Morgunblaðið - 07.12.1961, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 7. des. 1961
MORGUISBLAÐIÐ
17
Kristín Þórðardóftir
DÁIN, horfin. Það er ávallt
harmafregn vinum og samferða-
fólki, þegar einn úr hópnum er
burt kallaður bak við dauðans
Ihjúp. Svo vár með okkur hjónin,
er við fréttum, að frú Kristín
Þórðardóttir, Miðtúni, 28, hefði
kvatt þennan heim sunnudaginn
26. nóvember eftir langvarandi
og þjáningarfull veikindi. Sárast-
ur er þó söknuðurinn hjá eigin-
manni, háaldraðri móður, tveim-
ur sonum og ungri fósturdóttur,
tengdadóttur og barnabörnum,
og vottum við þeim öllum okkar
dýpstu samúð og virðingu.
Frú Kristín Þórðardóttir var
fædd 13. janúar 1902 í Reykja-
vík og dvaldi þar allan sinn ald
ur utan tvö ár, er hún var í Dan-
mörku til náms og þroska, eins
og svo margir fslendingar hafa
gert fyrr og síðar.
Er heim kom, giftist hún hin-
um ágætasta manni, Einari Ara-
syni, verkstjóra hjá H f. Kol og
Salt, sem flestir Reykvíkingar
kannast við.
Frú Kristín var fögur kona,
svo af bar, brosmild, kurteis og
mjög vinsæl. Hún og maður henn
ar voru mjög samhent og bæði
á'hugasöm um að hlúa að og
prýða heimili sitt sem smekkleg-
ast utan húss og innan, enda
góðir hæfileikar fyrir hendi hjá
báðum. Leið þvi öllum vel, er
dvöldu á heimili þeirra og nutu
hinar góðu gestrisni þeirra. Allt
var svo fágað og vel tilreitt, að
fágætt má téljast, sökum hinna
miklu hæfileika húsfreyju, og
hafa þar margir að þakka, bæði
venzlafólk og vinir.
Minningin lifir. þó maðurinn
deyi. Svo mun einnig um þessa
góðu konu. Hún mun lifa í hug-
um allra, er henni kynntust, með
þakklæti fyrir samfylgdina. Sakn
aðarkveðja.
A. H.
— Ef velja
Frh. af bls. 13.
yrðu til þess að draga Katanga
inn í ringulreiðina, myndi hún
breiðast út yfir landamæri hér-
aðsins til Norður-Rodesíu og þar
með til Mið-Afríkusambandsins
Og jafnframt til Angola. Hags-
munir Breta og annarra Vest-
rænna þjóða krefjast því þess,
að Katanga sé haldið utan við
ringulreiðina í Kongó.
Á yfirborðinu eru þetta sann-
færandi rök — en í vissum atrið-
um mjög veik. í fyrsta lagi leyna
þau hinum mikla ugg vegna af-
stöðu samstarfsmanna Tshombes,
einkum hótana Kibwe um þjóð-
nýtingu Námafélagsins. Þau
ganga framhjá þeirri staðreynd,
að Tshombe hefur reynt að
gera samninga við Gizenga gegn
Adoula — og að Katangastjórn
hefur hótað að leita til Rússa
um aðstoð ef vinirnir bregðist.
Til áherzlu þeirri hótun hefur
stjórnin sent nefnd manna til
Tékkóslóvakíu til þess að kanna
undirtektir Rússa.
Alla vega eru þessi rök ekki
gild síðan sterk miðstjórn var
sett á laggirnar í Leopoldville
undir forsæti Adoula, forsætis-
ráðherra — sem er Belgum vin-
veittur og ekki andvígur öðrum
vestrænum ríkjum. Eftir mynd-
un þeirrar stjórnar varð að velja
— Elisabethville eða Leopold-
ville?
Jafnvel nú, þegar vestræn ríki
hafa valið Leopoldville, halda
fórsvarsmenn aðskilnaðarstefnu
Katangastjórnar áfram starfi
sínu og virðist sem brezka
stjórnin ljái þeim eyru með því
að hyggjast beita sér gegn því,
að valdi sé beitt gegn Katanga
—- ef svo fer að valdbeiting reyn
ist nauðsynleg.
Það er augljóslega í allra þágu
að mál þetta leysist á friðsam-
legan hátt. En hváð gerist ef
það reynist ókleift? Og hve lengi
er hægt að vænta þess að mið-
stjórnin í Leopoldville haldi að
sér höndum, meðan tilraunir eru
gerðar til þess að telja Tshombe
og hina vaidamiklu samstarfs-
menn hans á friðsamlegt undan-
hald.
Þolinmæði miðstjórnarinnar
virðist á þrotum. Meðan ein-
stök fylki standa utan við, getur
hún engar áætlanir gert um
stjórn landsins og fær raunar
vart staðizt sem miðstjórn. Það
hefur til þessa mistekizt að telja
um fyrir Tshombe, en af því
leiðir hættu á vaxandi and-
spyrnu Gizenga. Loks er þess að
gæta, að með hverjum mánuði
sem líður, aukast fjármálaerfið-
leikarnir vegna hins óstöðuga
stjórnmálaástands, kostnaðar við
fjölmennt herlið og vangreiðslu
skatta frá hinu auðuga fylki Kat
an^a.
Meðan svo fer fram getur sú
Orðið þróun mála, að Leopold-
villestjórnin klofni enh á ný, svo
sem gerðist, er þeim Kasavubu
forseta og Lumumba, forsætisráð
herra varð sundurorða.
Gizenga er kominn aftur til
Stanleyville — albúinn þess að
færa sér þar í nyt hinar mis-
heppnuðu tilraunir miðstjórnar-
innar til þess að ná völdum í Kat
anga. Tilraunir hans nú fyrir
skömmu til þess að taka fram
fyrir hendur miðstjórnarinnar
með því að senda hermenn inn
í Norður-Katanga, sýna hvert
hugur hans stefnir.
— En Gizenga er enginn Tshom
be. Hann hefur engin stjórnmála
samtök að baki sér, hann hefur
ekki fjármagn að styðjast við og
þeir liðsmenn hans, sem áhrifa-
mestir voru hafa haldið tryggð
við- miðstjórnina eftir að hann
fór frá Leopoldville. Þegar Kat-
angadeilan ér úr sögunni ætti að
vera unnt — í fljótu bragði, að
ráða niðurlögum áhrifa Gizenga,
þau eru eingöngu sprottin af bar
áttu hans gegn aðskilnaði Kat-
anga.
Hættan, sem fylgir þessu
ástandi er fyrst og fremst sú, að
svo lengi sem herrarnir Tshombe,
Munongo og Kibwe treysta
því að valdi sé ekki beitt gegn
þeim, munu, þeir halda til streitu
við miðstjórnina kröfum sínum,
sem hún getur ekki gengið að.
Við kunnum þyí ef til vill að,
komast að raun um, að i stað
áhrifamikilla aðgerða Sameinuðu
Þjóðanna til stuðnings miðstjórn-
inni í Leopoldville leiðist Kongó
enn á ný út í ringulreið — álíka
skelfilega Og þá sem fór á undan
hinu tilgangslausa morði á Pat-
rice Lumumba.
OBSERVER —
öll réttindi áskilin.
Til jólagjafa
Regnhlífar SlæSur, Herðasjöl, Samkvæmistöskur,
Skrautvörur, Undirtatnaður, Báby Doll, Náttkjólar
stórar stærðir, Sioppar í úrvali, Svefntreyjur,
Blússur, Pils, Peysur, Hanzkar, Hattar og húfur
glæáilegt úrval.
Verðlaíkkun — Póstsendum.
HATTA og SKERMABÚÐIN
Bankastræti 14.
Iðnaðarpláss
ca. 120 ferm. óskast til leigu.
Upplýsingar í síma 15379.
Keflavík
TILKYNNING frá Sjúkrasamlagi Keflavíkur
Þeir samlagsmeðlimir, sem óska að skipta um heim-
ilislækni tilkynni það á skrifstofu samlagsins fyrir
15. þ.m. Eftirtaldir læknar munu starfa á vegum
samlagsins frá næstu áramótum:
Arnbjörn Ólafsson læknir,
Björn Sigurðsson læknir,
Guðjón Klemenzson læknir,
Jón K. Jóhannsson sjúkrahúslæknir,
Kjartan Ólafsson héraðslæknir.
SJLKRASAMLAG KEFLAVÍKUR.
Afvinna
Stúlka óskast til starfa (á kassa) nú þegar.
Hátt kaup. Upplýsingar í síma 11112 í kvöld
milli kl. 6 og 7 og næstu kvöld.
Verzlun
Vefnaðarvara
Kjólaefni popplín 47/80 m.
Blússupoplín 47/80 m.
flónel einlit 19/20 m.
skyrtuflónel frá 47/40
Kakí hvítt 140 cm. 46/65 m.
léreft mislit frá 16/10 m.
lakaléreft 53/20 m.
fiðurhelt léreft 45/65 m.
Damansk 56/60 m.
flónel m/vaðmálsvend 22/75 m
tvistau frá 13/85 m.
Sirsefni frá 14/00 m.
RayOn efni frá 19/60 m.
fóðurefni frá 40/50 m.
viskustykkjadregill 22/10 m.
Popplín einlitt frá 30/— m.
Taft efni frá 65/— m.
Handklæði frá 31/—
Þvottapokar 8/20
skábönd, bendlabönd,
hlírabönd, rúllibukk
teygjubönd, margar gerðir
•ilkibönd, blúndur,
tvinni, tölur, krókapör
smellur.'rennilásar í miklu
úrvali
stoppnálar, saumnálar
maskínunálar, heklunálar
prjónar.
Fatnaður fyrir börn
Jerseypeysur frá 32/—
UUarpeysur frá 152/—
Golftreyjur 163/85
Barnaföt 166/—
telpubuxur frá 95/—
Ásg. Þorlákssonar Efstasundi 11
Drengjabuxur frá 115/—
telpna nærfatasett frá 47/65
náttföt 110/70
skyrtubolir 56/40
skjört 75/40
Bleyjubuxur 14/50
gammosíubuxur frá 96/—
Drengjavesti 65/—
sokkar, hosur, vettlingar,
slæður, drengjabindi, belti,
axlabönd, o. m. fleira.
Fyrir dömur
Skjört 100% nælon frá 67/85
Náttkjólar 113/—
coctailsvuntur 130/—
Nærföt settið 52/25
Buxur frá 23/35
Slæður mikið úrval verð
frá 38/—
treflar frá 45/—
Hanzkar frá 30/—
Sokkar nælon frá 40/—
Leistar frá 14/50
og margt fleira.
Fyrir herra
Skyrtur 98/—
náttföt 169/25
nærbolir frá 28/95
buxur frá 28/95
Vettlingar 76/50
Sokkar í miklu úrvali
verð frá 14/50.
belti, axlabönd
inniskór frá 59/30
vasaklútar og fl.
Glervara
Ávaxtasett frá 125/—
Skálasett frá 106/50
Bollapör frá 16/90
skálar margar stærðir,
verð frá 6/50
sítrónupressur 11/—
könnur margar gerðir,
verð frá 41/30
kökudiskar margar gerðir,
verð frá 20/70
vatnsglös frá 4/50
Matardiskar djúpir og
- grunnir 22/25
fiskföt frá 49/40
skálar frá 36/15
sósukönnur 52/90
smjör kúpur 23/—
og margt fleira.
Plastvörur
Skálar 5/25
Skálasett 3 í setti 70/—
Fötur, uppþvottaföt frá 58/50
Hnífakassar 53/—
Föt köntuð 51/80
Skálar fyrir ávexti 14/50
Hristarar 18/75
Vatnsglös frá 6/75.
Salt og pipar-box 9/10 settið
Mjólkurkönnur 48/85
- Eggjaskerar 14/50
Sápuskálar á baðker 46/—
og margt fieira
Búsáhöld
Kökuform, sleifar, raspar,
kartöflupressur, dósahnífar,
sigti, kaffibox, skálar, ausur,
fiskispaðar, þeytarar,
rjómasprautur 14/50
eldhúshnífar, kleinujárn,
brýnj, kartöflu flysjarar
hnífar og gafflar, desilítramál,
bollamál, kaffiskeiðar,
kaffipokar og hringir,
stál borðbúnaður
sett fyrir 6 manns frá 355/50
Tertuspaðar 59/50 og m. fl.
Leikföng
Af mörg hundruð tégundum
af leikföngum viljum vér
aðeins nefna:
Bíla frá 10/—
Bátar frá 10/—
Flugvélar frá 10/—
mekkanó, hjólbörur, traktorar,
jarðýtur, steypubílar,
olíubílar, kranabílar, sendi-
bílar, brunabílar, keiluspil,
Tíu negrastráka spil 20/—,
Lúdóspil 30/—
Mattadorspil 137/20
Umhverfis jörðina á 80 dögum
69/—
Kubbakassar, margar gerðir
Brúður, margar gerðir
frá 24/—
Vagnar frá 14/5
Kérrur frá 18/—
Baðker, brúðurúm 15/— stk.
PÓSTSENDUM
Bollasett, margar gerðir
frá 37/75
Vigtar 8/—
Gjafavörur
Vasar, kertastjakar,
veðurhús, burstasett,
sígarettukveikjarar,, hulstur,
penna sett, salt og pipar sett
3 gerðir, spiiabakkar 4 í kassa
Töfl og taflborð, 3 gerðir
verð frá 54/—
stofu-hitamælar,
glasabakkar í útskornu statívi
o. m. fl.
Skrautgripir
Hálsmen, eyrnalokkar,
perlufestar. hringir, nælur,
armbönd og fleira.
Jólavörur
Jólakort i miklu úrvali,
verð frá 1/—
Jólapappír, jólamerki, jóla-'
límbönd, jólabönd, jólatrés-
skraut, stofuskraut, jóladiskar.
og margt fleira.
Svo höfum við ýmsar
hreinlætisvörur, snyrtivörur,
ljósaperúr, öryggi 10 og
20 amper, myndabækur,
burstavörur í miklu úrvali
y o. m. fl.
Sími 36695
Verzlunin Efstasundi 11