Morgunblaðið - 04.01.1962, Side 5

Morgunblaðið - 04.01.1962, Side 5
Fimmtudagur 4. jan. 1962 MORGUNBLAÐIÐ 5 MENN 06 i= MLEPNI= Smáríkið Sikkim liggur í Himalajafjöllunum milli Nep al (að vestan) og Buthan (að austan). Að norðan liggur rík ið að Tíbet og að sunnan að Indlandi. Æðsti maðurinn í Sikkim nefnist Maharajah og sonur hans, ríkiserfinn, nefn- ist Maharjkumar. í desember s.l. trúlöfaðist ríkiserfinginn Hope Cooke, 21 árs Bandaríkjastúlku. Stjórn in í Sikkim hafði lengi rætt um það hvort leyfa ætti, að ríkiserfinginn kvæntist stúlk unni, því að þetta er í fyrsta sinn, sem Vesturlandabúi gift ist inn í ættina, er ríkir í land inu. Trúlofunarveizlan var hald in í konungshöllinni í Gang- tok, höfuðborg Sikkim, en hún liggur við rætur Himalaja fjallanna. Salurinn var skreytt ur villtum orkideum úr frum skógum landsins, rósum og öðr um blómum úr hallargarðin- um. Veggir hans voru þaktir silki, en á það eru málaðar myndir, sem sýndu líf og starf Buddha. Maharajahinn -af Sikkim fað ir hins tilvonandi brúðguma er 68 ára og hefur að mestu leyti falið syni sínum stjóm rík- isins, en íbúar þess eru 150 þúsund. Maharajahin stóð við hlið sonar síns, þegar hann dró demantshring á fingur unn,- ustu sinnar. Að því loknu steig hann fram og rétti par- inu hvítan sikliklút. Táknaði það blessun hans. Hope Cook er dóttir rikra foreldra, en þau skildu. Var telpunni þá komið í fóstur hjá Selden Chapin, sem er Kort þetta sýnir legu Sikkim. starfsmaður bandarísku utan- ríkisþjónustunnar. Hope gekk í skóla í Bandaríkjunum þar til hún var 15 ára, þá fluttist hún með fósturforeldrum sín- um til Iran. Þar fékk hún á- huga á austurlenzkri list og hóf hún nám í þeirri grein þegar hún kom aftur til Bandaríkj anna. Ríkisarfinn í Sikkim var kvæntur þariendri hefðar- konu, sem lézt fyrir fjórum ár- um. Þau áttu þrjú börn. Hann lærði vélaverkfræði í Ind- landi. Hjónaefnin hittust fyrir þremur árum á Indlandi og Hope segir, að það hafi verið ást við fyrstu sýn. Þau geta ekki gift sig fyrr en á árinu 1963, því að stjórnu fræðingar í Sikkim segja að þetta ár verði óheillaár fyrir ríkiserfingjann, likt og fyrir fjórum árum, þegar kona hans dó. íbúar Sikkim eru mjög á- nægðir með val ríkisarfans, en hann er mjög vinsæll með'al þegna sinna og verkamaður einn í Gangtok sagði: — Við vonum að hún veiti hinum góða ríkisarfa okkar ham- ingju. Ríkisarfinn í Sikkim. Hope Cooke. Hin tilvonandi brúður hans. Stúlka Hafnarf jörður Pökkunarstúlka óskast Vogaver — Sími 35390. til leigu forstofuherb. að Suðurgötu 21. Stúlka óskast Stúlka óskar strax. Uppl. í dag frá kl. 5—6. Prjónastofa Anna Þórðardóttir hf. Hallamúla 1 eftir atvinnu. Vön af- greiðslustörfum. Margt kemur til greina. Uppl. í síma 19364. Lítill bíll 4ra manna bíll óskast til kaups, ekki eldri en ’57 módel^ má vera ógangfær. Til'b. sendist Mbl. merkt „Staðgreiðsla — 7455“ Perkins Disel til sölu er Perkins Disel með gírkassa og öllu til- heyrandi, passar í Ford ’53 módel, hagstætt verð. Uppl í síma 18091. Atvinna íbúð óskast Konur, helzt vanar kápu- og buxnasaumi, óskast sem fyrst. Tilb. merkt „Mið- bær“ leggist inn á afgr. blaðsins fyrir laugardag. 1—2 herb. og eldhús óskast á leigu sem fyrst eða um næstu mánaðarmót. Fátt í heimili — Góð umgengni. Uppl. í síma 3-70-04. 1 stofa eða herbergi óskast fyrir reglusaman mann. Æskilegt að bílskúr fyígi. Ekki í úthverfi. Uppl í síma 35244. Sængur Endurnýjun gömlu sæng- urnar, eigum dún og fiður- held ver. Seljum gæsa- dúnssængur. Dún- og fiðurlireinsunin Kirkjuteit, 29. Sími 53301. ATHUGIÐ að borið saman að útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaðinu, en öðrum biöðum. — 2 herb. og eldhús óskast. Uppl. í síma 37682. Húshjálp óskast Stúlka óskast í vist allan eða hálfan daginn. Upplýsingar í síma I76l0. ...... "-v — Hvert ætlarðu Jón? — — Rolan þín ! .' ! Kaþólskur bílstjóri bað prest að blessa bíl sinn. Presturinn gerði það, en mælti síðan: En blessunin nær ekki nema til 60 km hraða á klukkustund. — x X x — Maður nokkur kom í heimsókn til kunningja síns sem ekki var heima. Þykkt lag af ryki var á píanpinu, svo að hann skrifaði: GRIS með fingrinum þar á. — Nokkru seinna kom hann aftur í heimsókn og sagðist hafa komið þangað fyrir nokkrum dögum. — Já, ég sá það, sagði kunninginn, þús skildir eftir nafnspjaldið þitt. Fimmtudaginn 28. des. s.l. voru gefin saman í hjónaband af séra Jóni Thorarensen, ungfni Oddný Sigurðardóttir, hjúkrunarkona, og Gylfi Snær Gunnarsson, verzl unarmaður. Á gamlársdag opinberuðu trú lofun sína ungfrú Hugrún Hall- dórsdóttir Réttarholtsvegi 69 og Ágúst Róbert Schmidt, Barma- hlíð 16. Á gamlársdag opinberðu trú- lofun sína ungfrú Ástrós Þor- ©teinsdóttir, Heiðargerði 25, Rvík og Ólafur Kristjánsson, verzlun armaður, Stykkishólmi. Á gamlársdag voru gefin taman í hjónaband af séra Árelíusi Ní- elssyni, ungfrú Anna Björg Jóns dóttir, skrifstofumær og Guð- mundur Garðar Þórarinsson, stud. polyt. Heimili þeirra er að Grettisgötu 40B. Á gamlársdag opinberuðu trú- lofun sína ungfrú Guðný Hall- dórsdóttir, Boghlíð 26 og Diðrik Hjörleifsson, Holti, Garði. Á aðfangadag opinberuðu trú lofun sína, ungfrú Ester Vigdís Ólafsdóttir, Kirkjuvegi 44, Kefla vík og Árni S. Guðmundsson, Hjarðarholti, Sandgerði. Á gamlársdag opinberðu trú- lofun sína ungfrú Anna Sigurð- ardóttir, skrifstofumær, Kambs- vegi 34 og Erlingur Kristjánsson, loftskeytamaður, Asgarði 75. í dag, 4. jan. verða gefin saman í hjónaband af séra Jóni Þor- varðssyni í kapellu Háskólans stud. phil. Erla Ófeigsdóttir, Mávahlið 21, Rvik, og stud. polyt. Ingvar Fálsson, Mánastíg 6, Hafn arfirði. Heimili ungu hjónanna verður fyrst um sinn í Stokk- hólmi. Á gamlársdag voru gefin saman í hjónaband af séra Jóni Þor- varðssyni ungfrú Guðlaug Sæ- mundsdóttir frá Egilsstöðum í Vopnfirði og Rolf Fougner Arna- son, byggingafræðingur (Vil- hjálmssonar, læknis). Hernili þeirra verður að Austurbrún 4. Trúlofun sína opinberðu á gaml árskvöld ungfrú Hrefna Filippus dóttir, skrifstofumær og Árni Gunnarsson, blaðamaður. 30. desember voru gefin saman í hjónaband í Dómkirlyunni ung frú Sigrún Björnsdóttir (O. Björnssonar) frá Akureyri og Ragnar Björnsson, tónlistarmað- ur, Túnsbergi við Starhaga. Faðir brúðarinnar gaf brúðhjónin sam- an. Pennavinir Bandaríska konu, frú Mary Hier- holzer, langar til að eignast pennavin á Islandi, Heimilisfang hennár er: 842 Mt. Pleasent St. New Bedford, Mass. U.S.A. 26 ára Bandaríkjamann langar til að skrifast á við íslenzka stúlku. Nafn hans og heimilisfang er: Carlton B. Smith, 3258 Acushnet Ave. New Bedford, Mass. U.S.A. Norskan frímerkj-.-afnara langar til að komast í samband við frímerkja- safnana hér á landi. Nafn hans og heimilsfng er: Arild Djupvik, Boks 46, Leknes í Lofoten, Norway. Frakka langar til að komast í bréfa- samband við íslenzkan frímerkjasafn- ara. Nafn hans og heimilisfang er: Sabatier G. \8, Bue JL-’ Val d’Aran, Toulouse, France. Ungan Dana langar til að komast í samband við íslenzkan frímerkjasafn- ara og segir að ef einhver vilji senda honum 50—100 mismunandi íslenzk frímerki , vilji hann greiða það með jafn mörgum frímerkjum frá Dan- mörku, Svíþjóð og Noregi. Nafn hans og heimilisfang er: Carl Engel, Langkærgaardsvej 32, Birkeröd, Danmark. Annan Dana langar til að skipta á frímerkjum við íslending. Nafn hans og heimilisfang er: Herman Cnristiansen, Vesterborgade 79 II. Köbenhavn V. Danmark. Norskan dreng langar til að eign- ast pennavin á íslandi. Nafn hans og heimilsfang er: Pál Biseth, Carl Gröndahlsvei 24, Oslo, Norge. Pál safnar frímerkjum og sjald- gæfum peningum, hann vill helzt skrifa á norsku, en getur skrifað ensku. Winfried Prochaska, 14 ára dreng í Vínarborg langar til að skrifast á við íslenzkan ungling. Áhugamál hans eru f rímerkj asöfnun, póstkortasöf nun, sund og bækur. Hann skrifar ensku, þýzku og dönsku. Heimilisfang hans er: Wien 10, Wienerfeld West, Soesergasse 141, Austria. ÓLÖF PÁLSDÓTTIR. Föroyngafélagið heldur trettandaskemtan friggjakvöldi 5. jan. kl. 9. í Tjarncafé. Stjórnin. Sendisveinn óskast að Lyfjaverzlun ríkisins. Umsækjendur komi til viðtals á skrifstofuna, Hverfisgötu 4—6, föstudag 5. janúar kl. 10—12. Atthagafélag Sléttuhrepps Munið jólatrésskemmtunina á föstud. 5. janúar í Breiðfirðingabúð kl. 3. — Dansað á eftir fyrir full- orðna kl. 9. Aðgöngumiðar fyrir börn kosta kr. 30. Nefndin. Húsmæðrðkennaraskóli Islands heldur 6 vikna matreiðslunámskeið sem byrjar 16. janúar. Uppl í síma 16145 frá kl. 12—4 næstu viku. SKÓLASTJÓRI. Heildsalar athugið Verzlun út á landi óskar eftir vörum í umboðssölu. Upplýsingar í síma 23344.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.