Morgunblaðið - 07.12.1961, Qupperneq 24
1 "7 DACAR % i ií ríl itr itnr f oörSS’it M «7 DACAR
1 f TIL JÓLA f f fJjQy § TIL JÓLA
278. tbl. — Fimmtudagur 7. desember 1961
Valtýr og séra Friðrik í Vatnaskógi 1948
Vart fært um Norðurland
vegna snjóa
Heiðarnar fyrír sunnan
lokast ef hvessir
MIKIÐ hefur snjóað um nær allt
land að undanförnu. Vegir á
Suðvesturlandi voru þó yfirleitt
færir í gær, en eftir að komið er
norður í Húnavatnssýslu er orðið
nær ófært. Er þó reynt að brjót-
ast norður á Akureyri og þangað
með mjólk úr Fnjóskadalnum á
trukkum. Á Norðausturlandinu
eru vegir alveg lokaðir.
í gær leitaði blaðið frétta af
færðinni hjá Kristjáni Guð-
mundssyni, birgðaverði hjá Vega
málastjórninni. Hann sagði, að
fennt hefði á Hellisheiðina í
gær, en þar sem logn var og ekki
skóf neitt var heiðin enn fær.
Aftur á móti gæti hún lokast
fljótlega, ef hvessti. Sama var að
segja um veginn í Hvalfirði og
upp um Borgarfjörð. Þar var
enn fært.
gærmorgun. I>á kom áætlunar-
bíllinn á Strandir ofan í Forna-
hvamm og hafði verið hjálpað
yfir heiðina.
Hrútafjörður mikið til ófær
Síðan versnar ástandið á veg-
unum, þegar kemur í Húna-
vatnssýsluna. Hrútafjörðurinn er
mikið til ófær. Þar fór áætlunar-
bíll í fyrradag, en tafðist geysi-
lega og kom ekki á Blönduós
fyrr en seint um kvöldið. Var
ætlunin að halda þaðan áfram I
Skagafjörðinn. í bílalestinni
voru og stórir vörubílar, sem
ætluðu áfram lengra norður og
voru þeir seinni hluta dags í
gær komnir að Löngumýri. Hafa
víða Verið vegagerðarbílar til
hjálpar á vegunum, t. d. er bíll
með snjótönn á Svínvetninga-
braut.
í Skagafirði er talsverður
snjór, en þar hefur verið gott
veður í tvo daga, og því búið
að hreinsa að miklu leyti aðal-
leiðina. Var í gær farið alla leið
til Haganesvíkur.
Framhald á bls. 23.
Böðvar strandaði
út af Jökli
Séra Friðrík segir frá
Samtalsþættir efiir Valiý Stefdnsson
EINS og lesendum Morgunblaðs-
ins er kunnugt ræddi Valtýr
Stefánsson, ritstjóri, oft við séra
Friðrik Friðriksson. Nú eru
þessir samtalsþættir komnir út
í sérstakri bók, er nefnist Séra
Friðrik segir frá. Útgefandi er
Bókfellsútgáfan.
Samtalsþættirnir í bókinni eru
alls átta og bera heitin: Þegar
jólin komu inn í göngin í Garðs
horni. Fyrstu unglingafélög
séra Friðriks, Það var enginn
leikur, Á sjötugsafmæli séra
Friðriks, Þegar séra Friðrik kom
heim, Lindarrjóður í Vaglaskógi,
Hálfníræður kunni hann ekki að
ihvila sig og „Hvað er langlííi?
Lífsnautnin frjóa....“.
í upphafi bókarinnar er grein
eftir séra Bjarna Jónsson, er
nefnist Minning leiðtogans iifir,
en í lok hennar segir Gylfi Þ.
Gíslason, menntamálaráðherra
frá kynnum sínum af séra Frið-
rik.
Séra Bjarni Jónsson kemst
m. a. svo að orði: „Öll þjóðin
kannast við starf hins sívakandi
æskuleiðtoga. En nánir vinir
hans muna samverustundirnar,
er þeir voru vottar að fræðslu
hans og iðandi lífsfjöri, er ó-
gleymanlegar sögur voru sagðar
og lilegið var dátt, er leiftrandi
augu hans sögðu frá fjársjóði
hjartans, og gamansemin var í
fylgd með alvöru hins fróða
vinar. Menn hlökkuðu til slíkra
samfunjia og fóru fagnandi hei'm.
— Um þetta má lesa í köflum
þeim, sem hér á eftir fara. Þar
má heyra óminn af einkasamtali
Friðriks við nána vini. Þegar ég
les þessa kafla, er sem ég heyri
málróminn. sjái brosið og heyri
hláturinn, og ég hugsa: Þarna
er honum réttilega lýst. Hann
kemur til dyranna eins og hann
er klæddur já, þykir gaman að
því að koma vinum sínum á
óvart með ýmsum sérkennilegum
skoðunum."
Bókin er um 100 bls. að stærð,
fallega gefin út, og hana prýða
fjölmargar myndir.
Holtavörðuheiðin þun fær
Á Snæfellsnesi fennti, en var
hægviðri, svo allar áðalleiðir á
nesinu voru enn færar í gær, og
fóru bílar yfir Fróðárheiði,
Kerlingaskarð *g víðar. í Bröttu
brekkuveginn fennti nokkuð, en
hann var farinn í gærmorgun og
telst fær. Ef hvessir teppist hann
fljótt.
í gær fór bíll frá Hellissandi
til Akraness. Var hált og slæmt
veður og tók það hann allan dag-
inn og þar til sein,t í gærkvöldi
að fara þessa leið.
Holtavörðuheiðin var í gær
orðin þungfær, en var farin í
Taía bæjarstarís-
manna óbreytt í 4 ár
þótt íbuum bæjarins hafi fjölgað um 7 þus
Keflnvík - Bingö
SJÁIFSTÆÐI SFÉLÖGIN i
Keflavík efna til Bingó-kvölds í
Aðalveri í kvöid kl. 9. Aðalvinn
ingurinn í kvöld verður flugfar
fyrir tvo til Kaupmannahafnar
og heim aftur. Margir aðrir
glæsilegir vinningar 'verða veitt-
ir. Aðgangur er ókeypis.
GEIR Hallgrímsson borgar-
stjóri flutti framsöguræðu á
fundi Landsmálafélagsins
Varðar í gærkvöldi um fjár-
mál og framkvæmdir Reykja
víkurbæjar. Skýrði hann þar
m.a. frá því, að á sl. 4 árum
hefði starfsmönnum á skrif-
stofum bæjarins aðeins fjölg-
að um 2 þrátt fyrir það, að
bæjarbúum hefði á sama
tímabili fjölgað um 7 þús-
und. Taldi borgarstjóri, að
þetta bæri órækt vitni um
sparnaðarviðleitni bæjaryfir-
valdanna og yrði naumast
betur gert.
Þá kom borgarstjóri einnig
nokkuð inn á áætlunina Um, að
hitaveita verði lögð í öll bæjar-
hverfi innan 4 ára og benti á í
því sambandi, að í þessu tíma-
bili mundi þurfa 245 millj. kr.
til framkvæmdanna. Þessa fjár
þyrfti að afla með 70 millj. kr.
framlagi hitaveitunnar sjálfrar,
94 millj. kr. lánum innanlands
og 81 millj. kr. láni erlendis.
Skýrði hann frá því, að í næstu
viku mundu fulltrúar Reykjavík
urbæjar fara utan til viðræðna
við fulltrúa Alþjóðabankans um
þessa lánveitingu.
Meðal annarra atriða, sem
fram komu í ræðu Geirs Hall-
grímssonar borgarstjóra má
nefna þessi:
Flatarmál mal’bikaðra og stein
Framhaid á bls. 23.
SkHpverjum bjargað yfir í Harald
UM kl. 8.30 í gærkvöldi
strandaði Böðvar AK syðst
á Beruvíkinni. Haraldur AK
kom á vettvang og fór áhöfn
in á Böðvari, 11 menn, yfir í
Harald, sem ætlaði að sigla
heim til Akraness í nótt. —
Eigandi beggja bátanna er
Haraldur Böðvarsson & Co.
Kaupgjalds- og
verðla^smál
FRÆÐSLUNÁMSKEIÐ Verka-
Iýðsráðs og Óðins um atvinnu-
og verkalýðsmál verður haldið
áfram í Valhöll
í kvöld kl. 8,30.
Ólafur Björns-
son prófessor
flytur fyrirlest-
ur' um kaup-
gjalds- og verð-
lagsmál. Á eftir
fyrirlestrinum
verður málfund-
ur. Framsögu-
menn verða Magnús L. Sveins-
son og Haraldur Sumarliðason.
Ein stoínun innheimti
persðnuskatta
(Jtsvör, þinggjöld og sjukra-
samlagsgjald á einum staö
Blaðið náði í gærkvöldi tali
af Ingimundi Ingimundarsyni,
skipstjóra á Haraldi. Hann sagði
að á staðnum væri norðankaldi,
en hefði verið á véstan, þegar
báturinn strandaði. Um orsök
þess vissi hann ekki. Böðvar sat
fastur á skeri, og var lítill leki
kominn að honum, er mennimir
yfirgáfu hann skömmu eftir
strandið. Útfall var og taldi
Ingimundur ekki hætta á að
hann brotnaði meðan það væri.
Áhöfnin á Böðvari fór I
gúmmíbjörgunarbáti yfir í Har-
ald og gekk það vel, enginn
svo mikið sem vöknaði. Komu
þeir í tveimur ferðum og var
hafður strengur á bátnum. —
Skipstjóri á Böðvari er Valde-
mar Ágústsson.
I gærkvöldi heyrðust tveir
bátar tala saman í talstöð. —.
Kvaðst annar hafa reynt að
koma vírum á Böðvar en þeir
slitnuðu.
Böðvar er 84 lesta eikarbátur,
byggður í Svíþjóð 1947.
Sara í Sokkabúð-
inni látin
SARA Þorsteinsdóttir, kaup-
kona í Sokkabúðdnni lézt í gær-
morgun úr hjartaslagi á heimitt
sínu Mímisveg 4, en hún var bú-
in að eiga við vanheilsu að stríða
s.l. hálft annað ár. Sara var em
þekktasta kaupkona þessa bæj-
ar, búin að vera við afgreiðslu
síðan 1907, en hún byrjaði i
Tomsens magasin. Árið 1924
setti hún á stofn Sokkabúðina,
sem hún rak ásamt manni sín-
um, Sigurði Z. Guðmundssyni,
þar til hann lézt fyrir 2 árum, og
síðan með syni sínum.
í FYRRADAG voru lögð fyrir
bæjarráð drög að samkomulagi
um að sameina í eina stofnun á
vegum bæjarins alla persónu-
skatta, þ. e. þinggjöld, útsvar
og sjúkrasamlagsgjöld. Nú ann-
ast hver stofnun fyrir sig inn-
heimtu á sínum gjöldum, toll-
stjóri innheimtir þinggjöld, bær
inn útsvarið og sjúkrasamlagið
sín gjöld, en öll eru þau greidd
af sama fólkinu. Mundi því
verða mikill sparnaður að því
að sameina alla þessa inn-
heimtu, en stofnunin sem það
annast verður hluti af bæjar-
skrifstofunum.
Mál þetta hefur verið í und-
irbúningi nokkurn tíma á veg-
um hagsýsluskrifstofu bæjarins,
hjá aðalendurskoðanda ríkisins,
sjúkrasamlaginu og fleiri aðil-
um, og stendur nú í samning-
um. Málið verður endanlega
lagt fyrir bæjarstjórn innan
skamms og kemur væntanlega
til framkvæmda á næsta ári.
Hafnarfjörður
f VETUR hefir á vegum
Stefnis, fél. ungra Sjálfstæð-
ismanna, verið spilað bingó og
nokkur verðlaun veitt hverju
sinni. Hefir aðsókn verið frem
ur góð. — Nú í kvöld verður
spilað og er það í síðasta sinn
fyrir jól. Eru allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir.