Morgunblaðið - 30.11.1960, Page 20

Morgunblaðið - 30.11.1960, Page 20
íþróttir eru á bls. 18. KLETT AFJÖLL Sjá bls. 11. Flugfélaginu falið ískúnnunarflug við Grænland? Félagið ræðir við Loftleiðir um leigu á Heklu og frekari flug- vélakaup í athuguti ALLT bendir til þess, að dönsk stjórnarvöld feli Flug- félagi Islands að annast könnunarflugið á siglinga- leiðum meðfram sunnan- verðri vesturströnd Græn- lands og undan Hvarfi. Um- ræður um þetta mál eru nú að komast á lokastig og hef- ur Flugfélag íslands leitað til Loftleiða með það fyrir aug- um að taka skymastervéiina Heklu á leigu til Grænlands- flugsins. ★ Könnunarflugið meðfram vest urströnd Grænlands var tekið upp eftir Hans Hedtoft-slysið og er einkum fólgið í að fylgjast með ísnum á siglingaleiðum. — Danski herinn hefur annazt þetta flug og hefur í því skyni haft einn til tvo Katalínabáta staðsetta á flugvellinum í Nars- sarssuak við Eiríksfjörð. Það mun fyrst og fremst hafa Framh. á bls. 19. (Imícrðarslys á Sundlaugavegi Á SJÖUNDA tímanum í gær- kvöldi varð umferðarslys á móts við Sundlaugaveg 12. Bjarni Kolbeinsson, Kleppsvegi 22, varð þar fyrir bifreiðinni VLE 1644 og hlaut nokkur meiðsl, sem þó munu ekki alvarleg. ,,Sigurður til sölu * EINS og sjá má af auglýsingu í blaðinu í dag er togarinn „Sigurður“ til sölu. Blaðinu er ókunnugt um verð togarans, en hins vegar munu slík skip hafa hækkað í verði um 10% frá því samið var um smíði „Sigurðar“ fyrir hálfu öðru ári. — „Sigurður“, sem er 987 brúttólestir að stærð, kom til Iandsins i september. Hann hefur fiskað lítið, og vegna aflaleysisins hefur hon- um verið lagt síðustu vikurn- ar. Að auki bætist við verð- fall á lýsi og fiskimjöli. Eins og segir í Mbl. 15. þm., var „samið um smíði hans, þegar hvað bezt aflaðist á Nýfundua landsmiðum, enda er hann stór og ætlaður til að veiða á fjarlægum miðum. Sáralítil veiði hefur verið þar vestra á þessu ári, og verðfal) á iýsi og fiskimjöli bitnar mest á þeim, sem stunda karfaveið- ar“. „Sigurður" fór í tvær 3ja vikna veiðifevðir, fékk 93 tonn í annarri, en 117 í hinni. Rósarunnur í bldmu t GÆR birtist mynd hér í blaðinu af útsprunginni rós í garði á Húsavík. Var hún kölluð nóvemberrós og þótti bera hinni eindæma veðurblíðu og árgæzku fag- urt og gott vitni. Reykja- vík vildi náttúrlega ekki láta sinn hlut eftir liggja á þessu sviði, og fréttist fljótlega um sönnun þess, að veðurfarið hefði ekki verið síðra hér syðra. — Blaðið fregnaði nefnilega, að í garði einum hér í bæ væru fjórar útsprungnar rósir á runni. Á höfuðborg- in því metið að þessu leyti, þangað til á morgun a.m.k. Runnurinn er í garðinum við Smáragötu 13 og hef- ur staðið í blóma í u.þ.b. tíu daga. Frostkaflinn hafði ekki minnstu áhrif á rós- irnar, en því miður slitnaði eitt blómið af í rokinu í fyrrinótt. Langa myndin er af runninum öllum, en stóra myndin af efsta hluta hans og rósunum. Hert ó innilutn'ngse'tirliti vegna gin- og klnuiaveikihættu VEGNA gin- og klaufaveikinn- ar, sem herjar á bústofn Breta um þessar mundir, hefur mjög verið hert á eftirliti með inn- flutningi af hálfu tollgæzlunnar. Allir, sem til landsins koma, eru spurðir nákvæmlega um dvalar- staði sína síðustu þrjá mánuði. Hafi þeir stungið niður staf sín- um á pestarsvæðunum er farang ur þeirra rannsakaður gaumgæfi lega og fatnaður sótthreinsaður. Þá er gersamlega tekið fyrir all- an innflutning á hálmi, heyi, strái, sefi, ull, hári, skinni, húð- um, reyrtágum, notuðum pokum, druslum eða fatnaði o. þ. u. 1. — Stórgripahúðir, sem notaðar eru við togveiðar, eru þó undanþegn- ar þessu banni, ef sótthreinsunar- vottorð fylgir þeim að utan, en jafnframt verður að sótthreinsa þær hér. Unnar vörur úr ýmsum fyrrgreindum efnum fást þó inn- fluttar sótthreinsaðar. Allar ó- unnar búfjárafurðir eru í inn- flutningsbanni, svo og dýr og fuglar. Margt af þessu er bannað að flytja inn hvort eð er, en at- vinnumálaráðuneytið hefur oft veitt undanþágu svo sem um dýr og fugla. Meðan hætta er á,. að veikin berist til landsins, verða þó engar undanþágur veittar. Austanrok í Eyjum s,l, nótt HELDUR hvessti hressilega í Vestmannaeyjum í fyrri- nótt, og komst vindhraðinn upp í 15 stig, þegar mest gekk á, en það var milli kl. 4 og 5 um morguninn. ★ Veðrinu spáð Um kvöldmatarleytið í fyrra- dag voru þegar komin 8—10 vind stig, og smájókst stormurinn, þegar líða tók á nótt. Þessu veðri hafði verið spáð ,svo að sjómenn höfðu bundið báta sína tryggilega við bryggjur, en annars eru eyjaskeggjar jafnan viðbúnir stórviðrum og ganga því vel frá bátum sínum. Eng- inn bátur losnaði frá bryggju, þótt endi og endi slitnaði. Ekki urðu heidur nein'r skaðar á nús- um og msnnvirkjum, enda þak- járn fest rækdega í Eyj.rm vegna veðurlags. Sjómenn voru á vakki niður við höfn um nótt- ina, og fáum varð svefnsamt á heimilum. Urðu mörg sporin hús feðranna við að huga að glugg- um og lauslegu dóti úti við. Á 2 bátar úr höfn Ekki gekk sjór á land, þótt mikið flóðfylli væri um nóttina. Allir bátar — um 100 talsins — voru komnir inn í höfn, áður en veðrið skall á, nema 2 tog- bátar, Lundi og Gull-Þórir. Voru þeir í vari austur í Bugtum, undan Bjarnarey. í gær tók veðr ið að ganga niður og komu Bíl hvolfir í Straumi RAFMAGNSLAUST var á Sauð- árkróki eins og víða nyrðra í vik unni sem leið. Síðan á helgi hafa Sauðkræklingar þó notið raf- magns frá dieselvél síldarverk- smiðjunnar á Skagaströnd. KLUKKAN að verða þrjú í gær vildi það slys til suður hjá Straumi, að jeppabíll með þrem- ur mönnum valt út af veginum og slösuðust þeir allir eitthvað. Suðurnesjavegur var blautur um þetta leyti, og í brekkunni ofan í Straumvikina var slæm- ur hálkublettur. Þegar jeppinn, R-7959, kom að hálkunni, heml- aði ökumaðurinn, Árni Jónsson, Karfavogi 41. Rann bíllinn þá út í vegbrúnina og lenti með bæði hjólin á sömu hlið út af, steyptist síðan niður af vegin- um og á gamla veginn, sem liggur þarna í bugðu, og valt að lokum niður að tjörn. Munaði mjóu að hann lenti í henni. — Árni og félagar hans, Sigurður Einarsson, Akurgerði 19, og Guð mundur Jónsson, Hringbraut 56, komust hjálparlaust út úr bílflakinu. í sömu svifum bar að Hallgrím Árnason, leigubíl- stjóra i Hafnarfirði á G-245. — Var hann að koma sunnan úr Grindavik með sjómenn, en þeir buðu hinum slösuðu mönnum sæti sín. Var þeim ekið til Slysa varðstofunnar í Reykjavík, þar sem gert var að meiðslum þeirra. Munu þau ekki hafa verið mjög alvarleg. Guðmund- ur var lagður inn á Landakot. Líður honum vel, en verður rannsakaður nánar í dag. Bíllinn mun afar illa farinn; þakið klesst niður að sætum t.d. bátarnir inn um ellefu-leytið um morguninn, annar með 14—15 lestir, en hinn eitthvað minna. Þá voru þó enn 11 vindstig, og sá ekki í Yztaklett fyrir særoki. Brim var ekki mjög mikið. Seinni hluta dags i gær var kom ið bezta veður og sjö stiga hiti. Vestmannaeyingar eru nú orðn ir allfréttaþyrstir, þar eð póstur hefur ekki komið þangað síðan á föstudag. Reyndis! vera mænuveiki Heilsufar yfir höfuð gútt í TILEFNI fréttar sem blaðið birti sl. sunnudag um mænu- veikitilfelli, sneri það sér á ný til borgarlæknis í gær og spurðist fyrir um rannsókn sjúkdómsins. Komið er í ljós, að hér er um mænuveiki að ræða, en sjúklingurinn er barn á þriðja ári og hafði ekki verið bólusett. Þá sagði borgarlæknir að yfir höfuð mætti segja að heilsiufar væri gott nú í haust. Nokkuð hefði borið á iðra- kvefi og inflúensu án þess að um nokkurn faraldur væri að ræða. Friðrik enn efstur í GÆR fengust úrslit úr þrem biðskákum á skákmótinu í Hol- Iandi. Biðskák Lopez frá Spáni Ojanen frá Finnlandi varð jafn- tefli. Johanessen vann Schuster, en Skjöld og Lopez skildu jafnir. Röðin er þá þannig: Friðrik 5 vinninga, Teschner Wt og bið- skák, Duckstein i'A, Barendregt 4, Larsen 3‘A, Johanesen 3, Skjöld og Lopez 1 ‘A, Ojanen 1 og biðskák, Schuster 'A.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.