Morgunblaðið - 04.01.1962, Síða 1
20 slður
Salazar hótar
úrsögn úr SÞ
Portúga’ar viðurl;enna
ekki hernám Góa
Lissabon, 3. jan. (NTB-AP)
SALAZAR, forsætisráðherra
Portúgals, hélt í dag ræðu í
portúgalska þinginu. Álasaði
hann Sameinuðu þjóðunum
fyrir að láta afskiptalausa
innrás Indverja í nýlendur
Portúgals á Indlandsskaga,
og sagði, að Portúgalar yrðu
áreiðanlega ein fyrsta þjóð-
in, sem segði sig úr samtök-
unum. Einnig sakaði hann
Breta um samningsrof og
sagði að portúgalska stjórnin
myndi endurskoða afstöðu
sína til Breta.
Viðurkennir ekki hernám Goa
í ræðu sinni kvað Salazar
portúgölsku stjórnina neita að
viðurkenna hernám nýlendn-
Salazar
anna á Indlandsskaga, og líta
á íbúa þeirra sem portúgalska
borgara.
Hann sagði ennfremur, að
lipp frá þessu myndi Portúgal
ekki hafa neitt samstarf við
SÞ, nema því aðeins að um
væri að ræða málefni, er væru
í þágu landsins sjálfs. Hvað við
kemur aðild okkar að SÞ, sagði
Salazar, krefjumst við vitneskju
um það hvort hún sé nú þegar
gagnslaus. Eg veit ekki ennþá
k ramhald á bls. 2.
Hollendingar lýsa ábyrgö
á hendur Indonesíu
Haag og Jakarta, 3. jan.
(AP-NTB).
KRAFA Indonesíu um að
Hollenzka Nýja Guinea sé
hluti af índónesíu var til um-
ræðu í hollenzka þinginu í
dag, eftir að Sukarno forseti
hafði í ræðu ítrekað kröfur
sínar. Joseph Luns utanríkis-
ráðherra Hollands flutti fram
söguræðu í þinginu. Sagði
hann kröfur Indónesíu vera
Ge’mskoti
frestað
Kanaveraihöfða, 3. jan.(AP)
TILKYNNT var á Kanaveral-
höfða í dag að ekki yrði unnt
að gera tilraun til að skjóta
geimski'pi með manni á braut
umhverfis jörðu fyrr en í
fyrsta lagi hinn 23. janúar n.k.
En áður mun hafa verið á-
ætlað að gera tilraunina hinn
16. jan.
Ekki var gefin nein ástæða
fyrir frestuninni, en talið er
að einhver bilun hafi komið
í ljós í Atlasflauginni, sem
átti að flytja geimskipið á
braut.
kúgunartilraun og ef Indónes-
íustjórn gripi til valdbeitingar
í Nýju Guineu hæri hún ein
ábyrgð á afleiðingunum.
— Hollendingar vilja gera allt,
sem í þeirra valdi stendur til að
koma í veg fyrir að Indónesia
beiti valdi í Vestur Nýju Guineu,
sagði Luns, en við munum ekki
gefast upp vegna stríðshótunar.
Hollenzka stjórnin hefur ætíð
verið, og er enn reiðúbúinn til
að gera sitt ítrasta til að finna
sanngjarna lausn á þessu deilu-
máli. En sá sem gengur að samn-
ingaborði þrátt fyrir það þótt
gagnaðilinn hafi lagt hnífinn á
borðið, fer ekjki til að semja held-
ur til að gefast upp — og það
vill Holland ekki gera.
ÁFALL.
Luns utanrikisráðherra sagði
að ef Indónesía gripi til vald-
beitingar, yrði stjórn landsins að
taka afleiðingunum. Árás Indo-
nesíu yrði ekki aðeins áfall fyrir
Hollendinga og íbúa Hollenzku
Nýju Guineu, heldur fyrir allan
heiminn. Og Indonesía yrði yfir-
lýstur árásaraðili. Þá vitnaði
Luns í áskörun U Thants fram-
kvæmdastjóra SÞ. á Indonesiu Og
Holland um að leysa deiluna með
samningum.. Lýsti forsætisráð-
herrann trausti sínu á U Thant
og kvaðst vona að hann yrði
jafn ötull framfevæmdastjóri SÞ.
og fyrirrennari hans, Dag Hamm-
arskjöld.
Þá benti Luns á að Hbllands-
stjórn hafi lagt tii að fela al-
þjóðasamtökum yfirumsjón með
Nýju Guineu en þeirri tillögu
verið hafnað. Engu að síður hafi
Hollendingar áfram verið reiðu-
búnir til samninga um málið, og
haldið áfram leirt að friðsamlegri
lausn.
Frh. á bls. 19
NEFND sú, er fjalla á um, á
hvern hátt verði með mestum
áranigri komið á 8 stunda
vinnudegi meðal verkafólks,
Kom saman á fyrsta fund sinn
í gær. Á myndinni sjást frá
vinstri: Eggert G. ÞorsteinS'
son ritari, Halldór E. Sigurðs
son, Pétur Sigurðsson formað-
ur, Björn Jónisson og Ingvar
Viihjálmsson. — Pétur Sig-
urðsson lét þe'ss getið, að áður
en nefndin hefji störf sín,
verði unnið að söfnun nauðsyn
legra gagna. En> nefndin skal,
sem kunnugt er, byggja til-
lögur sínar á athugun á lengd
vinnutuna, eins og hann er
nú, og áhrifum hans á heilsu-
far, vinnuþrek og affcöst; svo
og hag atvmnurekstrar.
(Ljósm. Mbl. Sv. ÞormóðsS.)
Stuttur þingfundur í Katanga
Tshombe var onnum kafinn
Elisabetlhville, 3. jan. (NTB)
KATANGAÞING kom saman í
Elisabethville í dag og var það
fyrsti fundur þess frá því hem-
aðaraðgerðir hófust milli Kat-
anga og Sameinuðu þjóðanna. En
fundurinn stóð aðeins í 10 mínút-
ur því þar mættu ekki nema 19
af 69 þingmönnmu. M.a. hinna
fjarstöddu var Moise Tshomhe
forseti, en hann var staddur í
Jadotville þar sem hann reyndi
að fá þigmenn staðarins til að
mæta á þinginu. Auk þessa var
þinghúsið rafmagnslaust og því
erfitt að halda þar þingfund.
NÝR FUNDUR BOÐAÐUR.
Þingið var kvatt saman til að
ræða samning þeinra Tshomibe og
Adoula, sem gerður var í Kitona i
í desember s.l. Samlkvæmt samn-
inigi þessum á Kataniga að sam-
einast Kongo og virða samlþykkt-
ir SÞ. Tshombe hefur haldið þvi
fram að samningur þessi taki
ebki gildi fyrr en þingið 1 Kat-
anga hefur staðfest hann.
Boðað hefur verið til annars
fundar á fimmtudag og er vonazt
til að fleiri þingmenn verði bá
komnir til Elisabetihville.
Auk Tshömibe voru þeir fjar-
staddir Charles Wa Dilomba for-
seti þingsins og Godefroid Mun-
ongo innanríkisráðherra. En þeir
komu báðir til þings hálfum öðr-
um tíma seinna og urðu undr-
andi yfir að þingfundi hafði verið
slitið, sagði Wa Dilomba að eng-
inn annar en hann sjálfur hefði
heimild til að setja eða slíta þing-
fundi.
vilja þeir
tiiraunabann
Moskvu, 3. jan. (NTB-AP)
í D A G var birt í Moskvu
yfirlýsing ríkisstjórnarinnar,
þar sem skýrt er frá því að
stjórnin hafi lagt til að samn
ingur um bann við tilraun-
um með kjarnorkusprenging-
ar í gufuhvolfinu, neðansjáv-
ar og á jörðu verði undirrit-
aður hið fyrsta. Yfirlýsing
þessi verður send afvopnun-
arnefnd Allsherjarþings SÞ.
í yfirlýsingunni segja Rússar
að nota megi fyrri tillögur
stjórnar Sovétríkjana um bann
við tilraunum sem grundvöll að
væntanlegum samningi. -— Þá
vísar stjórnin á bug þeirri stað-
hæfingu Vesturveldanna að Sov-
étríkin óski eftir afvopnun án
eftirlits. Segir í yfirlýsingunni
að Sovétríkin séu fylgjandi því
að komið verði á víðtæku eftir-
liti og hafi sjálf lagt fram til-
lögur þar að lútandi.
1 yfirlýsingunni saka Sovét-
ríkin Bretland, Bandaríkin og
Frakkland um að hafa komið í
veg fyrir að samkomulag næðist
um bann við tilraunum. Meðan
fulltrúar Breta og Bandaríkja-
manna sátu á ráðstefnu í Genf
um bann við tilraunum með
kjarnorkutilraunum voru Frakk
ar, sem eru bandamenn þeirra í
Atlantshafsbandalaginu, að gera
tilraimir með ,kjarnasprengjur á
Saharaeyðimörkinni, segir í yf-
irlýsingunni.
Castro
bann-
færður
Róm, 3. jan. (NTB)
EINN af sérfræðingum Páfa-
ríkis í kirkjurétti skýrir svo
frá, að Fidel Castro, forsætis-
ráðherra Kúbu, sé í banni ka-
þólsku kirkjunnar. Hafi hann
fallið sjáifkrafa í bann í haust
er hann. visaði kaþólskum bisk
upi úr lanui á Kúbu.
Bannfæringin er sjálfsögð
refsing við því að gera bisk-
up landrækan. Þarf kirkjan
ekki að gefa út sérstaka til-
kynningu, þegar þannig er í
pottinn buið.
Auk biskupsins hefur Castro
vísað 135 kaþólskum prestum
frá Kúbu.