Alþýðublaðið - 03.12.1929, Blaðsíða 2
2
AtPÝÐUBUAÐia
í-1';
iSu
Bæ|arskðmm.
Af þeim 2S7 ibúðnm, sem taldsr er« heilsnspillandi
eða vafasamar í skýrslnm húsnæðisnefndar, ern 26
i húsnm, sem bærinn á.
Húsnæðisnefndin hefir látið
semja skrá yfir heilsuspillandi og
hættulegar íbúðir. Eru íbúðirnar
taldar par upp, tilgreint í hvaða
húsum ’þær eru og hvers vegna
'pær eru álitnar heilsuspillandi
eða hættulegar.
/ skrá pessarí eru taldar 25
íbúdir, sem bœrinn er eigandi ai5.
Er pad 10—11°/o af öllum hættu-
legum og heilsuspillandi íbúdum
í tbœnum, ad pví er skýrslan
hermir.
Fara hér á eftir þeir kaflar úr
skránni, er lýsa þessum íbúðum.
Nöfnum leigjendanna er slept.
Er þá fyrst ,;Bjamaborg“,
Hverfisgata 83. Þar eru taldar
upp 8 íbúðir. Skáletruðu orðin
em svör við spurningunni:
„Er íbúðin heilsuspillandi?"
Lýsingin er svona:
1. íbúð: vafasamt, fyrir jafn-
margt fólk, köld, lélegu standi.
2. íbúð: vafasamt, meðallagi
björt, rakasöm, köld lélegu standi,
afar-súgmikil, rennblaut i rigning-
um, rottugangur. [Og þetta er
kallað „vafasamt’*].
3. ibúð: já, meðalagi björt.
köld, hryllilegur inngangur.
4. ibúð: vafasamt, frekar dimm,
köld, lélegu standi. Rúmmál á
á fullorðinn 3,28 ms.
5. íbúð: vafasamt, meðallagi
björt, hryllilegur inngangur. Rúm-
mál á fullorðinn 4.34 m8.
6. ibúð: vafasamt, ekki rakafrítt,
köld. lélegu standi.
7. ibúð: já, meðallagi björt, köld,
óverjandi umgengni.
8. vafasamt, köld, meðallagi
björt, mjög slæmu standi.
Næst er Hverfisgata 92. Þar eru
3 ibúðir teknar á skrána:
1. íbúð: nei. ef íbúðin er sett
sæmilega i stand, þá er hún ekki
heilsuspillandi. Rúmmál á fullorð-
inn 7,23 m8.
2. ibúð: vafasarnt, dimm. ekki
frí við raka, of þröng 7 manns.
Rúmmái á fullorðinn 8,27 ms (5
börn).
3. ibúð: vafasamt, meðallagi
björt, ekki rakafrítí, alt of þröng
9 manneskjum.
t>á er „Sjáfarborg", Barónsstig 2.
Þar eru 2 ibúðir svona:
1, ibúð: já, köld, þröng, raka-
söm, Jélegu standi.
2. ibúð; já, afarköid, súgur, án
allra pæginda, lélegu standi.
I Suðurpól við Laufásveg eru
5 íbúðir, sem lýst er svo:
1. íbúð: vafasamt, ekki rakafrítt,
köld, alt of þrörig.
2. íbúð: vafasamf, rakasöm,
köld, alt of þröng.
3. íhúð: vafasamt, vegna mjög
I mikils kulda að vetrarlagi, raka-
söm.
4. íbúð: vafasamt, dimm, raka-
söm, köld.
5. íbúð: vafasamt, dimm, raka-
söm, köld, mjög slæmu standi.
Við Suðurpól er vatnsból í
húsagarði, en ekkert vatn í hús-
ínu.
Þá eru enn 7 íbúðir, sem eru í
þessum húsum og lýst er svo:
Holtsgata 14: já, meðallagj
björt, rakasöm, köld, lélegu
standi.
Seljaland við Laugaveg: já,
rakasöm, köld, mjög slæmu
standi.
Fossvogur: vafasamt, rakasöm,
köld, lélegu standi.
Bræðraborgarst., Einholt: já,
meðallagi björt, rakasöm, köld,
mjög slæmu standi, ekkert vatn.
Bergþórugata 10: vafasamt,
meðallagi björt, rakalítil, köld,
mjög slæmu standi.
.Höfn, Ingólfsstr.: já, þröng,
köld, dimm, mjög slæmu standi.
Rúmmál á fullorðinn 5,29 tenm.
Sama: já, vegna þrengsla og
loftleysis, köld, lélegu standi.
Rúmmál á fullorðinn 7,35 tenm.
Þessi skrá eða skýrsla þarf
ekki frekari skýringar við, Hún
er voðalegur áfellisdómur á borg-
arstjóra. Á sama tíma. sem bæj-
arstjórn er að láta rannsaka íbúðir
í húsum, sem einstakir menn eiga,
eru tugir af íbúðum í húsum bæj-
arins sjálfs, sem eru alls óhæfar
til íbúðar, sem enginn vafi er á
að eru stórkostlega hættulegar
heilbrigði íbúanna.
,Borgarstjóri svaraði því einu til,
er H, Q. á siðasta bæjarstjórnar-
fundi átaldi þessa óhæfu, að margar
af þessum íbúðum væru óaðfinn-
anlegar, skýrslurnar væru ekki
áreiðanlegar. Hló hann að Iýsing-
unum eins og þær væru skemtileg
fyndni. En lýsingarnar eruskýrarog
ákveðnar, þótt stuttorðar séu.
Önnur afsökun borgarstjóra var sú:
að í einu Selbúða-húsanna hefðu
verið miklu verri íbúðir, sem skoð-
unarmenn hefðu ekki talið hættu-
legar.
Þess þarf ekki að geta, að í
þessum íbúðum leigir eingöngu
fátækt fólk, flest sárfátæk gam-
almenni eða barnafólk. Margt af
þvi þiggur fátækrastyrk eða fær
okeypis húsnæði. Skýringarnar
sýna, að í sumum íbúðanna alast
upp mörg börn við ógurlega að-
búð og loftleysi og að þrengsli
eru afskapleg.
Svona er aðbúðin, sem þessir
fátæklingar njóta hjá Reykjavík-
urbæ.
En Reykjavík er ríkasti bær á
landinu. 1200-1300 menn eiga
hér yfir 50 milljónir króna skatt-
skyldra, skuldlausra eigna.
DRUKKNUN.
Þegar „Gullfoss“ fór vestur
síðast var Guðmundur Jónsson
frá Narfeyri meðal farþega á
honum á heimlið til Stykkis-
hólms. SkipiÖ kom ekki við í
Stykkishólmi og fór Guðmundur
því á land í Ólafsvík. Þaðan fór
hann út á Sand og var þar í
tvo daga eða þar um bil. Svo
fór vélbátur, sem Guðmundur
átti, fyrra sunnudag frá Stykkis-
hólmi til Sands til að sækja hann,
en fékk hvasfeviöri og komst ekki
að í ólafsvík, eins og ætlað var
í fyrstu. Var Guðmundur þá kom-
inn af stað á öðrum báti, og
mættust bátamir á leiðinni, en
þar eð veður var þá orðið mjög
hvast, snéru þeir báðir aftur.
Voru þeir Guðmundur síðan um
kyrt þangað til á þriðjudags-
morgun. Þá fóru þeir aftur á
stað frá Sandi á báti Guðmundar.
Voru þeir þrír á bátnum. Var
það, auk Guðmundar, Steinar,
sonur hans, og Sveinbjörn
Bjarnason skipstjóri frá Stykk-
ishólmi. Áttu þeir að sækja á
móti sjó og veðri, sem stöðugt
versnaði.
Þegar þeir voru komnir móts
við Búlandshöfða kom mikill leki
að bátnum. Reyndist orsökin vera
naglabilun við stefnið. Varð ekk-
ert við lekann ráðið og hleyptu
þeir því til lands upp á líf eða
dauða. Komust þeir nærri upp
að landi við Mávahlíðarhellu. Þar
er lendingarstaður. En þegar fá-
ir faðmar voru eftir að landi var
kominn svo mikill sjór í bátinn
að vélin stöðvaðist. 1 því reið
alda yfir bátinn og kastaði hon-
um svo nærri landi, að þeir feðg-
arnir Guðmundur og Steinar
stukku til landSj en Jentu
báðir í sjónum. Þó komust
þeir upp á land. Sveinbjöm var
einnig kominn fram í bátinn og
ætlaði líka að stökkva, en hikaði
við. í því tók bátinn lengra frá
landi og skolaði Sveinbimi þá
útbyrðis og drukknaði hann. Bát-
urinn sökk. Líkið rak á land
næsta morgun. — Bátinn rak
einnig upp á Mávahlíðarrif, mjög
brotinn.
Enn hafa þeir feðgar ekki kom-
ist heim frá ólafsvík vegna
hvassviðris og ekki hefir heldur
verið unt að flytja líkið til Stykk-
ishólms, svo sem ætlað er.
1 (Símfrétt frá Stykkishólmi.)
Eriemd sÍBnskeyti.
FB., 1. dez.
Þjóðaratkvæði um Youngsam-
þyktina.
Frá Berlín ér símað:
Ríkisþingið feldi í gær með
miklum atkvæðamun lagafrum-
varp þjóðernissinna um að banm
að staðfesta YoungsamþyRtina. —•
Þjóðaratkvæðagreiðslan um fmm<
varpið fer fram 22. dezember.
Frá sjómönnunmn.
FB., 2. dez.
Liggjum á Önundarfirði. Stöð-
ug ótið. Vellíðan allra. Kærar
kveðjur.
Skipverjar á „Þórólfi“.
Liggjum á önundarfirði. Vel-
líðan. Kveðjur.
Skipverjar á Karlsefni“.
Liggjum á önundarfirði. Vel-
líðan. Kærar kveðjur.
Skipshöfnin á „Svida“.
Liggjum á önundarfirði. Vel-
líðan allra. Kærar kveðjur.
Skipshöfnin á. „Arau.
Liggjum á Önundarfirði. Vel-
líðan allra. Kærar kveðjur til
vina og vandamanna.
Skipshöfnin á
„Kára Sölmundarsynrí.,
líggjum á ísafirði. Vellíðan.
Kærar kveðjur heim.
Skipverjar á „Belgaum“.
Liggjum á Dýrafirði. Vellíðan.
Kærar kveðjur til vina og vanda-
manna.
Skipverjar á „Arinbirni hersia,
Lággjum á Önundarfirði. Storm-
ur. Vellíðan allra. Kærar kveðjur
til vina og vandamanna.
Skipshöfnin á
„Hannesi rádherra
Liggjum á Önundarfirði. Vel-
líðan allra. Kærar kveðjur til
vina og vandamanna.
Skipshöfnin á „Skúla fógeta‘\
Liggjum á Patreksfirði. Vellíð-
an. Kærar kveðjur.
Skipshöfnin á „Otri“.
FB., 3. dez.
Lággjum á Önundarfirði. Vel-
líðan. Kærar kveðjur.
Skipverjar á ,,Baroanum“,
í Faxaflóa. Vellíðan allra.
Skipshöfnin á „Hilmi“.
»
Liggjum á Önundarfirði. Vel-
líðan.
Skipshöfnin á „Gullt.oppi“.
Liggjum á Dýrafirði. Vellíðan
allra. Kærar kveðjur.
Hásetar á „Valpole“.
Togararnir.
„Skallagi$mur“ kom af veiðum
í morgun með 106 tunnur lifrar.
„Ólafur" kom frá'Englandi i gær-
kveldi.