Alþýðublaðið - 07.12.1929, Side 3
ALÞÝÐUB*iAÐIS
3
50 anra. 50 anra.
Elephant - cig ar ettnr.
L|úffengar og kaldar. Fást alls staðar.
f heildsolu hfá
Töbaksmzlnn fslands h. f.
frestað vegna veikínda.
Fundurinn verður á laugardaginn kemur.
Hafnarfjörður.
Aætiunarferðir á
hverjum klukkutíma
allan daginn.
Frá Steindóri.
Ný bðfcc
Þrælahald og barna-
prælknn.
Laföi Simon, merk kona brezk.
hefir nýlega gefið út bók um
þrælahald („SIavery“, gefin út af
Hodder & Stoughton). Samkvæmt
upplýsingum lafði Simon er langt
frá -'því, að þrælahald sé enn úr
sögunni, því að hún telur vist, að
enn nú á dögum séu 4 milljónir
manna haldnir sem þrælar. Jafn-
vel í svo kölluðum kristnum
löndum er þrælahald enn al-
ment, t. d. Abyssiníu. Þrælahald
er lögbannað í brezkum lönd-
um, en þó kvað það enn
eiga sér stað í Sudan. Einna
mesta eftirtekt hafa þó vakið
lýsingar lafði Simon á barna-
þrælkuninni í Hongkong i Kína.
Mun brezka stjórnin vera að gera
ráðstafanir til þess að uppræta
harnaþrælkunina þar. (FB.)
Sendiherra RússaíBreta-
landi.
Gregory Sokolnikov, sem ný-
lega var skipaður sendiherra
Rússlands í Bretlandi, er 41 árs
tað aldri. Hann var einn af aðal-
fulltrúum Rússa við gerð friðar-
samninganna í Brest Litovsk
1915, sem leiddu til lykta ófrið-
inn á milli Rússlands og Þýzka-
lands. Hið rétta nafn Sokolni-
kovs er Gershon Yakovleich.
Hann er kaupmannsson af Gyð-
ingaættum. Hann fylgdi Trotsky,
og Zinoviev að málum í deilun-
um við Stalin, sem þó tók hann
í sátt síðar. (FB.)
„Kristur og kirkjukenningarn-
ar“, eftir Harald Níelsson há-
skólakennara, er mjög merkileg
bók.
Eins og mönnum er kunnugt
var höfundur meðal allrafærustu
ritsnillinga og mælskmnanna
þjóðarinnar, lærður vel í sinni
grein, áhugasamur um andleg
mál og röggsamur talsmaður sál-
rænna vísinda.
Frú Aðalbjörg Sigurðardóttir
hefir ritað formála bókarinnar, en
Einar H. Kvaran aðstoðað við
efnisval og prófarkalestur.
Efni bókarinnar er þetta:
„Friðþægingarhugmyndin i
Gamla testamentinu, Friðþæging-
arhugmyndin í Nýja testamentinu,
.Friðþægingarhugmyndin frá sjón-
armiði nútímans, Hvað er að
vera ltristinn? Trúin á Jesúm
Krist, Guðs son, í Nýja testa-
mentinu, Eitt af vandamálum
Nýja testamentis skýringarinnar,
Hvað Kristur kennir oss um
dauðann og Ég vil fylgja 'þér,
hvert sem þú fer.“
Bók þessi er skemtileg. Ber
margt til þess, • en ekki síst
mælska höfundar. öll alþýða
mun hafa eitthvert gagn af að
lesa bókina.
Höfundur segir ið sannasta,
sem hann' veit í þessum efnum.
Er erfitt að álykta rétt um hug-
arburð fornþjóða og þjóðsagnir
þeirra.
öðru máli er að gegna um
staðreyndirnar.
Höfundur þessarar bókar telur
víst, að líf þjóðanna yrði öðru-
vísi, ef menn breyttu eftir kenn-
ingum Krists.
Eitt viðfangsefni höfundar er
fæðingarsaga Jesú. Kemst höf-
undur svo að orðS:
„Lúkas guðspjallamaðiur segir
sjálfur frá ’þvi, að hann riti guðl-
spjall sitt eftir heimildum, sem
hann hafi athugað vandlega.
Elsta heimild fyrir fæðingarsögu
Jesú virðist hafa sagt Jesúm elzta
soninn fæddan í hjónabandi
þeirra Maríu og Jósefs.
Þegar menn síðar hugðu að
gera Jesúm guðdómlegri með því
að Iáta hann vera getinn af heil-
ögum anda, var þessu breytt og
hann talinn fæddur áður en þau
gengu í hjónaband. Fingraförin
eftir þá breytingu eru enn glögg
á guðspjallinu.“
Neðan máls ritar guðfræði-
kennarinn þetta:
„Það er álkunnugt, að sams
konar hugmyndir um „guðs-sonu“
eða yfirnáttúrlegcm getnað voru
til bæði meðal Babýlóníumanna
og Egypta, já, meðal Indverja,
Kínverja og fleiri þjóða. Sumir
fræðimenn telja því líklegt, að'
hugmyndin hafi komist inn í
kristnina annaðhvort frá Babý-
lóníumönnum eða Egyptum, þvi
að með þeim þjóðum voru t. d.
voldugustu konungarniT taldir
bæði guðs-synir og endurlausn-
arar og frelsarar mannkynsins,
af því að þeir voru brautryðjend-
ur nýs tíma.“
Prófessorinn segir þarna sögu-
legan sannleika. Sjálfur fellir
hann engan úrskurð um það,
hvernig jarðneskur líkami Krists
hafi til orðið. En i þessari sömu
ræðu segir hann:
„Ég trúi þvi með Páli og Jó-
hannesi, að Jesús hafi átt fortil-
veru, hann hafi komið úr guð-
legri dýrð oss til hjálpar og frels-
unar. Og með því, að ég trúi því,
hvernig ætti ég þá að neita þvi,
að hugsanlegt sé, að svo máttug
vera eða aðrar máttugar verur
hafi haft það vald yfir efninu,
að hún hafi með eins konar skap-
andi mætti getað hrundið af stað
myndun fóstursins í móðurkviði.
Vér vitum minna en það, að vér
séum færir um að neita slíku.“
Stórmerkilegt og eftirtektar vert
er það, sem höfundur ritar uro
geðveiklun og andlegar lækning-
pí. . i«|
Þá er óvanalegt og hressandj
að heyra prest byrja þannig
ræðu:
„Hver sá, er einhvemtíma hefir
átt kost á að læra grasafræði og
jafnframt hefir tamið sér að
skoða grös og jurtir, eins og þau
vaxa á jörðunni, hlýtur að hafa
Dollar.
Húsmæður, hafið hug-
fast:
að DOLLAR er langbezta
þvottaefnið og jafn-
framt það ódýrasta í
notkim,
að DOLLAR er algerleg
óskaðlegt (samkvæmt
áður auglýstu vottorði
f rá Efnarannsóknarstofu
ríkisins).
Heildsölubirgðir hjá:
Halldóri Eiríksspi
Hafnarstræti 22. Sími 175.