÍR. Birgir Örn Birgis vann leikinn fyr- Baráttan við körfu ÍR Extska knattspyrnan 19. UMFERÐ ensku deildarkeppninnar fór fram sl. laugardag og urðu úrslit leikanna þessi: 1. deild: Arsenal — Everton ............. 3:2 Birmingham — Leicester ........ 0:2 Cardiff — Manchester U......... 3:0 Fulham — Wolverhamptpn ........ 1:3 Newcastle — Blackburn ......... 3:1 N. Forest — Chelsea ........... 2:1 Sheffield W. — Aston Villa .... 1:2 W.B.A. — Tottenham ............ 1:3 2. deild: Brighton — Portsmouth ......... 2:2 Bristol Rovers — Charlton .... 3:1 Derby — Norwich ............... 0:0 Ipswich — Huddersfield ........ 4:2 Liverpool — Sheffield U........ 4:2 Middlesbrough — Stoke......... 0:0 Scunthorpe — Sunderland ....... 3:3 Southampton — Swansea ......... 5:0 Auk þess fór 2. umferð bikarkeppn- innar fram sl. laugardag og uröu úrslit leikjanna þessi: Aldershot — Colchester ........ 3:1 Bangor — Southport ............ 1:1 Bournemouth — Yeovil .......... 3:1 Bradford — Barnsley ............ 1:2 Chesterfield — Oldham ......... 4:4 Chrystal Palace — Watford ...... 0:0 Darlington — Hull .............. 1:1 Gillingham — Southend .......... 3:2 King’s Lynn — Bristol City ..... 2:2 Oxford — Bridgewater ........... 2:1 Port Vale — Carlisle ........... 2:1 Q.P.R. — Coventry .............. 1:2 Reading — Kettering ............ 4:2 Romford — Northampton ......... 1:5 Stockport — Bishop Aucklland .... 2:0 Swindon — Shrewsbury............ 0:1 Torquay — Peterborough ......... 1:3 Þremur leikjum úr bikarkeppninni var frestað vegna veðurs og verða þeir leiknir nú í vikunni. Einnig munu leik irnir, sem enduðu með jafntefli fara fram í þessari viku. Þriðja umferð bik arkeppninnar fer fram 7. janúar og hefja þá liðin úr I. og II. deild þátt- töku sína. Að 19. umferðum loknum er Totten- ham efst í I. deild með 35 stig eftir 19 leiki, en þrjú lið koma næst með 26 stig hvert, þ. e. Sheffield W, Ever- ton og Wolverhampton. I II. deild er Sheffield U. efst meí 31 stig eftir 20 leiki, en Liverpol er í öðru sæti með 26 stig eftír 19 leiki. ir Ármann. Hann skoraði 32 stig og sýndi afburða knatt- meðferð. í meistaraflokki töpuðu stúdentar fyrir KFR í frem- ur þungum og leiðinlegum leik. — Ármann-A — ÍR-A, II. fl. karla, 48:45 (29:19) Leikurinn hófst með rólegu spili beggja liða, sem virtust vera að þreifa fyrir sér um styrk mótherjanna. Birgir skor- aði fyrstu körfuna, en Þor- steinn kvittaði jafnskjótt fyrir lR. Birgir skoraði aftur og Guð- mundur Þorsteinsson jafnaði. — Grímur, Á, krækir í tvö víti hjá Guðmundi Þorsteinssyni og staðan er 6:4. Nokkur óstyrkur virðist koma í ljós hjá ÍR-ing- um og hraðinn í leiknum fer vaxandi. Bæði liðin skora, en þegar staðan er 12:12 tekur Birgir sprett og skorar 8 stig án þess að ÍR-ingar fái rönd við reist. Grímur og Árni mata Birgir, sem lætur ekki á sér standa að senda knöttinn í körf- una. Hálfleiknum lauk 29:18 og þar af skoraði Birgir 20 stig. Guðmundur Þorsteinsson varð að víkja af leikvelli skömmu fyrir lok hálfleiksins, með 5 víti. Sumt voru hrein klaufa- víti, en það afsakar ekki þá framkomu hans að sparka knett inum í burtu þegar hann hlaut fimmta vítið. iR-ingar sóttu mikið á í síðari hálfleik. Liðið er gætt þeim góða eiginleika að gefast ekki upp en berjast til síðustu stund- ar. Mótherjar þeirra mega aldrei slaka á hversu mörg stig sem þeir hafa yfir. Leiknum lauk með naumum sigri Armanns 48:45. Birgir átti afburðaleik, en hann var líka vel studdur af félögum sínum, sem gáfu honum oft mjög góð- ar sendingar. Lið Armanns í heild átti sinn bezta leik i mótinu og sigurvilji liðsins var nú meiri, en oft áður. Af ÍR-ingum var Þorsteinn Hallgrímsson beztur að venju og skoraði 20 stig. Þó er það galli á Þorsteini að hann kemst sjaldan verulega í gang fyrr en í síðari hálfleik. Leikurinn í heild var hraður Framhald á bls. 19.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.