Morgunblaðið - 04.01.1962, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 04.01.1962, Qupperneq 6
6 MORGVNBL4Ð1Ð Fimmtudagur 4. jan. 1962 D'OIVl SIV'AL NÝLEGA var kveSinn upp í Hæstarétti d'ómur í máli, er frú Þóra Borg, leikkona, höfðaði gegn þjóðleikhússtjóra f.'h. Þjóð- leikhússins til greiðslu skaðahóta að upphæð kr. 120.944.01 ásamt vöxtum og málskostnaði. Stefnandi krafðist bóta af þeim sökum, að henni hafði verið sagt uipp leikstanfi við Þjóðleiíklhúsið frá 1. septemiber 1957, en ólheimilt Ihafi verið að slíta ráðningu henn- ar þar fyrr en 30. júní 1958. Þóra Borg réðist fastur leikari til Þjóðleikhússins með ráðning- arsamningi, svonefndum A-samn- ingi, 20. okt. 1949. Samningur þessi var síðar framlengdur, þannig, að skv. ákvæðum hans skyldi hann renna út 1. sept. 1957. Þ. 29. maí 1957 barst stefnandi bréf, þar sem tekið var fram, að samningur hennar rynni út 1. sept. 1957. Hinn 12. sept. reit stefnandi.stefnanda bréf er segir, að eins og hann hafi áður tjáð henni munnlega, verði samskon- ar samningur og hún hafi haft undanfarin ár við Þjóðleikhúsið ekki framlengdur, en minnir hana jafnframt á, að til'boð sitt um að gera við hana svonefndan B-samning standi til 25. sept. sama ár, en kjör skv. þeim samn- ingi eru lakari en skv. s.n. A- samningi. Þessu tilboði þjóðleik- hússstjóra hafnaði Þóra Borg með bréfi og taldi sig ekki geta fallizt á, að samningur sinn við Þjóðleikhúsið væri fallinn úr gildi. Reyndi frú Þóra síðan án árangurs með bréfaskriftum og ennfremur fyrir tilstilli Pélags ísl. leikara að ná mein.tum rétti sínum. Höfðaði hún því mál fyr- ir Bæjarþingi Reykjavikur í maí 1959. Kröfur sínar í málinu reisti stefnandi á 7: gr. laga um Þjóð- leikhús. þar sem segir: Leikár. telst frá 1. júlí til 30. júní. Ráðn- ingu starfsmanna Þjóðleikhúss- ins skal miða við leikár. Enn fremur á 13. gr. reglugerðar, sem sett var með stoð í þjóðleikhús- lögunum, en þar segir, að ráðn- ingarsamningar miðist við leikár eða frá þeim tíma er þeir ganga í gildi til loka leikársins, nema um ráðningu í einstök hlutverk 341 vistmaður á Grund og í Asi f ÁRSLOK 1961 vöru alls 317 vistmenn á Elli- og hjúkrunar- heimilinu Grund og 24 vistmenn á Elli- og dvalarheimilinu Ás í Hveragerði; samtals 341 vistmað- ur á báðum heimilinum.. Á Grund voru 243 konur og 74 karlar, en í Ási 15 konur og 9 karlar. Á árinu létust 59 konur og 31 karl, 41 kona og 18 karlar fóru, Og 102 konur og 44 karlar komu. sé að ræða. Hvor aðili, þjóðleik- bússstjóri og fastráðinn leikari, geti sagt upp samningi, enda sé það gert eigi síðar en þremur mánuðum áður en ráðningar- tíminn sé útrunninn. Þjóðleikhússtjóri krafðist sýknu og reisti sýknukröfur sínar á því, að umrædd 7. gr. væri frávíkj- anlegt ákvæði og því unnt að semja við einstaka leikara um annan starfstíma en þar segir. Allt frá stofnun Þjóðleikhússins hafi verið föst venja að miða við 1. september í ráðningarsamning um fastráðinna leikara. Stefn- anda geti ekki reist kröfur sín- ar á þessu, þar sem hún hafi svo lengi af frjálsum vilja samið um 1. sept. sem lokatíma ráðningar sinnar. Þá sé og viðurkennt, að stefnda hafi verið tilkynnt með rúmlega þriggja mánaða fyrir- vara, að samningar hennar rynnu út 1. sept. 1957. Þá hélt Þjóð- leilkhússtjóri því fram, að stefn- andi hafi fyrirgert öllum fjár- kröfum á hendur sér með því að hafna tilboði hans um að gera við hana svonefndan B-samning. Úrslit málsins í héraði svo og fyrir Hæstarétti urðu á sömu leið, að frú Þóra Borg ætti rétt á bótum úr hendi þjóðleikhús- stjóra. Segir í forsendum H*staréttar- dómsins, að ljóst sé af ákvæðum þjóðleikíhúslaganna, að fastráðn- ir leikarar séu opiniberir starfs- menn og því gildi um ráðningu þeirra og kjör reglur opinbers réttar. Síðan er vitnað í áður- nefnda 7.' gr. þjóðleikhússlag- anna, svo og í 13. gr. ofangreindr- ar reglugerðar. Síðan segir: Þegar gagnáfrýj- andi (frú Þóra Borg) réðst fastur leikari til Þjóðleikhússins með ráðningarsamningi dags. 20. okt. 1949 urðu framangreind ákvæði laga og reglugerðar þáttur af kjörum hennar, þar á meðal fyr- irmælin um, að ráðningu skyldi miða við leikárið 1. júlí til 30. júni að undanteknum upphafs- tíma fyrsta starfsárs. Það frávik í samningum, að eftirleiðis skyldi upphaf og lök ráðningar- tímabilsins miðað við 1. sept., hafði því ekki gildi. Þar sem ráðningarsamningur gagnáfrýj- anda var síðan framlengdur, fyrst um tveggja ára tímabil hverju sinni, en síðar frá ári til árs og uppsögn skv. 13. gr. reglugerðar fór ekki fram fyrir 1. apríl 1957 þ. e. þriggja mánaða uppsagn- arfresti ekki sinnt) framlengdist starfsráðningin skv. síðasta málsl. 13. gr. um tímabilið frá 1. júlí 1957 til 30 júní 1958. Ber því samkvæmt þessú að staðfesta þá úrlausn héraðsdóms, að gagn- áfrýjandi eigi rétt til bóta úr hendi aðaláfrýjanda (þjólðleik- hússtjóra) Um upphæð bótanna komst Hæstiréttur að sömu niðurstöðu og héraðsdómur, þ.e. að þjóð- leikhússtjóri skyldi greiða frú Þóru Borg kr. 70.944.01 í skaða- bætur með 6% vöxtum frá 30. júní 1958 til greiðsludags auk málskostnaðar fyrir báðum rétt- um samtals að upphæð kr. 21.000,00. JóSaumferðin í New York ÞETTA er svipmynd af um- ferðinni í milljónaborginni New York nú um hátíðirn- af. — Myndin var tekin 27. desember frá 41. stræti norð- ur eftir Ninth Avenue. Það virðist ekki árennilegt fyrir fótgangandi að komast yfir götuna. Hesturinn okkar kominn út TÍMARIT LANDSSAMBANDS HESTAMANNAFÉLAGA, Hest- urinn okkar, er komið út, að vanda prýtt fjölda mynda og á forsíðu litmynd. í þessu hefti eru greinar um fræga hlaupa- garpa eftir Einar E. Sæmundsen, íslenzka hesta á Grænlandi eftir Vigni Guðmundsson, um skeið AP-fréttastofan segir, áð hin gífurlega umferð í New York á almennum frídögum valdi borgaryfirvöldunum miklum áhyggjum og erfið- leikum. Menn geta varla undr azt það eftir að hafa séð þessa mynd. eftir Kristin Hákonarson um Blesastaða-Blesa eftir Bjarna Bjarnason, um hestaþing Loga og Trausta, um sinabólgur o.fl. Hestavísnaþátturinn er að þessu sinni langur og þar margar skemtilegar hestavísur, þ.a.m. nokkrar um Gunnar Bjarnason. Gamla myndin nær yfir heila opnu og sýnir stofnendur Frí- múrarareglunnar á hestbaki 1915 eða 1916. Heftið er 48 síður að stærð Og vandað að frágangi. • Þerriblaðsvísur Hannesar Fyrir nokkrum dögum fékk ég bréf frá G. Ág. sem byrjaði þannig: „Vegna aldarafmælis Hannesar Hafsteins finnst mér ástæða til að rifja upp eitt skemmtilegt uppátæki hans, sem skálds og mann- þekkjara, en það eru „þerri- blaðs-vísurnar“ svonefndu. Eins og flestum af eldri kyn- slóðinni a. m. k. er kunnugt, lék hann sér þar að því að gera þekktustu skáldunum ís- lenzku upp orðin með einni vísu um ómerkilegt efni, svo að öllum yrði gert jafnhátt undir höfði, hvað efnisval snerti. Valdi hann því þerri- blað að yrkisefni. Síðan hefi ég komizt að þvi, að furðu fátt af ungu fólki og jafnvel miðaldra kann þessar skemmtilegu vísur.“ Síðan stingur bréfritari upp á þvi, að Velvakandi birti vísurnar, fiásögn af „fæðingu" þeirra eða upphafi, svo unga fólkið fái tækifæri til að keppast um að þekkja stílinn. • Eftir hvaða höfundi er hermt f ljóðabók eftir Hannes Hafstein, sem ég hefi undir höndum, eru þessar vísur birt ar og er yfirskriftin: Þerri- blaðs-vísur. Eftis ýmsa ís- lenzka ljóðasmiði á 19. öld (Stælt í gamni. Ritað á þerri- pappír). Blaðið góða, heyr mín hljóð, hygg á fregnir kvæða mínar, minna Ijóða blessað blóð blætt hefur gegn um æðar þínar. II Því var þerriiblað í þegna heimi oft í eld hrakið að entu starfi, að það aldregi, sem önnuT blöð, dugði til kamars- né kramar-húsa. III Þurkutetur, þægðar'blað, þú, sem ástarklessur drekkur. Ljúít þú unir þér við það, þurkutetur, gljúpa blað. Hverf.ur þér að hjartastað hver einn lítill pennaflekkur, þurkutetur, þægðarblað, þú, sem ástarklessur drekkur IV Hvar sem hnígur hortittur, hlussum mígur ritvargur, brátt upp sýgur blekdrekkur bull, sem lýgur mannhundur. V Síðasti slagurinn er hann sló — settist á blaðið klessa. En með blaðinu þerri þó þurkaði ’ann vætu þessa. Rennvotar þerrar það rúnar VI Á himinskýjum skáldsins andi flaug sem skrítinn bláfugl eða apótek, og himinljósa-leiftur í sig saug líkt eins og þerripappír drekkur blek. VII Þerripappír þóknast mér, því hann drekkur, eins og ég. Blekaður því hann einatt er. Allt er þetta á sama veg. VIII Þerripappír, satt eg segi, sýgur, frá ég, ár og síð. Meir þó bergði Boðnar legi Bragi gamli á fornri tíð. Vísurnar eru 16 alls. Ekkl er rúm fyrir fleiri í dag. En nú geta lesendur byrjað aS ráða gátuna um eftir hverjum sé hermt í þessum fyrstu 8. Hinar birtast einhvern næsUl Þjóðleikhúsið dæmt til oð greida Þóru Borg skaöabætur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.